Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1991, Blaðsíða 20
20
MÁNUÐAGUR 4, JÚLÍ 1991.
Menning
Ingaló á grænum sjó kvlkniynduð á Flateyri:
Orlagasaga ungrar stúlku
Reynir Trauslason, DV, Flateyii:
Tökur á íslensku kvikmyndinni
„Ingaló á grænum sjó“ hafa staðið
yílr á Flateyri undanfarnar vikur.
Umhverfi myndarinnar er nútíma
sjávarþorp á íslandi með þeim kost-
um og göllum sem slíku samfélagi
fylgir. Saga myndarinnar er örlaga-
saga Ingulóar, ungrar stúlku í þorp-
inu, og koma þar fjölmargir við sögu.
Myndin mun lýsa lífi og kjörum fólks
í þorpinu og er víða komið við,
skipsskaði verður og drepið er á áhrif
kvótakerfisins á afkomu íbúanna.
Fjöldi leikara kemur fram í mynd-
inni. Sólveig Arnardóttir fer með
hlutverk Ingulóar. Auk hennar fara
Ásdis Thoroddsen leikstjóri er hér
ásamt Sólveigu Arnardóttur sem
leikur titilhlutverkið Inguló.
með stór hlutverk Bessi Bjarnason,
Magnús Ólafsson, Eggert Þorleifs-
son, Ingvar Sigurðsson, Þór Tulinius,
Björn Ingi Hilmarsson, Jón Hjartar-
son og Asa Hlín Svavarsdóttir auk
fiölda annarra.
Tolli eða öðru nafni Þorlákur
Kristinsson myndlistarmaður, kem-
ur fram í hlutverki útgerðarmanns
og hafa sumir úr þeirri stétt veruleg-
ar áhyggjur af túlkun hans á því
hlutverki en Tolli er Flateyringum
að góðu kunnur þar sem hann starf-
aði á Flateyri sem farandverkamað-
ur til skamms tíma.
Ásdís Thoroddsen er leikstjóri
myndarinnar en auk þess samdi hún
handritið. Áætlað er að tökum ljúki
í haust en þær fara fram utan Flat-
eyrar á Suðureyri, Drangsnesi og í Bessi Bjarnason er hér búinn að
Reykjavík. Kvikmyndafélagið Gjóla vefja sig inn í lopateppi, enda getur
h/f er framleiðandi myndarinnar. verið kalt að bíða milli atriða.
Gamanleikararnir Eggert Þorleifs-
son og Magnús Ólafsson leika
skipsbrotsmenn.
Myndlist í Perlunni
Meöal þess sem má sjá í hinni nýju
og glæsilegu Perlu eru ný myndverk
eftir myndlistarmenn sem prýða
veggi Vetrargarösins sem er á neðstu
hæðinni og mynda sérstaka mynd-
listarsýningu.
Sex listamönnum var boðið að gera
verk fyrir þessa sýningu. Eru það
Hulda Hákon sem sýnir tvö málverk,
sem gerð eru með blandaðri tækni.
Ásta Ólafsdóttir sem sýnir þrjú
myndvefnaðarverk. Ingunn Bene-
diktsdóttir sýnir steint gler og spegla
og eru verk hennar samtals sjö er
prýða innveggi Vetrargarðsins. Jón
Óskar sýnir tvö málverk unnin í olíu
og vax á striga. Ragnheiður á eitt
verk sem unnið er með kol á pappír
og Sigurður Örlygsson á einnig eitt
málverk sem gert er úr olíu á tré og
striga.
Öll eru verkin stór og tilkomumik-
il og fara ekki fram hjá neinum sem
koma inn í Perluna, ekkert er þó
stærra en málverk Sigurðar Örlygs-
sonar Saga, sem er 450x400 cm og
blasir við þegar komið er inn. Ann-
ars koma sérkenni hvers listamanns
Málverkin sem eru á veggjum Vetrargarðsins og sjást á myndinni eru eftir
Huldu Hákon og Jón Óskar.
Á þessum vegg eru steint gler og speglar eftir Ingunni Benediktsdóttur.
