Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1991, Page 17
MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ1991.
17
Fréttir
Verkalýðs- og sjó-
mannafélag Bol-
ungarvíkur 60 ára
Sigurður Ægisscm, DV, BolunganrQc
Verkalýðs- og sjómannafélag Bol-
ungarvíkur átti 60 ára afmæli mánu-
daginn 27. maí síðastliðinn og var
þess minnst með kaffisamsæti í
húsakynnum félagsins. Núverandi
formaður, Karvel Pálmason, sem
verið hefur í forystu félagsins frá 16.
febrúar 1958, hélt tölu og félagar í
Harmóníkufélagi Vestíjarða léku að
því loknu fyrir gesti utan húss sem
innan.
Við þetta tækifæri afhenti stjóm
félagsins slysavamasveitinni Emi í
Bolungarvík 400.000 krónur að gjöf.
Það var hinn 27. maí árið 1931 að
undangengnum tveim undirbún-
ingsfundum að haldinn var stofn-
fundur með því verkafólki í Bolung-
arvík sem bundist hafði samtökum
um að komg á fót verkalýðsfélagi.
Fundinn setti Hannibal Valdimars-
son, „kennari frá Álftafirði", eins og
segir í fundargerðarbók, „með því
að flytja erindi um samtök verka-
fólks yfirleitt".
Stofnendur félagsins vom 46, 21
kona og 25 karlar. Félagið hét upp-
haflega Verkalýðsfélag Bolungarvík-
ur en breytti um nafn síðar. Fyrsti
formaður var kosinn Guðjón Bjama-
son.
Karvel Pálmason formaður, Daði Guðmundsson varaformaður og Sigurður
Þorleifsson gjaldkeri stjórnar Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvíkur.
DV-mynd Sigurður Ægisson
Axel Thorarensen:
Kvóti á hverja tölvurúllu
Regína Thorarensen, DV, Gjögri:
Axel Thorarensen, Gjögri, er að
verða 85 ára og hefur stundað fisk-
veiðar aUt sitt líf þrátt fyrir að hann
sé orðinn slæmur í fótum.
Axel er á móti banndögum en hann
er fylgjandi kvótakerfmu. Hann seg-
ir að þeir sem hafa krókaleyfi veiði
oft miklu meira en þeir sem era með
kvóta. Kunningi Áxels á Norður-
landi, sem er með krókaleyfi og 3-4
tölvurúllur, fekk 50 tonn af þorski frá
áramótum til 20. júní. Axel vill láta
fylgjast með þessu og úthluta kvóta
á hverja tölvurúllu.
„Ég vil,“ segir hinn aldni sjómað-
ur, „líka benda sjávarútvegsráðu-
neytinu á að athuga betur með
þorskanetin en gert hefur verið. Þau
geta veitt og veitt þó ekki sé vitjað
um þau í fleiri vikur en það er sann-
kölluð rányrkja þegar ekki er haft
eftirlit með þessum netum.“
DV-mynd ERIS
Listamaðurinn Rafn Eiriksson við eitt verka sinna
Málverkasýning í Skaftafelli
Emar R. Sig., DV, öræfum:
Nú stendur yfir í Skaftafelli mál-
verkasýning Rafns Eiríkssonar, fyrr-
verandi skólastjóra í Nesjum.
Hann er Skaftfellingum að góöu
kunnur fyrir fyrri sýningar enda eru
flestar myndirnar málaðar af stöðum
í A-Skaftafellssýslu. Verkin em
landslags- og stemningarmálverk,
unnin með akrýl- og olíulitum.
Rafn opnaði sýninguna með kokk-
teilboði laugardaginn 15. júní í veit-
ingastaðnum Hótel Skaftafelli1 í
Skaftafelli.
Njóttu sólarinnar!
Láttu ekki vind og regn valda þér óþægindum
Gefðu fyrirtækinu nýtt, áhrifamikið
og aðlaðandi útlit.
Kynntu þér kosti VIKING sólþak-
anna. Á sólríku sumri er gott að geta
temprað heita sólargeislana.
Þetta á t.d. við um verslanir, skrif-
stofur, veitingahús, heimili og sumar-
bústaði.
VIKING sólþökin eru einmitt
hönnuð til að skapa skjólgott og þægi-
legt umhverfi til að geta notið góða
veðursins í ríkum mæli, jafnt úti sem
inni.
Þessi fallegu og sterku sólþök eru fá-
anleg f mörgum gerðum og litum auk
þess sem hægt er að fá þau áprentuð
með merkjum verslana og fyrirtækja.
SAMNOR,
Grensásvegi 8, 105 Reykjavík, sími 814448 / helgarsími 641090
T
PRINGUR I DAG!
SUMARSALA Á ÖLLUM
TEPPUM ÚT JÚLÍ
Lykkjuteppi 1QH
frá kr. JilU
Filtteppi Mn
frá kr. J JU
Turboteppi JjjQ
Parket-
mottur
frá kr.
1.500
15% afsláttur
af öllum gólfdúk
O.M. Búðin
Grensásvegi 14 - sími 681190