Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1991, Blaðsíða 12
LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1991.
12
Vísnaþáttur
Þjóðskáld dreifbýlisins
Þingeyskir feðgar
Fyrir nokkrum vikum birti ég
vísnaþátt um Jón Hinriksson,
skáld á Helluvaði í Mývatnssveit.
Hann var einn af kunnustu sveita-
skáldum síns tíma og lifði fram á
þessa öld, kynsæll maður með af-
brigðum. Sonur hans af þriðja
hjónabandi var Sigurður Jónsson,
1878-1949. Hann bjó á Arnarvatni í
Mývatnssveit. Hann gaf út tvær
ljóðabækur, 1937 og 1945. Kunnasta
ljóð hans var Blessuð sértu sveitin
mín sem Jónas frá Hriflu gaf heitiö
Þjóðsöngur íslenskra byggða.
Hann var gagnfræðingur frá
Möðruvallaskóla, bóndi á Arnar-
vatni í Mývatnssveit.
í þættinum um fóður Sigurðar,
Jón Hinriksson, gaf ég fyrirheit um
birtingu á Hestavísum eftir Jón en
þegar til kom leyfði plássið það
ekki. Bæti úr því nú. í Ljóðmælum
Jóns, sem eru eina bók hans og
kom, ef ég man rétt, út snemma á
þessari öld, er mikill hlutinn minn-
ingarljóð um menn og hesta. 20 vís-
ur orti hann um Huga 1897. Hér er
aðeins sýnishorn:
Jón Hinriksson:
Hugaminni
Andinn stynur, afl hann slær,
aldan drynur, beljar.
Hugi vini fremstum fjær
féll í ginið heljar.
Hugi sveif á hugins storð
- hverful dreifist giftan -
fákinn leyfir frægðarorð,
frjálsri hreyfmg sviptan.
Stöðugt ómar þvílík þrá,
þröngt er tómið friðar,
fegurst blómin æfl á
örlaga skjóminn miðar.
Skein svo slétt á skepnunni
sköpun nett og mildin.
Vísnaþáttur
STYRKIR REYKJAVÍKURMARAÞON
® TOYOTA
Tákn um gœði
ÞJÓNUSTUIBUÐIR
ALDRAÐRA
DALBRAUT 27, REYKJAVÍK
óska aö ráða starfsfólk í heimilisaðstoð, 75% starf.
Vinnutími frá kl. 8 til kl. 14 og kl. 16 til kl. 22 alla
virka daga.
Einnig vantar starfsfólk til starfa í eldhúsi, 75% starf.
Vinnutími frá kl. 8 til kl. 14, unnið aðra hverja helgi.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 685377 milli
kl. 10 og kl. 12 alla virka daga.
Allt var létt og lifandi,
lék við spretti snilldin.
Líkt og kastar álmur ör
- aflið hvasst því veldur -
steinn frá vast, en stóðu for,
storðin gnast við heldur.
Steig við hæðir drösull dans,
drifinn æðishita;
háls um bæði og brjóstin hans
breiddust slæður svita.
Hófa úðu eldingar,
afl nam prúðum duga,
mélin gnúði, gustur var
geðs í búðum Huga.
Lista arfur lénar margt
lífi þarfa ríku.
Ævihvarf er heldur hart
að hálfnuðu starfi slíku.
Hugi þótti hestaval,
heimadrótt hann syrgir;
helst til fljótt í dimmum dal
dauðans nótt hann byrgir.
Hugi er.frá, en hinn er fár,
hugar þrá sem mæðir.
Hart er að rjá við sollin sár,
svíður þá og blæðir.
Sigurður á Arnar-
vatni: Stökur
1.
Gleði mín er grafin kvik,
gnagar mig eiturnaðra.
Líf mitt allt er sífelld svik
við sjálfan mig og aöra.
2.
Orðið getur erfitt spaug
eftirþrá og vonum,
ef að maður magnar draug
og missir svo af honum.
3.
Þér ég hróður hefja fer,
hlýð á ljóðaslaginn.
Heilsa ég, bróðir, besti þér,
býð þér góðan daginn.
4.
ískrar gjólan, gaddar hól,
glatast skjóhn víðar.
Þaulsæt njóla á stjörnustól
stjakar sól til hliðar.
5.
Að landi vaða hrönn við hrönn,
hlynur svaða kliður.
Byljir hlaða fónn á fónn,
fjúkin raðast niður.
6.
Upp úr langri, þungri þögn,
þögn, sem mér er byrði,
langar mig að lyftast ögn,
léttara svo mér yrði.
7.
Er það aidursmerki á mér,
merki afturfara,
hversu gjarnt mér einatt er
á hið liðna að stara?
8.
Nú er fátt um kvæðaklið,
kveður enginn stöku.
Annað muna megum við
marga langa vöku.
Dómarann ég ei deih við,
dreg ei neinn í þrætur.
En ég veit hinn aldna sið
eiga seigar rætur.
10.
Fjörugt var á ferðum oft,
fastan rómur brýndur,
hnyttnum vísum haldið á loft,
hestur á skeiði sýndur.
11.
Stundum gleymist allt, sem ól
öfugstreymið svarta.
- Mig er að dreyma sumarsól,
sæluheima bjarta.
Viðvonbrigði,
aðeins hluti:
Ef til vill þó innst i huga
eitt hvað svíði,
mun ég ekki kveina og kvarta,
knýja dyr að neinu hjarta.
Máske, köld, er kólgan mig
í kafið dregur,
einhvers staðar einhver merki
eftir 'sjái í nýtu verki.
Sæll mun hann, er siglir æ
í svása blænum.
Þó er betra að eiga anda,
engin slys er ná að granda.
Látum svo skáldbóndann á Arn-
arvatni kveðja með vísu, sem hann
orti á sextugsafmælinu:
Svona fór það fyrir mér,
- frá er gaman að segja:
dýrðlingur ég orðinn er,
án þess fyrst að deyja.
Jón-úr Vör,
Fannborg 7, Kópavogi.
Bros
leit
Ljósmyndasamkeppni DV
og Tannlæknafélags íslands
DV og Tannlæknafélag Islands hafa ákveðið að halda ljósmyndasam-
keppni sem hlotið hefur nafnið Breiðasta brosið.
Leitað er að einhverri fallegri sumarmynd af breiðu og fallegu brosi eða
brosum.
Vegleg verðlaun eru í boði og er heildarverðmæti vinninga 60.000 kr.
Canon Eos 1000 myndavél frá Hans Petersen, að verðmæti 35.000 kr.
15.000 kr. vöruúttekt í einhverri af sjö verslunum llans Petersen.
10.000 kr. vöruúttekt í einhverri af sjö verslunum Hans Petersen.
Hverjum þátttakanda er frjálst að scnda inn lleiri en eina mynd.
s
Myndina ásamt nafni, heimilisfangi og síma þátttak-
anda skal senda í umslagi til DV, Þvcrholli 11, 105
Reykjavík, merkt Breiðasta brosið. Skilafrestur er til
6. scptembcrr
Þá er bara að muna eftir myndavélinni í útileguna, í griilveisluna og
í bíltúrinn því að það er aldrei að vita hvenær verðlaunabrosið
læðist fratn í munnvikin.