Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1992, Blaðsíða 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1992.
ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1992.
17
íþróttir
Iþróttir
Sport-
stúfar
Innanhússknatt-
spyrnumót Gróttu fer
fram í nýja íþróttahús-
inu á Seltjamarnesi 11.
og 12. apríl. Leikið er eftir gömlu
reglunum, án markvarðar. Þátt-
taka tilkynnist til Bernharðs
(615959/621936), Kristjáns
(698304/611195) eða Sigurðar
(691600/674221).
Mót á sandgrasinu
Knattspyrnudeild Breiðabliks
heldur firma- og hópakeppni í
knattspyrnu á sandgrasvellinum
í Kópavogi 16. og 17. apríl. Leikið
er í 7 manna liðum, þvert á völl.
Þátttaka tilkynnist til Sigurðar
(43699) og Jóns Inga eða Einars
(641990) til fostudags.
Börn og íþróttir
Barna- og unglinganefnd íþrótta-
sambands íslands hefur gefið út
12 síðna bækhng sem nefnist
Böm og íþróttir, vertu með. Hon-
um hefur verið dreift til allra
barna á aldrinum 7-10 ára í gegn-
um skólana. í bæklingnum em
ýmsar hagnýtar ráðleggingar til
barna, þau hvött til að prófa fleiri
en eina grein, temja sér háttvísi,
neyta holls fæðis og gæta hrein-
lætis, svo að eitthvað sé nefnt.
Framtakið hefur mælst vel fyrir
því talsverð eftirspurn hefur ver-
ið eftir bæklingnum.
Fjallaö um neysluvenjur
úrvalsíþróttafólks
Á fimmtudaginn kynnir Jón
Gíslason næringarfræðingur nið-
urstöður í könnun á neysluvenj-
um úrvalsíþróttafólks, sem Heil-
brigðis- og rannsóknarráö ÍSÍ
hefur látiö gera undir hans
stjórn. Erindið hefst klukkan 16
í íþróttamiðstöð ÍSÍ og er öllu
áhugafólki boðið að koma og
hlýða á það.
Óskar meistari
Óskar Jakobsson, Skíðafélagi
Reykjavíkur, varð um helgina
Reykjavíkurmeistari í 15 km
skíðagöngu en keppt var í Blá-
fjöllum og hafði SR umsjón með
mótinu. Oskar gekk vegalengd-
ina á 31,25 mínútum, Marinó Sig-
urjónsson, SR, varð annar á 34,03
og Trausti Sveinbjörnsson,
Hrönn, þriðji á 39,32 mínútum.
ÍR fær liðsauka
Ágúst Ólafsson, vam-
armaður úr Fram, er
genginn til hðs við 2.
deildar lið ÍR-inga. Ág-
úst lék í fyrra einn 21 árs lands-
leik og hefur spilað þrjá leiki með
Fram í 1. deild. ÍR hefur einnig
fengið Þorra Ólafsson og Pétur
Bjarnason úr Fram, Kristin Guð-
mundsson frá Þrótti, Neskaup-
stað, og Jóhann Pál Kristbjöms-
son úr Fjölni, auk þess sem
Tryggvi Gunnarsson verður
áfram með ÍR í sumar en hann
gekk yfir í Stjörnuna í vetur.
Ásgerður í Stjörnuna
Stjarnan, sem leikur á ný í 1. dehd
kvenna í knattspymu í sumar,
hefur fengið til liðs við sig eina
efnilegustu knattspyrnukonu
landsins, Ásgerði Hildi Ingibergs-
dóttur úr Sindra á Homafirði.
Ásgerður lék með stúlknalands-
liöinu í fyrra en hún hefur gert
27 mörk í 20 leikjum með Sindra
í 2. dehd síöustu tvö árin.
HK mætir Gróttu
HK og Grótta leika í
kvöld annan leik sinn
í einvígi hðanna um
áframhaldandi sæti í
£
*
1. deild karla í handknattleik og
fer hann fram í Digranesi klukk-
an 20. HK vann Gróttu á Seltjarn-
amesi, 21-20, í fyrrakvöld og dug-
ir því sigur í kvöld til að halda
sæti sínu en Grótta þarf að vinna
til að fá þriðja leik.
