Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1992, Blaðsíða 12
12
MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1992.
Spumingin
Lesendur
Hvaðfinnstþér um
íslenskt kvenfólk?
Ingvi Þór Björnsson: íslenskt kven-
fólk er glæsilegt.
Snorri Waage: Kvenfólkið héma er
yndislegt.
Snorri Guðmundsson: Mér finnst allt
gott um það. Þær eru sjálfstæðar,
sterkar og fallegar.
Kristján Þórðarson: Fallegasta kven-
fólk í heimi.
Marinó Már Magnússon: Án efa fall-
egasta kvenfólk í heimi.
Bensín gegn korti, for-
stjórar gegn kortum
„Til hvers er þá verið að reisa dreifingarstöðvar fyrir bensín?“
Ólafur Gunnarsson skrifar:
Hveijum hefur dottið í hug verð-
hækkun á vörum eða þjónustu þótt
greiðslukort séu notuð sem gjaldmið-
ill? - Nema forstjórum tveggja olíufé-
laga! Ég veit ekki betur en greiðslu-
kort séu notuö hér í hvers konar við-
skiptum og alltaf sé eitt eða annað
fyrirtækið að bjóða upp á viðskipti
með greiðslukort og verðbreytingar
hafa ekki átt sér stað af því tilefni.
Nýlega tók eitt bakarí í grennd við
mig upp á því að bjóða greiðslukort,
limdi upp merki þeirra á hurðina.
Þetta hafði ekki verið boðið áður.
Engin tilkynning var sett upp þess
efnis að verðið á brauðunum eða
kökunum myndi hækka fyrir vikið.
Ég held að þeir aðilar sem nú til-
kynna fyrir hönd olíufélaganna að
verðið á bensíni muni hækka með
tilkomu greiðslukortaviðskipta séu
einfaldlega - annaðhvort svona illa
að sér í viðskiptum - eða þeir eru að
auglýsa sig sem mestu skúrkana í
íslensku viðskiptalífi. - Eitt olíufé-
laganna (það sem fyrst reið á vaðið
með greiðslukortin) hefur sett fram
þá yfirlýsingu að verð á bensíru eigi
ekld að þurfa að hækka með tilkomu
greiðslukorta því annar vamingur
muni geta haldið uppi kostnaði þeim
sem hugsanlega hlýst af meðhöndlun
kortanna.
Auðvitaö tapa olíufélögin ekki á
þessum kortaviðskiptum. Eða hvers
vegna voru þá hin olíufélögin að
fylgja í kjölfar Skeljungs og taka líka
upp greiðslukortaviðskipti, ef hag-
stæðara hefði verið að nota gamla
lagið; beinharða peninga? Úr því tal-
in eru fram skynsamleg rök að nota
greiðslukort yfirleitt eins og raunar
tíðkast í öllum löndum sem við
þekkjum til er lítil skynsemi í því að
vera með heitstrengingar framan í
viöskiptavini og segja sem svo: Við
ætlum að koma til móts við kröfur
ykkar um kortaviðskipti en þið skul-
uð fá að kenna á því ef þið notfærið
ykkur kortin! - TÚ hvers er þá verið
að reisa dreifingarstöðvar fyrir bens-
ín? Væri ekki jafn rökrétt að segja
(t.d. hér á höfuðborgarsvæðinu); Fár-
ið bara inn á Laugarnestanga þar
sem bensíninu er dælt í land, þar
verður ykkur afhent bensín á bílana!
Athugasemd frá Mjólkursamsölunni:
Ársreikningar með tvennum hætti
Guðlaugur Björgvinsson skrifar:
í tilefni af frétt DV þriðjudaginn 5.
maí sl., þar sem fiallað er um meinta
„leyniársreikninga" Mjólkursamsöl-
unnar, skal eftirfarandi upplýst:
Mjólkursamsalan í Reykjavík hef-
ur, rétt eins og fiölmörg önnur stærri
fyrirtæki hérlendis og erlendis, um
árabil gefið út ársreikninga sína með
tvennum hætti.
