Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1992, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1992, Qupperneq 8
8 LAUGAKDAGUR 13. JÚNl 1992. Nauðungaruppboð Þriðja og síðasta sala: Neðangreindar fasteignir verða boðnar upp og seld- ar á nauðungaruppboði sem fram fer á eignunum sjátfum. Um er að ræða þriðju og síðustu sölu er fram fer þriðjudaginn 16. júní 1992 á neöangreind- um tímum. Sumarhús í Landi Reynifells, Rangárvallahreppi kl. 14.30, þinglýst eign Guðlaugar Daðadóttur. Uppboðsbeiðandi er Bjarni Ásgeirsson hdl. Bújörðin Vatnskot IA, Djúpárhreppi, kl. 16.00, þinglýstur eigandi er Óli Ágúst Ólafsson. Uppboðsbeiðandi er Stofnlánadeild landbúnaðarins. Sýslumaður Rangárvallasýslu Tollvöruuppboð Að kröfu Tollinnheimtu ríkissjóðs o.fl. aðila ferfram opinbert nauðungarupp- boð á ýmsum vörum til lúkningar vangreiddum aðflutnings- og geymslu- gjöldum. Til stendur að selja m.a. hljómflutningstæki, húsgögn, fatnað, gjafa-, snyrti- og hreinlætisvöru, varahluti o.fl. Einnig verður væntanlega selt að kröfu bæjarfógeta Hafnarfjarðar og ýmissa lögmanna pressa, gufuketill, efni til hljómplötugerðar, málverk, myndbands- tæki, húsgögn, system 26 tölvur, bifr. JB-832 og KE-622 o.fl. Uppboðið fer fram laugardaginn 20. júní nk. og hefst kl. 13.00 að Hjalla- hrauni 2, Hafnarfirði. Greiðsla við hamarshögg. Uppboðshaldarinn í Hafnarfirði 17. JUNI - SÖLUTJÖLD - SÖLUBÚÐIR Álblöðrur fyrir helíum. Álblöðrur með lofti. Blöðrur með 17. júní áletrun. Fánar, venjulegar blöðrur o.fl. Einar G. Ólafsson, heildverslun Arnarbakka 2 - sími 670799 Sýning og sala handavinnu Hrafnistufólks á sjómannadaginn frá kl. 14.00-17.00 og mánudag- inn 15. júní frá kl. 13.00-16.00. Einnig verður kaffi- sala frá kl. 14.30-17.00. Hrafnista í Reykjavík og Hafnarfirði Matgæðingur vikunnar Grísagrill með suörænni sveiflu Jón Sigfússon matreiðslumeist- ari á Hótel Lind slær á létta strengi og býður lesendum í griilveislu með suðrænum blæ. Hjá Jóni tak- markast grillveislur ekki aðeins við sumarið, hann grillar allan árs- ins hring, líka á jólunum. „Þegar grill er annars vegar er ein regla sem aldrei má gleymast: Það á umfram allt að vera skemmtilegt að grilla. Þess vegna er undirbúningur lykilatriði, að hafa allt tilbúið þegar kveikt er í kolunum." Jón býður lesendum upp á grísagrill með suðrænni sveiflu og sunnlenskum humar í forrrétt. Alltsemþarf Hér á eftir fer aUt það sem þarf til grillveislunnar: 36 humarhalar 'A franskbrauð 500 g smjör 2 box sýrður rjómi 1 lítið box majónes 2 sítrónur 6 tómatar 1 agúrka 1 haus íssalat (iceberg) 8 bökunarkartöflur 1 svínahnakki 1 dós ananas engifer salt og pipar tómatsósa sojasósa púðursykur lítill bakki graslaukur Kjötið marinerað Þegar allt þetta bggur tílbúið á borðinu er hægt að byrja undir- búninginn. Svínahnakidnn er Jón Sigfússon. skorinn í hæfilega þykkar sneiðar (2-3 sentímetra) og sneiðamar lagðar í fat. Þá er marineringarlögurinn lag- aður. í hann þarf: 1 boUa tómatsósu /2 bolla sojasósu 1 msk. svartan grófamalaðan pipar 4 msk. púðursykur 1 msk. engifer Þessu er öUu hrært saman og heUt yfir kjötið. Kjötið er síðan sett tíl hUðar. Kartöflurogsalat Þá er bökunarkartöflunum pakk- aö inn í álpappír og þær settar tíl hUðar. Salatið er rifið og sett í skál en í því er íssalat, tómatar, agúrka og ananas. Salatið er sett til hUðar (í ísskáp). Salatsósan er einfóld. í hana þarf aðeins eina dós af sýrður rjóma sem hrærður er út með