NBA-körfuboltinn:
Horð barátta um
sæti í úrslitunum
LA Lakers í 8. sæti í vesturdeildinni
Boston Celtics vann góðan sigur
á Chicago Buhs, 97-86, í bandarísku
NBA-dehdinni í körfuknattleik í
fyrrinótt. Þetta var aðeins 14. tap
Chicago í 75 leikjum í vetur en sig-
urinn var mikilvægur fyrír Boston
sem berst við Detroit um 4. sætið í
austurdehdinni og þar með odda-
leik á heimavelh í 16 liða úrshtun-
um.
í leik topphða vesturdehdarinnar
vann Portland góðan útisigur á
Golden State, 122-130, og á alla
mögtheika á efsta sætinu.
Nú eru aðeins tvær vikur eftir
af dehdakeppninni, hvert lið á eftir
6-8 leiki en lokaumferðin fer fram
19. apríl. Þá tekur við úrshtakeppni
átta efstu liöa úr hvorri dehd um
meistaratitilinn.
Úrslit í fyrrinótt urðu þessi:
Boston-Chicago............97-86
Cleveland - New York......97-93
Milwaukee - LA Cfippers.. 96-97
Indiana - New Jersey.....120-128
Minnesota - Utah......... 93-91
Denver-SASpurs............87-90
Detroit - Miami..........104-80
Sacramento - Dallas7.....103-89
LA Lakers - Phoenix......109-104
Golden State - Portland..122-130
Staöan í austurdeild er þessi: 1.
Chicago (61/14), 2. Cleveland (52/22),
3. New York (48/27), 4. Boston (44/31),
5. Detroit (43/32), 6. Indiana (37/39),
7. New Jersey (35/39), 8. Atlanta
(35/40), 9. Miami (34/42), 10. 76ers
(33/42), 11. cbarlotte (30/44), 12.
Mílwaúkee (30/45), 13. Washington
(24/51), 14. Orlando (18/57). Fimm
efstu eru örugg í úrslit en næstu
fimm berjast um bln þrjú sætin.
Staöan í vesturdeild: 1. Portland
(53/22). 2. Golden State (50/25), 3.
Phoenix (49/27), 4. Utah (48/27), 5. SA
Spurs (44/31), 6. Seattle (43/32), 7. LA
Cltppers (41/34), 8. LA Lakers (40/34),
9. Houston (39/36), 10. Sacramento
(25/51), 11. Denver (23/52), 12. Dallas
(19/56), 13. Minnesota (14/60). íjögur
efstuerukomináfram. -VS
Borðtennis:
Kristján
þrefaldur
sigurvegari
Reykjavíkurmótið í borðtennis
var haldið um síðustu helgi.
Borðtenniskeppendur frá Víkingi
voru sigursæhr á mótinu og unnu
sigur í átta flokkum en Örninn í
þremur flokkum.
Kristján Viðar Haraldsson varð
sigurvegari mótsins en hann sigr-
aði með glæsibrag í þremur
flokkum. Hinir ungu borðtennis-
spilarar Guðmundur E. Stephen-
sen og Sigurður Jónsson sigruðu
báðir í tveimur flokkum. -JKS
Badminton:
E-liðTBR
meistari
E-lið TBR sigraði í 1. deild en
dehdarkeppninni sem fram fór
um helgina. C-lið TBR féll í 2.
dehd en sæti þess tekur KR sem
sigraði í 2. dehd. F-hð TBR féh í
3. deild en upp úr henni koma
Akurnesingar.
E:liö TBR sem sigraði í 1. deild
var skipað Mike Brown, Ástvaldi
Heiðarssyni, Kristjáni Daníels-
syni, Sigfúsi Ægi Amasyni, Ásu
Pálsdóttur og Áslaugu J ónsdóttur.
