Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1991, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1991, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBÉR 1991. 13 Menning Freisting vampírunnar: ★★ Svartur húmor Sveitamaðurinn Joel er að læra til prests en efinn nagar hann svo að hann heimsækir bróður sinn sem býr í stórborginni. Þegar þangað er komið flækist hann í net kvenvampíru sem herjar á nálægan bar. Þessi „hrollvekja" er gerð af svertingjum, en kvik- myndargerðarmenn úr þeirra röðum hafa látið mikið' tii sín taka undanfarið. James Bond III er augljóslega nýgræðingur í leikstjórninni og myndin hefur yfir sér mikinn áhugamannablæ. Freistingin til að prófa allt kemur niður á heidarsvip myndarinnar. Hljóðinu er ábótavant og sviðsmyndir eru ódýrar. Sagan er frekar innihaldslítil og persónur einfaldar en það má hafa dálítið gaman af henni því hún tekur sig ekki of alvar- lega. Leikararnir eru flestir atvinnumenn úr ýmsum miðlum og Bond III leikur sjálfur Joel, prestinn sem togast milli köllunar sinnar og freistingu vampírunn- ar. Bill Nunn (Radio Raheem í Do the Right Thing) er seinheppinn fastagestur á barnum. Kvenvampíruna Kvikmyndir Gísli Einarsson leikur Cynthia Bond og hún er ótrúlega góð miðað við aðstæður. Alls ekki afleit byrjun fyrir James Bond III en það má deila um það hvort svona eigi heima í bíói. Def by Tempfation (bandarisk 1990, enginn texti). Handrit og leikstjórn: James Bond III. Kvikmyndataka: Ernest Dickerson. Denis Quaid og Tamlyn Tomita leika hjón sem eru aðskilin i síðari heimsstyrjöldinni. Bíóborgin - Komdu með í sæluna: ★★ Keyrt á tómu Ljúf ástarsaga til aö byrja með en um miðja mynd er söguefnið búið og það gerist ekkert eftir þaö. Alan Parker hefur gert margar afhragðsmyndir en hann færist of lítið í fang með Come See the Paradise og árangurinn er langt fyrir neðan hæflleika hans. Dennis Quaid leikur írskan verkalýðsbaráttumann. Hann hefur lent upp á kant við samtökin og flyst til San Fransisco þar sem hann fær vinnu sem sýningar- stjóri í bíó í Litlu-Tókýó, hverfl japanskra innflytjenda og afkomenda þeirra. Hann og ung japönsk stúlka, Lily (Tamlyn Tomita), fella hugi saman en eru aðskil- in þegar herinn flytur japanskættað fólk í fangabúðir í öryggisskyni eftir árásina á Pearl Harbour. Parker fjallar aftur (eftir Mississippi Burning) um svartan blett í Bandaríkjasögu því að japanskættað fólk þar taldist ekki til ríkisborgara fyrir stríð. Myndin byrjar mjög vel og skemmtilegar og athyglisverðar persónur eru kynntar. Quaid er góður að vanda og Tomita er framúrskarandi. Þegar í fangabúðirnar er komið dett- ur botninn alveg úr sögunni. Aðbúnaður þar var ekki svo slæmur þannig að það myndast engin dramatík í kringum það. Quaid lendir ekki í búðunum en er kvaddur í herinn í staðinn svo að hann gerir ekki mikið eftir það. Það eina sem er eftir er óréttlætið sem Japanirnir voru beittir og hvernig þeir tóku því að vera allt í einu orðnir fangar í eigin landi. Það og áhrif Kvikmyndir Gísli Einarsson þess á bróður Lily er það eina góöa við seinni hluta myndarinnar en hún dvelur ekki nógu lengi við það til að það sé áhrifamikiö. Persónur eru of margar til þess að nærskoðun geti átt sér stað og frábær leikhóp- ur fer í súginn. Áherslur Parkers eru vel meintar en dramtískt séð þá eru þær rangar. En þó að myndin sé að mörgu leyti mistök þá er líka margt gott í henni og hún er alltaf falleg á að líta. Come See the Paradise (Band-1990) Handrit og leikstjórn: Alan Parker. Bíóborgin-Brúðkaupsbasl: ★★ Skipulagt kaos Enn ein róleg fjölskyldumynd frá Alan Alda sem er athyglisverð fyrir eitt óborganlegt aukahlutverk. Alda leikur fjölskylduföður og byggingarverktaka sem er upp fyrir háus í vandamálum. Yngri dóttirin (Ringwald) er að fara að gifta sig og Alda yfirbýður tengdaforeldrana til þess að fá að halda veisluna. Mafíósi (LaPaglia) er að fara á fjörurnar við eldri dótt- urina sem er