Annars vegar er um að ræða árs-
skýrslu sem gefin er út í 1500 eintök-
um og dreift til allra aðstandenda
fyrirtækisins og annarra sem eftir
reikningum leita. I því tilfelli er um
svokallaðan samstæðureikning að
ræða, þar sem tölur eru saman-
dregnar fyrir þau fyrirtæki og
rekstrarþætti sem tengjast starfsemi
Mjólkursamsölunnar í Reykjavík.
Hins vegar er um að ræða ítarlega
sundurhðaðan reikning, þar sem
lesa má sérstaklega fiölmargar upp-
lýsingar sem t.d. gætu komið sam-
keppnisaðilum mjög til góða. Þeim
reikningi, sem gefinn er út í 150 ein-
tökum (ekki 15 eins og haft er eftir
alþingismanni í nefndri frétt), er
dreift á aöalfundi Mjólkursamsöl-
unnar.
Öllum opinberum eða ábyrgum
aðilum, sem eftir þessum upplýsing-
um hafa leitað, hafa allar dyr staðið
opnar í þeim efnum. Það er hins veg-
ar eðlilegt að Mjólkursamsölunni,
eins og öðrum markaðsráðandi fyrir-
tækjum, séu slíkar upplýsingar ekki
útbærar til samkeppnisaðila eða op-
inberrar birtingar, heldur séu þær
meðhöndlaðar sem trúnaöarmál.
„Einhverjir hafa haft aðgang að fjármagni í gegnum tíðina.“
Sjávarútvegurinn; fýsilegasta fjárfestingin?
Þórður Guðmundsson skrifar:
Ég hef oft velt því fyrir mér hvern-
ig á því stendur að menn eru svo
áfiáðir í að festa fiármuni sína í sjáv-
arútvegsfyrirtækjum, bátum stærri
og smærri og aðstöðu til fiskvinnslu
úr því lítið sem ekkert er upp úr
þessu að hafa. - Er hugsanlegt að
skýringin sé sú að einmitt í þessum
atvinnugreinum hefur fiármagnið
legið hvað mest á lausu, án þess aö
hart hafi verið gengið fram í því að
krefiast endurgreiðslu og alls ekki
jafn hart og tíðkast í öðrum atvinnu-
greinum?
Margir eru þeir innan sjávarút-
vegsins sem sífellt halda því fram að
þessi atvinnugrein hafi ekki átt
greiðan aðgang að fiármagni frá
lánastofnunum. Þetta er auðvitað
mikil blekking. Gengisfelling í einu
eða öðru formi eða með einu eða
öðru heiti hefur verið skyndiaðgerð
áratugum saman til að koma til móts
við kröfur þrýstihópa innan sjávar-
útvegsins. Nú er þetta liðin tíð, geng-
isfelling veröur ekki framkvæmd í
bráð, a.m.k. ekki sem liður í bættri
afkomu í fiskvinnslu. - Skuldir sjáv-
arútvegsins alls eru nú taldar nálægt
100 milljörðum króna og sér hver
hugsandi maður að einhveijir hafa
haft aðgang að fiármagni í gegnum
tíðina.
Ég las snjalla gi ein í DV á dögunum
eftir Kristjón Kolbeins viðskipta-
fræðing um þessi efni. Eftir lestur
hennar tók ég mér penna í hönd og
leyfði mér að nota orðatiltæki úr
henni sem fyrirsögn hér að ofan.
Grein Kristjóns, Argentínska leiðin,
í DV 14. maí sl. er þörf hugleiðing
fyrir okkur öll, hún er upprifiun á
döprum staðreyndum um þver-
móðsku og þá staðreynd aö við áttum
okkur ekki enn á þeim lögmálum
sem gilda um nýtingu sameiginlegra
en takmarkaðra auðlinda okkar.
Hringið í síma
632700
milli kl. 14 og 16
-eða skrifið
ATH.: Nafn og símanr. veröur
að fylgja bréfum
DV áskilur sér rétt
til að stytta aðsend
lesendabréf.
