Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1991, Qupperneq 31
FIMMTUDAGUR 21. MARS 1991.
39
Fréttir
Ættfræðideild DV hefur bráðum starfað í Qögur ár:
Skrif að um f imm
þúsund manns
Kjartan Gunnar Kjartansson að störfum í ættfræðideild DV.
„Við höfum skrifað um 5 þúsund
íslenska einstaklinga frá því ætt-
fræðisíðum DV var hleypt af stokk-
unum. Þá eru ekki meðtaldar mjög
stuttar greinar, eða endurbirtar
greinar um fólk,“ segir Kjartan
Gunnar Kjartansson sem hefur um-
sjón með og hefur skipulagt ætt-
fræðideild DV. Hann hefur, ásamt
Sigurgeiri Þorgrímssyni ættfræð-
ingi, borið hitann og þungann af
starfi ættfræðideildarinnar frá upp-
hafi.
Fyrsta ættfræðisíðan í DV birtist
20. júní 1987. Frá þeim degi hefur
einni síðu verið varið í ættfræði- og
persónuskrif fimm daga vikunnar.
Um helgar hafa ættfræðisíðurnar
verið tvær þannig að sjö ættfræðisíð-
ur koma út í viku liverri árið um
kring.
Ættfræðideildin skrifar um ís-
lenska einstaklinga, störf þeirra, fjöl-
skyldur, ættir og frændgarð. Tilefni
skrifanna er þrenns konar: Stór-
afmæli, andlát eða að viðkomandi
einstaklingur hafi af einhverjum
ástæöum komist í sviðsljós fjölmiðl-
anna.
Auk þess sinnir ættfræðideildin
öðrum almennum ættfræðilegum
skrifum í DV og þá einkum í helgar-
blað. Af slíkum greinum hafa skrif
um ættir frú Vigdísar Finnbogadótt-
ur, forseta íslands, þar sem þær hafa
verið tengdar ættum konunga og
drottninga á myndrænan hátt, vakið
sérstaka athygli.
Afmælisgreinar birtast með eða án
ættgreiningar. Fertugir einstakling-
ar eru þeir yngstu sem skrifað er um.
Þá er skrifað vegna fimmtugsaf-
mæla, sextugsafmæla og sjötugsaf-
mæla og miðað við fimm ára tíma-
mót eftir það, 75, 80, 85 og svo fram-
vegis. Auk greinanna er birtur listi
yfir aðra þá einstaklinga sem eiga
afmæli þann daginn.
1500 bréf á mánuði
Þeir sem eiga stórafmæli í vændum
fá bréf frá ættfræðideild DV þar sem
kannað er hvort viðkomandi hafi
nokkuð á móti því að sagt verði frá
afmælinu þegar þar að kemur. Þeir
sem ekki v'ilja láta afmælis síns getið
tilkynna það umsjónarmönnum
deildarinnar og koma þannig í veg
fyrir nokkur skrif um afmæli sitt í
DV.
Bréfinu fylgir eyðublaö fyrir upp-
lýsingar um fjölskylduhagi, starfs-
feril, ættir og frændgarð. Sá sem vill
að afmælisgrein um sig birtist á ætt-
fræðisíðum DV skilar eyðublaðinu
til ættfræðideildarinnar ásamt ný-
legri mynd. Sendir deildin 1200-1500
bréf um allt land í hverjum mánuði.
Heimildir ættfræðideilarinnar eru
af fernum toga. í fyrsta lagi eru listar
yfir þá íslendinga sem eiga stóraf-
mæli hverju sinni. Listinn eru unn-
inn fyrir deildina af Skýrsluvélum
ríkisins með leyfi hagstofustjóra og
tölvunefndár. í ööru lagi eru andláts-
Ustar frá Skýrsluvélum þar sem
greint er frá andlátum síðastliðinn
mánuð. Fylgst er með andlátstil-
kynningum um einstaklinga sem ella
hefðu átt stórafmæli í mánuðinum.
Loks er ættfræðideildin í beinu
tölvusambandi viö sívinnslukerfi
þjóðskrárinnar. Þá er ónefnt glæis-
legt ættfræðibókasafn sem deildin
hefur yfir að ráða.
Hvunndagshetjurnar
Ættfræðisíðan er ein mest lesna
síða blaðsins og hefur veriö það frá
upphafi. Kjartan Gunnar segir að
áhugi á ættfræði sé orðinn mjög al-
mennur, ekki síst meðal yngra fólks
og fólks á miðjum aldri. Megi þakka
ættfræðisíðunni þennan aukna
áhuga auk blómlegrar útgáfu ætt-
fræðirita, námskeiðahalds og auk-
innar tölvueignar.
„Flestir taka skrifum okkar vel.
