Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1992, Qupperneq 2
2
FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1992.
Fréttir__________________________________________________________________________________________x>v
Deilur um útflutning á ferskfiski:
Guðmundur J. gekk af
f undi Af lamiðlunar
- segir miðlunina grafa sína eigin gröf og viU að ráðherra kanni samsetningu nefndarinnar
„Ég mun ganga á fund utanríkis-
ráðherra og kreíjast þess að hann
kanni mjög aivarlega vinnubrögð og
samsetningu Aflamiðlunar," sagði
Guðmundur J. Guðmundsson, form-
aður Dagsbrúnar.
Guðmundur sat fund Aflamiðlunar
á miðvikudag en þar er hann vara-
maður. Guðmundur var með tillögu
á fundinum þar sem hann vildi að
aðeins yrði leyft að flytja út 400 tonn
af ferskfiski til Bretlands en meiri-
hlutinn samþykkti að heimila út-
flutning á 600 tonnum. Guömundur
segir að fulltrúi Sjómannasambands-
ins hafi viljað leyfa 800 tonna útflutn-
ing.
„Þetta er ekkert persónulegt gegn
formanni nefndarinnar, Eiríki Tóm-
assyni frá Grindavík, og ég er ekki
að bera sakir á hann, en hann er
fulltrúi stórrar útgerðar og fisk-
vinnslu og um leið getur hann ekki
verið hlutlaus oddamaður. Þetta eru
ekki persónulegar árásir á hann en
hann gæti þess vegna verið fulltrúi
LÍÚ.“
Aflamiðlun er skipuð fimm fulltrú-
um, einum frá LÍÚ, einum frá fisk-
vinnslustöðvunum, einum frá
Verkamannasambandinu, einum frá
Sjómannasambandinu og einum
oddamanni, Eiríki Tómassyni, sem
Guðmundur segir að eigi að vera
hlutlaus, en hann segir að Eiríkur
geti ekki verið þessi hlutlausi odda-
maður.
„Viðskiptadeild utanríkisráðu-
neytisins hefur ritað Aflamiðlun bréf
og óskað eindregið eftir því að hún
dragi verulega saman allar heimildir
en það virðist ekki hafa hrifið eitt eða
neitt á meirihluta nefndarinnar.
Fulltrúi fiskvinnslustöðvanna
greiddi atkvæði með tillögu minni
um 400 tonna útflutning. Jón Baldvin
Hannibalsson hefur sagt að Afla-
miðlun sé aö bregðast sínu hlutverki
ef hún takmarki ekki útflutning mið-
að við atvinnuhorfur í landinu.
Meirihlutinn hafði það að engu enda
er furðuleg samsetning í nefndinni.
Ég tel að með þessu sé meirihlutinn
jafnvel að leggja Aflamiðlun í gröf-
ina. Ég ætla að ræða þetta við utan-
ríkisráðherra en ég hef ekki náð i
hann ennþá.
Það var fleira sem Guðmundur
nefndi, svo sem að formaður Afla-
miðlunar, Eiríkur Tómasson, hefði
verið meðal þeirra sem sóttu um út-
flutning og eins að fundir nefndar-
innar væru haldnir á skrifstofu
Landssambands íslenskra útvegs-
manna. -sme
Karen Majen, 9 ára, við skurðinn þar sem hún sökk upp að öxlum. Nú er
búið að hleypa mestöllu vatni úr skurðinum en heyi hefur veriö sturtað í
hann. Skurðurinn er á lóð Háskóla íslands. DV-mynd Brynjar Gauti
Hætt komin 1 skurði skammt frá Norræna húsinu:
Telpa sökk upp að
öxlum í f orarvilpu
- skurðurmnnotaðurtilaðkastaheyií
9 ára stúlka, Karen Majen, komst
1 mikla hættu fyrir skömmu þegar
hún sökk upp að öxlum í skurði sem
grafinn hefur verið við ræsi á lóð
Háskóla íslands austan Oddagötu
skammt frá Norræna húsinu. Þegar
Karen hafði kallað á hjálp í nokkrar
, mínútur kom vinkona hennar að og
tókst með miklum erfiðismunum að
bjarga Karenu.
„Við vorum að búa til hús þama
rétt hjá. Þá datt mér í hug að ná í
litla töflu sem var þarna til að hafa
fyrir borð. Ég stytti mér leið þama
yfir. Ég labbaöi yfir venjulegt hey en
allt í einu seig ég niður. Ég öskraði
á vinkonur mínar en þær héldu að
ég væri að grínast. Svo ákvað vin-
kona mín að gá að mér til öryggis.
