Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1992, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1992, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1992. 13 Sviðsljós Leikskólabörn sungu á 17. júní skemmtun á Fáskrúðsfirði. Sungið 17. júní Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúðsfirði: Sautjándi júní hátíðahöldin á Fá- skrúðsfirði hóí'ust með skrúðgöngu og að henni lokinni var samkoma á skólavelli. Ræðu dagsins flutti Þröst- ur Sigurðsson sveitarstjóri og 17. júní hlaup Leiknis fór fram að venju. Keppt var í 7-8 ára, 9-10 ára og 11-12 ára flokkum stúlkna og drengja. Séra Þorleifur Kjartan var með helgistund og kirkjukórinn söng. Ingólfur Hjaltason, formaður Ung- mennafélagsins Leiknis, afhenti Baldri Björnssyni fagurlega útskor- inn stein frá Álfasteini á Borgarfirði eystra og blómvönd í viðurkenning- arskyni, en Baldur var gerður að heiðursfélaga Leiknis. Hann er einn af stofnendum félagsins og hefur ver- ið í því óshtið í rúma hálfa öld, eöa frá stofnun þess. Margt var sér til gamans gert á hátíðinni, m.a. sungu böm úr leik- skólanum Kærabæ og um kvöldið var útidansleikur á skólavellinum og var þar margt ungmenna. Úthlutað úr minningarsjóði um Jean Pierre Jacquillat Fyrir stuttu var úthlutað úr minningarsjóði Lindar hf. um Jean Pierre Jacquillat. Var það Þóra Einarsdóttir söngkona sem hlaut styrkinn en þetta var í fyrsta skipti sem hann var veittur og var hann að upphæð 600.000 krónur. Síðustu fjógur ár hefur Þóra stundað söngnám við Söngskólann í Reykjavík undir handleiðslu Ólaf- ar Kolbrúnar Harðardóttur. í fyrra lauk hún stúdentsprófi af tónlistar- braut Menntaskólans við Hamra- hlíö en mun í haust hefja nám við Guildhall School of Music and Drama í London. Jean Pierre Jacquillat, sem lést af slysförum þann 11. ágúst 1986, var aðalhljómsveitarstjóri Sinfó- níuhljómsveitai- íslands 1980 til 1986. Við lát hans kom upp sú hug- mynd hjá stjómarmönnum Lindar að komið yrði á fót sérstökum minningarsjóði í hans nafni. Er hlutverk sjóðsins að styrkja tón- listarfólk til að afla sér aukinna menntunar og reynslu á sviði tón- listar. Cecile Jacquiilat, ekkja Jean Pierre Jacquillat, óskar Þóru Einarsdóttur til hamingju með styrkinn. Bak við þær stendur Erlendur Einarsson, formaöur minningarsjóðsins. DV-mynd BG BÁRUSTÁL Sígilt form - Litað og ólitað = HÉÐINN = STÓRÁSI 6, GARÐABÆ, SÍMI 652000 ÍSLAND ER LAND ÞITT! SVARSEÐ ILL Vertu með í skemmtilegum fjölskylduleik þar sem glæsileg verðlaun eru í boði! Stilltu á FM 957 og hlustaðu eftir nánari upplýsingum um ÍSLAND ER LAND ÞITT! Svar no. I Svarno. 2 Svar no. 3 Svar no. 4 Svar no. 5 Svar no. 6 Svar no. 7 , Svar no. 8 ' Svar no. 9 Svarno. 10 ■' "þ; 'y,f Nafn Heimili V'- ' Staður ■' Póstnúmer Svarseðillinn sendist til: FM 957 - í SLAND ER LAND ÞITT! Gerðuþerg 1111 Reykjavík Skilafrestur rennur út þann 14. júlí n.k. Dregið verður í beinni útsendingu 15. júlí FM#957 ? ...ferðumstmeiraumlandlðokkarl töowí SÍMANUM WNUM Island Nú er gaman í símanum Hringdu í síma 9910 99 og þú heyrir spennandi og rómantíska söguJyrir39,90 á mínútu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.