Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1991, Page 5
ipí'f 1.2? (>r> n ih' 'i Mi.rn '!
ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1991.
5
Fréttir
Tveir af Tælandsmönnunum aö verða skuldlausir 1 Bangkok:
Fá peninga frá Trygginga-
stof nun og ætla ekki heim
- þeir segja mér aö þeir ætli ekki til íslands, segir ræðismaöur
„Ég reikna með að mínum afskipt-
umaf máli þessara manna sé nú lok-
ið. íslendingarnir hafa nú greitt nán-
ast alla sína hótelreikninga enda
hafa þeir fengið senda peninga í
gegnum banka frá Tryggingastofnun
ríkisins á íslandi. Mennirnir eru
búnir að fá vegabréfin sín. Annar
þeirra sagði mér að honum lægi ekk-
ert á til íslands en hinn segist alls
ekki ætla að fara heim,“ sagði Jörgen
Hage, ræðismaður íslands í Bang-
kok, í samtali við DV í gær.
Tveir af hinum svokölluðu Tæ-
landsmönnum eru enn í Bangkok.
Ræðismaður íslands í Bangkok hefur
sent utanríkisráðuneytinu í Reykja-
vík skýrslu um mál mannanna
tveggja. Eins og fram hefur komið í
DV er þriðji maðurinn kominn heim.
RLR handtók hann við komuna til
íslands. Þremenningarnir sviku út
ferð til Tælands út á ávísun úr stolnu
ávísanahefti. Maðurinn, sem kominn
er heim, hefur játað aö hafa haft stol-
ið ávísanahefti undir höndum.
Samkvæmt upplýsingum ræðis-
mannsins er ekkert fararsnið á þeim
tveimur sem enn eru í Tælandi.
Tryggingastofnun ríkisins greiðir
öðrum þeirra, Kristjáni Pálssyni, 47
ára, út 55 þúsund krónur í örorku-
bætur á mánuði. Hinn maðurinn fær
einnig senda peninga frá íslandi, að
sögn ræðismannsins.
„Mennirnir kynntust góðhjörtuð-
um innfæddum leigubilstjóra sem er
búinn að hjálpa þeim mikið og leggja
út í kostnað vegna þeirra. Ég skil
ekki hvers vegna hann er að hjálpa
þeim en hann er allavega góð sál.
Islendingarnir borguðu reikninginn
af fyrra hótelinu sem þeir voru á en
það sem þeir skulda af seinna hótel-
inu er ekki há upphæð enda ódýrt
hótel. Þeir eru því frjálsir og eigin-
lega í fríi núna,“ sagði Hage.
Hage sagði ennfremur að Kristján
talaði góða sænsku: „En hinn maður-
inn, Sigurður Einarsson, 53 ára, get-
ur bara sagt lítilræði í ensku - Thank
you og how do you do. Hann getur
því lítið tjáð sig nema við Kristján,“
sagði ræðismaðurinn. íslendingarnir
eru báðir úr Húnavatnssýslu. Þeir
hafa landvistarleyfi sem ferðamenn
í Tælandi til 16. desember. Eftir því
sem DV kemst næst hafa ráðstafanir
verið gerðar fyrir lögregluna á ís-
landi til að tryggja að mennirnir
komist ekki langt undan þegar og ef
þeir hyggjast fara til íslands.
Þegar DV hringdi í gær á hótelið í
Bangkok, sem Kristján og Sigurður
hafa dvalist á undanfarnar vikur, var
sagt að þeir væru farnir - þeir hefðu
skráð sig af hótelinu í gærmorgun.
-ÓTT
Klippt
afbilum
Lögreglumenn eru í óðaönn þessa
dagana að klippa skrásetningarnúm-
er af bílum sem eigendur hafa van-
rækt að koma með til skoðunar.
Klippt er af 50-70 bílum á dag, að
sögn Ríkharðs Björgvinssonar, varð-
stjóra í Reykjavík. Um 13 þúsund
bíla á eftir að færa til aðalskoðunar
í landinu, þar af 6-7 þúsund á höfuð-
borgarsvæðinu. Þeir sem áttu að
færa bíl sinn í skoðun í júh (með bíl-
númer sem endar á 7) eða áður geta
búist við að klippt verði af hjá þeim
á næstu dögum hvar sem er og hve-
nær sem er.
Klippt er af 50-70 bílum á dag.
DV-mynd S
Sjómannafélag Reykjavikur:
Gæti orðið jólaverkfall
- segir Jónas Garðarsson
„Ég tel að þetta vikuverkfall hafi
haft sitt að segja. Þótt áhrifin hafi ef
til vill ekki verið mikil fer aldrei hjá
því að svona verkfall hafi einhver
áhrif. Nú tekur við tveggja vikna yf-
irvinnubann en síðan hefst aftur
vikuverkfall 11. nóvember hafi
samningar ekki tekist fyrir þann
tíma. Því miður þykir mér staðan í
þessari kjaradeilu vera þannig að ég
á allt eins von á því að allsherjar-
verkfall skelli á í desember og þaö
komi til jólaverkfalls," sagði Jónas
Garðarsson hjá Sjómannafélagi
Reykjavíkur. Vikuverkfalli félagsins
lauk um helgina.
Jónas sagði að ekki væri búið að
boða til samningafundar. Ríkissátta-
semjari væri að fara yfir stöðuna.
Sagðist hann eiga von á því að hann
boðaði til fundar í þessari viku.
-S.dór
(0 HONDA
ýe&fci Áauýi á
<^éœAÍ\éetjfÆvm á tíéföotkwemá
Arið 1830 höfðu uppfinningamenn-
irnir Gurney, Hancock o. fl. sýnt fram
á yfirburði gufubíls-
ins yfir gömlu hest-
vagnana. Rekstar-
kostnaður gufubílsins
var lægri en hestvagn-
anna. Margt hefur breyst, en þó ekki
allt. í dag eru menn að vinna að því að
gera bílinn enn betri og sparneytnari.
Þetta á ekki síst við um framleiðendur
Honda bílanna sem bjóða það besta í
hönnun og glæsileika á viðráðanlegu
verði.
■ .J’árs/r/i'/ // á7-l/s/s////
/r///tffy////)<//' J)-/.
/j/ ■ /ryyyrjr/'rrrrr/.
Jr'r//r/r'r/-. . /í /j . /Jr/rr.jfr/rrrt ■'sr-r'/ruir'
Jíasvda Cúurc jfjöcfU/uui dLyui o&uð- 1/0 kn.. 1 .OÖO.OOO.
c/losuíra CúUc. S-pccriol HC/lÁ j/rá h/i. 980.000,