Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1991, Síða 1
Fjöldi listamanna kemur fram i keppninni um landslagið.
Rás 2 og Sjónvarpið á föstudagskvöld:
Landslagsúrslit
A fóstudagskvöld veröur ljóst hver
ber sigur úr býtum í keppninni um
landslagiö. Bein útsending verður í
Sjónvarpi og rás 2 frá Hótel íslandi
Id. 21.10. Mikill fjöldi söngvara og
tónlistarmanna kemur fram en heiö-
ursgestir kvöldsins verða bræöumir
Jón Múli og Jónas Ámasynir.
Lögin sem keppa eru alls tíu. Vahð
er athyglisverðasta lagiö, besta út-
setningin, besti textinn, besti flytj-
andinn og landslagið 1991. Kynnar
kvöldsins em þau Magnús Einars-
son, Margrét Blöndal og Sigurður
Pétur Harðarson. Eftir að lögin hafa
verið flutt flytja Móeiður Júníusdótt-
ir og Páll Óskar Hjálmtýsson syrpu
laga eftir Jón Múla og Jónas. Þá
verða afhent heiðursverðlaun
Landslagsins og aö lokum flytja Eyj-
ólfur Kristjánsson pg Bjöm Frið-
björnsson eitt lag. Úrsht munu þá
liggja fyrir og verða tilkynnt þá.
Aðalstöðin á laugardögum:
Reykjavíkurrúntur
með Pétri Péturssyni
Reykjavíkurrúnturinn er enn einn
nýr þáttur á Aðalstöðinni. Og það er
enginn annar en Pétur Pétursson
þulur sem sér um þáttinn. Pétur Pét-
ursson starfaði við Ríkisútvarpið í
áratugi og er hafsjór af fróðleik um
menn og málefni. í þáttum sínum
mun Pétur leika gömul og ný lög og
fjalla um Reykjavík og þá sérstaklega
gömlu Reykjavík. Pétur fær til sín
ýmsa til að spjalla við og ekki er að
efa að það verður glatt á hjalla. Fyrsti
Pétur Pétursson þulur fjallar um þáttur Péturs er á dagskrá næstkom-
Reykjavík á Aðalstöðinni. andi laugardag.
Sjónvarp í desember:
Jóladagatal Sjónvarpsins
Sagan Stjömustrákur eftir Sig-
rúnu Eidjárn fjallar um stelpuna ísa-
fold. Einu sinni þegar hún er á leið-
inni á bókasafnið hittir hún Bláma,
strák frá jólastjömunni. ísafold lang-
ar svo mikið tfl að geta gefið pabba
sínum og mömmu jólagjöf en Bláma
vantar varahluti í eldflaugina sína.
Saman leggja þau þvi upp í æsi-
spennandi fjársjóðsleit þar sem ótal
hindranir verða á vegi þeirra. Ekki
síst eiga þau í dæmalausu bash við
skrítna kerlingu sem alls staðar
þvæhst fyrir. Hvað skyldi hún eigin-
lega vilja þeim?
Leikstjóri er Kári Halldór Þórsson.
Leikarar em Sigurþór Albert Heim-
isson, Guðfinna Rúnarsdóttir og
Kristjana Pálsdóttir. Upptöku stjóm-
ar Jón Egill Bergþórsson.
ísafold og Blámi lenda í mörgum ævintýrum.
Sjónvarp á sunnudagskvöld:
Leikrit Matthíasar
Johannessen
Gunnar Eyjólfsson og Gísli Halldórsson í hlutverkum sinum.
Leikrit Matthíasar Johannessen,
Sjóarinn, spákonan, blómasahnn,
skóarinn, málarinn og Sveinn,
verður fmmsýnt á sunnudags-
kvöld 1. desember.
Matthías velur sér hér hóp utan-
garðsmanna að viðfangsefni. Verk-
ið veitir innsýn í hversdagslega til-
vera þeirra, draum og brostnar
vonir. Eiginlegri atburðarás er
ekki fylgt með hefðbundnum hætti,
heldur er bragðið upp svipmynd-
um af einstakhngum úr hópnum.
Fylgst er með þeim einn sóiarhring
með tíðum skírskotunum til fyrri
viðburða, en á þessum tíma verða
umskipti af ýmsu tagi í lífi þeirra
allra.
Sögusviðið teygir sig vítt og
breitt, aht frá öldurhúsum höfuð-
borgarinnar til Suðumesja og til
Grimsby á Englandi.
Hflmar Oddsson leikstýrði mynd-
inni, Ólafur Engflbertsson hannaði
leikmynd og Hróðmar-Sigurbjörns-
son samdi tónhstina..Myndatöku
annaðist Sigurður Sverrir Pálsson,
Agnar Einarsson sá um hljóð en
framkvæmdastjórn var í höndum
Halldóm Káradóttur.
Með helstu hlutverk fara þau
Róbert Amfinnsson, Gunnar Eyj-
ólfsson, Bríet Héðinsdóttir, Gísli
Halldórsson, Rúrik Haraldsson og
Eyvindur Erlendsson.
Rafn Jónsson og fjöldi gesta flytja lög af nýrri plötu Rafns, Andartak.
Stöð 2 á laugardagskvöld:
Perlutónar
Tilefni þessarar beinu útsend-
ingar er ný plata Rafns Jónssonar,
Andartak, sem gefin er út tfl styrkt-
ar Styrktarfélagi lamaðra og fatl-
aðra og rannsóknarsjóði tfl eflingar
rannsókna á sjúkdómnum MND
sem er lömunarsjúkdómur sem
leggst á taugafrumur. Þessi sjóður
verður varðveittur af Háskóla ís-
lands. Viðtökur, sem platan hefur
hlotið, hafa farið fram úr björtustu
vonum að sögn Rafns Jónssonar
en takmarkið er að ná að selja 7000
plötur fyrir helgina. Þá má einnig
geta þess að þessi söfnun hefur svo
sannarlega brúaö kynslóðabihð því
elsti kaupandi er fæddur árið 1897.
Auk Rafns kemur fram fjöldi
landsþekktra hstamanna, þar á
meðal Höröur Torfason, Ný dönsk,
Geiri Sæm, Bubbi, Eyjólfur Krist-
jánsson og hljómsveitin Galfleó.
Það eru margar hendur sem leggj-
ast á eitt til að gera mögulega þessa
útsendingu sem kostuð er af Lið-
veislu, námsmannaþjónustu spari-
sjóðanna. Útsendingu stjórnar
María Maríusdóttir en þessum tón-
leikum verður útvarpað samtímis
1 stereo á Bylgjunni.