Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1992, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1992, Blaðsíða 40
18 LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1992. Andlát Guðný Þórarinsdóttir frá Krossdal lést 2. janúar í sjúkrahúsi Húsavíkur. Hjörtur Hjartarson lést að Hjúkrun- arheimilinu Skjóli fimmtudaginn 2. janúar. Jónína Þórðardóttir, Suðurgötu 14, Keflavík, lést á sjúkrahúsi Keflavík- ur 2. janúar. Guðríður Guðbjörg Bjarnadóttir, Skeljagranda 3, lést í Borgarspítalan- um 2. janúar. Steinunn Sigurðardóttir, Bólstaðar- hlíð 64, andaðist í Landakotsspítala 2. janúar. Innilegar þakkir færi ég öllum þeim sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og skeytumá 100ára afmælimínu 24. desember. Sérstakar þakkir til bæjarstjórnar Ólafsfjarð- ar og stjórnar Hornbrekku og fjölskyldu minnar fyrir ógleymanlegan dag. Guð blessi ykkur öll. Elín Björg Guðbjartsdóttir, Hornbrekku Nauðungaruppboð þriðja og síðasta nauðungaruppboð á jörðinni Gilsfjarðarmúla, Reykhóla- hreppi, þingl. eign Halldórs Gunnarssonar, fer fram fimmtudaginn 9. jan- úar 1992 kl. 14.00 á eigninni sjálfri. Uppboðsbeiðandi er Stofnlánadeild landbúnaðarins. Sýslumaður Barðastrandarsýslu SMAAUGLÝSINGASlMINN FYRIR LANDSBVGGÐINA: 99-6272 ASKRIFENDASlMINN FYRIR LflNDSBYGGÐINA: 99-6270 DV SMÁAUGLÝSINGADEILD er opin: virka daga kl. 9-22 laugardaga kl. 9-14 sunnudaga kl. 18-22 ATH. Smáauglýsing i helgarblað DV verður að berast okkur fyrir kl. 17 á föstudögum. - talandi dæmi um þjónustu Vilji ibúar landsbyggðarinnar gerast áskrifendur er simirm 99-6270 og vegna smáauglýsinga er siminn 99-6272. Ekkiþarf91 fyrirframan simanúmerið, 99 gildir fyrir grœnu númerin hvar sem er á landinu. Rátt ar að benda á að tilkoma „grænu simanna" breytir engu fyrir lesendur okkar á höfuðborgarsvœðinu. Þeir hringja áfram I sima 27022. Síminn á höfuöborgarsvæöinu er 27022 Nauoungaruppboo þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum: Smiðjuvegur 14, 1. hæð austurhl., þingl. eig. Sverrir Hreiðarsson, Smári Hreiðarsson og Amdís Hreiðarsd., fer fram á eigninni sjáltri þriðjudaginn 7. janúar 1992 kl. 17.30. Uppboðsbeið- endur em Ásgeir Thoroddsen hrl., Ólaíúr Axelsson hrl., Gjaldheimtan í Reykjavík, Bæjarsjóður Kópavogs, Ami Einarsson hdl., Ingvar Bjömsson hdl., Andri Ámason hdl. og Fjár- heimtan hf. Álfhólsvegur 85, kjallari, þingl. eig. Þór Ostensen, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 7. janúar 1992 kl. 13.45. Uppboðsbeiðendur eru Ásbjöm Jónsson hdl., Jóhannes Sigurðsson hdl., skattheimta ríkissjóðs í Kópa- vogi og Gjaldheimtan í Reykjavík. Smiðjuvegur 14,1. hæð vestur, þingl. eig. Sverrir Hreiðarsson, Smári Hreið- arsson og Amdís Hreiðarsd., fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 7. jan- úar 1992 kl. 17.40. Uppboðsbeiðendur em Ásgeir. Thoroddsen hrl., Glaíúr Axelsson hrl., Gjaldheimtan í Reykja- vík, Bæjarsjóður Kópavogs, Arni Ein- arsson hdl., Sigríður Thorlacius hdl. og Fjárheimtan hf. Asbraut 9, 1. hæð, þingl. eig. Garðar Guðjónsson, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 7. janúar 1992 kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur em Jón Lngólfsson hrl., Guðmundur Pétursson hdl., Olaf- ur Gústafsson hrl., Eggert B. Ólafsson hdl., Asdís J. Rafnar hdl. og Guðjón Ármann Jónsson hdl. Astún 12, 024)4, þingl. eig. Margrét Herborg Nikulásdóttir, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 7. janúar 1992 kl. 15.15. Uppboðsbeiðendur em Veðdeild Landsbanka íslands, Bæjar- sjóður Kópavogs, Sigríður Thorlacius hdl., Jóhannes Ásgeirsson hdl. og Logi Egilsson hdl. Hamraborg 18, 2. hæð D, þingl. eig. Þórarinn Sigurðsson, fer fram á eign- inni sjálfri miðvikudaginn 8. janúar 1992 kl. 13.00. Uppboðsbeiðendur em Róbert Ámi Hreiðarsson hdl. og