Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1992, Qupperneq 5
LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1992.
5
Fréttir
Gull Seðlabankans
metið á 137 milljónir
Þeir voru þungt hugsi, forsvarsmenn Seðalabankans, fyrir ársfundinn í gær
enda ábyrgð þeirra mikil i efnahagslegum skilningi. Á myndinni eru þeir
Ágúst Einarsson bankaráðsformaður, Tómas Árnason og Jóhannes Nordal
bankastjórar. DV-mynd BG
„Ekki er um það að deila að raun-
vextir eru nú hærri hér á landi en
æskilegt væri, einkum með tilliti til
áhrifa þeirra á rekstur og fjárfest-
ingu fyrirtækja, svo og á atvinnustig.
Frekari lækkun þeirra virðist orðin
tímabær," sagði Jóhannes Nordal
seðlabankastjóri á ársfundi Seðla-
banka íslands í gær.
í ársskýrslu Seðlabankans fyrir
árið 1991 kemur fram að tekjur bank-
ans á síðasta ári voru 4,8 milljarðar.
Þar af voru vaxtatekjur af innlend-
um lánum og erlendum innstæðum
4,3 milljarðar. Hagnaður hans eftir
skatt var rúmar 686 milljónir, tæpur
milljarður fór hins vegar í skatta.
Eignir bankans í árslok voru 45,6
milljarðar, þar af stofnfé og eigið fé
rúmir 9 milljarðar. Inneign bankans
á gjaldeyrisvarasjóði er 25 milljarðar
og inneign hans hjá ríkissjóði og
ýmsum ríkisfyrirtækjum var um 11
milljarðar um áramótin.
Tveggja milljarða
steinsteypueignir
Húseignir bankans eru samkvæmt
brunabótamati metnar á rúma 2
milljarða, þar af er Seðlabankahúsið
metið á 1,9 milljarða. Bifreiðaflotinn
er metinn á 21 milljón, vélar, bóka-
og myntsafnið er metið á 53 milljónir
og vélar, tölvur og húsbúnaður bank-
ans er metið á 324 milljónir. Gulleign
bankans í árslok 1991 var 49.192 úns-
ur og var gullið tahð 137 milljóna
króna virði um áramótin.
Jóhannes kvaðst vonast til að aðil-
ar vinnumarkaðarins gættu hófsemi
í yfirstandandi samningagerð þannig
að stöðugleikaverðlagi yrði ekki
stefnt í voða. Hann sagði helstu skýr-
inguna á háum vöxtum hafa verið
mikla lánsfjáreftirspurn ríkissjóðs.
ísland aðlagi sig að breyttri
Evrópu
Þá vék Jóhannes að mikilvægi þess
að ísland lagaði sig að breyttri Evr-
ópu og sagði framleiðslusamdrátt í
sjávarútvegi ekki einustu skýring-
una á fimm ára stöðnun hagvaxtar.
Sýnt sé að íslensk fyrirtæki verði að
taka sér tak og laga sig að breyttum
aðstæðum, draga úr nýfjárfestingum
og minnka skuldastöðu sína.
Jóhannes fjallaði nokkuð um hús-
bréfakerfið í ræðu sinni og sagði það
ótvíræða framför frá niðurgreiddum
lánum síðustu ára. Á hinn bóginn
segist hann ekki sjá ástæðu fyrir rík-
isábyrgð á þessum lánum. Eðlilegt
sé að þau séu veitt beint af bönkum
og öörum lánastofnunum. Þannig
megi auka aðhaldið og tryggja að
lánsfé fari einungis til þeirra sem
hafi getu til að endurgreiða lánin.
Ríkið láti gullið vera
Jóhannes kvaðst vilja láta tak-
marka verulega eða afnema með öllu
möguleika ríkissjóðs til að jafna
greiðsluhalla með skuldasöfnun við
Seðlabankann. Hann vonast til að
samkomulag náist um þetta á næst-
unni við fjármálaráðuneytið.
Greiðsluhallann segir hann viðvar-
andi vandamál undanfarandi ríkis-
stjórna er orsakist af síendurteknum
vanáætlunum. Slíkt rýri traust á rík-
issjóði og hafi meðal annars þau áhrif
að vextir haldist óeðlilega háir.
Byggðastefnan út úr
bankakerfinu
Ágúst Einarsson, formaður banka-
ráðs, sagði afkomu íslenska banka-
kerfisins valda sér áhyggjum. Ávöxt-
un eigin fjár hjá helstu innlánsstofn-
ununum hafi verið óviðunandi, eða
um 1,3 prósent. Hann sagði sýnt að
bankarnir yrðu að efla stöðu sína
gagnvart erlendri samkeppni, til
dæmis mætti lækka rekstrarkostn-
aðinn og fækka útibúum. Þá vék
hann orðum sínum að byggðastefnu
stjórnvalda og sagði að aðskilja bæri
hana frá rekstri bankastofnana.
„Hér er um brýnt mál að ræða því
að ekki geta fjármálastofnanir, sem
gerðar eru strangar arðsemiskröfur
til, VEirið verulegum hluta orku sinn-
ar og miklum fjármunum í að fást
við vandamál sem eru í reynd við-
fangsefni ríkisstjóma og tengjast
byggðamálum og byggðastefnu,"
sagði Ágúst.
-kaa
Sóleyjar
Piltur, sem talinn er vera 15-16
ára, fór í peningakassa x hxisa-
kynnum Dansstúdíós Sóleyjar
við Engjateig síödegis í gær.
Hann tók um 10 þúsund krónur
á brott með sér.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu sást ekki til piltsins er harm
lét greipar sópa um penginga-
kassann en þó sást til hans er
hann hraðaði sér út. Lögreglu var
gert viðvart en ekki hafði náðst í
piltinn þegar DV fór í prentun.
Piltinum er lýst sem meðal-
manni á hæð, skolhærðum og
stuttklipptum. Hann var í svört-
um mittisjakka.
-ÓTT
undirpils og pilsbuxur
í öllum stœröum,
litum og síddum.
Óðinsgötu 2, s. 91-13577
Nissan stórsýningar
ísafirði og Reyðarfirði
Nú um helgina
verður stórsýning
á Nissan bílum
frá kl. 14-17
á þrem stöðum
á landinu,
Bílaleigunni
Erni ísafirði,
Frábær verð
Verðdæmi: Nissan
Sunny stallbakur SLX
1600 cc 4ra dyra
16 ventla vél,
4ra þrepa sjálfskipting,
aflstýri, samlæsingar á
rafdrifnar rúður, upphituð sæti
og margt, margt fleira
Staðgreiðsluverð er kr. 1.014.000
Lykli Reyðarfirði
og að Sævarhöfða 2
Reykjavík.
Á ísafirði verður
t. d. boðið uppá
reynsluakstur á
Nissan Patrol diesel
og sjálfskiptum
Nissan Terrano 6 cyl.
Notaðir bílar metnir
á staðnum.
IMISSAW