Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1991, Side 32
F R 62 ÉTT A S K O T 1 • 2 Ð
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn- hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta- í DV, greiðast 2.000 krónur. skotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 2 7022
FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1991.
Skylduaðild að
stéttarfélögum
úrsögunni?
^ Þegar evrópski efnahagssamning-
urinn tekur gildi 1. janúar 1993 gæti
svo farið að skylduaðild að verka-
lýðsfélögum, eins og tíðkast hér á
landi, væri úr sögunni. Þeir útlend-
ingar sem hingað kæmu til vinnu
væru ekki skyldugir til að ganga í
verkalýðsfélag.
Steingrímur Hermannsson, for-
maður Framsóknarflokksins, sagði í
morgun að hann hefði leitað svara
við þessu hjá Hannesi Hafstein, aðal-
samningamanni okkar í EFTA/EB-
samningunum. Steingrímur sagðist
hafa fengið óljós svör, máhð væri
ekki á hreinu. Hannes hefði sagt að
hann ætti þó frekar von á því að
skylduaðild yrði úr sögunni.
. Jón Baldvin Hannibalsson sagði í
~’morgun að máhð væri umdeilt. Berg-
lind Ásgeirsdóttir, ráðuneytisstjóri í
félagsmálaráðuneytinu, sagðist ekki
hafa séð neitt í samningnum sem
benti til þess að skylduaðild yrði
bönnuð.
Sá sem ekki gengur í verkalýösfé-
lag á íslandi getur ekki fengið at-
vinnuleysisbætur og nýtur ekki
ýmissa annarra félagslegra réttinda.
-S.dór
Byggingarfélagsið hf.:
Um 140þúsund
upp í150
milljóna kröfur
Alls fengust tæp 140 þúsund krónur
upp í forgangskröfur í þrotabú Bygg-
ingafélagsins hf. í Kópavogi en
skiptameðferð lauk í gær. Forgangs-
kröfurnar námu 12 milljónum en
lýstar kröfur námu samtals 150 millj-
ónum króna.
Stærstir almennra kröfuhafa i
þrotabúið voru skattheimtan með 16
milljónir og Kaupþing með 12 millj-
ónir. Aörir voru með lægri kröfur
_en lýstar kröfur voru 185 talsins.
Þá gerði Ríkisábyrgðasjóður kröfu
um 6,5 milljónir króna vegna launa-
greiðslna. Upp í þá kröfu fengust 70
þúsund krónur. .JSS
Loðnukvótinn:
Ennerbeðið
LOKI
Það verður auðvitað að
hafa fínpússað andlit í nýja
vegabréfinu!
Tveir teknir með
riffil í bílnum
- enginnvaríhaldiímorgun,
Rannsóknarlögregla ríkisins
hefur rætt viö pilta sem grunaðir
eru um að hafa verið á vettvangi
þegar kviknaði í sumarbústað i
Heiðmörk undir kvöld i gær. Sum-
arbústaðurinn er talinn nánast
ónýtur. Tahð er fullvíst að um
íkveikju hafi verið að ræöa þvi ekk-
ert rafmagn er í bústaðnum og eig-
endur höfðu ekki verið í honum
síöan um síðustu helgi. Að sögn
yfirlögregluþjóns hjá RLR var eng-
inn í haldi vegna málsins í morgun.
Norska félagið er eigandi sumar-
bústaðarins. Vörubílstjóri sem átti
leið framhjá sumarbústaðnum til-
kynnti fyrst um eldinn.*Hann sá til
mannaferða og rauðan Toyotabíl
með fiórum mönnum í skömmu
Eldur logaði glatt í bústaðnum
þegar slökkvilið kom á staðlnn.
DV-mynd S
áöur en kviknaði í. Vörubílstjórinn
tilkynnti siðan um eldinn. Þegar
slökkvihð kom á staðinn stóð bú-
staðurinn nánast í björtu báh.
Hluta hússins tókst þó að bjarga frá
því að gjöreyðileggjast. Þegar farið
var að kanna verksummerki nánar
leit út fyrir að byssukúlum hefði
verið skotið í viðinn á sumai'bú-
staðnum.
Lögreglan í Breiðholti fann í gær-
kvöldi umræddan Toyotabíl en í
honum var riffill. Eigandi bílsins
og einn annar voru færðir til Rann-
sóknarlögreglu. Piltarnir sem hér
um ræðir eru um 17 ára en ekki
er ljóst hvort þeir voru báðir við
sumarbústaðinn þegar eldurinn
kviknaði. -ÓTT
„Ég er ekki búinn að fá tillögur í
hendurnar um loðnuveiði og engu
nær ákvörðun um bráðabirgðakvóta.