-JKS
Unglingalandsliðið 1 handknattleik:
Geir valdi sex
úr liði Vals
- sem keppir í forkeppni Evrópumóts landsliða
Geir Hallsteinsson, þjálfari ungl-
ingalandshðsins í handknattleik,
hefur vahð 16 leikmenn til að keppa
fyrir íslands hönd í forkeppni Evr-
ópukeppni unghngalandsliða sem
fram fer í Litháen 17.-19. apríl. ísland
leikur þar í riðli með Eistlandi, Lett-
landi og Litháen. Eftirtaldir leik-
menn skipa lið íslands:
Þórarinn Ólafsson..........:Val
Valur Amarson...............Val
yalgarðThoroddsen...........Val
Óskar Óskarsson.............Val
Ólafur Stefánsson...........Val
Dagur Sigurðsson............Val
Hhmar Bjarnason............Fram
Jón A. Finnsson............Fram
Davíð Hahgrímsson...........ÍBV
Hlynur Jóhannesson..........ÍBV
Svavar Vignisson............ÍBV
Sverrir Sævarsson............FH
Eiður Júlíusson..............KR
Einar B. Ámason..............KR
Magnús Magnússon.............KR
Páll Beck....................KR
-GH
Handbolti:
Þórsarar kvöddu
2. deild með sigri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyn:
Þórsarar á Akureyri
Ikvöddu 2. deildina í hand-
knattleik með átakalusum
sigri gegn Aftureldingu
um helgina og töpuðu aðeins einu
stigi í dehdinni í vetur.
Mosfehsbæingamir reyndust ekki
nein hindrun fyrir 1. deildar „kandit-
atana“ enda virtust þeir ekki i miklu
„leikformi" sumir hverjir. Það þurfti
því engum að koma á óvart að úrsht
leiksins urðu 31-14 fyrir Þór sem
stefnir nú á átökin í 1. deild næsta
vetur.
Úrslitakeppni 1. delidar kvenna 1 handbolta:
Frekar óvænt
- þegar Fram vann sigur á Víkingi, 15-17
Osk Víöisdóttir, fyrirliði Fram, átti góð-
an leik og skoraði 5 mörk.
DV-mynd GS
Framstúlkur unnu frekar óvæntan sig-
ur á Víking í Víkinni í gærkvöldi, urðu
lokatölur leiksins 15-17.
Leikurinn fór frekar rólega af staö og
vom bæði lið frekar sein að taka af skar-
ið en það var Ósk Víðsdóttir, Fram, sem
skoraöi fyrsta markiö úr homi þegar um
7 mínútur voru hðnar af leiknum. Fram-
stúlkur höfðu eins mark forystu þar til
um miðjan fyrri hálfleikinn en þá náði
Víkingur að jafna og komast yfir, 5-4.
Fram komst aftur yfir, en það voru Vík-
ingsstúlkur sem náðu að nýta sér sókn-
armistök Framara rétt fyrir leikhlé og
skora 2 mörk úr 2 hraðaupphlaupum í
röð og höfðu yfirhöndina í hálfleik, 8-7.
Andrea Atladóttir, besti leikmaður Vík-
ings í leiknum, skoraði fyrsta markið í
seinni hálfleiknum og var Víkingur yfir,
9-7, Fram jafnaði metin, 9-9, og síðan var
jafnt á öhum tölum þar th um 12 mínútur
voru eftir en þá náðu Framstúlkur að
síga fram úr og ná þriggja marka for-
skoti, 12-15. Víkingur minnkaði muninn
undir lokin en það dugði ekki th því
Framstúlkur gáfu ekkert eftir og voru
þær staðráðnar í að halda fengnum hlut.
Það var Ósk Víðisdóttir, fyrirhði Fram,
sem gulltryggði sínum mönnum sigurinn
þegar hún skoraði 17. markið, en hún
skoraði markið úr uppstökki fyrir utan
og er það frekar óvenjuleg sjón því hún
spilar í horni og gerir ekki mikið að því
að koma út fyrir og skjóta þar en það var
eins og hún hefði ekki gert annað.
Bæði lið spiluðu mjög góðan vamarleik
og voru sóknir beggja liða mjög langar,
þó sérstaklega hjá Víkingum og var eins
og engin nema Andrea Atladóttir þyrði
að taka af skarið. Kolbrún Jóhannsdóttir,
markvörður hjá Fram, byijaði leikinn
mjög vel, varði strax 2 viti en htið bar á
henni eftir það. Ósk var best í hði Fram,
einnig átti Auður Hermannsdóttir ágæta
spretti.
