Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1991, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 7. 'MAÍ 1991.
13
Lífsstíll
Fjallahjólin virðast vera vinsælustu hjólin núna, enda hægt að hjóla á þeim við nánast hvaða aðstæður sem er.
Reiðhjólaverslanir:
Geysihörð samkeppni
- mjög mismunandi þjónusta milli verslana
Mikil samkeppni viröist ríkja milli
reiðhjólaverslana og spretta upp ný-
ar verslanir og innflytjendur eins og
gorkúlur. Þó virðist sem markaður-
inn sé ekki að stækka neitt að ráði,
alla vega ekki neitt í líkingu við þá
fjölgun sem virðist hafa orðið á inn-
flytjendum. í fyrra voru flutt inn til
landsins um það bil 15.000 hjól sem
gera má ráð fyrir að hafi selst flest-
öll. Þrátt fyrir að vinsældir hjólsins
sem íþrótta- og farartækis séu að
aukast er ekki gert ráð fyrir að selj-
ist meira en 1-2000 fleiri hjól í ár en
á síðasta ári.
Fyrir nokkrum árum mátti telja
reiðhjólaverslanir á fingrum annarr-
ar handar. Nú eru þær orðnar fjöl-
margar. Eftirtalin fyrirtæki selja
reiðhjól hér á landi, eftir því sem
blaöamaður kemst næst; Örninn,
Fálkinn, Markið, Jöfur, Hvellur, GA
Pétursson, Hagkaup, Mikhgarður,
Húsasmiðjan, Ingvar Helgason og
Hreysti.
Of margir bítast um of fáa
Blaðamaður leitaði til Braga Jóns-
sonar, framkvæmdastjóra verslun-
arinnar Marksins í Ármúla sem hef-
ur verið einna stærsti söluaðilinn á
reiðhjólum á undanförnum árum.
„Ég get ekki sagt að markaðurinn sé
neitt aö aukast að ráði. Af tölum síð-
ustu ára sést að áriö 1988 voru flutt
inn 13.800 hjól en heldur færri árið
eftir eða 11.564 stykki. í fyrra voru
flutt inn liðlega 15.000 hjól.
Það er mjög erfitt að átta sig á hve
mörg hjól verða flutt inn í ár og það
er raunar ómögulegt að segja til um
það fyrr en að árinu loknu þegar töl-
ur hggja fyrir.
Hins vegar er ljóst að nú eru komn-
ir aht of margir söluaðilar á markað-
inn sem bítast um aht of fáa kúnna.
Markaðurinn ber þennan fjölda
hreinlega ekki og er fyrirsjáanlegt
að einhverjir verða undir. Eg vil taka
það fram að salan nú jafnast ekki á
við það sem hún var mest. Það var
árið 1980 en þá voru flutt inn um
25.000 hjól,“ sagði Bragi.
Of mikið um óvönduð merki
Jón Pétur Jónsson er einn nýrra
eiganda reiðhjólaverslunarinnar
Amarins. „Neytandinn sjálfur er
farinn að gera meiri kröfur til hjóla
nú en áður. Auk þess virðist vera
mikil hreyfing í þá átt að fjallahjólin
vinna á á kostnað „standard“-hjóla.
Fjallahjóhn eru mjög fjölhæf og hægt
að nota þau við nær allar aðstæður.
Þau eru yfirleitt frá 18-21 gírs og
útbúin mjög fuhkomnum bremsum.
Hins vegar era gæði hjólanna mjög
misjöfn eftir merkjum.
Ég hef þá trú að þau fyrirtæki sem
bjóða upp á góð merki og alhliða við-
gerðarþjónustu séu þau sem koma
til með að lifa af. Neytandinn beinir
sínum auknu kröfum th þeirra sem
bjóða upp á góða varahluta- og við-
gerðarþjónustu. Alla vega vorkenni
ég þeim sem eru í þessum svokallaða
sjóræningjabransa á markaðnum
því þau eiga eftir að verða fyrir áföh-
um. Hér eru fyrst og fremst þrjú
öflug fyrirtæki sem bjóða upp á góð
merki og aUa þjónustu. Það eru Fálk-
inn, Markið og við hjá Eminum.
