Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1992, Síða 11
LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1992.
11
Vísnaþáttur
Reyndist
engum
leiðin löng
Margir munu þeir enn vera sem
muna eftir Vigfúsi Guðmundssyni
þeim er lét reisa Hreðavatnsskála
og rak þar lengi gisti- og veitinga-
stað. En ekki komu allir þar við
sem um veginn fóru. í bók sinni,
Minningar Vigfúsar - þroskaárin,
segir hann svo frá:
„Á fyrstu árum Hreðvatnsskála
fóru bifreiðir Steindórs Einarsson-
ar oftast fram hjá skála mínum,
stönzuðu þar nær aldrei. Var þeim
nokkur vorkunn, því að ég hafði
hlynnt talsvert að útgerð Kristjáns
á B.S.A., sem var aðalkeppinautur
Steindórs á leiðinni Reykjavík-
Akureyri. Seinna fór Steindór
sjálfur oft að koma til mín sem gest-
ur í skálann og fór prýðilega á með
okkur. - Mér þótti leitt að bifreiðir
Steindórs skyldu alltaf fara fram
hjá og hét þeim verðlaunum, er
kæmi með bezt svar við þessu fyrir-
brigði og auglýsti það. Mörg svör
bárust. En það svar, sem verðlaun-
in hlaut, var frá Friðgeiri H. Berg
á Akureyri. Það er þannig:
Að Hreðavatni hópast þjóð
og hefst þar við í tjöldum,
þegar svanir sólarljóð
syngja á júníkvöldum.
Allt sem dauðlegt auga kýs
er þar til að skoða.
Baula hátt við himin rís
hjúpuð aftanroða.
Hagkvæm lega, greiða gnægð,
gróður, húsaprýði,
bera skálans frama og frægö
fram um lönd og víði.
Þegar ekið er um láð
út til Norðlendinga,
að Hreðavatni er ætíð áð
með alla þjóðhöfðingja.
Skógurinn grænn og hraunið
hrjúft
með hundruð leyndra ranna
hafa snortið harla djúpt
hugi listamanna.
Dimmblá íjöll með skugga og skin
og skikkjur mjúkra hta
eiga þann að einkavin,
sem ætlar að mála og rita.
Sá, sem enga auðlegð sér
aðra en málminn foma,
Hreðavatni fram hjá fer
í flaustri kvölds og morgna.
Þó að vatnið Uggi lygnt
í lofts- og sólarbaði,
auga hans er ekki skyggnt
á yndislega staði.“
Dagana 10.-12. júlí 1959 efni
Kaupfélag Húnvetninga tii hóp-
ferðar kaupfélagskvenna til Akur-
eyrar og Þingeyjarþings. Á Húsa-
vík tóku á móti þeim Finnur Kristj-
ánsson, framkvæmdastjóri Kaup-
félags Suður-Þingeyinga, og frú og
Karl Kristjánsson alþingismaður
og frú. Grein um ferðalagið birtist
í Tímanum 30. júlí sama ár og þar
Vísnaþáttur
birtar stökur sem benda til þess að
einhver kvennanna hafi ort þær.
Höfundur greinarinnar er Ingi-
björg Vilhjálmsdóttir.
Hugsun skýr í formið felld -
flutt í ræðum snjöllum.
Karl og Finnur kveiktu eld
í kvennahjörtum öllum.
Sáhn ofar stund og stað
stefndi um himingeima.
AUar gleymdum auðvitað
eiginmönnum heima.
Kjartan Ólafsson, formaður
Kvæðamannafélagsins Iðunnar,
orti í skemmtiferð félagsins:
Reyndist öngum leiðin löng,
logaði á vöngum þótti.
Fram með söng um fjallaþröng
flokkurinn göngu sótti.
Bragi Jónsson, bóndi í Hofgörð-
um á Snæfellsnesi, (Refur bóndi)
var kennari á Ströndum í tvo vetur
og sagði eftir dvöUna: „Veiztu það,
aö mér þykir vænzt um Stranda-
menn aUra íslendinga. Ég held að
annað eins fólk sé hvergi tfi á
byggðu bóli, og sæti þó ekki á mér
að kvarta yfir öðrum. Ég gef þeim
tíu í einkunn í öllum greinum
manndyggða... ellefu ef það
stríddi ekki móti lögum og lands-
venju að fara svo hátt. Ég hef þó
verið kennari og átt fræðslumála-
stjórnina yfir mér. Ég kvaddi þá
með vísu, sem ég skrifaði í gesta-
bók, mig minnir á Hvalsá - reyndar
er hún mest orðaleikur:
Byggðir Stranda batzt ég í,
bjó í Strandarönnum.
Áldrei strandar upp frá því
ást á Strandamönnum.
Tel ég óþarft að fjölyrða meira
þar um og læt þvi staðar numið að
sinni.
Torfi Jónsson
FRÖNSKUNÁMSKEIÐ
ALLIANCE FRANCAISE
Vornámskeið í frönsku verða haldin
27. apríl - 19. júní.
Innritun fer fram alla virka daga kl. 15-18
að Vesturgötu 2, sími 23870.
Renault
bílar
á leið um
landið
Renault 19 ■ Renault 21 Nevada ■ Renault Clio
VESTMANNEYJAR
Bílaverkstæði Muggs - Laugardaginn 25, apríl kl. 10-17
VÍK í MÝRDAL
Víkurskálinn - Þriðjudaginn 28. apríl kl. 11-12
KIRKJUBÆJARKLAUSTUR
Esso - Þriðjudaginn 28. apríl kl. 14-15
HÖFN í HORNAFIRÐI
Sindrabæ - Þriðjudaginn 28. apríl kl. 18-21
DJÚPIVOGUR
Esso - Miðvikudaginn 29. apríl kl. 11-13
BREIÐDALSVÍK
Bláfell - Miðvikudaginn 29. apríl kl. 14-16
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR
Hótel Skálavík - Miðvikudaginn 29. apríl kl. 17-19
NESKAUPSSTAÐUR
Egilsbúð - Fimmtudaginn 30. apríl kl. 10-12
ESKIFJÖRÐUR
Shellskálinn - Fimmtudaginn 30. apríl kl. 14-15
RÉYÐARFJÖRÐUR
Bíley - Fimmtudaginn 30. apríl kl. 16-18
EGILSSTAÐIR
Söluskálinn - Fimmtudaginn 30. apríl kl. 19-20
HÚSAVÍK
Bifreiðaverkstæði BK - Föstudaginn 1. maí kl. 11-13
AKUREYRI
Bílaval
Föstudaginn 1. maí kl. 15-18
Laugardaginn 2. ma: kl. 10-17
DALVÍK
Dröfn - Sunnudaginn 3. maí kl. 12-13
ÓLAFSFJÖRÐUR
Söluskálinn - Sunnudaginn 3. maí kl. 14-16
SIGLUFJÖRÐUR
Esso - Sunnudaginn 3. maí kl. 17-19
Komið og reynsluakið
Renault
Metsölubfil í Evrópu
Bílaumboðið hf
Krókhálsi 1-110 Reykjavík - Sími 686633