Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1992, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1992, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1992. 9 Vísnaþáttur „Klónni slaka eg aldrei á" „Daginn í dag átt þú. Þú hefur misst tökin á gærdeginum, hann verður þér aldrei annað en það sem þú gerðir úr honum. Morgundag- urinn er þér engin trygging, þú veist ekki hvort þú færð hann til ráðstöfunar. En daginn í dag átt þú. Þú getur ráðstafað honum að vild þinni. Notaðu hann vel. í dag getur þú gert einhvern hamingju- saman. í dag getur þú liðsinnt fólki sem á vegi þínum verður. í dag getur þú neytt allrar orku þinnar til að lifa því lífi sem ætlast má til með réttu að náungi manns lifi. Þessi dagur er þýðingarmikill og hann er þinn dagur. Leiddu hug- ann að því hvernig væri ef við gætum lifað lífinu þannig að ein- hver þakkaði okkur að kvöldi fyrir það eitt að vera til. Það er til gam- alt orðtæki sem hljóðar svo: „Það er alltaf áliðnara en þú heldur“. Það er vert að gefa þeim orðum gaum.“ Ekki veit ég um höfund þessara orða en hann hefur trúlega vitað hvað hann söng, að minnsta kosti væri ómaksins vert að íhuga hvernig þau koma heim og saman við daglegt líf okkar, hvers og eins. Færum við að ráði hans væri ekki fráleitt að hugsa sér að fyrirheit Gísla Ólafssonar frá Eiríksstöðum í stökunni sem fer hér á eftir gætu ræst: Allra happa hljóttu stig. Hamingjan þig leiði. Árið nýja yfir þig armana sína breiði. Og ljóð og stökur reynast sumum „líkn í þrauf ‘ og það hefur Þórdísi Jónasdóttur sennilega fundist þeg- ar hún kvað: Hingað berast eyrum að ómar liðins tíma. Sit ég ein með bók og blað, • basla við að ríma. Þegar harmur opnar und og aftur sárin blæða, ekkert getur yljað lund eins og hljómur kvæða. Okkur tíðum svíða sár, svo er mörgu kviðið. Þakkir fyrir þetta ár, það er bráðum liðið. Hjörtur Kristmundsson skóla- stjóri orti til Jóns Pálmasonar, al- þingismanns og bónda á Akri í A- Hún., á afmælisdegi hans: Sterkar eikur stormi fagna, standa keikar veðrum í. Þeim er leikur mál að magna mæta reyk og vopnagný. Árin tifa, öldin rennur, elhn rifar seglin hljóð. Fennir yfir orðasennur, eftir lifir minning góð. „Skráðu það í hjarta þér að sér- hver dagur sé besti dagur ársins. Enginn maður hefur lært neitt á réttan hátt fyrr en honum verður ljóst að sérhver dagur er dómsdag- ur“. Þetta eru orð ameríska heim- spekingsins Ralphs Waldo Emer- sons, sem alhr skyldu hafa í huga, en vona jafnframt að eftirfarandi heillaspá Eyjólfs Jóhannessonar frá Svignaskarði rætist á þeim sjálfum: Allt sem getur mæðu mýkt mund þér rétti hlýja, og þér gefi unaðsríkt árið það hið nýja. Skírskotun til þess hve lífið er fallvalt kemur fram í stöku Þor- steins Magnússonar frá Gilhaga: Vika líður, ár og öld, eina stund þess nýtur. Allir dagar eiga kvöld, allt sem byrjar þrýtur. Og í því sambandi mætti leiða hugann að því sem fram kemur í eftirfarandi stöku Snæbjarnar Jónssonar: Sjálfa oss ef sæjum vér í sama ljósi og hinir, margt af