Guðný skrifar:
Fyrrverandi forstöðuraaður
sambýlis í Þverárseli fyrir geð-
sjúka kom fram í þætti rásar 2
12. maí sl. - Varpaði hann nýju
ljósi á starfshætti svæðisstjórnar
fatlaðra og framkomu formanns
Öryrkjabandalagsins i því máli
sem hann kallaöi „halelúja-kór-
inn“. - Einnig sagði forstöðumað-
urinn frá skýrslu sinni til félags-
málaráðherra, en hún hefur ekki
litið dagsins fiós.
Skýrði hann svo frá að illa hefði
verið staðið að vali inn á sambýl-
ið. Sumir „væru ekki sambýlis-
hæfir enda útskrifaö síg sjálfir“.
Hefur fólkið í Þverárselshverfinu
verið úthrópað og illa um það
talað vegna málsins. Þaö ætti því
skilið leiðréttingu og afsökunar-
beiðni frá „halelúja-kórnum“. -
Fólk á rétt á að fá sannar upplýs-
ingar um svona hitamál?
Rskistofa íslands!
Pétiu- Stefánsson hringdi:
Ósköp er þetta nýja heiti,
„Fiskistofa“ íslands, sem verið er
að toga úr burðarliönum mikið
ónefni. Þetta „stofu“-fargan er
orðið óþolandi. Fer eftirlit með
fiskvinnslu og sjávarafurðum
fram í einhverjum „stofum"?
En þetta frumvarp um Fiski-
stofu islands er líka einkar illa
til fundið og einungis viðbót við
allar aðrar stofnanir sem fisk-
veiðum tengjast; svo sem Rann-
sóknastofnun fiskiðnaöarins,
Fiskifélag íslands og enn fleiri
stofnanir sem koma eiga þessari
blessaðri auðlind, fiskimiðunum,
i verðmæti. - Hvað skyldu nú all-
ar „fiski“-stofnanirnar taka stór-
an skerf af verðmæti sjávarafia
okkar?
Gullkortin sem
stöðutákn?
Alfreð skrifar:
Égvar staddur á skyndibitastað
nýlega þar sem matur er seldur
út. Eg var á meðal þeirra sem
biðu. - Af tiu manns sem greíddu
meö greiðslukorti greiddu sjö
með gullkorti. - Ég hugsaði sem
svo; skyldu allir þessir gullkorta-
menn vera í svona umfangsmikl-
um viðskiptum að þeir þurfa á
gullkorti að halda? Eða þurfa þeir
svona mikla úttekt aö þeim nægir
ekki almenna kortið?
Mín skoðun er sú að hér sé
hreinlega einn angi af eyðslu-
steftiu landans í hnotskurn. Ekk-
ert minna en það besta og mesta
dugir. - Nema gullkort sé orðið
viðtekið sýnishom um stöðu-
tákn! - Um hvaða stööu??
Greiðsia fyrir Soff íu?
Þórunn skrifar:
Þaö væri fróðlegt að fá upplýst
hvort allt sem tengist hinu sorg-
lega máli Soffiu Hansen og dætra
hennar tveggja greiðist af utan-
ríkisráðuneytinu. - Fleiri en ég
heyrðu Bjarna Dag á Bylgjunni
staðhæfa þetta.
Það segir sig sjálít að Soffia get-
ur eklú unnið við þær aðstæður
sem hún býr við. Sé þetta misskil-
ingur væri gott aö heyra frá
stuðningsmönnum Soffiu. Það er
sannarlega ekkert ofverk að
styðja við hakið á Soffiu svo að
hún lendi ekki í vandræðum.
Hún verðnr að geta farið til dætra
sinna og við óskum þess innílega
að hún eigi eftir að ná þeim heil-
um á húfi liingað til lands.
A’ekarbrúengöng
örn skrifar:
Varðandi styttingu ökuleiðar
fyrir Hvalfiörð beini ég tilmælum
til viðkomandi að kanna alvar-
lega brúargerð fremur en jarð-
göng. Það yrðu ekki margir sem
myndu vifia nota jarögöng á þess-
um stað.