Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1991, Side 4
4'
FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1991.’
Fréttir_____________________________________________________________
Sakadómur Reykjavíkur sýknaði tvo unga menn af tryggingasvikum:
Játa að haf a falsað
vettvang áreksturs
Sakadómur Reykjavíkur hefur
sýknaö tvo unga menn af ákæru um
tryggingasvik. Mennirnir gengust
viö því aö hafa falsað vettvang aö
árekstri. Vitni bar viö lögreglurann-
sókn aö tjónið hefði viljandi veriö
sett á svið meö fjórum ákeyrslum.
Ungu mennirnir, sem eru 19 og 20
ára, voru á bílum sínum við kvart-
mílubrautina við Hafnarfjörö aö
kvöldi 14. janúar síöastliöins. Menn-
irnir sögöu báöir viö dómsyfirheyrsl-
ur aö tjónið hefði orðið þegar annar
ökumaðurinn náöi ekki aö stööva bíl
sinn í hálku. Bíllinn heföi því runnið
á hina bifreiöina.
Þriöji maðurinn var á vettvangi um
kvöldið. í lögregluyfirheyrslu lýsti
sá maður 4 ákeyrslum á annan bílinn
viö kvartmílubrautina. Árekstramir
voru því sviðsettir. Vitniö sagöist
sjálft hafa ekið öðrum bílnum tvisvar
á hinn á 40-50 km hraða. Hann sagði
eigendur bílanna báöa hafa leikiö
sama leikinn eftir - í annaö skiptiö
á svipuðum hraöa en í hitt skiptið
var „bensínið í botni“. 3 dögum fyrir
atvikiö keypti maöurinn sem átti
ákeyrslubílinn kaskótryggingu og
greiddi meö innstæðulausum tékka.
Eftir atburðinn skiluðu báðir eig-
endur bílanna tjónstilkynningum
inn til tryggingafélaga sinna, Trygg-
ingamiöstöövarinnar og Almennra
trygginga. Mennirnir viðurkenndu
báöir fyrir dómi aö hafa talið aö
tryggingar bOanna næöu ekki til
tjóns sem hlytist á kvartmílubraut-
inni. Því ákváöu þeir aö haga tjónstil-
kynningunni þannig aö áreksturinn
hefði oröiö á mótum Sogavegar og
Réttarholtsvegar - í því skyni aö fá
tjónið örugglega bætt. Annar mann-
anna fékk 415 þúsund krónur í bætur
hjá Tryggingamiðstöðinni vegna
kaskótryggingarinnar.
Fulltrúi hjá Tryggingamiöstöðinni
lýsti því fyrir dómi að mögulegt hefði
verið aö bifreiöarnar heföu rekist
saman oftar en einu sinni en alls
ekki 4 sinnum á 40-50 km hraða. Með
hliðsjón af framburöi tryggingafull-
trúans um aö ekki heföi veriö mögu-
legt aö um ítrekaðar ákeyrslur heföi
veriö aö ræöa, og framburði sak-
borninganna, taldi dómurinn aö ó-
sannað væri aö þeir hefðu sett
ákeyrslurnar á sviö. Fulltrúinn úti-
lokaöi heldur ekki aö tryggingafélag
hans hefði greitt tjón vegna kaskó-
trygginarinnar þrátt fyrir aö árekst-
urinn hefði átt sér stað á kvartmílu-
brautinni. Þessu tók dómurinn miö
af. í niðurstöðu hans segir m.a.:
„Ekki skiptir máli hér þótt ákæröu
hafa talið sig þurfa aö staðsetja
áreksturinn svo sem í ákæru greinir
til að fá tjón sitt bætt. Með vísan til
þessarar meginreglu íslensks réttar
þess efnis, aö allan vafa beri aö skýra
sökunauti í hag, eru ákærðu báðir
sýknaðir. ... Vegna þessara mála-
lykta er ekki fjallaö um bótakröfu
Tryggingamiöstöðvarinnar.
Dómurinn gerði einnig athuga-
semd við að lögregla hefði yfirheyrt
þriöja aöilann sem vitni en ekki sem
grunaðan hlutdeildarmann. Vitniö
gat af þessum sökum skorast undan
aö svara spumingum fyrir dómi
vegna tengsla sinna viö málið. Annar
hinna ákærðu manna var alfarið
sýknaöur en hinn dæmdur fyrir aö
greiöa kaskóiögjaldið með innstæöu-
lausriávísun. Akvörðun um refsingu
hans var hins vegar frestaö í 2 ár
skilorðsbundið. Hann var dæmdur
til að greiða 15 þúsund krónur í máls-
kostnað en annar kostnaöur, 55 þús-
und krónur, fellur á ríkissjóð. Guö-
jón St. Marteinsson sakadómari kvaö
uppdóminn. -ÓTT
Úlfar B. Thoroddsen á Patreksflrði:
Aldrei séð eins
Iftið af ijúpu
„Ég skapp fyrsta daginn, sem mátti
skjóta, í Hálfdán og fékk fimm rjúp-
ur, en sá ekki mikið, reyndar mjög
lítið," sagöi Úlfar B. Thoroddsen á
Patreksfirði við DV.
