Alþýðublaðið - 20.07.1921, Síða 1

Alþýðublaðið - 20.07.1921, Síða 1
Alþýðublaðið Grefiö i&t aí Alþýðuflokknum. 1921 Miðvikudaginn 20. ]úlí. 164. tölubl. Auðvaldsóstjómin á íslandi. Langt er síðan eins skuggalegt ástand og útlit hefir verið hér á íslandi eins og nú er á þessu ári. Stærstu atvinnurekendur landsins — togaraeigendurnir — hafa á undanförnum árum rakað saman stórfé á atvinnurekstrinum, en spilað því aftur að meira eða minna leyti úr höndum sér. Þeim íjármunum, sem þeir hafa haft upp úr striti verkalýðsins, hafa þeir sóað; nú eru hagstæðu árin horfin og atvinnureksturinn ekki eins arðvænlegur eins og áður. Þá gera togaraeigendurnir sér hægt um hönd og Ieggja fiski- skipunum upp — draga sitt kapi- tal út úr atvinnulifinu og hugsa sér að bíða betri tíma, þegar , gróðinn verði vissari. Hinu skeyta þeir engu, þótt fjöidi verkaíólks, sem áður hefir unnið fyrir þá, verði nú atvinnulaus og'megi berj- ast við skört á flestum sviðum. Þetta vita ailir að er satt, og þó segja menn að hér á íslandi sé engin þörf á jafnaðarstefnunni! Nú er það deginum ljósara, að atvinnuleysið hér er óðum að magnast; það er vafasamt hvort það er að sínu leyti minna hér á landi sem stendur, heldur en í nágrannalöndum okkar. Þar eru þó gerðar tilraunir til þess að bæta úr alvarlegasta atvinnuskort- ánum með atvinnuleysisstyrk. Hér er það ekki borið við. Það má miklu fremur segja að ríkisvaldið geri sitt til þess að auka á vand- ræðin. Það hefir ausið út fé lands- ins á hinn beimskulegasta hátt. Þingið veitir stjórninni heimild til þess að ganga í stórkostiegar á- byrgðir fyrrr togaraeigendur; það lítur ekki út fyrir að slík heimild hafi verið gerð í því skyni að bæta úr vandræðum almennings; hafi það verið gert, þá hefir heim- ildin að minsta kosti að Iitlu gagni orðið, því togaraeigendurnir hafa hætt atvinnurekstrinum að meira eða minna leyti. Hitt er sýnilegt, að ábyrgðin getur þá að minsta kosti orðið til þess að bjarga sníkjudýrunum sjálfum, sem lifa á því að stinga í sinn vasa arðinum af vinnu almennings á þeím tim- um, þegar atvinnureksturinn er arðvænlegur — hæla sér af því að þeir séu að „veita“ fólkinu at- vinnu — en hika þó ekki við að stöðva atvinnureksturinn undir eins og þeir óttast að tap geti orðið á honum. Þeir úthluta sjálfum sér gróðanum góðu árin, en alþýðu manná skellina vondu árin. Og samt eru menn svo ósvífnir að neita því, að hér sé nokkur ástæða til að taka i taumana. Jafnaðarstefnan á ekki við hér, er viðkvæði þessara herra, sem vilja fá að hafa sem beztan frið til að rýja verkalýðinn. Landið er á hausnum. Það hefir ekki efni á því að láta Ieggja vegi né byggja brýr. Fyrir þá sök missa margir atvinnu. Er það þá ekki napurt að sjá fleiri hundr- uðum þúsunda ausið út til annars eins hégóma og konungsmóttök- unnar í því formi sem hún var? Er í rauninni nokkurt vit f því að Iáta fara þann veg með almenn- ingsfé? Er nokkurt réttlæti f þvi að skattar og skyldur séu lagðar á alþýðu manna til þess að kosta veizlur og hátiðahöld broddborg- aranna hér i Reykjavík, eða til þess að styðja togáraeigendurna — eins samviskusamlega og þeir iika beita þeirri aðstöðu sem þeir hafa f okkar þjóðfélagii? Og þrátt fyrir það, þótt öll þessi ósvinna fari fram rétt fyrir framan nefið á mönnum, segja þeir að hingað eigi jafnaðarstefn- an ekkert erindi. Hér f Reykjavfk eru að koma skýrar og skýrar f Ijós einkenni hinnar sárustu neyðar. Það kemur ekki sjaldan fyrir að maður rekist á klæðlftil, betlandi börn á göt- pooooooo-Q í Brunatryggingar í á innbúi *i* hvergí ódýrari en hjá *f A. V. Tuliníus ? vátryggingaskrifstofu t Eimskipafólagshúsinu, Ip J 2. hæð. J*| 6~ unni. Þau eru fyrirfram dæmd til örbyrgðarinnar. Þau eiga bláfátæka foreldra, sem búa f dimmum, rök- um og óhollum kjallaraholum eða þröngum og lélegum súðarher- bergjum uppi á háaloftum. Slíkir bústaðir eyðileggja heimilislffið; börnin fá hvorki það lfkamlegt né andlegt uppeldi, sem þau þarfn- ast. Þau eru dæmd til að vera skuggamegin í Iffinu. Berum þetta saman við Iff æðri stéttanna hér f Reykjavfk. Gerum Iftinn samanburð t. d. á kjallara- og háaloftsibúðunum og svo aftur hinum þægilegu, rúmgóðu og björtu íbúðarhúsum sumra togara- spekulantanna! Aliir sjá muninn. Samt segja menn að hér sé enginn stéttamun- ur og engin þörf á jafnaðarstefnu! Hvaðan er þessi skoðun runnin? Hvaðan nema frá atvinnurekend- unum, sem eru að reyna að halda sér uppi á kostnað almennings? Þeir hafa gert alt er f þeirra valdi hefir staðið til þess að „fabrikera* þessa fjarstæðu skoðun hjá sem allra flestum. Þessir tfmar, sem við nú lifum á, eru skapaðir til þess að rffa frá augum manna bindi það, sem auðvaldið hefir haft til þess að leyna sannleikanum fyrir þeim. Vfða má sjá þess merki erlendis, að menn séu að vakna. Hvf skyldu menn ekki vakna hér lfka? Hvaða alþýðumaður getur sætt sig við það ástand, sem hér er nú? Hverra umbóta getur hann

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.