graslauk. Sósan er sett til hUðar (í ísskáp). Humarhalar með sítrónusósu Þá er undirbúningi fyrir aðalrétt- inn lokiö og hægt að snúa sér að humarhölunum. Þeir eru klofnir langsum með hníf og hreinsaðir. Þá eru þeir penslaðir með bræddu smjörinu. Þá er sítrónusósan löguö. í hana þarf: 1 dós sýrðan ijóma 3 msk. majónes safa úr tveimur sítrónum Þessu er öUu blandað saman og sett tíl hUðar. Kveiktágrillinu Þá er aUt tUbúið og tími tU kom- inn aö kveikt sé á griUinu. Þaö er látið funhitna. Þegar grihð er tUbúið er humrin- um raðað á og kryddaður með salti og pipar. LykUatriði er að grilla humarinn ekki of lengi (hann er betri minna en meira steiktur). Humarinn er tUbúinn þegar hann skiptir um Ut og bognar. Humarinn er borinn fram með sítrónusós- unni, ristuðu brauði og smjöri og eðalhvítvíni eða vatni. Meðan verið er að gæða sér á humamum eru bökunarkartölf- umar látnar „malla“ á griUinu (á medium á gasgriUi). Hnakkasneið- arnar eru síðan steikar eftir smekk, hrá-, meðal- eða velsteiktar. (Hræðslu við hálfsteikt svínakjöt segir Jón vera algera tímaskekkju.) Að lokinni steikingu er kjötið fært upp á fat ásamt kartöflunum og borið fram meö salati og sósu. Jón skorar á vin sinn Jakob Haf- stein fiskeldisfræðing að vera mat- gæðingurnæstuviku. -hUi Tilboð óskast í endurbætur á þaki og viðhald á Borgartúni 6, Reykjavík. Stærð þakflatar 1070 m2. Málun á stein 1680 m2. Verk- tími er til 28. ágúst 1992 fyrir steypuvinnu og þakendurbyggingu og til 1. júlí 1993 á þakmálun. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri í Borgartúni 7, Reykja- vík, til og með þriðjudeginum 23. júní 1992 gegn 10.000 kr. skila- tryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 25. júní kl. 11.00 f.h. IIMIMKAUPASTOFNUIM RÍKISINS BORGARTUNI 7 105 REYKJAVIK Nauðungaruppboð þríðja og síðasta á efh'rtöldum fasteignum: Smiðjuvegur 18, n. h„ þingl. eig. Skápaval c/o Magnús Þórðarson, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 16. júní 1992, kl. 16.00. Úppboðsbeið- endur em íslandsbanki, Ásgeir Magn- ússon hdl. og Iðnlánasjóður. Sæbólsbraut 8, þingl. eig. Róbert Við- ar Pétursson, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 16. júní 1992, kl. 15.15. Uppboðsbeiðendur em Róbert Ami Hreiðarsson hdl. og Ásgeir Magnússon hdl. Borgarholtsbraut 13 A, þingl. eig. Ásta Karlsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 16. júní 1992, kl. 13.45. Uppboðsbeiðendur eru Lands- banki íslands, Bæjarsjóður Kópavogs, Veðdeild Landsbanka íslands og Fjár- heimtan hf. Daltún 18, þingl. eig. Guðbjörg H. Pálsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 16. júní 1992, kl. 16.45. Uppboðsbeiðendur eru skattheimta ríkissjóðs í Kópavogi, Bæjarsjóður Kópavogs, Ingólfur Friðjónsson hdl., Veðdeild Landsbanka íslands, Ólafiir Bjömsson lögfr. og Friðjón Öm Frið- jónsson hdl. Vesturvör 27, nyrðra hús, þingl. eig. B. M. Vallá hf„ fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 16. júní 1992, kl. 13.00. Úppboðsbeiðendur eru íslands- banki, Búnaðarbanki íslands og Iðn- lánasjóður. BÆJARFÓGETINN í KÓPAV0GI Skemmuvegur 34, efri hæð, þingl. eig. Vélsmiðjan Faxi hf„ fer fram á eign- inni sjálfri þriðjudaginn 16. júní 1992, kl. 17.30. Uppboðsbeiðendur eru Iðn- lánasjóður, Guðjón Ármann Jónsson hdl., Gjaldheimtan í Reykjavík, skatt- heimta ríkissjóðs í Kópavogi, Andri Ámason hdl. og Ásgeir Thoroddsen hrl. Hinhliðin Hef aldrei tekið bilpróf - segir Þorsteinn