Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1991, Page 9
FIMMTUDAGUR 24, QKTÓBER 1991.
9
DV
Finnsktblað
spáir inngöngy
s'EB
Stærsta dagblað Finnlands,
Helsingin Sanomat, spáði því í
leiðara í gær að bæði Norðmenn
og Finnar mundu neyðast til að
sækja um aðild að Evrópubanda-
laginu fyrr en reiknað hafði verið
með.
Blaðið vísaöi til orða Paavo
Váyrynen, utanríkisráöherra
Finniands, um að EES-samning-
urinn gæfi Finnum nægan tíma
til aö huga að umsókn um aðild
að EB, en dró í efa að málið væri
í raun þannig.
í leiðaranum sagöi að Svíar
sæktu nú fast eftir aðild og ætl-
uðu sér styttri tíma en áður. Það
væri staðreynd sem þvingaði
Finna til skjótra aðgerða, ef þeir
ætluðu sér aö fylgja straumnum.
Þrátt fyrir allan fagurgala væri
EES ekki hið sama og aðild að EB.
Þá sagði blaðið að veikleiki EES
væri sá að Finnland og önnur
EFTA-lönd yrðu háð ákvörðun-
um EB án þess að hafa á þær
áhrif.
Reglugerðgegn
kynferðislegri
áreitni
Þing Evrópubandalagsins
hvatti til þess á þriöjudag að sett
yrði reglugerð þar sem lagðar
væru línurnar um hvemig ætti
að fara meö kvartanir um kyn-
ferðislega áreitni.
Þingmennimir greiddu skýrslu
frá framkvæmdastjórn EB at-
kvæði sín og samþykktu viöbót
um kynferðislega áreitni gagn-
vart karlmönnum.
Samþykkt þingsins felur í sér
að náist ekki sátt í máh þar sem
kvartað hefur verið undan kyn-
ferðislegri áreitni skuli fara með
máfið fyrir dómstólana og fórn-
arlömbum greiddar bætur.
EESeykurlíkur
ásameiningu
Rudolf Seiters, ráðherra í þýsku
stjórninni, lýsti EES-samningn-
um sem sögulegu skrefi í átt til
sameiningar Evrópu.
„Sex vikum fyrir leiðtogafund
Evrópubandalagsins í Maastricht
verður samningasigur þessi
hvatning í viðræðum EB-land-
anna um efriahagslega, peninga-
lega og pófitíska sameiningu,"
sagði í yfirlýsingu frá ráðherran-
um.
„Þetta eykur líkurnar á því aö
leiðtogar EB-landanna komist aö
samkomulagi um aukna sam-
vinnu innan bandalagsins.“
Flóknar og erfiðar viðræður
fara nú fram innan EB um efna-
hagslega og pólitiska sameiningu
og eiga samningar þar að lútandi
að vera tilbúnir til undirritunar
í Maastricht i desember.
Bíkíníbara
ísundlauginni
Indónesískar konur mega nú
aftur taka þátt í fegurðarsam-
keppni á erlendri grund eftir tutt-
ugu ára bann og þær mega meira
að segja klæðast bikíní ef þær
halda sig ofan í sundlaug.
Dagblöð í Indónesíu, þar sem
fleiri íslamstrúarmenn eru en í
nokkru öðru landi, birtu í gær
forsiðumyndir af forsetafrúnni
þar sem hún var að ræða væntan-
lega fulltrúa landsins í keppnina
um ungfrú alheim árið 1993 við
félaga í Fegurðardrottningastofn-
uninni.
Bann var lagt viö þátttöku indó-
nesískra kvenna í fegurðarsam-
keppni áriö 1971 eftir mikil mót-
mæli námsmanna og trúarleið-
toga. Þeir töldu bíkíníbáðfötin
vera móðgun viö boð íslams um
hófsaman klæðaburð.
FNB og Reuter
Útlönd
Júgóslavneski herinn ræðst til atlögu gegn Dubrovnik:
Sprengjur hafa fallið
á gömlu miðborgina
Grænlenskir
stjórnmálamenn
hækka laun sín
Félagarnir í grænlensku fjárlaga-
nefndinni hafá ákveðiö að hækka
laun sín. í nýju frumvarpi til fjárlaga
er gert ráö fyrir að formaður nefnd-
arinnar fái eftirleiðis 80 þúsund
danskar krónur á ári fyrir starf sitt.
Það eru um átta hundruö þúsund
krónur íslenskar en hann hafði áöur
helmingi lægri laun.
Aðrir nefndarmenn voru ólaunaðir
áður en fá nú sem svarar fjögur
hundruð þúsundum íslenskra króna.
