Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1991, Qupperneq 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1991.
Viðskipti
Evrópskt efnahagssvæði:
Meiri samkeppni
í heildsölu
Viö evrópskt efnahagssvæði vmá
gera ráð fyrir að samkeppni í heild-
sölu á íslandi aukist verulega. Fyrir-
tæki með einkaumboð fyrir ákveðna
vöru getur ekki stöðvað innflutning
annars fyrirtækis á vörunni.
Gunnar Snorri Gunnarsson, skrif-
stofustjóri hjá utanríkisráðuneytinu,
segir að vafalaust verði það áfram
þannig að fyrirtæki erlendis skipti
áfram mest við eitt fyrirtæki hér-
lendis til að dreifa vörum sínum.
Hann segir að meginreglan sé sú
að ef fyrirtækið úti vill selja ein-
hverjum hér heima, sem ekki er með
umboð fyrir viðkomandi vöru, þá
gangi viðskiptin greiðlega í gegn og
fyrirtækið með umboðið getur ekki
stöðvað þau viðskipti.
í stuttu máli gengur evrópska efna-
hagssvæðið út á hindrunarlaus við-
skipti, allt er opið fyrir alla - alls
staðar innan svæðisins. Fyrirtæki,
sem reyna að koma í veg fyrir þessu
opnu viðskipti, geta hugsanlega lent
í sektum.
íslensk fyrirtæki eiga aö geta keypt
vörur erlendis þar sem verðið er
hagstæðast. Þetta þýðir aukna sam-
keppni í heildsölu, innflutningi á
vörum, en samkeppnin hefur til
þessa verið meira hjá smásölunni.
Líklegast eru Hagkaup og Bónus
þekktustu dæmin úr íslensku við-
skiptalífi þar sem smásöluverslanir
hafa vegna mikillar samkeppni sí-
fellt flutt meira inn af vörum.
Hægt er að fara í mörg vöruhús
um alla Evrópu sem hugsa um það
eitt aö selja. Framleiðendur hugsa æ
minna um það hver selur vöruna,
Fyrirtæki með einkaumboð fyrir ákveðinni vöru geta ekki stöðvað innflutn-
ing annars fyrirtækis á vörunni.
EES-dómstóllinn:
EB hef ur meirihluta
Þrátt fyrir evrópskt efnahagssvæði
þlda áfram íslensk lög á íslandi og
fæstiréttur íslands verður æðsti
lómstóll landsins. Engu aö síður
rama íslendingar til með að heyra
nikið um dómstól svæöisins sem
íeitir einfaldlega EES-dómstólinn.
EES-dómstólhnn dæmir á milli
;amningsaðila þegar upp kemur
ágreiningur um túlkun samningsins.
„EinstakUngar leita því ekki til
dómstólsins heldur ríkin,“ segir
Gunnar Snorri Gunnarsson, skrif-
stofustjóri utanríkisráðuneytisins.
Auk EES-dómstólsins verður einn-
ig sérstök eftirlitsstofnun á svæðinu
sem fylgist með að reglum um sam-
keppni sé framfylgt.
Sú eftirlitsstofnun getur sett sektir
á fyrirtæki. Ef fyrirtæki er ekki
ánægt meö þær sektir getur það
áfrýjað tU EES-dómstólsins.
Evrópubandalagið mun hafa meiri
hluta í EES-dómstóinum. í honum
sitja átta dómarar, þrír frá EFTA og
fimm frá Evrópubandalaginu.
-JGH
Jóhannes í Bónus:
Tíu-Ellef u opnuð tíunda
Nýja verslunarkeðjan, sem Jó-
hannes Jónsson í Bónus er að stofna,
hefur hlotið nafnið Tíu-Ellefu. Fyrsta
verslunin verður opnuð 10. nóvemb-
er, tíunda ellefta, klukkan tíu, við
Engihjallann í Kópavogi þar sem
Kaupgarður var lengi til húsa.
„Þetta er upphafið að ákveðinni
þróun sem ég hef haft í huga í mörg
ár,“ segir Jóhannes. Eiríkur Sigurðs-
son, annar Víðis-bræðranna svo-
nefndu, verður yfirmaður Tíu-Ellefu.
Hin nýja verslunarkeðja mun nota
innkaupanet Bónuss og þar af leið-
andi ná hagkvæmum innkaupum.
Þjónustan verður mun meiri en hjá-
Bónusi. Þannig verður opið til klukk-
an ellefu á kvöldin alla daga vikunn-
ar.
