Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1991, Side 33
MÁNUDAGUR R JÚLÍ 1991.
49
i>v LífsstQI
-------- , —---------------------------------------' ■■■'■
Veljið bakpoka í samræmi við þarfir:
Hlaðið þungum hlutum of-
arlega og sem næst bakinu
Margar stærðir og gerðir af bak-
pokum eru á boðstólum. Áður en
bakpoki er keyptur þarf að vera ljóst
hvernig poka þörf er á. í dagsferðir
þarf lítinn poka en pokar til lengri
ferða þurfa að rúma mun meiri far-
angur. Ef fyrirsjáanlegt er að pokinn
verði mikið notaður þarf hann að
vera mjög sterkur en þá er pokinn
líka dýrari. En ákveðin atriði, sem
gilda um alla bakpoka, þarf að hafa
í huga áður en poki er valinn.
Gömlu pokarnir
illa hannaðir
Áður voru bakpokar breiðastir
neðst en mjókkuðu upp. Þannig kom
mestur þungi neðst í pokann og lagð-
ist á mjóhrygginn. Pokarnir voru
festir á járngrind sem leggjast átti á
mittið en grindin lá á baki þeirra
hávöxnu og á rassi lágvaxna fólks-
ins. Nú sjá allir hve illa þessir pokar
voru hannaðir.
Nýrri pokar eru þannig að breiðari
hlutinn er að ofan. Grindurnar eru
léttari og betur lagaðar.
Stærð pokans er mæld í lítrum. Ef
nota á pokann í langa göngu veitir
ekki af 60-80 lítra poka. Heppileg
stærð á dagpoka er 40-50 lítrar. Al-
mennt er ráðlegt að kaupa frekar of
stóran poka en of lítinn.
Léttir pokar
Bakpokinn verður að vera léttur,
íMss.
Flestir bakpokar í dag eru viðari að ofan. Hleðsla pokans skiptir miklu máli. Ef svefnpokinn kemst ofan i bakpokann
er best að hafa hann á botninum.
sterkur og nokkuð vatnsþéttur. Oft-
ast er nælonefni í bakpokum með
örþunna vatnsþétta himnu á innra
byrði efnisins. Efni pokanna er mis-
sterkt og fer nokkuð eftir notkun.
Gangiö úr skugga um að góður frá-
gangur sé á öllum saumum.
Vandaðri poka er hægt að stilla
eftir baki og stærð eigandans. Ál-
renningar, sem hægt er að móta eftir
bakinu, eru nú komnir í stað járn-
Neytendur
grinda. Áríðandi er að pokinn falli
rétt og vel að bakinu og mjúkir púð-
ar eiga að hlífa þvi.
Burðarólarnar eiga að vera vel
fóðraðar og mittisólin þarf að falla
vel að líkamanum og má ekki særa.
Allt sem ekki má
blotna í plastpoka
Meginreglan við hleðslu bakpoka
er sú að þyngri hlutir eru settir ofar-
lega í pokann og sem næst bakinu.
Það hlifir bakinu. Pakkið öllu sem
Betra er að velja stærri poka en
minni. Það kemur í veg fyrir að binda
þurfi mikinn farangur utan á pokann
en það getur leitt til þess að álag á
bakið verði óþarflega mikið.
ekki má blotna í plastpoka. Ágætt ráð
er að hafa stóran, svartan ruslapoka
innan í bakpokanum og setja allan
farangur ofan í hann.
Ef svefnpokinn kemst í pokann er
ágætt að hafa hann neðstan og pakka
fatnaði með honum. Æskilegt er að
þyngd farangurs sé ekki meiri en
25-30% af eigin þyngd í lengri ferð-
um. Stundum getur þó verið óhjá-
kvæmilegt að hafa meiri farangur en
göngumenn geta hugsanlega skipt
farangrinum með sér. -hmó
Von er á Prins Pólói aftur í verslanir eftir nokkra daga. Torkennilegt
bragð af hinni vinsælu sælgætistegund varð til þess að unnendur henn-
ar létu i sér heyra og innkölluð var sú sending sem þegar hafði borist
verslunum og söluturnum
Ókennilegt bragð veldur
neytendumvonbrigðum
-Prins Póló væntanlegt á markað aftur um helgina
hafði verið dreift í verslanir og sö-
lutuma. Þetta var aðeins hluti
sendingar og dreift hafði verið 40
kössum.
Fólk er greinilega á varðbergi og
verslunareigendur hafa sýnt þessu
mikinn skilning. Það er okkur mik-
ils virði að fá upplýsingar sem þess-
ar beint og við erum þakklátir
skjótum viðbrögðum neytenda.
Okkur þykir þetta mjög leitt en viö
reynum allt til að fá næstu send-
ingu eins fljótt og hægt er. 400 kass-
ar eru pantaðir og er von á þeim í
lok þessarar viku.“
Það Prins Póló sem fór illa í munn
og maga kröfuharöra íslenskra
neytenda verður endursent en nýtt
upplag verður væntanlega komið í
verslanir um helgina og geta lands-
menn þá væntanlega tekið gleði
sína á ný. -tlt
Landsmenn hafa orðið varir við
það undanfarið að ekki hefur feng-
ist hið eftirsótta súkkulaðikex,
Prins Póló. Of sterkt er í árina tek-
ið að tala um þjóðarsorg en vissu-
lega hafa margir komið vonsviknir
heim úr sjoppuferð. Ástæðan fyrir
skortinum er sú að kröfuharöir
neytendur gerðust tortryggnir er
þeir fundu ókennilegt bragð af eft-
irlætiskexi sínu. Þegar í stað var
innkallað allt það súkkulaði sem
þegar hafði verið sent til seljenda.
