Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1991, Page 25
Evrópumót í hestaíþróttum:
í slenskir knapar hafa
hreppt 20 gullverðlaun
Reynir Aðalsteinsson hlaut þrenn gullverðlaun á Evrópumótinu í Austurríki 1987. DV-mynd EJ
íslenska landsliðið í hestaíþróttum
er komið til Himmelstalund í Norr-
köbing í Svíþjóð, tilbúið að leiða hesta
sína saman við landslið annarra þjóða
á ellefta Evrópumótinu (EM) í hesta-
íþróttum. Reyndar vilja margir neína
þetta mót heimsmeistaramót þar sem
keppendur koma frá Bandaríkjunum
og ef til vill Kanada. Landsliðið er
skipað sjö knöpum sem allir hafa áð-
ur keppt á Evrópumótum og telst
reynslumesta landshðið til þessa.
Mikiil fjöldi íslendinga fylgir landsl-
iðinu til Svíþjóðar og fer stærsti hóp-
urinn í flugi á mánudaginn en aðrir
stemma saman sumarfrí og EM
Sexþjóðirkepptu
á fyrsta Evrópumótinu
Það er ekki úr vegi að rifja upp sögu
Evrópumóta allt frá árinu 1970 er
fyrsta mótið var haldið í Aegidinberg
í Þýskalandi dagana 5. tii 6. september.
A fyrsta mótinu kepptu fulltrúar
sex þjóða. Þrír knapar kepptu fyrir
ísland: Sigurður Magnússon á Blossa,
Anton Guðlaugsson á Gusti og Reynir
Aðalsteinsson á Hvelh, Loga og
Stjama. Reyni gekk vel og fékk meðal
annEU's guliverðlaun fyrir sigur á
Stjama í annarri fjórgangsgreininni.
Fjórgangsgreinamar vom tvær í
þetta eina skipti og sigraði Reynir í
fjórgangi + brokki. Hann varð einnig
annar á Stjama í tölti og þolreið.
Alpamirvoruerfiðir
íslenskuhestunum
Næsta mót var haldið í St. Moritz í
Swiss dagana 9. til 10. september 1972.
Þar gekk íslensku sveitinni iha. Hest-
amir vom þreyttir eftir langt ferða-
lag. Mótið var haldið í Ölpunum og
töldu sumir knapar mótsins að hestar
þeirra hefðu þjáðst af háloftaveiki.
Ami Guðmundsson náði bestum
árangri íslendinganna, varð annar í
fjórgangi á Sleipni.
Þriðja mótið var haldið í Semirach
í Austurríki árið 1975. Þá vom keppn-
isþjóðimar orðnar átta. Sjö knapar
kepptu fyrir ísland. Ragnheiður Sig-
urgrímsdóttir keppti á Gammi, fyrsti
fulltrúi íslenskra kvenna.
í Semirach vann Reynir Aðalsteins-
son guhverðlaun í tölti á Degi og Al-
bert Jónsson gullverðlaun í hlýðni-
keppni B á Ljóska, einu guhverðlaun
íslendinga í þeirri grein th þessa.
Á fyrstu þremur áranum var th-
raunamótsbragur á Evrópumótun-
um. Keppt var í ýmsum greinum sem
hafa ekki sést síðan. Á fyrsta mótinu
var keppt í tveimur íjórgangsgrein-
um: fjórgangi með skeiði og fjórgangi
með brokki. Eiirnig var keppt í 3.000
metra þolreið. Árið 1972 var keppt í
grein þar sem annað hvort mátti láta
hestinn skeiða eða tölta. í Semirach
var íjórgangi og fimmgangi skeht
saman og úr varð nokkurs konar
marggangur. Einnig var farið að
fiölga hlýðnikeppnisgreinunum og
voru þær tvær í Semirach en mest
þrjár í Skiveren í Danmörku.
Tvöfaldursigur
Sigurðar í Skiveren
í Skiveren í Danmörku kepptu tíu
þjóðir. íslendingunum gekk sæmi-
lega. Hæst bar sigur Sigurðar Sæ-
mundssonar í 250 metra skeiði á
Leikni og einnig varð Sigurður stiga-
hæsti knapi mótsins. Leiknir rann
skeiðið á 24,0 sek. Það var nýjung i
Skiveren að keppt var í parareið og
sigraðu Hollendingarnir Marjolyn
Tiepen og Toi Merx. Einungis var
keppt í þessari grein í tvö skipti: í
Skiveren 1977 og í Uddel í Hollandi
1979 en þá unnu Hollendingar einnig.