Það má segja að þennan aukna
áhuga fólks á hjólreiðum megi tengja
að miklu leyti við líkamsræktar-
hreyfinguna. Áður fyrr þótti það
mjög hehsusamlegt að skokka en nú
eru menn ekki eins sannfærðir um
ágæti þess. Hjólreiðar eru hins vegar
mjög hoU og alhhða hreyfing sem á
aiíknum vinsældum að fagna meðal
almennings. Einnig hefur hjóhð í rík-
ari mæli orðið samgöngutæki hér á
landi eftir tilkomu fjallahjólanna.
Eftir að þau komu á markað er hægt
að ferðast á þeim áriö um kring.
Hins vegar vh ég benda fólki á að
viðhald íjallahjóla er mun meira en
venjulegra hjóla. Eigendur fjaUa-
hjóla skyldu því ávaUt gæta þess að
þau séu í góöu lagi,“ sagði Jón Pétur
aö lokum.
Viðgerðarþjónusta nauðsyn-
leg
Oskar Valdimarsson er eigandi
reiðhjólaverslunarinnar HveUs á
Smiðjuvegi í Kópavogi. „Við erum
frekar ungir á markaðnum en versl-
unin hóf starfsemi sína árið 1989. Ég
er sammála því að það eru orðnir
helst til margir innflytjendur á
markaðnum. Það eru hins vegar
mjög margir sem eingöngu flytja inn
hjól án þess að bjóða upp á nokkra
aðra þjónustu.
Hjól eru mjög viðhaldsfrek neyslu-
vara. Þeir sem eru ekki með viðgerð-
arþjónustu samhliða reiðhjólasöl-
unni geta náttúrlega ekki tryggt
rekstrargrundvöll sinn. Þessir aðhar
vísa á okkur hina með aUa vara-
liluta- og viðgeröarþjónustu og við
eigum að redda málmium. Það er
ekki eðhlegur viðskiptamáti í mínum
augum. Ég efast um hæfni þessara
fyrirtækja til þess að lifa af á þessum
harða markaði," sagði Óskar að lok-
um.
Sumarið er aðalvertíðin hjá reið-
hjólaverslunum. Að því loknu kemur
í ljós hvort markaðurinn ber aUa þá
aðUa sem bítast um kaupendur reið-
hjóla. Líkur benda til þess að ein-
hverjir verði undir í þeirri baráttu
og leggi upp laupana.
ÍS
Uppboð
Eftir beiðni bæjarfógetans i Hafnarfirði fer fram opinbert uppboð á reið-
hjólum og öðrum óskilamunum við lögreglustöðina Flatahrauni 11, laugar-
daginn 11. maí kl. 13.
Uppboðshaldarinn í Hafnarfirði.
AÐALFUNDUR TAFLFELAGS
REYKJAVÍKUR
Verður haldinn að Faxafeni 12, sunnudaginn 12.
maí nk. kl. 20.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
AÐALFUNDUR RAUÐA
KROSS ÍSLANDS 1991
Aðalfundur Rauða kross íslands verður haldinn í
Hafnarfirði 7,- 8. júní n.k.
Fundurinn verður settur í Hafnarborg, Strandgötu
34, kl. 20.00 föstudaginn 7. júní. Dagskrá sam-
kvæmt 16. gr. laga RKÍ.
Stjórn Rauða kross íslands.
Vinningstölur laugardaginn
4. maí 1991
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 1 2.664.211
O 4. 4af5^fM 4 115.785
3. 4af5 234 3.414
4. 3af 5 5.685 327
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.785.222 kr.
I Ath. Vinningar undir 12.000 krónum eru greiddir út
á Lottó sölustöðum.
wmamm
I i Í
HHi
PbMB
Áramótin eru á morgun j
Nýtt happdrættisár gengur formlega í garð á morgun þegar við
drögum í fyrsta flokki um 29,3 milljónir króna. Þar af er aðalvinningur 5
milljónir króna. Þetta er aðeins byrjunin, því samtals eru 288 milljónir í
vinninga í happdrætti DAS á nýja árinu.
Enn er hægt að eignast miða -
en nú fer hver að verða síðastur.
ae
-þarsem vinningarnir fást