Hún labbaði hingað en sökk svo sjálf
niður en náði að losna og hljóp heim
til sín. Frænka vinkonu minnar dró
mig síðan upp. Ég fór í bað heima
hjá þeim og það var strax hringt í
lögguna," sagði Karen Majen.
Helga Briem, móöir stúlkunnar,
sagði lögregluna hafa bragðist skjótt
við með því að girða skurðinn af
öðrum megin og setja viðeigandi
skilti. Hins vegar væri ljóst að hætt-
an væri enn fyrir hendi að böm færa
sér að voða í skurðinum. Helga sagð-
ist telja það mikla mildi að ekki fór
verr og fót telpunnar hefðu verið
mjög illa lyktandi eftir volkið í þessu
hálfgerða kviksyndi sem þama var.
Helga henti lopapeysu Karenar, slík-
ur óþefur var af fótunum. „Stelpan
hefði sokkið þama ef hjálpin hefði
ekki borist strax,“ sagði Helga.
Hjá hverfisstöð gatnamálastjóra í
vesturbænum fengust þær upplýs-
ingar í gær að mesta vatninu hefði
verið hleypt úr skurðinum eftir at-
burðinn. Hins vegar væri umræddur
skurður alfarið á vegum umsjónar-
manns lóða við Háskóla íslands sem
hefði saínað heyi í hann. Ekki náðist
í þann aðila sem þar er í forsvari.
-ÓTT
Langtímaspá bandarísku veöurstofunnar:
Þokkalegasta veður í vændum
Ekki er öll von úti enn fyrir sól-
þyrsta Frónbúa ef marka má lang-
tímaveðurspá bandarísku veðurstof-
unnar (NOAA) sem gildir til 15. júlí.
Samkvæmt henni ætti að geta orðiö
eilítið hlýrra en í meöalári á tímabil-
inu og eins útlit fyrir minni rigningu
en í meðalári. Ef við verðum heppin
gæti orðið dágott veður hér á landi
í júlíbyrjun, í það minnsta austan til
á landinu.
Norðanáhlaup undanfarinna daga
og skítviðri það sem ríkt hefur á suð-
vesturhominu í júní hefur haft mið-
ur æskileg áhrif á sálartetur margra.
Þykir ófáum sem ekkert sumar muni
koma. Hefur fólk tekið fram vettlinga
og trefla og hafa búist við hinu
versta. En... enn er von, eins og lesa
má úr kortinu.
DV hefur oft birt mánaðarspár
bandarísku veðurstofunnar og oftar
en ekki hafa þær staðist í megin-
dráttum. Spár þessar segja fyrir um
megintilhneigingar í veörinu á til-
teknu tímabili en spá ekki veðrinu
frá degi til dags. Þá ber að geta þess
að því lengra sem spátímabilið er því
minni verður áreiðanleikinn.
Langtímaspá um veður á N-Atlantshafí til 15. júlf
Byggt á gögnum NOAA (National Oceanic and Atmospheric Administration)
Spáin sýnir frávik frá meöalhita og meöalúrkomu á spásvæöinu
43 punda stórlaxinn:
Tók aðeins 20 mínútur að landa honum
Elias Helgason, veiðifélagi Marinós, heldur hér á 43 punda stórlaxinum sem
tók spón í Bakká í Bakkafirði. Áin gefur fáa laxa á hverju sumri og stund-
um engan. DV-mynd Ágúst Ó
„Það tók ekki langan tíma að landa
laxinum, rétt tæpar tuttugu mínútur,
en þetta var gaman. Fiskurinn tók
spón,“ sagði Marinó Jónsson, sjó-
maður á Bakkafirði, en hann veiddi
43 punda lax í Bakká í Bakkafiröi.
„Við höfðum verið að keyra yfir
brúna á Bakká og sáum þrjá laxa.
Ég reyndi við þá smástund en þeir
tóku ekki. Ég labbaði aöeins ofar í
ána og þá sá ég þennan væna fisk.
Þessir laxar hafa gengið snemma í
ána því yfirleitt kemur laxinn ekki
fyrr en um miðjan júlí. Hann tók eft-
ir nokkur köst. Þaö vora tekin hreist-
ursýni af laxinum, en þau era héma
hjá mér ennþá. Það er ekki mikil
veiði í Bakká en ég hef þó mest séð
17 laxa einum hylnum," sagði Mar-
inó sem var að koma af sjónum með
eitt tonn af fiski, þó engan laxinn.
Erfitt verður að sjá hvaöan þessi
fiskur er fyrr en hreistur hefur verið
greint. í það gætu verið nokkir dag-
ar.
Þetta er stærsti laxinn sem veiðst
hefurástönghérlendis. -G.Bender.