Bæj- arsjóður Kópavogs. Digranesvegur 46, 1. hæð, þingl. eig. Vaídimar Þórðarson og Pála Jakobs- dóttir, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 7. janúar 1992 kl. 16.00. Uppboðsbeiðendur em Kristján Ól- afsson hdl., Bæjarsjóður Kópavogs, Kristinn Bjamason hdl., Fjárheimtan hf., Ásgeir Thoroddsen hrl. og skatt- heimta ríkissjóðs í Kópavogi. Engihjalh 1, 6. hæð E, þingl. eig. Hulda Sigurðaidóttir, fer fram á eign- inni sjálfn þriðjudaginn 7. janúar 1992 kl. 13.00. Uppboðsbeiðendur em Ás- geir Magnússon hdl. og Steingrímur Þormóðsson hdl. Nýbýlavegur 66, 1. hæð t.h., þingl. eig. Auðunn Snorrason, tal. eig. Guð- rún Sigurðardóttir, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 8. janúar 1992 kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur em Ás- geir Þór Ámason hdl., Friðjór. Öm Friðjónsson hdl., Ölafúr Gústafsson hrl., Steingrímur Eiríksson hdl., Landsbanki Islands, Helgi V. Jónsson hrl., Bæjarsjóður Kópavogs og ís- landsbanki. Skólagerði 9, þingl. eig. Jens Gústafs- son og Elísabet Á. Magnúsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 8. janúar 1992 kl..15.15. Uppboðsbeið- andi er Friðjón Öm Friðjónsson hdl. BÆJARFÓGETINN í KÓPAV0GI Fagrihjalh 66, þingl. eig. Herborg Haraldsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 7. janúar 1992 kl. 16.45. Uppboðsbeiðendur em Ásgeir Thoroddsen hrl„ Bæjarsjóður Kópa- vogs, Skattheimta ríkissjóðs í Kópa- vogi, Sigríður Thorlacius hdl. og Veð- deild Landsbanka íslands. Jarðarfarir Guðfinna Ingibjörg Clausen frá ísafirði lést 30. desember. Kveðjuat- höfn verður frá nýju kapellunni í Fossvogi mánudaginn 6. janúar kl. 10.30. Jarðsett verður á ísafirði. Fundir Vinafélagið sími 36127 og 75315. Fundur verður í safn- aðarheimili Bústaðakirkju mánudaginn 6. janúar kl. 20. Allir velkomnir. Hjónaband Nýlega voru gefm saman í hjónaband af séra Flóka Kristinssyni Guðfinna Kon- ráðsdóttir og Óskar Ólafsson. Heimili þeirra er að Dvergbakka 10. Stúdíó Guömundar Ferðalög Ferðafélag íslands Sunnudagsferð 5. jan. kl. 11 Kapellan - Óttarstaðir - Lónakot. Ekið að kapellu heilagrar Barböru við Straumsvík og hún skoðuð. Síðan gengið með ströndinni að Lónakoti. Slunkariki heimsótt í lok göngunnar. Fjölmenniö í fyrstu ferð ársins. Verð 700 kr., fritt fyrir böm með fullorönum. Brottfór frá BSÍ, austanmegin, kl. 11. Ath: Breyttan brott- farartíma - komið til baka um kl. 15. Mánudagskvöldið 6. jan. kl. 20 - blysför Annað árið í röð verður farin blysför um álfa- og huldufólksbyggðir í Öskjuhlíð á þrettándanum 6. jan. Til gamans verður stuðst við kort Ingva Þórs Loftssonar (hjá Borgarskipulagi ReyHjavíkur) um huliðsvætti á höfuðborgarsvæðinu, en heimildarmaður hans er Eria Stefáns- dóttir. Gangan endar við álfabrennu Vals hjá Hliðarenda (í Valsheimilinu verða seldar veitingar). Tilvalin fjölskylduferö sem tekur um eina klst. Þrettándagangan hefst kl. 20 við Hótel Loftleiðir. Ekkert þátttökugjald en blys verða seld fyrir brottfór á 200 kr. TjJkyrmiiigar Söngbækur á ári söngsins Út eru komnar söngbækur í tilefni af ári söngsins sem bera nafnið „Hvaö er svo glatt“. Þær eru gefnar út af Tónlistar- bandalagi íslands og framkvæmdanefnd um ár söngsins. Um er aö ræöa tvær bækur með 40 lögum. í annarri bókinni eru einrödduð sönglög ásamt textum og gitarhljómum. í hinni bókinni eru sömu lög með einfóldum útsetningum fyrir píanó. Dreifmgar- og söluaðilar eru: Tón- Ustarbandalag íslands, s. 91-678255, og Tónastöðin, s. 91-21185, Niðjar Halldórs Þorsteins- sonar og Kristínar Pálínu Kristjánsdóttur Vörum, Garöi, halda jólatrésskemmtun laugardaginn 4. janúar í safnaðarheimil- inu Ytri-Njarövik og hefst hún kl. 15. Gaman væri að sem flestir létu sjá sig. Útskrift úr Viðskiptaskólanum Nýlega luku nemendur bókhalds- og rekstramámi frá