Andrea Atladóttir var besti leikmaður-
inn á vellinum og hélt hún Víkingsstúlk-
unum á floti og komst enginn Víkingur
með tærnar þar sem hún var með hæl-
ana.
Mörk Víkings: Andrea 7, Halla 2, Svava
2, Heiða 2, Svaya Ýr 1, Inga Lára 1/1.
Mörk Fram: Ósk 5, Auður 4, Díana 4/4,
IngaHuld3,Huldal. -BÖ
Einvígi Man. Utd og Leeds:
Leikir liðanna
Man. Utd og Leeds berjast um enska meistara-
titihnn í knattspymu. Leikir liðanna sem eftir
em líta þannig út:
Man. Utd-Man. City.................. 7. apríl
Man. Utd-Southampton............16. arpríl
Luton-Man. Utd......................18. apríl
Man. Utd.-Nott. Forest..............20. apríl
West Ham-Man. Utd...................22. apríl
Liverpool-Man. Utd..................25. apríl
Man. Utd-Tottenham............... 2.maí
Leeds-Chelsea.......................11. apríl
Liverpool-Leeds.....................18. apríl
Leeds-Coventry......................20. apríl
Sheff. Utd.-Leeds...................26. aprh
Leeds-Norwich.................... 2. maí
-GH
Úrslitakeppnin í Japis-deildinni:
Þriðja omista
ÍBK og Vals
Þriðji úrslitaleikur Keflvíkinga
og Vals í Japis-dehdinni í körfu-
knattleik fer fram í Keflavík í kvöld
og hefst leikurinn klukkan 20.
Eftir tvo leiki er staða liðanna
jöfn, hvort félag hefur unnið einn
leik. Liðið sem fyrr vinnur þrjá
leiki hampar íslandsmeistaratitlin-
um og víst er að hörð barátta verö-
ursuðurmeðsjóíkvöld. -GH
Körfuknattleikur:
Birgir endurráðinn
- og var valinn besti leikmaður Skallagríms 1 vetur
Birgir Mikaelsson var um helgina
endurráðinn þjálfari úrvalsdeildarliðs
Skallagríms í körfuknattleik. Undir
stjórn Birgis hafnaði Skahagrímur í
Birgir Mikaelsson.
8. sæti í Japis-deildinni í vetur og hélt
þar með sæti sínu.
Skahagrímsmenn héldu lokahóf sitt
um helgina. í hófinu var greint frá
endurráðningu Birgis við mikinn fógn-
uð fjölmargra veislugesta. Birgir var
útnefndur besti leikmaöur hðsins. Elv-
ar Þórólfsson var verðlaunaður fyrir
góðan árangur og Þóður Jónsson fékk
viðurkenningu fyrir mestu framfarir.
-GH/EP Borgarnesi
Golf sambandið og SL gera samning
Ferðaskrifstofan Samvinnuferðir-Landsýn og Golfsamband íslands hafa
gert með sér samning. Munu Samvinnuferðir sjá meðal annars um alla
þjónustu og skipulagningu á feröum fyrir GSÍ og aðstoða Golfsambandið
á ýmsan hátt. Eitt af því er að hafa á takteinunum golfferðir fyrir hópa og
einstaklinga til sem flestra landa. Eitt af því sem hefur verið ákveöið er
að velja og.verðlauna árlega þann kylfing sem mestar framfarir sýnir á
hverju sumri og koma þar allir forgjafarflokkar til greina. Á myndinni eru
fulltrúar frá Golfsambandinu og Samvinnuferðum-Landsýn að skrifa upp á
samning sín milli. Frá vinstri: Kjartan L. Pálsson, SL, Hannes Guðmunds-
son, GSÍ, Helgi Pétursson, SL, og Frímann Gunnlaugsson frá GSÍ.
-GH
Arnór gef ur ekki kost á sér
-er
Árnór Guðjohnsen, Borde-
aux, hefur hætt við þátttöku
í landsleik íslands gegn ísrael
í knattspymu, sem fram fer í
Tel Aviv á morgun, af persónulegum
ástæðum.
Eínar Páll Tómasson úr Val dró sig
einnig út úr landsliöshópnum, sem fór
utan i gær, vegna meiðsla.