lögga og ofan á allt annað þá ætlar mág- ur hans (Pesci) að nota hann sem lepþ í óheiðarlegum viðskiptum. Ekki það að skilja að ástandiö sé hetra hjá mági hans. Hann er í slagtogi með mafíósum (Y oung) og konan hans (O’Hara) svíkur hann í fjármál- um meðan hann svíkur hana í ástamálum. Myndir Alda hafa alltaf verið of tannlausar til þess að vera meira en stundargaman og þessi sker sig ekki * úr nema að því leyti að leikhópurinn er betri en vana- lega. Það er of mikið að gerast og persónumar eru of hvítþvegnar til að geta átt heima einhvers staðar ann- ars staðar en í bíólandi. En myndin er þess virði að sjá hana, bara vegna leiks Anthonys LaPaglia sem leikur upprennandi mafíósa. Hann er svo ofboðslega kurteis og tilhtssam- ur og ítalskur (hann er Ástrali) að myndin lifnar viö í hvert skipti sem hann sést. Þetta er fyrsta kvikmynd hans og það er óhætt að segja að fáir leikarar hafi Kvikmyndir Gísli Einarsson byijað svona vel. Það verður gaman að fylgjast með honum en næstu hlutverk hans verða í One Good Cop, 29th Street og He Said, She Said. Betsy’s Wedding (bandarísk 1990, 94 min.). Handrit og leik- stjórn: Alan Alda (A New Llfe, Sweet Liberty). Leikarar: Alan Alda, Joey Bishop (Delta Force), Madeline Kahn (High Anxi- ety), Anthony LaPaglia (One Good Cop), Catherine O’Hara (Beetlejuice), Joe Pesci, Molly Ringwald, Ally Sheedy (Only the Lonely), Burt Young (Rocky 1-5). ODYRAR SIDBUXUR Seljum í dag og næstu daga síðbuxur á kr. 1990 og kr. 2500. ELÍZUBÚÐIN, Skipholti 5, sími 26250 TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS © STYRKIR TIL BIFREIÐAKAUPA Tryggingastofnun ríkisins veitir hreyfihömluðum styrki til bifreiðakaupa. Nauðsyn bifreiðar vegna hreyfihömlunar skal vera ótvíræð. Umsóknareyðublöð vegna úthlutunar 1992 fást hjá afgreiðsludeild og upplýsingadeild Tryggingastofn- unar ríkisins, Laugaveg 114, og hjá umboðsmönnum hennar um land allt. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember. Tryggingastofnun ríkisins Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum: Lambastekkur 6, þingl. eig. Friðrik H. Sigurðsson, fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 17. október ’91 kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur eru Magnús Norðdahl hdl. og Gjaldheimtan í Reykjavík. Gyðufell 6, hluti, þingl. eig. Kristinn Eiðsson og Þórunn Haraldsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 17. október ’91 kl. 17.00. Uppboðsbeiðandi er Jón Eiríksson hdl. Lyngháls 3, austurendi miðhæðar, þingl. eig. Helgi og Magnús sfi, fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 17. október ’91 kl. 18.00. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík. Hólaberg 24, þingl. eig. Hjálmtýr G. Hjálmtýsson, fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 17. október ’91 kl. 16.30. Uppboðsbeiðendur eru Gjald- heimtan í Reykjavík, Veðdeild Lands- banka íslands og Innheimtustofhun sveitarfélaga. Selásland 15A, þingl. eig. Viðja hf., fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 17. október ’91 kl. 17.30. Uppboðsbeiðend- ur eru Fjárheimtan hf., Gjaldheimtan í Reykjavík, Ásdís J. Rafriar hdl., Baldvin Halsteinsson hdl. og Islands- banki hf. Hraunbær 102,01-04, þingl. eig. Magn- ús Ólafsson og Laufey Stéfánsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 17. október ’91 kl. 16.00. Uppboðsbeiðend- ur eru Tómas H. Heiðar, lögfr., Gjald- heimtan í Reykjavík og Þórólfúr Kr. Beck hrl. Vesturlandsbraut, verkstæði, þingl. eig. Aðalbraut hf., verktaki, fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 17. október ’91 kl. 15.30. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík. BORGAKFÓGETAEMBÆTTIÐ í REYKJAVÍK ATHUGIÐ! Auglýsingadeild hefur tekið í notkun faxnúmerið 91-626684 sem er bein lína til auglýsingadeilar. Faxnúmer annarra deilda DV er áfram 91-27079 Auglýsingadeild Þverholti 11 105 Reykjavik

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.