Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1991, Blaðsíða 2
Fréttir
LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1991.
x>v
Magnús Guðmundsson kvikmyndagerðarmaður:
Jeppinn kominn í leitirn-
ar einu ári eftir hvarf ið
„Þaö var hringt í mig frá Ryðvam-
arskálanum í Sigtúni í síðustu viku
og ég spurður hvort ég ætti j eppa sem
ekki hafði verið sóttur. Þegar betur
var að gáð var þetta jeppinn minn
sem hvarf frá flugstöðinni í fyrra,“
sagði Magnús Guðmundsson kvik-
myndagerðarmaður en þetta dular-
fulla hvarf jeppans vakti mikla at-
hygh á sínum tíma.
Magnús brá sér til útlanda frá 15.
ágúst til 2. september fyrir rétt tæpu
ári og einhvern tíma á því timabili
hvarf jeppinn af bílastæði við Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar þar sem hann
var geymdur.
„Ég var sannfærður um hann hefði
verið keyrður í hafið eða að búið
væri að rífa hann í tætlur, en þetta
Jeppinn er nú i vörslu Sjóvá en tryggingafélagið borgaði hann út á sínum
tíma. DV-mynd JAK
hefur greinilega ekki verið gert í
auðgunarskyni því það var allt ó-
snert í bílnum," sagði Magnús og
bætti því við að ryðvömin hefði held-
ur ekki skaðað hann.
„Þeir sögðu mér hjá Ryðvarnarská-
lanum að maður á fimmtugsaldri
hefði komið með jeppann tif þeirra í
fyrrahaust og beðið þá að ryðverja
hann. Hann bað þá líka um að geyma
hann í einhverja mánuði af því að
hann ætlaði til útlanda.
Þegar enginn kom svo að vitja jepp-
ans reyndu starfsmennirnir að hafa
upp á eigandanum og komust að því
að ég var enn skráður fyrir bíln-
um,“ sagði Magnús.
Magnús sagði að bíllinn væri
óskemmdur en illa farinn eftir að
hafa staðið ósnertur í heilt ár.
Hann sagðist ekki muna hversu
mikiö jeppinn hefði verið keyrður
þegar hann hvarf, en taldi ekki ólík-
legt að sá sem tók hann hefði keyrt
hann eitthvað þar sem varadekkið
var komið undir.
Rannsóknarlögreglan hefur nú
málið með höndum en enn er ekki
vitað hver hér var að verki. Á sínum
tíma datt mönnum í hug að hvarf
jeppans mætti að einhverju leyti
rekja til kvikmyndar Magnúsar,
Lífsbjörg í norðurhöfum, en gerð
hennar vakti mikið umtal og reitti
marga tif reiði.
-ingo
„No comment," var það eina sem austurríski fararstjórinn Josef Mörtl var
fáanlegur til að segja við blaðamann DV þegar hann kom með jarðfræðihóp-
inn til Reykjavíkur um kvöldmatarleytið í gær. Hópurinn hafði farið um
Snæfellsnes og Vestfirði þar sem hann hafði höggvið grjót á friðuðum svæð-
um jafnt sem ófriðuðum. Fjórir ferðalanganna voru þó ekki í sýnasöfnun.
Á meðfylgjandi mynd er fólkið komið á tjaldstæðin í Laugardal þar sem
það hefst við þar til það heldur heim. -JSS/DV-mynd Hanna
Leyfi Landsvirkjun-
ar afturkallað
Náttúruvemdarráð hefur aftur-
kallað leyfi sem Landsvirkjun var
veitt til undirbúningsvinnu vegna
hugsanlegrar lagnar Fljótsdalslínu
um friðlýst svæði í Ódáðahrauni.
Landverðir nyrðra fullyrða aö trún-
aöarbrestin- hafi orðið milli þeirra
og Náttúruvémdarráðs. Þeir fund-
uðu í gær og mótmæltu leyfisveit-
ingu Náttúruvemdarráðs tii handa
Landsvirkjun þar sem leyfður er
akstur utan vega, sýnataka og mæl-
ingar á friðlýstu svæði.