Miklir persórtuiegir
hagsmunir i húfi
„Ég sá mér alls ekki fært að leika gegn
ísraelsmönnum. Ég er að vinna aö ýms-
um málum varðandi samning minn við
Bordeaux. Eins er orðiö tvísýnt um
hvort viö förum beint upp í 1. dehd en
við höfum nú aðeins eins stig forskot á
Strasborg þegar tvær umferðir eru eftir.
Það eru því þarna miklir persónulegir
hagsmunir í húfi,“ sagði Arnór Guðjo-
hnsen, í samtali við DV í gærkvöldi.
Fyrsti A-leikur
þjóðanna i knattspyrnu
í stað Arnórs og Einars Páls hafa verið
valdir þeir Baldur Bragason úr Val og
Ólafur Kristiánsson úr FH. Leikurinn á
morgun hefst klukkan 14 aö íslenskum
tima og er þetta í fyrsta skipti sem A-
landsliö þjóðanna í knattspymu eigast
viö.
-VS/JKS
Olafur H. Kristjánsson úr FH kem-
ur inn i hópinn í stað Einars Páls
Tomasonar.
Baldur Bragason úr Val var kallað-
urinn í hópinn í stað Arnórs Guð-
johnsen.
Guðný Gunnsteinsdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, skoraði þrjú mörk af línunni
gær. DV-mynd GS
Nína frábær
-þegar Stjaman lagöi FH í Garðabæ, 18-13
Stjarnan sigraði FH í ótrúlega
kaílaskiptum baráttuleik í Garðabæ
í gærkvöldi, 18-13.
Það voru FH-stúlkur sem komu
mun ákveðnari th leiks í byrjun og
náðu þær strax góðu forskoti en þeg-
ar staðan var 4-7 komust Stjöm-
ustúlkur á skrið og náöu þær að
minnka muninn fyrir leikhlé en þá
var staðan 9-10.
Dæmið snerist heldur betur við í
síðari hálfleik því það var komið að
stórleik hjá Stjörnunni. Nína Getsko,
markvörður Stjörnunnar, hreinlega
lokaði markinu og skoruðu Stjömu-
stúlkur hvert markið af öðru úr
hraðaupphlaupum á meðan ekkert
gekk upp hjá FH-stúlkum.
FH skoraði ekki mark fyrstu 16
mínútumar í síðari hálfleik og var
það bæði frábær varnarleikur
Stjörnunnar og markvarslan hjá
Nínu í markinu sem gerði það að
verkum. Stjaman skoraði 7 mörk í
röð á meðan FH náði ekki að svara
fyrir sig og fór Stjarnan úr 7-10 í
14-10. Stjörnustúlkur vom komnar í
þæghega stöðu þegar um 10 mínútur
vom til leiksloka en þá höfðu FH-
stúlkur aðeins skorað 1 mark það
sem af var af hálfleiknum. Það þarf
meira til en 3 mörk í hálfleik th að
sigra hð eins og Stjömuna.
Nína Getsko, markvörður Stjöm-
unnar, var yflrburðamaður á vehin-
um hún varði 22 skot, einnig var
Margrét frísk.
Hjá FH var liðsheildin jöfn í fyrri
hálfleik en lítið bar á leikmönnum í
síðari hálfleik. Rut Baldursdóttir
varð fyrir því óláni að meiðast á
fingri í fyrri hálfleik og gat lítið beitt
sér eftir það.
Mörk Stjömunnar: Margrét 5, Her-
dís 3, Harpa 3, Guðný 3, Sigrún 2,
Ragnheiður 2.
Mörk FH: Rut 4, Jólita 4, Arndís
2, Berglind 1, Sigurborg 1, Hildur 1.
-GH/BÓ
Hjálmar hitti best
- á móti í leirdúfuskotfimi
Fyrirtækja- og styrktarmót Skotfélags Reykjavíkur í leirdúfuskotfimi var
haldið fyrir skömmu. Hjálmar Ævarsson sigraði með glæsibrag, hlaut 90
stig, en hann keppti fyrir Hlað sf. Mót þetta var haldið th að fjármagna kaup
á kastvélum fyrir leirdúfur en ekki th að setja met. Úrsht fimm efstu manna
urðu þannig:
1. HjálmarÆvarsson, Hlaði s/f....................90
2. Einar P. Garðarsson, Veiöihúsinu..............88
3. Hreimur Garðarsson, Byssusmiðju Agnars........82
4. Sveinn Sigurjónsson, Ármannsfelh..............79
5. Jóhannes Jensson, Hífi h/f.................. 77
-GH
Keppendur og verölaunahafar á Fyrirtækja- og styrktarmóti Skotfélags
Reykjavíkur í leirdúfuskotfimi.