Við höfum skrifað mikiö um elstu
afmælisbörnin. Oft eigum við frum-
kvæði af að hafa samband viö þessa
einstaklinga og eigum við þá stór-
skemmtileg samtöl. Fjöldi þessara
einstaklinga er fæddur um og eftir
aldamót, hefur lifað búferlaflutning-
anna úr sveitunum og kreppuna og
unnið erfiðisvinnu á löngum starfs-
ferli. Þessir einstaklingar hafa frá
allt öðrum heimi að segja en þeim
sem við lifum og hrærumst í nú til
dags. Með því að skrifa um gamla
fólkið og lífskjör þess hefur DV brot-
ist út úr þeim fjölmiölaklafa sem
snýst eingöngu um örfáar þekktar
persónur, skoðanir þeirra og lífsstíl.
Við gleymum ekki hvunndagshetj-
unum,“ segir Kjartan Gunnar.
-hlh
Fjölmiðlar
Hvers vegna ekki fyrr?
Þátturinn á Stöð 2 í gærkvöldi um
forstjóra alríkislögreglunnar í
Bandaríkjunum, J. Edgar Hoover,
kom nokkuð á óvart. Kannski var
' það af þeim sökum að undirritaður
hafði ekki kynnt sér innihald þátt-
arins fyrirfram í öllu upplýsinga-
flóðinu.
Þarna var flett ofan af manninum
sem hefur setiö við völd stóran hluta
tuttugustu aldarinnar. Flestir, þar á
meðal Qölmargir forsetar Banda-
rfkjanna, haj'a óttast úpplýsingaöfl-
un og njósnir FBI og kúganir yfir-
manns þess. Enginn þorði að ýta við
Hoover þar sem karlinn og menn
hans söfnuöu upplýsingum í leyni-
skjöl um fólk sem eitthvað skipti
máli - leikara og embættismenn,
alla. Ekkert slapp, ekki einu sinni
þegar makinn var kysstur góðánótt
á kvöldin. Ef einhver var með múð-
ur var honum hótað og gripið til
aðgerða. Hoover sveifst einskis við
að eyða almannafé i þágu valds síns.
Af þessu leiddi að hann réö svo
miklu að FBI tókst aö hafa áhrif á
það hveijir léku í hvaða kvikmy nd-
um og hvað sagt var í þeim. Þetta
hafa Bandaríkjamenn látið viðgang-
ast meirihluta þessarar aldar.
Siðgæðisvörðurinn Hoover safn-
aði meðal annars upplýsingum um
einkalif leikarans Rocks Hudson.
En miðað við rannsóknir og niður-
stööur rannsóknarblaðamanna var
Hoover karlinn sjálfur samkyn-
hneigður og lét ástmann sinn um
tíma gegna stöðu næstæðsta manns
FBI. Þegar endalokin urðu voru þeir
svo jarðaðir í sama grafreitnum,
blessaðir.
J. Edgar Hoover dó árið 1972.
Tveir áratugir eru liðnir frá þvi að
karlinn fór undir græna torfu. Það
er í raun merkilegt að leyniskjölin
og upplýsingarnar, sem komu fram
í þættinum í gær, skuli ekki hafa
komið fyrr fram á sjónarsviðiö.
Sennilega hafa valdamenn, sem
lifðu Hoover, veriö eitthvað smeyk-
ir. Það má því búast við að næsti
þáttur í sama dúr fjalli um ástæður
þess aö leyniupplýsingarnar komu
ekki fyrr fyrir sjónir almennings.
Óttar Sveinsson
AUGLYSENPUR. ATHUGIÐ
SÍÐASTA BLAD FYRIR PÁSKA
kemur út miðvikudaginn 27. mars nk.
Stærri auglýsingar í það blað þurfa að
berast í síðasta lagi mánudaginn 25.
mars, fyrir kl. 17.
Auglýsingar - Þverholti 11
Sími 27022 - fax 27079
Veður
Norðan- og norðvestanátt, allhvasst eða hvasst um
landið austanvert en gola eða kaldi vestan til. FfK ;
að lægja norðanlands og austan með kvöldinu. Snjo^~'
koma og siðar éljagangur verður á Norðausturlandi
og Austurlandi en skýjað með köflum sunnanlands
og vestan. Hiti 1 til 4 stig að deginum suðvestan-
lands en annars vægt frost.
Akureyri
Egilsstaðir
Kefla vikurflug vollur
Kirkjubæjarklaustur
Raufarhöfn
Reykjavik
Vestmannaeyjar
Algarve
Alicante
Amsterdam
Berlín
Feneyjar
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
London
LosAngeles
Lúxemborg
Madrid
Montreal
Nuuk
Paris
Róm
Valencia
Vin
Winnipeg
snjókoma -2
úrk. í grennd -2
léttskýjað -1
skýjað 0
skafrenning- -2
ur léttskýjað -1
léttskýjað 0
heiðskírt 12
léttskýjað 9
léttskýjað 9
rigning 10
þokumóða 9
skýjað 13
skýjað 5
rigning 13
skýjað 9
skýjað 11
skúr 11
skýjað 9
heiðskírt -6
snjókoma -2
rigning 12
þoka 8
þokumóða 10
skúrás.klst. 9
léttskýjaö 0
Fiskmarkaðimir
Fiskmarkaður Hafnarfjarðar
Þann 20. mars seldust alls 105.347,26 tonn.