„Þetta uppgötvaðist nánast strax
en neytendur og verslunareigend-
ur létu okkur vita,“ sagði Bjöm
Guðmundsson, forstjóri heildversl-
unar Ásbjöms Ólafssonar. „í ljós
kom að skipt hafði verið um súkk-
ulaöi sem olli breytingum á bragði.
Við vildum ekki taka neina áhættu
og innkölluðum allt það sem þegar
Ending múrklæðningar er
mjög háð góðri framkvæmd
Vegna skemmda á akrýlklæðningu
á íbúðarblokkum byggingarsam-
vinnufélagsins Byggung hefur nokk-
uð borið á því að fólk hafi áhyggjur
af klæöningu af svipuðum toga. Er í
flestum tilfellum um aðra fram-
leiðslu að ræða en þá sem var tilefni
umtals í fjölmiðlum fyrir skemmstu.
Klæðning á ný hús og gömul
Múrklæðning er sett bæði á ný-
byggingar og eldri hús.
Er klæöningin mikið notuð á eldri
hús sem hafa verið illa farin af al-
kalí- og vatnsskemmdum. Þurrkast
veggir upp sem kemur í veg fyrir
frekari skemmdir.
„Aöalkostimir við þessa tegund
klæðningar er, auk þess að stöðva
skemmdir, að útlit hússins breytist
ekki nema að því leyti að það fær
andlitslyftingu. Af þeim sökum er
hægt að taka húsið í gegn í áfóngum,
taka til dæmis einn vegg í einu eða
gera aðeins upp hluta þess. Engin
samskeyti eru sjáanleg og á eftir er
húsið varið ágangi veðurs,“ sagöi
Hörður K. Guðmundsson hjá Vegg-
prýði.
„Verkið þarf að vinnast vel og því
erum við búnir að senda marga
tækni- og iðnaðarmenn utan. Með
því er leitast við að tryggja góða
ásetningu."
Klæðningin ver ný hús skemmdum
og ef hönnunin gerir ráö fyrir henni
í upphafi má hafa veggina þynnri en
ella vegna betri einangrunar.
„Einangrun er sett utan á húsið
með akrýlklæðningunni en ekki að
innan eins og tíðkast hefur hérlend-
is. Árangur hefur verið mjög góður.
Með þessu móti er meðal annars
hægt að færa 18 sentímetra þykkan
vegg niður í 14 ef hönnun hússins
Með akrýlklæðningu hefur i mörgum
tilfellum tekist að komast fyrir
skemmdir í útveggjum húsa. Rann-
sóknarstofnun byggingariðnaðarins
er að gera hlutlausa ástandskönnun
hérlendis og munu niðurstöður
liggja fyrir í haust og verður veitt
ráðgjöf á grundvelli þeirra.
DV-mynd GVA
gerir ráð fyrir því í upphafi," sagði
Amór H. Hannesson hjá Múrklæðn-
ingu.
Hlutlaus ástandskönnun
„Við erum að fara af stað með
ástandskönnun en nú er komin 10
ára reynsla á þessi efni, sem telst
marktækt. Viö erum að reyna að fá
haldbært yfirlit yfir þau og reynsl-
una af þeim. Niðurstöður eiga að
liggja fyrir í haust og getum við veitt
ráðgjöf á grundvelli þeirra," sagði
Hákon Ólafsson, forstjóri Rannsókn-
arstofnunar byggingariðnaðarins.
„Þetta er viðurkennt annars strað-
ar á Norðurlöndum en þaö eru aðrar
aðstæöur hér svo að við veröum að
gera okkar eigin könnun. Við höfum
dæmi um lélega og góöa hluti en
fáum helst vitneskju um það sem
hefur misfarist. Það er vaxandi notk-
un á múrklæðningu og því tímabært
að gera hlutlausa úttekt hérlendis.
Við fáum íjármagn frá óhlutdrægum
aðilum og gefum út skýrslu með
haustinu sem er öllum aðgengileg."
Klæðning
Klæðningin er sett þannig á aö úti-
veggir eru háþrýstiþvegnir og grun-
nefni borið á. Aö því loknu er ein-
angrun límd á veggi, sem er þó ekki
nauðsyn, og „trefjamotta" dregin
upp á hana með trefjastyrktu fylli-
efni. Að síðustu er sjálf „kápan“ sett
á og er hún úr akrýlefni með marm-
arakornum sem eru mismunandi
gróf. Um 400 litir eru fáanlegir sem
er og endanlegur litur á klæðning-
unni.
Ástæða þess að klæðningin skilar
ekki tilætluðum árangri getur legið
í gæðum efnisins. Ef ekkert er við
þau að athuga er ásetningin það sem
skiptir aðalmáh. Efnið er vatnsþynnt
og ef það frýs áður en það þornar er
það ónýtt. Því má efnið aldrei fijósa
í ásetningu.
-tlt