Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1991, Side 34
50
MANUDAGUK 1. JÚLÍ 1991.
Afmæli
Sigríður Guðvarðsdóttir
Sigríöur Guövarðsdóttir hjúkrunar-
fræðingur, Smáragrund 4, Sauöár-
króki, er sjötug í dag.
Starfsferill
Sigríöur er fædd og uppalin í
Reykjavík. Hún fluttist til Sauðár-
króks ári 1956 og hefur búiö þar síö-
an.
Hún lauk gagnfræðaskólaprófi í
Reykjavík 1934 og prófi í hjúkrun frá
Hjúkrunarskóla íslands 1946. Sig-
ríður fór í framhaldsnám í geð-
hjúkrun viö Kleppsspítala 1947.
Sigríður var hjúkrunarfræðingur
við Landspítalann 1947-1949 og við
Kleppspítalann 1949. Deildarhjúkr-
unarfræðingur við Landspítalann
1949-1950 og 1952-1953. Hjúkrunar-
fræðingur við Karolinska Radhem-
met og Norrbacka Institut í Svíþjóð
1953. Yfirhjúkrunarfræðingur við
sjúkrahúsiö á Sauðárkróki 1962-
1964. Skólahjúkrunarfræðingurá
Sauðárkróki.
Sigríður var í stjórn bamavernd-
arnefndar Sauðárkróks í tólf ár og
í sjúkrasamlagsstjóm þar í nokkur
ár.
Hún var fyrsti varaþingmaður
Norðurlands af D-lista 1974 og sat á
þingi um tíma.
Fjölskylda
Sigríðurgiftist, l.júni 1950, Fr.ið-
riki J. Friðrikssyni, f. 17.2.1923, hér-
aðslækni í Skagafirði og Norður-
landi vestra. Foreldrar hans voru
María Jónsdóttir kennari og Friðrik
Klemenz, kennari og póstmaður.
Sigríður og Friðrik eiga eitt fóstur-
barn, Oddnýju Finnbogadóttur, f.
11.11.1948, bókasafnsfræðing á
Sauðárkróki, maki Björn Friðrik
Björnsson kennari, þau eiga þijár
dætur: Emmu Sigríði, Ástu Sylviu
og ÖlmuEmilíu.
Systkini Sigríðar eru Svava Jó-
hanna, f. 11. mars 1923, maki Guð-
mundur Birgir Valdimarsson, f.
1921, járnsmiður, bæði látin. Þau
áttu fjögur börn; Helga, f. 6.12.1924,
barnlaus, búsett í Reykjavík; Guð-
varður, f. 1928, dó barnungur; Sverr-
ir, f. 30.9.1930, stýrimaður, maki
Sigríður Bjarnason, þau eiga fimm
börn og eru búsett í Mosfellsbæ;
María, f. 24.5.1932, d. 1991, maki
Guðbjartur Ólafsson, sjómaður og
bílstjóri í Reykjavík, þau eiga einn
son. María var áður sambýliskona
Bjarna Haraldssonar á Sauðárkróki
og áttu þau tvær dætur; Guðmund-
ur, f. 14.10.1933, verkamaður í
Reykjavík, maki Kistbjörg og áttu
þau tvær dætur. Hann er látinn;
Jakob, f. 14.101933, bílstjóri í
Reykjavík, hann á fjögur böm.
Samfeðra: Gunnar Eyjólfsson,
leikari og skátahöfðingi.
Foreldrar Sigríðar voru Guðvarð-
ur Þórarinn Jakobsson, f. 18.1.1900,
d. 19.10.1959, bifreiðarstjóri í
Reykjavík, og Oddrún Sigþrúður
Guðmundsóttir, f. 8.9.1900, d. 17.4.
1951, húsmóöir. Þau bjuggu lengst
afíReykjavík.
Ætt
Foreldrar Guðvarðar voru Jakob
Gunnarsson, bóndi í Hraunsholti í
Garðahreppi, og Helga Eysteins-
dóttirhúsmóðir.
Foreldrar Oddrúnar voru Guð-
Sigríður Guðvarðsdóttir.
mundur Sigurðsson, verkstjóri í
Reykjavík, og Sigríður Bergsteins-
dóttirhúsmóðir.