Viðskiptaskólanum, Skólavöröustíg 28. Námiö stóð yfir í 7 vikur. Markmið námsins er að útskrifa nemendur með víðtæka þekkingu á bók- haldi (tölvubókhaldi) ásamt hagnýtri þekkingu á sviði verslunarréttar. Náms- greinar eru: Hlutverk bókhalds og bók- haldslög, bókhaldsæfmgar og reiknings- Myndgáta skil, verslunarreikningur, launabókhald, virðisaukaskattur, raunhæft verkefni - afstemningar og upgjör, tölvubókhald, réttarform fyrirtækja, samningagerö, viðskiptabréf og fyming skulda. Næsta bókhalds- og rekstrarnám í Viðskiptaskó- lanum byijar nú í janúar. Á myndinni eru nemendur og kennarar Viðskipta- skólans. Úrslit í fjölskylduleik Coca Cola of Euro Disney í októbermánuði efndu Coca Cola og Euro Disney til fjöslkylduleiks í sam- vinnu við Samvinnuferðir-Landsýn og Vöku-Helgafell. Verölaunin vom 15 viku- ferðir fyrir fjóra til Euro Disney ævin- týralandsins skammt fyrir utan París sem verður opnað næsta vor. Alls munu því 60 íslendingar spóka sig í Euro-Disney í boði Coca Cola og Samvinnuferða- Landsýnar næsta sumar. Einnig vom 30 heilsársáskriftir að Disney bókaklúbbi Vöku-Helgafells í aukaverðlaun. Alls bámst 83.427 lausnir frá 40.853 einstakl- ingum. Samhliða fjölskylduleiknum fór fram samkeppni milh verslunar- stjóra/eigenda um bestu kynninguna á leiknum. Verslunarstjórar þeirra sex verslana sem þóttu skara fram úr fá í verðlaun vikuferð fyrir tvo til Euro Dis- ney. Sjúkrahúsið í Bolungarvík þakkar gjafir Nú rétt fyrir jólin þökkuðu fulltrúar sjúkrahússins í Bolungarvík Sjálfsbjarg- arfélögum á staðnum fyrir góðar gjafir undanfariö. Hér var um að ræða tæki til sjúkraþjálfunar, togbekk, þrekhjól, handhjól, vaxbakstrapott, raförvunar- tæki, nuddtæki og lóð og bolta til þjálfun- ar. Við þetta tækifæri kom fram að Sjálfs- björg í Bolungarvík hefur gefið öll tæki tÚ sjúkraþjálfunar frá upphafi eöa alveg frá árinu 1983. Margvísleg ljáröflun er í gangi hjá félaginu og þar liggur mikil vinna að baki. Það er mikilsvert að eiga svo góða bakhjarla sem sinna þessu starfi af óeigingirni og alhug. Án þeirra væri þessi þjónusta ekki fyrir hendi í Bolung- arvík. Félag eldri borgara Félagsvist spiluð á sunnudag kl. 14, sýn- ing á leikritinu Fugl í búri kl. 17 í Risinu. Dansað í Goðheimum kl. 20. Húsnæðisnefnd Reykjavíkur Ilúsnæðisnefnd Reykjavíkur hafði sam- kvæmt venju ákveðið að auglýsa í des. sl. eítir umsóknum um félagslegar eign- aríbúöir til úthlutunar á árinu 1992. Vegna óvissu um hve margar íbúöir verða til ráðstöfunar í næstu úthlutun verður ekki unnt aö auglýsa eftir um- sóknum fyrr en í janúarlok 1992 og verö- ur umsóknarfrestur 4 vikur. Eru vænt- anlegir umsækjendur beönir að sýna skilning á þessari frestun. Gronn-veisla í Gerðubergi Mánudaginn 6. janúar veröur Gronn- veisla í Menningarmiðstöðinni Geröu- bergi, Breiöholti. Verð kr. 1000 fyrir manninn, allir velkomnir. Kl. 19 Heilsu- kvöldmatur, kl. 20 fyrirlestur um matar- fíkn og Gronn-námskeiðið kynnt. Kl. 20.30-22.30: Samskipti og sjálfsskoöun. Erfið og krefjandi vinna fyrir þá sem vilja horfast í augu við raunveruleikann eins og hann er. Kl. 22.30-23 skráning á Grann-námskeið sem hefst 11. jan. Félag eldri borgara Leikhópurinn Snúður og Snælda sýna leikritiö Fugl í búri 5., 8. og 11. janúar. Upplýsingar á skrifstofu félagsins á fimmtudag og fóstudag. Tapað fundið Dúkka fannst Dúkka fannst á annan dag jóla vlð Höfða- bakka. Upplýsingar í sima 74154. Dísarpáfagaukur tapaðist Grár dísarpáfagaukur með brúsk á höfði og appelsínugular „kinnar“, mjög mann- elskur, flaug aö heiman frá sér í Holts- búð, Garöabæ, á jóladag. Hann sást fljúga áleiðis yfir Kópavog. Hann svarar flauti. Ef einhver hefúr orðið var við hann eða veit hvar hann er niðurkominn þá vin- samlegast látið vita í síma 40183.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.