Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1992, Síða 7
}>
LAUGARDAGUR 25. APRIL 1992.
7
Fréttir
Mjólkurhvítt þörungasvæði undan strönd Islands:
Á stærð við
Bretland
Mjólkurhvítt þörungasvæöi á
stærö viö Bretland sást út af suöur-
strönd íslands út um glugga á Luft-
hansa-flugvél í júní í fyrra. Breskir
vísindamenn, sem vinna að rann-
sóknum á þessu fyrirbæri, hafa feng-
ið óvæntar niðurstöður eftir aö hafa
skoðað einfrumungana sem
blómstra og íjölga sér ört á hverju
vori. Frá þessu er greint í apríltölu-
blaði vísindatímaritsins National
Geographic.
Þörungasvæðið, sem þakti 220
sinnum 560 mílur, var aðallega gert
úr einfrumungi af tegundinni Emil-
iania huxleyi. Þegar þörungarnir
fjölga sér taka þeir til sín uppleyst
koltvíildi úr hafinu. En ólíkt öðrum
sjávargróðri dregur þessi tegund úr
getu sjávar til að leysa upp koltvíildi
í andrúmsloftinu. Niðurstaðan er
því, vísindamönnum til undrunar,
að Emiliania þörungurinn gæti auk-
ið koltvíildismagn á jörðinni. Þör-
ungar hafa breiðst ört út undanfarin
ár og sumir vísindamenn óttast að
þeir geti ýtt undir gróðurhúsaáhrif,
segir í National Geographic.
Jónas Bjarnason, deildarstjóri
efnafræðideildar Rannsóknastofn-
unar fiskiðnaðarins, kvaðst aðspurð-
ur telja ólíklegt að „grútarmengun"
sú sem barst á land á Ströndum í
fyrrasumar ætti rætur að rekja til
þessa þörungagróðurs en vildi þó
íslensk börn
sigruðu í
danskeppni
Tvö íslensk böm, Brynjar Öm Þor-
leifsson og Sesselja Sigurðardóttir,
sigmðu í jive á fimmtudaginn í op-
inni danskeppni harna og unglinga
sem haldin er í Blackpool í Bret-
landi. Á þriöjudaginn lentu þau í
öðra sæti í keppni í suðuramerískum
dönsum og á fóstudagskvöld áttu þau
að keppa í standard-dönsum.
Brynjar og Sesselja, sem bæði em
11 ára og æfa hjá Nýja dansskólan-
um, keppa í flokki 11 ára og yngri.
Alls era það 70 pör sem taka þátt í
keppninni sem mun vera ein sú virt-
asta í heimi og koma þáttakendur
aUs staðar að úr heiminum. Þetta er
þó aðeins í annað skiptið sem íslend-
ingartakaþáttíhenni. -GHK
SNÆLAND
OTRULEQA ODYR
IS-SHAKE
Ísí formi....................99,-
ísmeödýfu..................109,-
Is með dýfu og ris.........119,-
is, 1 litri.................295,-
Shake, litill...............195,-
Shake, stór.................235,-
ís i boxi, litill...........139,-
ísiboxi, stór...............169,-
Bragðarefur................ 250,-
Bananasplitt................460,-
Margar geröir af kúluís
Vinsæli dúó-ísinn meö
jaröarbeija- og vanillubragði.
SnÆLATÍDS-SPES!!!
Veljiö sjálf í ísréttinn.
■ /,
Sölutum - isbúð - videoleiga - bakari
Fumgmnd 3 - Kópavogi - Simi 41817
ekki útiloka það. Menn hefðu tahð
sig hafa næstum því sönnun fyrir því
að um rauðátu hefði verið að ræða.
„Mér þykir harla óhklegt að fitan í
rauðátunni sé mjög skyld því sem er
í þörungum. En hér er náttúrlega
ekki hægt að útiloka neitt,“ sagði
hann. _VD
ISLENSKUR
IÐNAÐUR
OKKAR
ALLRA
Islendlngar verða að standa vörð um
samelglnlega hagsmunl. Vlð bætum
lífskjör okkar allra með hví að velja elgln
framlelðslu. Þetta gera aðrar Iðnaðarþjóðir.
Stöndum saman og byggjum upp fjölskrúðug-
an og kraftmiklnn iðnað.
ÍSLAND ÞARFNAST IÐNAÐAR.
LANDSSAMBAND
IÐNAÐARMANNA
Samtök atvlnnurekenda í Iðnaðl