-hlh
Langtímaspá um veður á N-Atlantshafi fyrir ágúst
Byggt á gögnum NOAA (National Oceanic and Atmospheric Administration)
^llrkf
* Spáin sýnir frávik frá meöaihita og meöalúrkomu á spásvæöinu
Langtímaveðurspá til loka ágústmánaðar:
Förum að kannast betur við okkur
Þaö getur bragðið til beggja vona
í veðurfari ágústmánaðar en í stór-
um dráttum má búast við afskaplega
eðlilegu íslensku ágústveöri. ísland
virðist liggja í miðjum normal- eða
meðalstreng með tilliti til úrkomu
en beggja vegna er tilhneiging til
kaldara veðurlags en í meðalári.
Hvað úrkomu varðar eram við enn
og aftur á normalsvæði en smámögu-
leiki er á að úrkoman víki fyrir þurr-
Háskólabíó:
Metaðsókn
Metaðsókn var að kvikmynd-
inni Beínt á ská í Háskólabíói um
verslunarmannahelgina. Þá sáu
um 11 þúsund manns myndina.
Friöbert Pálsson, forstjóri Há-
skólabiós, segir þvi aö þar hafi í
raun verið best sótta skemmtun
helgarinnar.
Sveppagreining
Sveppafræðingurinn Jaques
Melot aðstoðar í dag menn viö að
þekkja í sundur sveppi. Slíkt hef-
ur oft vafist fyrir fólki. Áhuga-
menn um sveppatínslu vilja vita
hvort sveppimir séu ætir.
Sveppafræðslan fer íram í Hafn-
arhúsinu að vestanverðu milli
klukkan 17 og 19 í dag.
ara veðri hér sunnanlands. Næstu
daga segir fimm daga spáin að verði
heldur vætusamt. Langtímaspáin er
byggð á veðurspá bandarísku veður-
stpfunnar, NOÁA, fyrir ágústmánuð.
í spá veðurstofunnar, er náði frá
miðjum júlí til miðs ágústs, var gert
ráð fyrir heföbundnu íslensku ágúst-
veðri með meiri vætu sunnanlands
en verið hefur í sumar og þurrara
og sólríkara veðri norðan heiða. Það
Sölu Rafveitu Eyrarbakka tíi Raf-
magnsveitna ríkisins hefur verið
frestað. Nú standa hins vegar yfir
viðræður fulltrúa iðnaðarráðuneytís
og íjármálaráöuneytis við heima-
menn, sérstaklega með tilliti til fjár-
hagsvanda Hitaveitu Eyra. Verður
leitast við að finna lausn á þeim
vanda.
Eins og DV greindi frá rekur Hita-
veita Eyra rafveitur Stokkseyrar
annars vegar og Eyrarbakka hins
vegar. Hitaveitan á í miklum fjár-
hagsvandræðum um þessar mundir.
Hún skuldar 150 milljónir króna, eða
um 150 þúsund á hvem einstakling
sem af er ágúst virðist sú spá halda
í megindráttum.
Sem fyrr minnum við á að lang-
tímaspáin segir fyrir um megintil-
hneigingar í veðri tímabilsins en
ekki um veðurfar frá degi til dags.
Langtímaspár þessar hafa birst í DV
undanfarin tvö ár og í flestum tílfell-
um hafa þær staðist.
-hlh
á svæðinu. Hún er jafnframt ein dýr-
asta hitaveita landsins og er orku-
verð frá henni 21 prósent hærra held-
ur en orkan frá Rarik, svo dæmi sé
nefnt.
Heimild var á fjárlögum þessa árs
um að ríkið yfirtæki 60 milljónir af
skuldum hitaveitunnar. En þegar
fjóst varð áð Eyrarbakkahreppur
hugðist selja Rarik rafveituna hætti
ríkið við yfirtökuna. Það verður aft-
ur til þess að orkuverðið lækkar ekki
í næstu framtíð. Þessi mál eru nú í
heild sinni til athugunar, eins og
áður sagði.
-JSS
Sölu rafveitu Eyr-
arbakka frestað