Að sögn Jóhannesar mun verðiö í
Tiu-EUefu verða um 15 prósent
hærra en í Bónusi eða á svipuðum
nótum og í þekktustu stórmörkuðun-
um.
Verslunin i Kópavoginum er sú
fyrsta af þremur til fjórum sem til
stendur aö stofna á næstu mánuðum
undir heitinu Tíu-Ellefu. Jóhannes
staðfestir meðal annars að búið sé
að taka á leigu hpsnæði í vesturbæn-
um fyrir eina verslun.
-JGH
Skattafsláttur nái aðeins til útboða
Jón Snorri Snorrason, deildar-
stjóri verðbréfaviðskipta Kaupþings,
skrifar athyglisverða grein í nýjasta
fréttabréf fyrirtækisins. Þar spyr
hann hvort skattafsláttur vegna
hlutabréfakaupa sé ekki á villigötum
og að skattafsláttur eigi aðeins að ná
til hlutabréfakaupa á frummarkaði í
hlutafjárútboðum.
„í dag má fólk kaupa í hvaða hluta-
félagi sem er til þess að fá endur-
greiðslu frá skatti, svo fremi að félag-
ið uppfylli skilyrði ríkisskattstjóra.
Almenningur getur því keypt hlut í
rótgrónu hlutafélagi af verðbréfafyr-
irtæki eða hverjum sem er og fengið
skattafslátt án þess að hlutafélagið
njóti kaupanna á neinn hátt.“
Hann segir ennfremur: „Margir
telja að eðlilegra hefði verið að skatt-
afsláttur fengist aðeins ef viðkom-
andi hlutafélag nyti peninganna sem
keypt væri fýrir.“
Jón segir að borið hafi á því að
undanförnu að félög hafi hætt við
hlutafjárútboð vegna minnkandi eft-
irspurnar á hlutabréfamarkaðnum.
„Það er eðlilegra fyrir ríkissjóð,
sem vill lækka endurgreiðslur á
skatti, að beina skattafslættinum inn
á frummarkað í stað þess að draga
úr hvata almennings til hlutabréfa-
kaupa með því að lækka afsláttinn."
-JGH
svo framarlega sem hún selst og þeir
fá sína peninga.
Á undanförnum árum hefur verið
rætt um að fækka þurfi stórlega
heildsölum á íslandi með því aö upp
komi heildsölukeðjur sem flytji inn
vörur, líkt og er erlendis. Það myndi
draga stórlega úr aukakostnaði við
núverandi kerfi. Kaupmaður, sem
vill hafa gott vörurúrval, þarf núna
að hringja i mörg hundruð heildsala
til að panta vörur en þyrfti ella ekki
nema nokkur símtöl í fáeinar inn-
kaupakeðjur.
-JGH
Hagfræðingar
ræða
mengun í
höfunum
Forvitnileg námsstefna um
mengun í höfunum verður haldin
á Hohday Inn klukkan sautján í
dag. Fundurinn verður öllum
opinn. Fundarstjóri verður Þrá-
inn Eggertsson prófessor.
Aiesec á íslandi, deild í alþjóða-
samtökum viöskipta- og hag-
fræðinema, standa fyrir náms-
stefnunni að Holíday Inn.
Þess má geta að mikið er um
að vera hjá Aiesec á íslandi. Fé-
lagið heldur nú alþjóðlega ráð-
stefnu í fyrsta sinn, formannar-
áðstefnu Aiesec, að Hótel Örk í
Hveragerði. Ráðstefnan stendur
yfir til 4. nóvember.
Yfir 70 erlendir viðskipta- og
hagfræðinemar hvaðanæva úr
heiminum sækja formannaráð-
stefnuna að Hótel Örk.
Eftir ráðstefnuna er gert ráð fyrir
að fariö verði meö hópiim í ferða-
lag og skoðunarferðir um ísland.