Þetta er réttlætt með því að aðrir
menn, sem landsþingiö kýs til
skyldustarfa, fá enn hærri laun.
Þannig fær ríkisskipaður stjórnar-
formaður útgerðarfyrirtækisins
Royal Greenland milljón á ári en
gegnir þó aðeins heiðursstöðu.
Ritzau
Útgerð rækju-
togaranna á
hausnum
Útgerð rækjutogara frá Grænlandi
hefur gengið afar illa á þessu ári.
Sagt er að af 27 togurum séu 22 rekn-
ir með tapi. í sumum tilfellum hafa
útgerðirnar tapað verulegum fjár-
hæðum.
Þannig munu þess dæmi aö 15
milljónir danskra króna hafi tapast
á útgerð eins togara. Það eru um 150
milljónir íslenskra króna. Ekki bætir
úr skák að 12 útgerðarfélög eiga ekki
lengur fyrir skuldum. Útgerðarmenn
kenna minnkandi kvótum um
ástandið.
Ritzau
Júgóslavneski herinn varpaði
sprengjum bæði af sjó og af landi á
16. aldar virkið í ferðamannabænum
Dubrovnik við strönd Adríahafsins í
fyrsta sinn í gær. Herinn hefur setið
um borgina í þrjár vikur og hafa
bardagar í nágrenni hennar færst
mjög í aukana á undanförnum dög-
um.
„Sprengjur hafa fallið á gömlu mið-
borgina. Þeim var varpað frá her-
sveitum af láði og af legi," sagði Sim-
on Smits, yfirmaður eftirlitssveita
Evrópubandalagsins í Júgóslavíu.
Smits hafði ekki upplýsingar um
skemmdir á glæsibyggingum frá
endurreisnartímanum, súlna-
göngum og hallarbyggingum í gamla
bænum.
Útvarpið í Króatíu skýrði hins veg-
ar frá því aö sprengjur hefðu lent á
Rupe-safninu, gömlu borgarmúrun-
um við Minceta-turninn, aðalgötunni
Stradun, tónlistarskólanum og
Sponza-höll þar sem nú er listasafn
borgarinnar.
„Það hefur veriö ráðist á allt í ná-
grenni gömlu borgarinnar," sagði í
fréttum útvarpsins.
Um sextíu þúsund manns, menn,
konur og börn, komast hvergi vegna
umsáturs hersins um borgina.
Ástandiö fer hríðversnandi þar sem
bæjarbúar hafa lítið eða ekkert vatn
og rafmagn. Þá eru fjarskipti við
borgina erfiö.
Sprengjuárásirnar á gamla bæjar-
hlutann í Dubrovnik eru liður í auk-
inni sókn júgóslavneska hersins til
Króatískur þorpsbúi sýnir fréttamönnum skemmdir á húsi sínu i Pogupsgo eftir skriðdrekaárás júgóslavneska
hersins.
Símamynd Reuter
að kveða niður uppreisnina í Króatíu
áður en vetur gengur í garö á þessum
slóðum. Varnarmálaráðherra Júgó-
slavíu hefur hótað því að ganga end-
anlega milli bols og höfuðs á Króöt-
um og að fleiri menn verði kvaddir
í herinn til að styrkja hann.
Sprengjum var einnig varpað á
Vukovar í gær og þotur flughersins
gerðu árásir á Vinkovci. Harðir bar-
dagar voru einnig á öðrum stöðum í
Króatíu í gær. Alls hafa nú meira en
eitt þúsund Króatar látið lífið í átök-
unum í lýðveldinu en ekki er vitað
hve margir hermenn hafa fallið.
Friðarráðstefna EB um Júgóslavíu
heldur áfram í Haag í Hollandi á
morgun.
Reuter
Matreiðslumeistararnir i Óðinsvéum bjóða þessa dagana upp á ýmiss konar villibráð og má á matseðlin-
um meðal annars finna gómsæta rétti úr villigæs, villiönd og hreindýri.
VILLIBRÁÐ í ÓÐINSVÉUM
1 veitingahúsinu Óðinsvéum
við Óðinstorg er nú á borðum
villibráð eins og venja hefur
verið á þessum tíma árs.
Borðapantanir eru í síma 91-25090.
í hádeginu og á kvöldin er boð-
ið upp á fjölbreytt úrval af villi-
bráð sem matreiðslumeistarar
hússins matreiða á ýmsa vegu.
Má þar meðal annars finna
villigæs, villiönd, hreindýr og
sitthvað fleira góðgæti, allt
með tilheyrandi meðlæti.