Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1992, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1992, Blaðsíða 52
p Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- leyndar er gætt. Við tökum við frétta- skotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: $ími 63 27 00 Frjálst, óháö dagblað LAUGARDAGUR 7. MARS 1992. Pósturogsímihf.: Alþingis að ákveða - segirÓlafurTómasson NSK KULULEGUR Vouisen SuAurtandsbraut 10. S. 686499. LOKI Verður Sighvatur ekki að sýna bróðurlegan kærleik? „Að sjálfsögöu er það ekki þessi nefnd sem ákveður hvað gert verður við Póst og síma heldur mun Alþingi taka ákvörðun um það,“ segir Ólafur Tómasson, póst- og símamálastjóri. Halldór Blöndai samgönguráð- herra skipaði á síðasta ári nefnd til að gera úttekt á Pósti og síma og hefur nefndin skilað ráðherra vinnu- gögnum sínum. í þeim kemur fram tillaga um að breyta Pósti og síma í sjálfstætt hlutafélag í eigu ríkisins. Einnig eru settar fram hugmyndir um að aðskilja símaþáttinn frá póst- inum og mynda á þann hátt tvö hlutafélög er fram í sækir. Er gert ráð fyrir að almenningi geflst kostur á að kaupa hlutabréf í hinum nýju hlutafélögum í framtíðinni. „Hvort eigi að selja Póst og síma er pólitísk spurning sem er ekki tím- bær nú. Fyrst er að gera póst- og símamálasviðið að sjálfstæðum ein- ingum í eigu ríkisins. I sumum löndum er áætlaö að ríkið eigi póst- og símastofnanirnar, ann- ars staöar er markmiðið að selja hlutabréf til að ná inn peningum. Eins og er er Póstur og sími afskap- lega arðbært fyrirtæki fyrir ríkið; Víða þar sem verið er að selja hluta- bréf í Pósti og síma er það gert til að fá fjármagn til uppbyggingar símakerfanna en því er ekki til að dreifa hér á landi. Ókkur vantar enga peninga til að byggja upp fjarskipta- kerflð," segir Ólafur. „En ef menn vilja skipta fyrirtæk- inu upp í tvö félög þá eru bæði sviö- in það stór að þau geta staðið undir aðskildu bókhaldi og aðskildum starfsmannadeildum. Það vakir ekki fyrir mér að selja stofnunina. Hins vegar vil ég að hún verði gerð sjálf- stæðari hvað varðar alla ákvarðana- töku,“ segir Ólafur. -J.Mar Rituðu ráðherra bréf og SL Jósefssystur höfnuðu í gær sameiningu Landakotsspítala og Borgarspítala. Afstaða systranna kemur fram í bréfi sem þær sendu heilbrigðisráðuneytinu í gær. Þær vOdu ekki tjá síg um innihald bréfs- ins í gær þar sem Sighvatur Björg- vinsson heilbrigðisráðlierra var enn ekki kominn til landsins en hann hefur undanfama daga setið þing Norðurlandaráðs í Helsinki. Þegar DV bar þessar fregnir und- ir Ragnar Kjartansson, formann sameiningamefndar spítalanna, kvaðst hann ekkert hafa heyrt um bréf systranna. Hann segir þó ljóst að haftxi systumar alfarið samein- ingu hljóti að þurfa að endurskoða skiptingu þeirra 460 milljóna sem ríkið skuldbatt sig til að sefja í sam- einaðan spitala, umfram bein fram- lög til hvors spítala. Að öðru leyti treystir hann sér ekki til að tjá sig um máhð fyrr en það liggur fyrir hvað það sé sem systurnar leggist gegn. Samkvæmt heimildum DV mun andstaða systranna ekto hafa áhrif á fjölda þeirra starfsmanna Imtda- kots sem verða endurráðnir. Hjá stjóraendum spítalans hefur verið tekin sú ákvörðun að endurráða um 400 starfsmenn af þeim 600 sem fengu uppsagnarbréf fyrir skömmu. ítrekað hefur Sighvatur Björg- vinsson lýst því yfir að spítalarnir verði ekki sameinaðir í andstöðu við systurnar. Tæplega verður þvi af sameiningu spítalanna fyrr en í árslok 1996 þegar skuldbindingar ríkisins gagnvart systrunum falla úr giidi. Eftir fund sinn og fjár- málaráðherra með systrunum í síðustu viku kvaðst hann undrast hversu litlar upplýsingar systum- ar hefðu fengið um sameininguna. Að sögn Ragnars Kjartanssonar ákvað sameiningamefhdin að kynna nunnunum ekki störf nefnd- arinnar fyrr en tillögur hennar lægju fyrir. Hann segir það hins vegar hafa verið hlutverk fulltrúa þeirra í samninganefnd aö koma upplýsingum til skila. -kaa m Hliðarfjall: Reynt að haf a opið I umhelgina : Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii Þrátt fyrir snjóleysi í Hlíðarfjalli við Akureyri er ætlúnin að reyna að hafa opið þar fyrir almenning um helgina en forsvarsmenn í Hlíðar- fjalli vilja þó vara fólk við því að víða stendur grjót upp úr þeim htla snjó sem er í fjallinu og því hætta á ferð- um ef ekki er farið varlega. Nægur snjór er nú í Bláfjöllum. Lyftur verða i gangi frá klukkan 10-18 í dag, laugardag, ef veður leyfir. í Skálafelli er eitthvað minni snjór, en opna átti einhvern hluta svæðisins í dag ef veður yrði viðunanlegt. Allar nánari upplýs- ingar um skíðasvæðin er hægt að fá í símsvara 801111. DV-mynd Brynjar Gauti Starfsmenn í Hlíðarfjalli hafa að undanfömu unnið við það að skafa snjó í gh í fjallinu og það eru fyrst og fremst þær „skíðabrekkur" sem boðið er upp á. Annars er hægt að fara víðar í brekkunum efst í fjallinu ef farið er með varúð, enda má segja að þótt verið sé að opna fjallið séu stólyrði þar afar slæm. wmmmmmmmm iillipiiiÉp* ■ Veðrið á sunnudag og mánudag: Væta sunnan- og vestanlands Á sunnudag verður fremur hlýtt í veðri með skúrum eða slydduéljum sunnanlands og vestan en annars þurrt að mestu. Hiti verður 2 th 5 stig. Á mánudag verður hæg breytileg eða suðvestlæg átt. É1 verða um sunnan- og vestanvert landið en annars þurrt. Frost veröur á bihnu 1 til 2 stig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.