Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1991, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1991, Side 28
28 MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 1991. Fréttir Selfoss: Af mælisleikritið um brúna slær í gegn Kristján Einarsson, DV, Selfossi: Leikfélag Selfoss frumsýndi ný- veriö nýtt íslenskt leikrit eftir Jón Hjartarson leikara, sem jafnframt er leikstjóri, er nefnist „Brú til betri tíða“. Leikritiö er sett upp í tengslum'við 100 ára afmæli brúar yfir Ölfusá og er þetta 36. verkefni L.S. Fjölmargir áhugaleikarar taka þátt í sýningunni sem hefur fengiö mjög góöar viötökur áhorfenda. Leikritiö fjallar um upphaf þess er menn fóru í lok 19. aldar að huga aö brúarsmíði yfir Ölfusá og Þjórsá, vatnsmestu fljót landsins. Segja má aö verkið sé „innanbæ- Eyrarbakkabankastjórinn Árni Valdimarsson sem brúarsmiður- inn og Landsbankastjórinn Tryggvi Gunnarsson. DV-mynd Gunnar Sigurgeirsson jarkróníka" þar sem mest er íjallaö um byggingu fyrstu brúar yfir Ölf- usá viö Selfoss. Brúin varö til þess aö byggö fór aö þéttast og er Sel- fossbær í dag annar stærsti byggðakjarni á Suðurlandi. Marg- ar þekktar persónur eru dregnar fram í dagsljósiö. Þáttur Tryggva Gunnarssonar er veigamikill þar sem hann var aðalhvatamaður aö byggingu brúarinnar og yfirbrúar- smiður. Leikritinu lýkur þegar brúin slitnar niöur undan þunga tveggja mjólkurbíla árið 1944. Leik- ritiö er sýnt í litla leikhúsinu viö Sigtún á Selfossi. Næstu sýningar verða nk. miðvikudags- og fóstu- dagskvöld. Andlát Brynjólfur Hallgrímsson, Sunnu- braut 37, Kópavogi, lést á heimili sínu föstudaginn 18. október. Klara Ólsen Árnadóttir, Faxabraut 6, Keflavík, lést 21. október. Valgeir Haukdal Ársælsson lést mánudaginn 21. október. Jaröarfarir Emilía Karlsdóttir, Drápuhlíö 29, lést í Landakotsspítala föstudaginn 18. október. Útför hennar veröur gerö frá Háteigskirkju föstudaginn 25. október kl. 15. Guðmunda Jóna Jónsdóttir frá Hofi í Dýrafirði lést 21. október. Jaröar- förin fer fram frá Þingeyrarkirkju 26. október kl. 14. Gísli Rúnar Marísson, Presthúsa- Nauðungaruppboð annað og síðara á eftirtalinni fasteign fer fram i dómsal embættisins, Skógarhlíð 6, 3. hæð, á neðangreindum tíma: írabakki 28, 2.t.h., þin'gl. eig. Gunn- laugur Michaelson og Kristín Guðnad., fostud. 25. október ’91 kl. 10.30. Uppboðsbeiðendur eru Sigurður G. Guðjþnsson hrl., Veðdeild Lands- banka íslands, Ingi Ingimundarson hrl., íslandsbanki, Öm Höskuldsson hdl., Biynjólfur Kjartansson hrl., Guðjón Armann Jónsson hdl., Ari Is- berg hdl., Ævar Guðmundsson hdl., Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hrl., Jón Eiríksson hdl., Reynir Karlsson hdl. og Garðar Garðarsson hrl. BORGARFÓGETAEMBÆTTIÐ í REYKJAVÍK Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum: Álftahólai- 8, hluti, þingl. eig. Matthí- as Hansson, fer fram á eigninni sjálfri fostud. 25. október ’91 kl. 15.30. Upp- boðsbeiðendur em Veðdeild Lands- banka íslands og Gjaldheimtan í Reykjavík. braut 25, Akranesi, sem lést þann 17. október, verður jarðsunginn frá Fossyogskapellu fimmtudaginn 24. október kl. 15. Ragnar Eliasson, Hátúni 8, Reykja- vík, veröur jarðsunginn frá Dóm- kirkjunni fóstudaginn 25. október kl. 13.30. Oddur J. Tómasson lést 12. október. Hann var fæddur 14. júlí 1897, sonur hjónanna Vilhelmínu Sveinsdóttur og Tómasar Jónssonar. Oddur lærði ungur málaraiön og lauk sveinspróti 1929. Hann hlaut meistararéttindi 1937. Oddur vann alla tíð aö iön sinni sem sjálfstæður verktaki. Hann gift- ist Guöbjörgu Eiríksdóttur en þau slitu samvistum. Þau eignuðust sjö börn en misstu þrjú þau yngstu. Fyr- ir hjónaband éignaðist Oddur son meö Rannveigu Margréti Guð- mundsdóttur. .