-JGH
Peningamarkadur
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
INNLÁN óverðtryggð
Sparisjóðsbækur óbundnar 3,5-4 Allir nema Sparisjóðir
Sparireikningar
3ja mánaða uppsögn 4-6,5 Sparisjóðirnir
6 mánaða uppsögn 5-7,6 Sparisjóðirnir
Tékkareikningar, almennir 1 Allir
Sértékkareikningar 4-7 Landsbanki
VÍSITÖLUBUIMDNIR REIKNINGAR
6 mánaða uppsögn 3,0 Allir
15-24 mánaða 7-7,75 Sparisjóðirnir
Orlofsreikningar 5,5 Allir
Gengisbundnir reikningar I SDR 6,5-8 Landsbanki
Gengisbundnir reikningar í ECU 8,5-9 Landsbanki
ÓBUNDNIR SÉRKJ ARAREIKNINGAR
Vísitölubundin kjör, óhreyfðir. 3,25-4 Búnaðarbanki
óverðtryggð kjör, hreyfðir 8-8,5 Sparisjóðirnir
SÉRSTAKAR VERÐBÆTUR
Vísitölubundnir reikningar 4-8 Landsbanki
Gengisbundir reikningar 4-8 Landsbanki
BUNDNIR SKIPTIKJARAREIKNINGAR
Vísitölubundin kjör 6,25-7 Búnaðarbanki
Óverðtryggð kjör 10,5-11 Búnaðarbanki
INNLENDIR GJALDEYRISREIKNINGAR
Bandaríkjadalir 3,75-4,1 Sparisjóðirnir
Sterlingspund 8,25-8,8 Sparisjóðirnir
Þýsk mörk 7,5-7,8 Sparisjóöirnir
Danskar krónur 7,75-8 Sparisjóðirnir
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
ÚTLAN óverðtryggð
Almennir víxlar (forvextir) 16,5-19 Sparisjóðirnir
Viðskiptavíxlar (forvextir)1 kaupgengi
Almenn skuldabréf 17-20 Sparisjóöirnir
Viðskiptaskuldabréf1 kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdráttur) 20-22,5 Sparisjóöirnir
útlAn verðtryggð
Skuldabréf 9,75-10,25 Búnaðarbanki
afurðalAn
islenskar krónur 16,5-1 9,25 Sparisjóðirnir
SDR 9-9,5 Islandsbanki, Landsbanki
Bandaríkjadalir 7,25-8,0 Sparisjóðirnir
Sterlingspund 12-12,75 Landsbanki
Þýsk mörk 11 Allir
Húsnæöislán 4.9
Lifeyrissióöslán 5 9
Dráttarvextir 30.0
MEÐALVEXTIR
Almenn skuldabréf september 21,6
Verðtryggö lán september 10,0
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala nóvember
Lánskjaravisitala október
Byggingavísitala október
Byggingavisitala október
Framfærsluvísitala september
Húsaleiguvísitala
VHRÐBRÉFASJÖÐIR
3205 stig
31 94 stig
598 stig
1 87 stig
1 58,1 stig
1,9% hækkun 1. október
HLUTABRÉF
Gengi bréfa veröbréfasjóða Sölu- og kaupgengi aö lokinni jöfnun:
KAUP SALA
Einingabréf 1 5,985 Sjóvá-Almennar hf. 5,10 6,40
Einingabréf 2 3,191 Ármannsfell hf. 2,33 2,45
Einingabréf 3 3,931 Eimskip 5,70 5,95
Skammtímabréf 1,996 Flugleiðir 2,00 2,20
Kjarabréf 5,615 Hampiðjan 1,80 1,90
Markbréf 3,013 Haraldur Böövarsson 2,95 3,10
Tekjubréf 2,131 Hlutabréfasjóður VlB 1,00 1,05
Skyndibréf 1,745 Hlutabréfasjóöurinn 1,64 1.72
Sjóðsbréf 1 2,876 Islandsbanki hf. 1,66 1,74
Sjóðsbréf 2 1,942 Eignfél. Alþýðub. 1,65 1,73
Sjóösbréf 3 1,986 Eignfél. Iðnuðarb. 2.43 2,53
Sjóðsbréf 4 1,737 Eignfél. Verslb. 1,72 1,80
Sjóðsbréf 5 1,195 Grandi hf. 2,75 2,85
Vaxtarbróf 2,0269 Olíufélagið hf. 5,10 5,40
Valbréf 1,9000 Olís 2,05 2,15
Islandsbréf 1,251 Skeljungur hf. 5,65 5,95
Fjórðungsbréf 1,134 Skagstrendingur hf. 4,80 5,05
Þingbréf 1,248 Sæplast 7,33 7,65
öndvegisbréf 1,229 Tollvörugeymslan hf. 1,04 1,09
Sýslubréf 1,269 Útgerðarfélag Ak. 4,70 4,90
Reiöubréf 1,215 Fjárfestingarfélagið 1,35 1,42
Almenni hlutabréfasj. 1,12 1,17
Auðlindarbréf 1,03 1,08
Islenski hlutabréfasj. 1,15 1,20
Síldarvinnslan, Neskaup. 3,23 3,40
' Við kaup á viöskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila,
er miðað við sérstakt kaupgengi.