Sigríður verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Sigfríður Margrét
Vilhjálmsdóttir
Sigfríður Margrét Vilhjálmsdóttir
jógakennari, Kjarrhólma 8, Kópa-
vogi, erfertugídag.
Starfsferill
Sigfríður er fædd í Hafnarfirði en
alin upp í Reykjavík. Hún gekk í
• Miðbæjarskólann og var í sveit á
sumrin á unglingsárum. Hún hefur
unnið mikið við verslunarstörf.
Sigfríöur vann í söluturni Sólveig-
ar Eiríksdóttur á Hlemmi og í Tvist-
inum við Skólavörðuholt. Hún var
einnig starfsmaður í Kjötmiðstöð-
inni viðLaugalæk.
Sigfríður hefur starfað sem jóga-
kennari undanfarin 5 ár. Hún rekur
Jógastöðina Heilsubót í Hátúni 6a
ásamt eiginmanni sínum.
Fjölskylda
Sigfríöur er gift Krsta Stanojev, f.
5.4.1944, íþróttakennara frá Júgó-
slavíu. Foreldar hans: Andja og Mi-
roslav Stanojev, hann er látinn en
hún býr í nágrenni Belgrad í Júgó-
slavíu.
Sigfríður og Krsta eiga þrjú börn,
Miroslav, f. 24.11.1969, iðnskóla-
nema, Sóleyju Erlu, f. 18.4.1972,
starfsm. hjá BSÍ, Boris Jóhann, f.
Sigfríður Margrét Vilhjálmsdóttir.
12.11.1973, nema.
Sigfríður á tvo bræöur. Þórólfur,
f. 30.8.1940, byggingarmeistari í
Vestmannaeyjum; Emil Vilhjálmur,
f. 31.12.1944, byggingarmeistari á
Sauðárkróki, en hann á þrjú börn,
Heiðu, Vilhjálm, Helga.
Foreldrar Sigfríöar: Vilhjálmur
Eyjólfsson, f. 1903, d. 1983, og Jó-
hanna Einarsdóttir, f. 18.5.1919,
bókbindari í Reykjavík.
Grctð
Erlendsdóttir
Gréta Erlendsdóttir flugfreyja,
Hálsaseli 2, Reykjavík, er fertug í
dag.
Fjölskylda
Gréta er fædd í Reykjavík og alin
þar upp. Hún var við nám í Verslun-
arskóla íslands. Gréta vann í Iðnar-
bankanum en hefur starfað sem
flugfreyja hjá Flugleiðum frá árinu
1973.
Gréta giftist 22.12.1982 Hrafni
Oddssyni, f. 15.1.1946, flugmanni.
Foreldrar hans: Oddur Kristjáns-
son, starfsm. hjá Sambandinu, og
Kristín Friðrika Ólafsdóttir, en þau
bjuggu lengst af í Álfheimum 64 en
erunúbæðilátin.
Gréta og Hrafn eiga tvo syni, Tóm-
as Odd, f. 28.1.1981; Kristin Friðrik,
f. 19.9.1984. Grétaáttisonáður,
Erlend Svavarsson, f. 1.6.1972, nema
ÍM.R.
Gréta á tvo bræður. Jón Tómas,
f. 7.12.1952, kvæntur Guðrúnu Yrsu
Sigurðardóttur bankastarfsmanni
og eiga þau þrjú böm, Sigurð, Ingu
Dröfn, Gunnhildi; Guðmundur
Rúnar, f. 26.4.1954, atvinnurekandi
Gréta Erlendsdóttir.
á Hvammstanga, kvæntur Kol-
brúnu Karlsdóttur, og eiga þau tvö
böm, Jóhönnu Birnu, Erlend Inga.
Foreldrar Grétu: Erlendur Guð-
mundsson, f. 5.4.1923, starfsm. í
Odda, og Inga Hallveig Jónsdóttir,
f. 19.3.1928, hárgreiðslukona, en þau
búa að Hjallabrekku 8 í Kópavogi.
Bima Gunnhildur Guðmundsdóttir
Birna Gunnhildur Guðmundsdóttir
húsmóðir, Krithóli, Lýtingsstaða-
hreppi í Skagafirði, er fimmtug í
dag.