Veikindi komu ekki í veg
fyrirgull í Hollandi
í Uddel í Hohandi árið 1979 veikt-
ust íslensku keppnishestarnir og
nokkrir knapanna. Á lánshestinum
Fróða frá Ásgeirsbrekku, sem er
stóðhestur, vann Ragnar Hinriksson
gullverðlaun í fimmgangi og önnur
guhverölaun sem stigahæsti knapi
mótsins. íslendingar voru smám
saman að ná sér á strik. Einungis
hafði verið haldið íslandsmót í hesta-
íþróttum tvisvar sinnum árið 1979,
því fyrsta opinbera íslandsmótið var
haldið á Selfossi árið 1978.
Gullið glóði
í Noregi og Þýskalandi
Nú fer að rofa til hjá íslenskum
knöpum. Það vora bjartir tímar
framundan. í Larvik í Noregi 1981
vann Sigurbjörn Bárðarson gull á
Adam í þremur greinum: gæðinga-
skeiði, 250 metra skeiði og sem stiga-
hæsti knapinn.
í Roderath í Þýskalandi árið 1983
var uppskeran enn betri; fiögur gull,
sem er besti árangur íslendinga til
þessa. Tómas Ragnarsson vann gull
í 250 metra skeiði á Fjölni á ótrúlega
góðum tíma, 21,7 sek., og einnig sem
stigahæsti knapi fimmgangsgrein-
anna. Tómas var einungis sautján
ára og er yngsti íslenski knapinn til
að vinna sér inn guhverðlaun á Evr-
ópumóti. Aðalsteinn Aðalsteinsson
vann gæðingaskeiðið á Baldri og
einnig fimmganginn.
Kynbótahross kynnt
íVárgárda í Svíþjóð
Þegar hér var komið sögu höfðu
verið haldin sjö Evrópumót. Enn var
thraunabragur á þessum mótum, því
nú kom til sögunnar kynbótahrossa-
keppni. Reglur eru þær að hvert land
má senda fiögur kynbótahross sem
skulu fædd f því landi sem þau keppa
fyrir. Á EM í Várgárda í Svíþjóð stóð
hryssan Hilda frá Ólafsvík efst en
Sigurbjörn Bárðarson sýndi hana.
Yfirleitt hefur íslendingum gengið
vel í þessari keppni og fengið fiögur
gullverðlaun á þremur EM. Nú er
keppt í fjórum flokkum: yngri og
eldri flokki stóðhesta og hryssna.
í Várgárda gekk íslensku sveitinni
þokkalega. Benedikt Þorbjörnsson
vann gullverðlaun í fimmgangi á
Styrmi en öðrum gekk verr.
Reynir þrefaldur gullvérð-
launahafí í Austurríki
Árangur íslenska landsliðsins var
nokkuð góður í Weistrach í Austur-
ríki árið 1987. Hæst bar þrefaldan
sigur Reynis Aðalsteinssonar á Spóa
en þeir unnu gæðingaskeiðið, 250
metra skeiðið og voru stigahæstir í
fimmgangi. Þá spihti þaö ekki fyrir
að Sigurbjörn Bárðarson vann tölt-
keppnina á Brjáni og var ekki laust
við að íslensku áhorfendurnir stigju
laust til jarðar þegar Sigurbjörn veif-
aði tölthorninu glæsilega. í kynbóta-
keppninni gekk einnig vel. Hryss-
urnar Blika frá Kirkjubæ, sem Sigur-
björn Bárðarson sýndi, og Valdís frá
Vallarnesi, sem Rúna Einarsdóttir
sýndi, voru í tveimur efstu sætunum
í flokki eldri hryssna.
AðalsteinnfékklO
fyrir tölt í Danmörku
Árangur landsliðsins í Wilhelms-
borg í Danmörku árið 1989 var ekki
eins góður og vonast var eftir. Jón
P. Ólafsson fékk gullverðlaun í gæð-
ingaskeiði en hann keppti á Glaumi.
Ekki munaði miklu að þeir félagar
bættu við sig öðrum gullverðlaunum
fyrir 250 metra skeið því þeir voru
með langbesta tímann, 23,34 sek.,
þegar þýska stúlkan Vera Reber átti
eftir einn sprett. Henni tókst að
renna Frosta sínum á 23,22 sek. og
sigra. Aðalsteinn Aðalsteinsson náði
þeim ótrúlega árangri að fá 10 hjá
nokkrum dómurum fyrir greitt tölt
á Snjalli en það dugði ekki og þeir
voru í öðru sæti á eftir Bernd Vith á
Rauð.
