Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1992, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1992, Blaðsíða 28
36 LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1992. Iþróttir ungliriga_________________________________________pv Fríða Rún Þórðardóttir, nemi og frjálsíþróttakona í Bandaríkjunum: Það fóru allir að skellihlæja þegar ég yar boðuð í lyfjapróf Um þessar mundir er stödd hér í jólafríi Fríöa Rún Þórðardóttir, hin þekkta hlaupadrottning úr Aftureld- ingu. Hún er viö nám í Bandaríkjun- um, nánar tiltekið við háskólann í Georgia. Skólabærinn, sem heitir Athens, er í námunda viö Atlanta, höfuðborg fylkisins. Fríða, sem er 21 árs, er að læra næringarráðgjöf. Með náminu leggur hún sig alla fram á hlaupabrautinni og var í skól- aliðinu sem keppti sl. 2 ár á banda- ríska meistaramótinu sem er með stærri íþróttaviðburðum í Banda- ríkjunum. Fríða Rún og hennar fé- lagar höfnuðu í 9. sæti 1990 sem verð- ur að teljast mjög góður árangur. Að sögn Fríðu er fjöldi námsmanna í þessum skólabæ svipaður íbúaíjölda Reykjavíkur. Til að fræðast nánar um hina ungu íþróttakonu brá DV sér upp í íþrótta- hús Mosfellsbæjar þar sem Fríða var að æfa upp þrekiö. Gengurvel „Það hefur gengið mjög vel hjá mér, bæði í námi og í íþróttunum. í 800 m hlaupinu var ég með næst- besta tímann í hittifyrra, í 1500 m Umsjón Halldór Halldórsson hlaupinu var ég með besta tímann og í 3.000 m hlaupi var ég með næstb- esta tímann. Ég set, að sjálfsögðu, takmarkið hátt og hef tekið miklum framförum. Til að mynda bætti ég mig um 8 sekúndur í 1500 m hlaupinu á síðasta ári. Ég fer aftur út um miðjan janúar en skólaárinu lýkur um mánaðamót- in maí/júní. Ég á tvö ár eftir af nám- inu sem tekur fjögur ár. Með mér í skólanum núna er Margrét Brynjólfsdóttir, hlauparinn úr UMSB. En 1990 voru 10 íslending- ar þarna við nám. Keppnistímabilið hjá okkur er þannig uppbyggt að viö erum í víða- vangshlaupum frá því í september og fram í nóvember og síðan tekur við innanhússtímabil í janúar til mars. Eftir það er utanhússkeppnin þar til í lok mai en það er mest spenn- andi tímabilið og lögð mesta áherslan á það. Að undanfórnu höfum við því verið mikið í víðavangshlaupum, sem eru 5 kílómetrar, og erum búin að ferðast mikið og sjá margt. Þjálf- ari minn heitir John Mitchell. Hann kom frá Alabama þar sem hann hef- ur þjálfað íslenska íþróttamenn árum saman, þar á meðal Ragnheiði Ólafsdóttur; islandsmethafa í milli- vegalengdahlaupum. Hann sagði mér rétt áður en ég fór heim í jóla- friið að hann hefði áhuga á að koma tU íslands í sumar.“ Meistaramótið minnisstæðast „Við kepptum á bandaríska há- - Fríða stundar nám við háskólann í Georgia í USA Fríða Rún á mörg áhugamál, fyrir utan íþróttir. Henni þykir t.d. gaman að ferðast, lesa bækur og dansa. Einnig hefur hún mjög mikinn áhuga á músík. Hér tekur hún lagið á gamalt orgel sem er heimilisgripur. DV-myndir Hson skólameistaramótinu í fyrra og hitti- fyrra og er mér það mjög minnis- stætt. Okkar Uð hafnaði í 9. sæti 1990 sem er mjög góður árangur. Svo er annað minna mót en árlegt sem kaUast Spec-Town sem mig lang- ar að minnast örUtið á af því að ís- lensku fijálsíþróttakrakkamir frá Alabamaháskólanum keppa alltaf á þvi móti og þar er stemmningin alveg æðisleg. Nærvera þeirra og hin sí- feUdu hróp, „áfram ísland", voru mér mikU hvatning og ég bætti mig mikið, bæði í 1500 og 800 metra hlaupunum. Þetta mót verður aftúr 2. maí næst- komandi og er ég ákveðin í að standa mig því að það er afmæUsdagurinn hans pabba og ég ætla að reyna að gefa honum góða afmæUsgjöf." Mikil íþróttafjölskylda í minni fjölskyldu snýst allt um frjálsar íþróttir og er samstaðan mik- U. Systkini mín, þau Eiríkur og Auð- ur, æfa bæði frjálsar íþróttir í Aftur- eldingu. Foreldrar mínir hlaupa einnig mjög mikið og er endalaust talað um íþróttir við matborðið. Við mamma höfum þann daglega sið að Fríða hefur tvisvar verið kjörin besti frjálsíþrótta- maður Aftureldingar. Fríða Rún í góðum félagsskap í Georgia. Frá vinstri: Keli Bert aðstoðarþjálfari og til hægri er John Mitchell aðalþjálfari. við athugum fyrst af öllu íþróttasíður blaðanna og gáum hvort eitthvað nýtt hafi gerst í heimi íþróttanna. Enda hafa foreldrar mínir stutt mig rosalega mikið og hvöttu mig ein- dregið tíl að fara út tU Bandaríkjanna á sínum tíma.“ Reyni alltaf að brosa „Það segja margir að ég brosi aUtaf þegar ég sé að hlaupa.. Það getur meira en verið. Kannski er þetta vani, ég veit það ekki. Þegar ég mæti fólki og er að hlaupa þá bara heilsa ég því brosandi og kannski finnst fólki ég eitthvað skrítin en mér fmnst það svo viðeigandi og eðlilegt. Mér finnst nefnUega svo gaman að hlaupa og er svo þakklát þegar ég get það. Mínir verstu dagar eru þegar ég er meidd og verð að halda kyrru fynr. Ég hugsa mjög mikið þegar ég hleyp og þá helst um skemmtUega hluti. Maður er að plana ýmislegt og því ekki að reyna að taka þessu létt. Það þýðir ekki að gera þetta með hangandi hendi og láta sér leiðast. Svo er ekki laust við aö mér finnist brosið gefa aukna orku og þar sem ég er mikU keppnismanneskja reyni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.