Útför Odds verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30. Gyðufell 16, hluti, þingl. eig. Edda Þorsteinsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 25. október ’91 kl. 16.30. Uppboðsbeiðendur em Gjaldheimtan í Reykjavík, Veðdeild Landsbanka Islands og Ólafúr Axelsson hrl. Suðurhólar 28, hluti, þingl. eig. Svan- hildur Kr. Hákonardóttfr, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 25. október ’91 kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur em Gjaldheimtan í Reykjavík og Veðdeild Landsbanka íslands. Tungusel 7, 4. hæð, merkt 4-1, þingl. eig. Bemhard Schmidt, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 25. október ’91 kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur em Guð- jón Ármann Jónsson hdl., Veðdeild Landsbanka íslands og íslandsbanki Tungusel 7, hluti, þingl. eig. Sigurður V. Ólafsson, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 25. október ’91 kl. 14.15. Upp- boðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík. Unufell 25, hluti, þingl. eig. Halldór Ingólfsson, fer ffarn á eigninni sjálfri föstud. 25. október ’91 kl. 14.30. Upp- boðsbeiðendur em Jón Egilsson hdl. og Ævar Guðmundsson hdl. Vallarás 2, hluti, þingl. eig. Kristján Ólafsson, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 25. október ’91 kl. 17.00. Upp- boðsbeiðandi er Eggert B. Ólafeson hdL_____________ BORGARFÓGETAEMBÆTTIÐ1REYKJAVÍK Tilkyrmingar Dagur sameinuðu þjóðanna haldinn hátíðlegur Félag UNIFEM á islandi boöar til morg- unveröarfundar í tilefni af degi samein- uöu þjóöanna hinn 24. október nk. á Hót- el Holiday Inn, Fundurinn er öllum opinn og hefst kl. 8.30 og lýkur um tíuieytiö. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadótt- ir, verður heiöursgestur fundarins. Flutt- ir verða tveir fyrirlestrar. Sigrún Stef- ánsdóttir fjölmiölafræðingur fjallar um fræóslu og fréttir af þróunarmálum í ís- lenskum fjölmiölum og Bima J. Ólafs- dóttir, fulltrúi Þróunarsamvinnustofn- unar, flytur erindi um kvennasamtökin á Grænhöfðaéyjum. Guðni Franzson tón- listarmaður flytur tvö lög. Á fundinum veröa til sölu vömr frá Namibíu og Grænhöföaeyjum í fjáröflunarskyni. Lyklar fundust við Landspítalann Margir lyklar í svörtu leðurhulstri, m.a. einn bíllykill, fundust á bílaplaninu viö Landspítalann. Eigandi getur vitjað þeima í upplýsingum á Landspítalanum. Félag eldri borgara Þeir sem ætla meö í Selfossferðina 26. október láti vita á skrifstofu félagsins ekki seinna en fyrir hádegi á fimmtudag. Hlaðvarpahátíð 24. október í tilefni 24. október halda konur upp á daginn með fjölbreyttri Hlaövarpahátíö. Boöið verður upp á morgunkaffi kl. 7-9. Opið hús og dagskrá verður frá kl. 7-23. Byrjað verður á kínverskri leikfimi, Ta- ijiquan, undir leiðsögn Chen Ming frá Hreyfilistahúsinu, kl. 7.10, 8.10 og 9.10. Yfir daginn munu nokkrar konur verða með ljóðaupplestur og bókakynningar. Guðrún Jónsdóttir arkitekt mun kynna sögu húsanna kl. 16. Jóna Einarsdóttir mun spila á harmóníku kl. 8.30 og 15.30 og þau Laufey Sigurðardóttir og Páll Eyjólfsson spila á fiðlu og gítar kl. 18. Bella verður með sögustund fyrir bömin kl. 17 og Henrietta ætlar að stjóma fjölda- söng kl. 18.30. Suk þess verður samsýning nokkurra kvenna á efri hæðinni. Að lok- um verður Alþýðuleikhúsiö meðleiksýn- ingu á „Undirleikur við morð“ kl. 20.30. Tónleikar Sigrún Eðvaldsdóttir leikur fyrir háskólafólk í tengslum við menningarátak Stúdenta- ráðs tókst samstarf við Sinfórúuhljóm- sveit íslands. í tilefni þess verða í kvöld haldnir sérstakir tónleikar fyrir háskóla- fólk. Einleikari á tónleikunum verður hinn ungi snilhngur, Sigrún Eðvaldsdótt- ir, en stjómandi Petri Sakari. Á tónleik- unum flytur Sigrún fiðlukonsert í d-dúr eítir Jóhannes Brahms en það var ein- mitt flutningur hennar á þeim konsert sem aflaði henni verðlauna á erlendri grund. Tónleikamir verða í Háskólabíói og hefjast kl. 20. Fundir Afmæliskaffi SÍBS Á morgun, fimmtudaginn 24. október, á SÍBS afmæh. Af því tilefni býður SÍBS- deildin í Reykjavík, Berklavöm, félögum í SÍBS og velunnurum sambandsins í af- mæliskaffi í Lauga-ási, Hótel Esju, kl. 20.30 á