DV-myndir GVA
fyrir sig í verkunum og þótt mynd- tilkomumikla heild og væru veggirn-
verkin séu ólík þá skapa þau eina ir fátæklegir án þeirra. -HK
NHjánsýnaí
Akraborginni
í júlímánuði verður myndlist-
arsýning mn borð i Akraborginni
á verkum eftir nítján myndlistar-
menn. Ber sýningin nafnið Hafs-
auga. Tvær opnanir voru á sýn-
ingunni á laugardaginn, bæði í
Reykjavík og á Akranesi. Á sýn-
ingunni, sem er opin fyrir alla þá
sem ferðast með Akraborginni,
eru bæði málverk og skúlptúrar,
þá verður einnig boðið upp á
ljóðalestur. Sýning þessi er að
öllum likindum sú fýrsta hér á
landi sem haldin er um borð í
skipi. Sýningin stendur til 20. júlí.
Karlakdrinn
Heimirfærgóða
dómaíNoregi
Þóihalluj Asraundss., DV, Sauðárkróla:
Kórfélagar í Kariakórnum
Heimi eru nýkomnir heim úr vel
heppnaðri söngferð til Norður-
landanna sem stóð frá 6.-19. júní.
Lengstu viðdvöl hafði kórinn í
Noregi enda til fararinnar stofn-.
að vegna tengsla við fyrrverandi
stjórnanda kórsins, Sven Arne
Korshamn, og blandaða kórinn í
Stryn, en með þeím kór syngja
einmitt skagfirsku hjónin Sigurð-
ur Þorvaldsson frá Þrastarstöð-
um og Hallfríður Friöriksdóttir
frá Sauöárkróki. Norsku blöðin
fara mjög lofsamlegum orðum
um frammistöðu Heimismanna.
Kórinn var þátttakandi í kóra-
móti i Stryn þar sem sungu 13
kórar. í grein staðarblaðsins um
kóramótiö fær Heimir mestu
umfjöllunina. Sagt er að Heimir
hafi fengiö stórkostlegar mótttök-
ur. Heimismenn hafi staðið sig
frábærlega á báðum konsertun-
um og þeir orðiö að endurtaka lög
þó svo að ákveðið hefði verið að
ekki yrðu tekin aukalög enda
enginn timi fyrir slíkt. Norð-
mönnum kom á óvart að á efnis-
skrá Heimis voru nær eingöngu
íslensk lög en Norðmenn hafa
vanist því í seinni tíð aö þarlend-
ir kórar flyfií nær eingöngu er-
lend lög. Þá þótti einníg athyglis-
vert að einn kórfélaga var einn
af þremur islenskum biskupum,
Sigurður Guðmundssonr fyrrver-
andi vígslubiskup á Hólum.
íslenskmynd-
listíKöln
Sýning á íslenskri samtimalist
verður opnuð í Köln í næstu viku.
Á sýníngunni verða sýnd verk
eftir Kristján Guðmundsson,
Hreín Friðfinnsson, Ingólf Arn-
arson, Önnu Guðjónsdóttur,
Tuma Magnússon, Finnboga Pét-
ursson og Rögnu Róbertsdóttur.
Sýningarsalurinn, sem sýningin
verður í, Kölnischer Kunst-
verein, er virtur sýningarsalur
og hefur hann verið i fararbroddi
þýskra sýningarsala á undan-
fórnum árum. Þaö erheiðurfyrir
íslenska myndlist að fá inni í
þessum sýningarsal og verður
íslensk myndlist varla kynnt bet-
ur i Þýskalandi.
Öm Magnússon
píanóleikari
tilJapans
Helgi Jónsson, DV, Ólafefiröi:
Örn Magnússon, píanóleikari
frá Ólafsfirði, mun leika á jap-
anskri grund í haust. Um er að
ræða tónlistarhátíð i þremur
borgum í Japan sem veröur í
nóvembermánuöi næstkomandi.
Hátíðin mun standa í hálfan mán-
uð. Öm fer til Japans sem fulltrúi
íslands, en fór hans er samstarfs-
verkefni Norðurlanda og Japans
í menningarsamskiptum.