því sem miður fer mundi lagað, vinir. Efnahagsástandið, ekki aðeins hér heima heldur og erlendis, varð Guðmundi Sigurðssyni gaman- Vísnaþáttur lært af nýliðnu ári og getum því tekið undir með þeim sem sagði: Útlitið er ekki bjart, oft á taugar reynir. En árin kenna okkur margt sem enginn dagur greinir. Torfi Jónsson vísnahöfundi að yrkisefni fyrir margt löngu. Og ekki hefur ástand- ið batnaö síðan: Víða er í veröld hart, verslun illa gengur styrkum fótum stendur vart sterlingspundið lengur. Margur virðist miður rétt meta gengi þjóða og engin takmörk eru sett' illa fengnum gróða. Oft hefur landinn erlendis eftir gleðifundi v fyrir duft og fánýtt glys fargað sínu pundi. En glati menn trúnni á sjálfa sig verður fátt til bjargar. Sveinn Hannesson frá Elivogum: Ef að týnist eigið traust ekkert bjargað getur, manni sýnist sólarlaust ■ sumar bæði og vetur. Hvað er þá til bjargar? Eigum við kannske að taka undir með Jóni S. Bermann: Klónni slaka eg aldrei á undan blaki af hrinu, þótt mig hrakið hafi frá hæsta takmarkinu. Og ef til vill höfum við eitthvað POW'200 200 WATT INVERTER FRAMLEITT I BRETLANDI AF SÖRENSEN (Samþykkt af Rafmagnseftirliti ríkisins) 12-240 V - 50 rið - 200 W Mál 173 x 66 x 43 520 GRM Þegar rafmagn fer af - í sumarbústaðn- um - á vinnustað þegar rafmagn er ekki fyrir hendi. Dæmi um notkun: sjónvarp, útvarp, video, vinnuljós, rakvél, tölvur, hleðslutæki, fax og farsími Upplýsingar hjá D.E.B. þjónustan, Jaðarsbraut 7, Akranesi, sími: 93-13220. Frístund: Reykjavík og Keflavík FRÁ MENNTASKÓLANUM VIÐ HAMRAHLIÐ ÖLDUNGADEILD MH FRUMKVÖÐULL FULLORÐINSFRÆÐSLU Öldungadeild MH var stofnuð 1972 og síðan þá hafa þúsundir karla og kvenna stundað þar nám og nokkur hundruð lokið stúdentsprófi. Þarft þú að rifja upp, bæta við eða hefja nýtt nám? í öldungadeild MH er kennt til stúdentsprófs á málabraut, félagsfræðabraut, náttúru- fræðabraut, eðlisfræðibraut og tónlistarbraut (í samvinnu við tónlistarskóla). Þú getur stundað nám í mörgum greinum eða fáum eftir því sem þér hentar. Vakin er athygli á að hægt er að stunda nám í einstökum greinum án þess að stefna að lokaprófi. Eins er algengt að stúdentar bæti við sig einstökum námsáföngum. Þú getur lært: Tungumál: Raungreinar: Félagsgreinar: Ensku Stærðfræði Félagsfræði Dönsku Eðlisfræði Trúfræði Norsku Efnafræði Stjórnmálafræði Sænsku Liffræði Hagfræði Þýsku Frönsku Spænsku ítölsku Rússnesku Esperantó Jarðfræði < Auk þess er í boði fjölbreytt nám í tölvunotkun, bæði grunnnám og fyrir lengra komna (nýr og fullkominn tölvubúnaður, PC-tölvur). Boðið er upp á nám í leiklist og myndlist. Völ er á námi í íslensku, ritþjálfun og bókmenntalestri, almennum bókmenntum, heimspeki, trúfræði, o.m.fl. Er þetta eitthvað fyrir þig? Ef svo er þá stendur innritun yfir í skólanum 6.-8. janúar kl. 16-19. Brýnt er að allir sem hyggjast stunda nám á vorönn 1992 komi til innritunar á ofangreindum tíma. Skólagjald er kr. 15.000 fyrir önnina. REKTOR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.