afmælisdaginn. Gestur fundarins verður dr. Þorsteinn Blöndal, berklayfir- læknir, og mun hann spjalla um nikótín- meðferð við reykingum og svara fyrir- spumum. Allir velunnarar SÍBS em vel- komnir. Nauðungaruppboð Eftir kröfu Garðars Briem hdl., Magnúsar Norðdahl hdl. og íslandsbanka hf. fer fram opinbert uppboð fimmtudaginn 31. október kl. 10.00 í Faxa- skála I, aðkeyrsla frá Sæbraut. Þar seldar þessar vélar: Stemac Lcrtu 900 þykktarpússivél, Giben Supermatic 76 EM plötusög, Paul Ott KG spóna- pressa D99-360. Kl. 11.00 að Skeifunni 8. Þar selt Torwege tvíblaðasög, Marbideli borvél, 2 gámar með ósamsettum húsgögnum o.fl., allt talið eign Trésmiðjunnar Viðju hf. Greiðsla við hamarshögg. UPPBOÐSHALDARINN i RE\ KJAVÍK Myndgáta -w ) /í2. rVW -EYþoie.- Myndgátan hér að ofan lýsir karlkynsorði í ft. Lausngátu nr. 161: Heldur máli gangandi Ferðalög Ferðafélag íslands Miðvikudagur 23. okt. kl. 20 Kvöldganga á fullu tungli i Heiðmörk Fyrsta tunglskinsganga í reit félagsins í Skógarhlíðarkrika í Heiðmörk. Gengið um rómantíska skógarstíga þar og í ná- grenninu. Skemmtiganga fyrir fólk á öh- um aldri. Verð kr. 500, frítt f. börn með foreldrum sínum. Brottfór frá Umferð- armiðstöðinni, austanmegin. Sunnudag- inn 27. okt. verður vetri heilsað með tveimur ferðum: göngu á Vífilsfell og lág- lendisgöngu. Útivist um helgina Fjallaferð um vetrarnætur Óvissuferð 1 25.-27. okt. Ein af hinum sívinsælu útivistarferðum. Að þessu sinni er ákvörðunarstað haldið leyndum allt þar til að brottfór kemur. Lagt af stað ffá BSI, bensínsölu, kl. 20. Fararstjóri er Lovísa Chrisöansen. Allir velkomnir. Fyrirlestrar Háskólafyrirlestur Dr. James Kissane, prófessor í enskum bókmenntum við Grinneh College í Iowa í Bandaríkjunum, flytur opinberan fyrir- lestur í boöi heimspekideildar Háskóla íslands miövikudaginn 23. október kl. 17.15 í stofu 301 í Ámagarði. Fyrirlestur- inn nefnist „Through the sweet shop window: Reading in Keats“ og verður fluttur á ensku. James Kisgane hefur skrifað margar greinar um enskar bók- menntir á 19. öld, þó sér í lagi um skáld- in Keats og Tennyson, og hefur einnig samið bókina Alfreð Tennyson í hinni kunnu ritröð Twayne Enghsh Author Series (nr. 110). Fyrirlesturinn er öhum opinn. Leikhús LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR DÚFNAVEISLAN eftir Halldór Laxness. 13. sýning laugard. 26. okt. 14. sýning löstud. 1. nóv. 15. sýning fimmtud. 7. nóv. 16. sýning laugard. 9. nóv. Litla svið: ÞÉTTING eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson Föstud. 25. okt. Laugard. 26. okt. Sunnud. 27. okt. Miðvikud. 30. okt. Fimmtud. 31.okt. Föstud. 1. nóv. LJÓN í SÍÐBUXUM eftir Björn Th. Björnsson. urbjörnsson, Magnús Jónsson, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Margrét Ólafsdóttir, Ragnheiður Tryggvadóttir, Saga JónsdóHir, Sig- urður Karlsson, Steindór Hjörleifs- son, Þórey SigþórsdóHir, Þröstur Leó Gunnarsson o.fl. Frumsýning fimmtud. 24. okt. Upp- selt. 2. sýning föstud. 25. okt. Grá kort gilda. 3. sýning sunnud. 27. okt. Rauö kort gilda. 4. sýning miðvikud. 30. okt. Blá kort gilda. 5. sýning flmmtud. 31. okt. Gul kort gilda. Allar sýningar hefjast kl. 20. Leikhúsgestir, athugið! Ekki er hægt að hleypa inn eftir að sýning er hafin. Kortagestir, ath. að panta þarf sér- staklega á sýningar á litla sviðiö. Miðasala opin alla dagafrá kl. 14-20 nema mánudaga trá kl. 13-17. Miða- pantanir i sima alla virka daga trá kl. 10-12. Siml 680680. Leikmynd og búningar: Hlin Gunn- arsdóHir. Lýsing: Lárus Björnsson. Tónllst: Þorkell Slgurbjörnsson. Lelkstjóri: Ásdis SkúladóHir. ínan JMilBEMl® Lelkarar: Árni Pétur Guðjónsson, Gunnar Helgason, Guðmundur Ól- afsson, Guörún ÁsmundsdóHlr, Helga Þ. Stephensen, Helgi Björns- son, Jakob Þór Einarsson, Jón Sig- Lelkhúskortin, skemmtileg nýjung, aðelns kr. 1000. Gjafakortin okkar, vinsæl tækifærisgjöf. Greiðslukortaþjónusta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.