Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1991, Síða 16
16
MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ 1991.
HAR-UÐI
(Hair Mist)
Hair Mist er úðaö í hárið og er
hægt að greiða hárið í 2-3 mínútur
eftir að úðað er.
Mjög hentugt fyrir tískuhárgreiðslur.
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
KLAPPARSTÍG
SÍMI 13010
SEÐLABANKI ÍSLANDS
IÐNÞRÓUNARSJÓÐUR
VERSLUNARRÁÐ ÍSLANDS
Morgunverðarfundur miðvikudaginn 3. júlí 1991
i Skálanum, Hótel Sögu, klukkan 8-9.30.
ENSKILDA SKÝRSLAN
UM HLUTABRÉFAMARKAÐINN
LÖGÐ FRAM OG KYNNT
Fyrirtækið Enskiida Corporate Finance hefur, að
frumkvæði fundarboðenda, gert úttekt á íslenska
hlutabréfamarkaðnum og lagt fram tillögur um þróun
hans í næstu framtíð.
Skýrslan verður lögð fram á fundinum. Eintök fást
keypt við innganginn.
KYNNING Elrikur Guðnason,
aðstoðarbankastjóri í Seðlabankanum
ÁLIT Sigurður B. Stefánsson,
framkvæmdastjóri VÍB hf.
Þorkell Sigurlaugsson,
framkvæmdastjóri hjá Eimskip
Fundurinn er opinn en áríðandi er að þátttaka sé til-
kynnt fyrirfram í síma 678910.
Aðgangur ásamt morgunverði kr. 800.
Fjölskyldu-
pakki
4.
pör á kr.
3.995
Nýleg var opnaður nýr veitingastaður í Stykkishólmi sem ber nafnið Knudsen. DV-mynd Kristján Sigurðsson
Nýtt hótel og veitinga-
staður í Hólminum
Kiistján Sigurösson, DV, Stykkishólmi:
Um mánaðamótin maí/júní voru
opnaðir hér í Stykkishólmi tveir nýir
staðir til að mæta þeim aukna fjölda
ferðamanna er hingað sækir.
Eyjaferðir, sem kynnt hafa fyrir
ferðamönnum dásemdir Breiða-
fjarðareyja, opnuðu hótel að Aðal-
götu 8 hér í bæ. Hótelið býður upp á
gistingu í 14 mjög vistlegum her-
bergjum. Hótelstjóri er Helga Harð-
ardóttir og starfsmenn eru þrír.
Einnig var opnaður hér nýr veit-
ingastaður sem heitir Knudsen h/f.
Þar er boðið upp á veitingar af öllu
tagi, allt frá hamborgurum til stórs-
teika. Á efri hæð hins nýja veitinga
staðar stendur til að innrétta setu-
stofu. Eigendur Knudsen h/f eru þau
Lárus Pétursson, Hafdís Knudsen,
Einar Kristjónsson og Katrín Knuds-
en. Starfsmenn eru sex.
Sífellt fleiri ferðamenn sækja
Stykkishólm heim og nú býðst þeim
enn betri aðstaða en fyrr.
Ólafsflörður:
Kirkjugarðarnir lagfærðir
Helgi Jónsson, DV, ÓlaMröi:
í sumar verða framkvæmdir á veg-
um Ólafsfjarðarsafnaðar í báðum
kirkjugörðunum; í bænum og
frammi á Kvíabekk. Að sögn Matthí-
asar Sæmundssonar, formanns
skólanefndar, er búið að byggja upp
tvær heilar leiðasamstæður í garðin-
um í bænum, en framkvæmdir við
þær hófust fyrr í sumar. Enn er eftir
að jafna þær, sá og gera göngustíga
á milli þeirra.
Frammi á Kvíabekk verður innan
skamms farið í að lagfæra austur-
bakka kirkjugarðsins, en þar var
byrjað að blása upp.
„Það var svo kalt heima. Þess vegna komum við til íslands," sagði þetta danska par, kankvist þar sem það naut
veðurbliðunnar á Egilsstöðum. DV-mynd Sigrún Björgvinsdóttir
Verkalýös- og sjómannafélag Fáskrúðsfjarðar:
Kaupir íbúð í Reykjavík
Glæsiskórinn - Glæsibæ - Simi: 812966
Skóverslun Helga - Mjódd - Simi: 75440
Skóverslunin - Laugavegi 97 - Simi: 624030
Ægir Kristinssan, DV, Fáskrúðsfirði:
í nýútkomnu fréttabréfi Verkalýðs-
og sjómannafélags Fáskrúðsíjarðar
er greint frá sölu á öðru sumarhúsi
félagsins á Einarsstöðum á Völlum.
Ástæða sölunnar er dræm aðsókn aö
húsunum. Samningur hefur tekist
við Rafiðnaöarsamband íslands um
kaup á húsinu.
VSF hefur í staðinn fest kaup á
íbúð í Reykjavík og þegar er bókað
í þá íbúð út ágúst. Ibúðin er leigð
hverjum eina viku í senn til að sem
flestir geti notfært sér hana. Eiríkur
Stefánsson, formaður VSF, sagði að
það hefði verið mikil nauðsyn fyrir
félagiö að eignast íbúö í Reykjavík
til afnota fyrir félagsmenn VSF eins
og aðsóknin sýndi glögglega.