Hafrannsóknarmenn hafa fundið
loðnu eins og skipstjóramir. Það er
hins vegar eitthvað af smáloðnu inn-
an um og þaö getur valdið erfiðleik-
um. Ég vonast þó til að fá nauðsynleg
gögn í hendurnar mjög fljótlega,"
"’sagði Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra við DV í morgun. -hlh
Veðriðámorgun:
dálítil él
Á morgun verður suðvestan
kaldi. Skúrir eða dálítil él verða
sunnanlands og vestan en annars
þurrt. Hiti verður á bihnu 3-7
stig.
Hlýindin:
Grjóthrun
fyrir vestan
„Það er algengt að það komi svona
hlýindakaflar á öllum árstímum,"
sagði Bragi Jónsson veðurfræðingur
við DV í morgun.
Hlýindin undanfama daga hafa haft
allnokkur áhrif. Að sögn Kristins
Jónssonar hjá Vegagerð ríkisins á
Vestfjörðum hefur nokkuð borið á
grjóthruni í bröttustu hlíðunum. Má
þar nefna Óshlíð og Súðavíkurhlíð.
Kristján sagði að hrunið hefði orðið
einna mest í svokallaðri Kinn á
Breiðadalsheiði en þar er mikið bratt-
lendi. Ekki hefði það þó tafið fyrir
umferð. Allir fjallvegir væru nú færir.
Bragi Jónsson veðurfræðingur
sagði að veðrið yrði með svipuðu
móti og verið hefði um sunnan- og
vestanvert landið. Búast mætti við
suðvestanátt og allt að sex vindstig-
um. Fyrir norðan og sunnan myndi
hlýna í veðri. -JSS
Kasparov í
banastuði
Heimsmeistarinn í skák, Garrí Ka-
sparov, er óstöðvandi á stórmótinu í
Tilburg í Hollandi. í 5. umferð á mið-
vikudag sigraði hann Indverjann
Anand í aðeins 29 leikjum á hvítt og
notaði til þess 42 mínútur en Anand
90 mínútur. í 4. umferð vann Ka-
sparov Bareev á svart auðveldlega
og hefur náð VA vinnings forskoti
eftir 5. umferðir.
Önnur úrslit urðu þau að Karpov
gerði flmmta jafnteflið í 5 skákum -
nú við Kamsky. Timman vann Bare-
ev og jafntefli varð hjá Kortsnoj og
Short. í 4. umferð vann Short Tim-
man, Anand vann Kamsky en jafn-
tefli varð hjá Kortsnoj og Karpov og
þó hafði Karpov hvítt.
Staðan: Kasparov 4 A v., Short og
Anand 3 v., Karpov og Timman 2 'A
v., Kamsky 2 v., Kortsnoj 1 'A og Bare-
ev 1 v. -hsím
Tilboð streyma
til bridgemanna
Jón Baldvin Hannibalsson utanrikisráðherra kynnti nýgert samkomulag um evrópskt efnahagssvæði á borgara-
fundi á Hótel Sögu í gærkvöldi. Svo sem við var að búast fegraði Jón Baldvin málið á alla lund en það kom í hlut
Grétu Boöa, förðunarmeistara á Stöð 2, að fegra ráðherrann. DV-mynd GVA
Islenskir spilarar eru með sigrin-
um á HM í Japan orðnir vænlegur
kostur á alþjóðamótum í bridge.í gær
kom boð frá Bridgesambandi Indó;
nesíu til íslenskrar sveitar á alþjóð-
legt mót í Djakarta sem haldið verður
um miðjan desember.
Fyrir nokkrum dögum kom boð frá
Campione á Ítalíu fyrir íslenskt
spilapar. Þar verður spilaður tví-
menningur sextán sterkra para víðs
vegar að úr heiminum. Guðmundur
Páh Arnarson og Þorlákur Jónsson
úr HM-hði íslands hafa þekkst boðið.
Mótið fer fram 22.-24. nóvember. -ÍS
0RUGGIR-ALV0RU
mm
PENINGASKAPAR
VARI - ÖRYGGISVÖRUR
I
@ 91-29399
Allan sólarhringinn
VARI
Öryggisþjónusta
síðan 1 969