Sport-
stúfar
Graeme Souness,
framkvæmdastjóri
enska knattspyrnu-
hðsins Liverpool, var í
gær lagður inn á sjúkrahús þar
sem hann gengst undir hjartaað-
gerð. Hann mun ekki stýra Li-
verpool þaö sem eftir er tímabhs-
ins og tekur Ronnie Moran við
starflnu á meðan. Soimess er að-
eins 38 ára gamall en læknisrann-
sókn leiddi í ljós að hann hafði
fengið minni háttar hjartaáfall,
án þess að vita af því sjálfur, og
er með kransæðastíflu.
Undrun með
sýknu Krabbe
Arne Ljungquist frá
Svíþjóð, formaður
lyijanefndar .Aíþjóða
firjálsíþróttasam-
bandsins, lýsti í gær yfir undrun
sinni á því að þýska frjálsíþrótta-
samhandið skyldi á sunnudaginn
létta fjögurra ára banninu af
Katrinu Krabbe, Silke Möller og
Grit Brauer. Ljungquist sagði að
óskað yrði skýrslu frá þýska sara-
bandinu og aö málið væri ein-
kennhegt þar sem engin ný gögn
hefðu komiö fram sem réttlættu
það að banninu væri aflétt.
Lyngby á toppnum i
dönsku knattspyrnunni
Úrshtakeppnin um
I íK I danska meistaratith-
I o j inn í knattspyrnu
....' stendur nú sem hæst
en þremur umferðum er lokið í
keppninni. Heil uraferð fór fram
um síðustu helgi og uröu úrslit í
leikjunum þessi. B 1903-Bröndby,
1-4), Frem-AGF, 3-3, Nástved-
Lyngby, 0-4, Shkeborg-AaB, 0-0.
Lyngby er efst með 16 stig, AGF
og B 1903 eru með 15 stig. :
Góður sigur hjá
IFK Gautaborg
Keppnistímabil sænskra knatt-
spyrnumanna hófst fyrir nokkru.
Fj órir leikir fóru fram um helgina
í úrvalsdeildinni. AIK sigraði
Frölunda, 2-0, Öster vann Norr-
köping, 1-0, IFK Gautaborg sigr-
aði Malmö, 3-0, og Trelleborg
sigraði GAIS, 1-0. Leik Örebro og
Ðjurgárden var frestað en með
Örebro leikur Eyjamaðurinn
Hlynur Stefánsson.
UBKogÍR ieikaí
Digranesi annað kvöid
Önnur viðureign UBK og ÍR um
sigurinn í 1. dehd karla í körfu-
knattieik verður í Digranesi ann-
að kvöld klukkan 20. UBK vann
fyrri leikinn á heimavelli ÍR-inga
um helgina en það lið sem fyrr
vinnur tvo leiki leikur í úrvals-
dehdinni á næsta tímabhi. Komi
til þriðja leiks verður hann í
Seljaskóla á fóstudaginn klukkan
w, pmn
Hörð keppni mílli
Bordeaux og Strassborg
Arnór Guðjohnsen og félagar í
Bordeaux hafa nú eins stig for-
ystu í frönsku 2. deildinni í knatt-
spyrnu. Bordeaux hefur 48 stig
en Strassborg 47 og er tveimur
umferðum ólokið. Liöið sem sigr-
ar í 2. dehd fer beint upp í 1. dehd
en liöið sem lendir í öðru sæti fer
1 sérstaka úrslitakeppni.
Robson samdi við
Sporting til 2 ára
Bobby Robson, fyrrum
landshðseinvaldur
Englendinga og nú
þjálfari hjá PSV Eind-
hoven, gerði í gær tveggja ára
samning ríö portúgalska liöið
Sportíng Lissabon. Forráðamenn
PSV vildu ekki framlengja samn-
ing Robsons en hann rennur út í
vor.