Betur gekk með kynbótahrossin
því Hjörvar frá Reykjavík, sem Sig-
urbjörn Bárðarson sýndi, stóð efstur
eldri stóðhesta með 8,07 í einkunn.
Sverta frá Flugumýri, sem Walter
Feldman sýndi, stóð efst hryssna í
eldri flokki með 8,23 í einkunn.
Oghvaðnú?
Landsliðið, sem nú keppir fyrir ís-
lands hönd, er skipað reynslumikl-
um knöpum. Fyrir utan alla þá sig+a
sem þeir hafa unnið hér heima hafa
þeir allir keppt áður á EM og fiórir
þeirra eru gullverðlaunahafar.
Sigurbjörn Bárðarson hefur tekið
þátt í sex EM og unnið fiögur gull.
Ragnar Hinriksson hefur tekið þátt
í fióram EM og unnið tvö gullverð-
laun. Tómas Ragnarsson hefur tekið
þátt í tveimur EM og unnið tvö gull
og Jón P. Ólafsson hefur unnið ein
gullverðlaun á sínu eina EM til
þessa. Gunnar Arnarson, Hinrik
Bragason og Einar Ö. Magnússon
hafa allir tekið þátt í einu EM til
þessa.
-EJ
Ahs hefur 83 guhverölaunum
verið úthlutað á Evrópumótum og
hafa þau skipst á níu þjóðir. Þjóð-
verjar hafa unnið flest gull, 39, fs-
lendingar hafa unniö 20, Svísslend-
ingar 8, Norömenn og Hollendingar
5, Danir 3 og Austurríkismenn,
Finnar og Frakkar eitt hver þjóð.
Skipting verðiaunanna er nokk-
uð ákveðin. Þjóðverjar eru sterkir
í fiórgangsgreinum og fslendingar
í fimmgangsgreinum. Hinar þjóð-
irnar reyta inn verðlami í öðrum
' greinum. Þjóðverjar hafa sem .
dæmi unnið fiórganginn alltaf þeg-
ar emungis hefur verið um að ræða
eina tegund fiórgangs en Reynir
Aðalsteinsson vann fiórgang+
brokk i eitt skipti. Þjóðverjar hafa
einnig veriö sterkir í töltinu, unnið
átta sinnum en íslendingar hafa
unnið tvisvar sinnum. íslendingar
hafa á móti unnið gæðingaskeiöiö
í fiögur skipti af fimm og skeiðið í
fimm skipti af tíu.
íslendingar sterkastir
í fimmgangsgreinunum
Þrjátiu og tveir knapar hafa verið
fulltrúar fslands á Evrópumótum
en auk þess hafa nokkrir íslending-
ar keppt fyrir aðrar þjóðir. íslend-
ingar hafa unnið nítján gull. Reyn-
ir Aðalsteinsson hefur unnið fimm
sinnum, Sigurbjörn Bárðarson
fiórum sinnum, Aðalsteinn Aðal-
steinsson hefur unnið tvisvar,
Ragnar Hinriksson tvisvar, Sigurð-
ur Sæmundsson tvisvar, Tómas
Ragnarsson tvisvai', Albert Jóns-
son einu sinni, Benedikt Þorbjörns-
son einu sinni og Jón P. Ölafsson
einu sinni.
Tslensku gullin skiptasí þannig
að fiórir sigrar eru í 250 metra
skeiöi og gæðingaskeiði, þrír sigrar
eru í fimmgangi, tveir í tölti, einn
í hlýðnikeppni, einn í fiórgangi+
brokki og fimm sinnum hafa ís-
lenskir knapar verið stigahæstir
knapa.
WalterFeldmamijr.
Walter Feldmann jr. liefur náð
langbestum árangri knapa á Evr-
ópumótum. Hann hefur unnið tólf
gullverðlaun, á Eldjárni, Funa og
Magnúsi. Bernd Vith er einnig sig-
ursæh, hefur unniö sex gullverð-
laun, á Fagra-BIakki, Rauð og Örv-
ari. Hann hefur mmið fiórganginn
fiórum sinnum, þar af þrisvar á
Fagra-Blakki og einu simfi vann
hann töltið á Kagra-Blakki.
Það er ljóst að róðurinn verður
þungur þjá íslensku keppnissveit-
inni. líröfumar eru miklar, enda
hefur islenskt landshð unnið að
minnsta kosti eitt guh á öllum EM
ncma cinu. í Swiss árið 1972.
-EJ