„Rjúpnaveiöina hef ég stundað í 25
ár og aldrei séð eins lítið af ijúpu.
Tveir aörir skotveiðimenn fóru innar
á fjallið og fengu sjö rjúpur. Ein-
hverjir fóru í fjalliö upp af þorpinu
og sá sem fékk mest var með sex
rjúpur," sagði Úlfar.
„Rjúpnaveiðin hefur gengið mis-
jafnlega hérna í Vopnafiröinum síð-
an hún byrjaði. Skotveiöimenn hafa
verið með þetta frá einni rjúpu upp
í 20 eftir daginn,“ sagöi Garðar H.
Svavarsson í Vopnafirði í gær.
' „Það sést eitthvað af rjúpum en
þær eru styggar. Veðurfar mætti
vera betra en það er kominn þessi
árstími," sagði Garðar ennfremur.
„Ég frétti af skotveiðimönnum sem
voru saman fyrir norðan og fengu á
tveimur dögum 40 rjúpur. Þeir fór
heim vegna veöurs," sagði Sverrir
Sch. Thorsteinsson í gær.
„Veðurfarið hefur verið leiðinlegt
og veiðimaður, sem var vestur í
Djúpi, fékk ekkert en sá töluvert.
Rjúpan þar var mjög stygg,“ sagði
Sverrirennfremur. -G.Bender
Þrátt fyrir frekar slæmt veður hafa rjúpnaveiðimenn fengið eitthvað af rjúp-
um en þær eru styggar. En ekki sleppa allar. DV-mynd G.Bender
Akureyri:
Nýjum bíl
stolið úr
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyrfc
„Við erum óneitanlega slegnir
yfir þessu,“ sagði Ágúst Hilmars-
son, sölumaður hjá Þórshamri á
Akureyri, í gær en í fyrrinótt var
brotist inn í sýningarsal fyrir-
tækisins á nýjum bílum og bifreið
af gerðinni Daihatsu Applause,
árgerð 1991, stolið.
Sá eða þeir sem þarna voru að
verki brutu rúðu til að komast
inn í sýningarsalinn og þaðan
brutu þeir sér leið inn á skrifstofu
bilasölunnar. Ekki var hægt að
sjá í gær að neinu hefði verið stol-
ið öðru en bílnum sem er raosa-
grár á litinn og með númerið ZP
385. Rannsóknarlögreglan á Ak-
ureyri biður þá sem hafa orðið
bifreiðarinnar varir aö láta vita
um ferðir hennar.
Bílljós í ólagi
CSylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það er alltof mikiö að á yfir
40% ökutækja skuli ljósin ekki
vera í lagi,“ sagöi varðstjóri hjá
lögreglunni á Akureyri en könn-
un á Ijósabúnaði ökutækja í bæn-
um fór fram eitt kvöldið nú í vik-
unni.
A!ls voru stöðvaðar 152 bifreið-
ar og á 36 þeirra reyndist Ijósa-
búnaður vera í ólagi. Langmest
var áberandi að arrnað framljósíð
væri í ólagi, að sögn varðstjóra.
Eldur í kassa
GyE Kristjánsson, DV, Akureyri:
Slökkviliðið á Akureyri var
kallað út í gærmorgun en þá hafði
komið upp eldur hjá fyrirtækinu
islenskum skinnaiðnaði á Gler-
áreyrum.
Eldurinn var í kassa utan á
húsinu en þessi kassi tengist
skinnaþynningarvél í sútunar-
deild fyrirtækisins. Eldurinn var
slökktur á nokkrum minútum og
tjónið er ekki talið mjög alvarlegt.
í dag mælir Dagfari
Hefur ísland verið selt?
Dagfari var spenntur fyrir framan
sjónvarpstækið þegar stjómmála-
foringjamir voru spurðir um álit
þeirra á samningunum við Evrópu-
bandalagið. Þama vora þeir mættir
allir, Jón Baldvin, Davíð, Stein-
grímur og Ólafur Ragnar, og Dagf-
ari mundi ekki betur en að þeir
hefðu allir tekið þátt í því að ganga
til samninga við EB. Fyrst gamla
stjómin og svo sú sem núna situr.