Magn í Verð í krónum
tonnum Meöal Lægsta Hæsta
Lúða 0,010 460,00 460,00 460,00
Uísi (Osl) 0,023 32,00 32,00 32,00
Þorskur(ósl) 5,019 103,76 98,00 106,00
Ýsa (ósl.) 0,216 94,49 90,00 100,00
Steinbitur 0,161 32,26 30,00 33,00
Koli 0,151 55,00 55,00 55,00
Ýsa 9,257 124.08 90,00 160,00
Þorskur 57,144 88.27 85,00 98,00
Keila 2,945 35,33 34,00 36,00
Ufsi 2,390 39,40 25,00 49,00
Karfi 25,617 35,93 35.00 36,00
Hrogn . 2,414 182,28 40,00 240,00
Faxamarkaður
Þann 20. mars seldust alls 70.527,54 tonn
Blandað 0,209 48.00 48,00 48.00
Gellur 0.027 295,00 295,00 295,00
Hrogn 0,299 40,54 25.00 195,00
Karfi 12,401 39,29 37.00 41,00
Keila 0.921 34,97 26,00 36,00
Langa 0,430 63,00 63,00 63,00
Lúða 0,298 395,49 355,00 425,00
Rauðmagi 0.718 80,32 75.00 95,00
Skata 0,373 123,00 120.00 125,00
Skarkoli 1,355 60,70 51,00 66,00
Skötuselur 0,019 520,00 520,00 520,00
Steinbitur 15,610 38,29 35,00 40,00
Þorskur 7,667 87,49 74,00 90,00
Þorskursmár 2,182 85,00 85,00 85,00
Þorskur(ósL) 18.583 89,27 70,00 113,00
Ufsi 3,275 44,18 30,00 48,00
Undirmálsf. 1,118 75,01 22,00 77,00
Ýsa, sl. 4,290 114,01 79.00 144,00
Ýsuflök 0,077 280,00 280,00 280,00
Ýsa (ósl.) 0,674 97,37 97,00 101,00
Fiskmarkaður Suðurnesja
Þann 20 mars seldust alls 168.254,50 tonn.
Ýsa (ósl.) 2,106 115,35 74,00 120,00
Ýsa (sl.) 2,049 86,27 78,00 111,00
Þorskur (ósl.) 0,900 62,56 62,00 63.00 ,
Þorskur(ósL) 58,014 95,12 50,00 114,00
Þorskur(sl) 1,969 83,47 62,00 91,00
Skarkoli 0,300 59,00 59,00 59.00
Loðna 42,083 9,46 9,00 10,00
Blálanga 0,069 44,00 44,00 44,00
Hlýri/steinb. 0,091 33,00 33,00 33,00
Skötuselur 0,484 140,00 140,00 140,00
Lúða 0,091 461,92 395,00 530,00
Blandað 0,444 10,00 10,00 10,00
Skata 0,107 82,97 50,00 86,00
Ufsi 32,342 40,30 30,00 52,00
Karfi 12,737 34,47 30,00 36,00
Steinbitur 9,983 35,03 25,00 37,00
Langa 1,511 47,55 20,00 53,00
Keila 2,974 24,15 15,00 30,00
Gengið
Gengisskráning nr. 56. - 21 . mars1991 kl.9.15
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Tollgengi
Dollar 58,490 58,650 55.520
Pund 104,916 105,203 106,571
Kan. dollar 50,534 50,672 48,234
Dönsk kr. 9.3248 9,3503 9,5174
Norsk kr. 9,1641 9,1892 9,3515
Sænsk kr. 9,7940 9,8208 9,8370
Fi. mark 15,0379 15,0791 15,1301
Fra. franki 10,5117 10,5405 10,7399
Belg. franki 1,7356 1,7404 1,7744
Sviss. franki 41,4089 41,5221 42,2205
Holl. gyllini 31.7320 31.8188 32,4394
Þýskt mark 35,7518 35,8496 36,5636
it. líra 0,04808 0,04821 0.04887
Aust. sch. 5,0828 5,0967 5,1900
Port. escudo 0,4099 0,4110 0,4181
Spá. peseti 0,5756 0,5772 0,5860
Jap. yen 0,42338 0,42454 0,41948
Irskt pund 95,324 95,585 97,465
SDR 80,0430 80,2619 78,9050
ECU 73,4868 73,6879 75,2435
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
MARGFELDI 145
PÖNTUNARSÍMI ■ 653900