Eggertsson, textasmiöur og rithöfundur „Eg er nýbúinn að þýða aUa text- ana við tónverk Trúbrots, Lifun, en það verður flutt í nýjum búningi í Keflavík eftir nokkrar vikur. Síð- ar í sumar verður það sett upp í ReyRjavík með Sinfóníuhljómsveit íslands með miklu tUstandi,“ sagöi Þorsteinn Eggertsson. Það er mikið um að vera hjá Þor- steini þessa dagana en hann hefur einnig verið að teikna kynningar fyrir kvikmyndina Veggfóður sem verður frumsýnd bráölega. Þá er Þorsteinn að skrifa bók á ensku sem nefnist Late Night Rhapsodies. „Þetta er smásagnasafn sem gefiö verður út í London að ósk útgef- anda míns þar. Fyrsta bókin mín, The Paper King’s Subjects, er enn í sölu,“ sagði Þorsteinn Eggertsson sem sýnir hina hhðina að þessu sinni: FuUt nafn: Þorsteinn Eggertsson. Fæðingardagur og ár: 25. febrúar 1942. Maki: Jóhanna Fjóla Ólafsdóttir er sambýliskona mín. Börn: Anna Valgerður, 14 ára, og Soffía, 11 ára. Stjúpböm mín eru Hrönn, Ólafur og Anna. Bifreið: Ég hef aldrei lært að aka enda er nóg af bUstjórum í umferð- inni þótt ég bætist ekki í hópinn. Starf: Rithöfundur, blaðamaður, textahöfundur og fleira. Laun: Ótrúlega misjöfn. Áhugamál: Ferðalög, ritstörf, Ustir og tungumál. Hvað hefur þú fengið margar réttar tölur í lottóinu? Stundum þijár. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Skrifa, teUcna og vera tíl. Hvað finnst þér leiðinlegast að Þorsteinn Eggertsson rithöfundur segist alltaf vera i sumarfríi. gera? Veit það ekki. Uppáhaldsmatur: Thja... ítölsk vUUgaltasteik tíl dæmis. Uppáhaldsdrykkur: Ég get aUtaf drukkið kafii. Hvaða íþróttamaður finnst þér standa fremstur í dag? Örugglega enginn. Uppáhaldstímarit: Mörg. TU dæmis National Geographic. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan konuna? Ein í dag og önnur á morgun. Ég er aUt- af að sjá nýjar og nýjar sem em hver annarri faUegri. Ertu hlynntur eða andvígur ríkis- stjórninni? Stundum og stundum ekki. Hvað persónu langar þig mest að hitta? Mér dettur engin sérstök í hug. Uppáhaldsleikari: CharUe ChapUn. Uppáhaldsleikkona: Brigitte Bard- ot. Uppáhaldssöngvari: John Lennon, Little Richard, Harry Belafonte - hundrað í viðbót. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Ma- hatma Ghandi ef hann væri á lífi. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Hermann og bleiki pardusinn. Uppáhaldssjónvarpsefni: Góðar kvikmyndir. Ertu hlynntur eða andvígur veru varnarliðsins hér á landi? Ég er andvígur hemaði og fmnst ástæðu- laust að senda hingað blásaklausa Bandaríkjamenn til aö loka þá inn- an girðingar. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Ég hlusta á báðar rásir ríkis- útvarpsins, Aðalstöðina og BBC. Uppáhaldsútvarpsmaður: Veit ekki. Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Sjónvarpið. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Spaug- stofumenn. Uppáhaldsskemmtistaður: Ég hleyp yfir þessa þar sem ég auglýsi ekki skemmtistaði ókeypis. Uppáhaldsfélag í íþróttum: Ég hef aldrei skUið íþróttir nema hvað mér finnst þær vera eins konar stríðseftirUkingar - og eftir því til- gangslausar og leiðinlegar. Stefnir þú að einhveiju sérstöku í framtíðinni? Aö gerast góður rit- höfundur. Annars finnst mér aUtaf spennandi að fást við eitthvað sem ég hef ekki gert áður. Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí- inu? Ég haga Ufi mínu þannig að mér finnst ég aUtaf vera í sum- arfríi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.