Nú mundi í fyrsta skipti í sögimni
renna upp sú stund aö allir gömlu
stjómmálaflokkamir stæðu saman
um stórt og mikilvægt mál og allir
mundu ljúka upp lofsorði á þá nið-
urstöðu sem fékkst í Lúxemborg.
Þeim yrði ekki skotaskuld úr því,
stjórnmálaforingjunum sem
ábyrgð bera á þessum samningum.
Steingrímur og Ólafur Ragnar vora
báðir með Jóni Baldvin í gömlu
stjóminni og stofnuðu til viðræðn-
anna við Evrópubandalagið og
skrifuðu sjálfir þá fyrirvara og þær
kröfur sem íslendingar hafa sett
fram. Þeir vissu líka hvaða skilyrði
Evrópubandalagið setti gagnvart
evrópsku efnahagssvæöi.
Þama var Davíð sem hafði sent
Jón Baldvin út á vegum núverandi
ríkisstjómar til að semja um það
sem fyrrverandi ríkisstjórn hafði
ákveðið. Þama var ennfremur Jón
Baldvin sjálfur sem utanríkisráð-
herra í báðum stjómunum og var
þess vegna með tvöfalt umboð til
að standa í þessum samningum.
Það er ekki amalegt að hafa svona
margeflt lið til að útskýra ávinn-
inginn af flóknum en frægum
samningum, þar sem íslendingar
leggja sjálft Evrópubandalagið með
hælkrók og þar sem við fáum allt
fyrir ekkert. Sigur yfir Evrópu-
bandalaginu jafnast á við heims-
meistaratitil í bridge og afsannar
að íslendingar séu betri í bridge en
pólitík. Við eram heimsmeistarar í
pólitík. Eða svo hélt Dagfari.
En þá kom annað í ljós. Stein-
grímur og þó sérstaklega Ólafur
Ragnar Grímsson sáu margvíslega
annmarka á þeim samningum sem
þeir höfðu undirbúið. Ólafur held-
ur því meira að segja fram að við
séum búnir að afsala okkur full-
veldinu! Hvorki meira né minna.
Það kom sem sagt í ljós að Stein-
grímur og Ólafur Ragnar vora á
móti þeim samingum sem þeir
höfðu sjálfir stofnað til. Jón Bald-
vin átti í fullt í fangi með að út-
skýra fyrir þeim félögunum það
sem þeir höfðu áður lagt til og nú
var samið um. Hann þurfti að segja
þeim að málið væri ekki eins slæmt
og þeir héldu að þeir hefðu fallist á.
Verst var þó aöstaða Davíös
Oddssonar sem þurfti að halda
langar ræður í þessum sjónvarps-
þætti til að vexja það sem hann
hafði fengið í arf frá fyrri ríkis-
stjóm. Hann þurfti að leggja sig í
líma við að hugga og hughreysta
Steingrím og Ólaf Ragnar um að
samningamir, sem þeir síðar-
nefndu hefðu stofnað til og sam-
þykkt í fyrri sfjóm, væru alls ekki
eins slæmir og þeir sjálfir héldu.
Davíð sat sem sagt þarna til að taka
við skömmum og gagnrýni frá
Steingrími og Ólafi um samninga
um evrópskt efnahagssvæði, sem
Steingrímur og Ólafur höfðu á sín-
um tíma samþykkt.
Það runnu auðvitað tvær grímur
á Dagfara þegar hann heyröi þessa
sérkennilegu umræöu, þar sem
mennirnir, sem áður vildu evr-
ópskt efnahagssvæði, lýstu því fyr-
ir þjóðinni hversu hættulegt það
væri að samþykkja það sem þeir
höfðu sjálfir samþykkt. Sigurinn í
Lúxemborg er að snúast upp í ósig-
ur. Gamli sáttmáli virðist vera að
fæðast á ný.
Aumingja Jón Baldvin, sem setið
hefur í báðum ríkisstjómunum,
hafði greinlega ekki áttað sig á því
hversu alvarlegur glæpur þessi
samningur er. Hann hafði verið svo
óheppinn að sitja áfram í ríkis-
stjórn, eftir að hinir duttu út, og
stendur þess vegna í þeirri mein-
ingu að hann eigi að hafa sömu
skoðun í þessari ríkisstjóm og
hann hafði í fyrri ríkisstjóm. Hann
hefur ekki haft tækifæri til að
skipta um skoðun eins og Stein-
grímur og Ólafur Ragnar og er að
veija mistökin sem hann gerði í
fyrri stjórn.
Nú er ekkert annaö að gera en
að bakka út úr þessum sigri. Við
getum ekki afsalaö okkur fullveld-
inu fyrir það eitt að Jón Baldvin
hefur ekki haft vit á þvi að skipta
um skoðun.
Dagfari