Starfsferi II
Birna er fædd að Sölvanesi í Lýt-
ingsstaðahreppi og átti þar heima
fram yfir tvítugt er hún flutti að
Sveinsstöðum í sömu sveit. Árið
1969 flutti hún að Bjarnastaðahlíð
og bjó þar í fimm ár. Eftir það bjó
Bima á Sauðárkróki til ársins 1978
er hún flutti að Krithóli og hefur
hún búið þar síðan. Hún lauk barna-
skólaprófi frá Steinsstaðaskóla.
Fjölskylda
Maki Birnu er Kjartan Björnsson,
f. 7.10.1932, bóndi að Krithóli í Lýt-
ingsstaðahreppi. Foreldrar hans
voru Hel'ga Friðriksdóttir og Björn
Ólafsson, bóndi að Krithóli. Björn
er látinn.
Birna og Kjartan eru barnlaus, en
Birna átti fimm böm með fyrri sam-
býlismanni sínum, Halldóri Jakobs-
syni. Þau eru: Sigurlína, f. 18.3.1962,
húsmóðir, maki Gunnar Valtýsson,
bóndi og vörubílstjóri að Nesi í
Fnjóskadal; Ragnhildur, f. 9.5.1965,
húsmóðir, maki Valdimar Bjarna-
son trésmiður, þau eru búsett á
Sauðárkróki; Rósa Borg, f. 20.9.1966,
hárgreiðslunemi, maki Þorgrímur
Jónsson vöruflutningabílstjóri, þau
eru búsett á Húsavík; Sigríður, f.
28.5.1968, húsmóðir og afgreiðslu-
stúlka, hún er búsett í Reykjavík;
Lúðvík Alfreð, f. 19.1.1973, starfs-
maður í fóðurstöðinni Melrakka á
Sauðárkróki, hann býr hjá móður
sinni og stjúpfóður að Krithóli.
Birna á fimm systkini. Hjálmar
Guðmundsson, bóndi að Korná í
Lýtingsstaðahr., kvæntur Birnu Jó-
hannesdóttur; RagnaE. Guðmunds-
dóttir, starfsstúlka í Nesjavalla-
virkjun, búsett í Reykjavík; Rósa,
húsmóðir, gift Borgari Símonar-
syni, bónda að Goðdölum í Lýtings-
staðahr; Snorri, bifvélavirki, vinnur
hjá Vegagerð ríkisins, kvæntur
Halldóru Árnadóttur, þau eru bú-
sett á Akureyri; Ólafur, plötu- og
ketilsmiður, kvæntur Onnu Lilju
Birna Gunnhildur Guðmundsdóttir.
Guðmundsdóttur, þau eru búsett á
Akureyri.
Foreldrar Birnu eru Guðmundur
Sveinbjömsson, f. 14.4.1914, bóndi
og síðar starfsmaður hjá Vörubíl-
stjórafélagi Skagafjarðar og Sólborg
Hjálmarsdóttir, f. 9.6.1905, ljósmóð-
ir. Hún lést 1984.
Birna verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
85 ára
Soffía Kristjánsdóttir,
Hólagötu 5, Njarðvík.
50 ára
Anton Eyþór Hjörleifsson,
Klapparbraut 10, Garði.
Aðalheiður E. Gísladóttir,
Stórateigi 14, Mosfellsbæ.
AlfK. Walderhaug,
Túngötu 17, Ólafsfirði.
40ára
Benedikt Benediktsson,
Lambhaga 7, Selfossí.
Eggert H. Jónsson,
Hjallalundi lld, Akureyri.
Kristófer O. Zalewski,
Krummahólum 10, Reykjavík.
Lovísa Georgsdóttir,
Heiðargarði 22, Keflavík.
Kristján Tryggvason,
Botnahlíð 13, Seyðisfirði.
Arnór Sigurðsson,
Engjaseli 81, Reykjavík.
Jónína Birna Sigmarsdóttir,
Háaleitisbraut 15, Reykjavík.
Sviðsljós
Við opnun dýragarðs í Sydney i Astralíu nýlega var þessari Ijósmynd smellt af. Ekki er gott að átta sig á því hvað
1 hér fer fram en kannski er krílið að segja manninum einhvern fyndinn brandara. Það er þó frekar hæpið og mun
liklegra að dýrið sé hreinlega að narta í eyrnasnepilinn á manngreyinu. Símamynd Reuter