Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1992, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1992.
Elton John:
Nýímynd
fyrir
tónleika-
ferðalagið
Elton John er nú farinn í enn
eitt tónleikaferðalagiö. Að þessu
sinni hefur hann skapað sér nýja
ímynd og tamið sér annað við-
horf. „Fjöldi fólks varð fyrir von-
brigöum með mig þegar ég fór
síðast í tónleikaferðalag," sagði
Elton og var með þeim orðum að
skírskota til þess hversu þreyttur
og í hversu lélegu ástandi hann
var þá. „Ég brást sjálfum mér
meira en nokkrum öðrum," bætti
hann svo við.
Nú er víst annað uppi á ten-
ingnum. Söngvarinn hefur
grennst og lítur út fyrir að vera
í fínu fornú. „Ég þurfti á hvíld
að halda. Ég var algjörlega út-
brunninn. Það tók mig þrjú ár að
vakna til meðvitundar og læra
að njóta hins einfalda í lífinu, eins
og fallegra daga. Hérna áður fyrr
nennti ég ekki á fætur á morgn-
ana og hélt mig í skugganum.
Gert er ráð fyrir að um þrjár
milljónir manna og kvenna muni
koma á tónleika Eltons í Evrópu,
en þeim lýkur í næsta mánuði á
Spáni.
Jane Seymour:
Þjáist
afbak-
verkjum
Breska leikkonan Jane Seymo-
ur þjáist nú af verkjum í baki.
Hún fann fyrst til verkjanna þeg-
ar hún var að innrita sig í flug á
flugvellinum í Los Angeles og
reyndi að lyfta einni ferðatösk-
unni.
„Ég ætlaði að lyfta einni af
þyngstu töskunum þegar bakið á
mér gaf sig. Ég ákvað samt að
halda ferð minni áfram og vonaði
að verkimir myndu hverfa en
það hafa þeir ekki gert,“ sagði
Jane.
Þegar atburðurinn gerðist var
hún á leiðinni til Austurríkis til
að leika í nýrri útgáfu á sögunni
um Heiðu sem Walt Disney fyrir-
tækið er að gera. Varð hún að
eyða 11 tímum á gólfí flugvélar-
innar þar sem hún gat ekki setið
vegna verkja og fór strax í hjóla-
stól þegar hún lenti.
Sviðsljós
Þessi föngulegi hópur fermdist i Fáskrúðsfjarðarkirkju fyrir 30 árum.
Fenningarbamamót
á Fáskrúðsfirði
Ægir Kristmsson, DV, Fáskrúðsfirði:
Tvö fermingarbamamót voru hald-
in hér nýlega. Þrjátíu og íjörutíu ár
voru liðin frá fermingu þeirra sem
saman komu og rifjuðu upp gamlar
minningar.
í yngri hópnum voru m.a. hjónin
Ingólfur Arnarson og Þórhildur Guð-
laugsdóttir lengst að komin, en þau
búa í Svíþjóð þar sem þau starfrækja
verslanir í Malmö og Lundi. Blóm
vom lögð á leiði tveggja fermingar-
systkina sem em látin.
Fyrir nokkru kom saman á Fá-
skrúðsfirði fólk sem fermdist í bæn-
um fyrir hálfri öld. Ræddi það gaml-
ar minningar og snæddi saman á
veitingastað.
ILAUGARDAL
Sýningar:
Virka daga
kl. 20.00
Laugardaga
kl. 15.00 og 20.00
Sunnudaga
kl. 15.00 og 20.00
NOTAÐIR BILAR - BILAÞING - NOTAÐIR BILAR - BILAÞING
OTAfi R BILil
Á RAUNHÆFU MARKAÐSVERÐI
Mazda 626 GLXi, '92, 20001, sjálfsk., 4 dyra, VW Golf GL, '91, 1600, sjálfsk., 5 dyra, MMC Galant GLSi, '89, 2000i, sjálfsk., 4
vinrauður, ABS, sóllúga, álfelgur o.fl., ek. dökkblár, ek. 12 þ. km, verð 1.050.000 stgr. dyra, grár, ek. 55 þ. km, verð 980.000 stgr.
2 þ. km, verð 1.700.000 stgr.
VW Jetta CL, '91, 1600, 5 gira, -4 dyra, MMC Lancer st. 4x4, '88, 1800, 5 gíra, 5 MMC Pajero stuttur, '88, 2600, bensín, 5
°-*L e^- 9 Þ- km, verð dyra, rauður, ek. 51 þ. km, verð 750.000 gira, 3 dyra, grár, upphækkaður, 33" dekk
stgr.
1.000.000 stgr.
o.fl., ek. 57 þ. km, verð 1.200.000 stgr.
TAÐIR BILAR
HEKLUHUSINU LAUGAVEGI 174
SÍMAR 695660 OG 695500
...« daga kl. 9-18 - Laugardaga kl. 10-14
NOTAÐIR BILAR - BILAÞING - N0TAÐIR BILAR - BILAÞING