Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1992, Síða 24
32
FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1992.
Smáauglýsingar - Sími 632700
Fatnaður i miklu urvali, gott verð.
Póstsendum. X & Z bamafataverslun,
Skólavörðustíg 6B (gegnt Iðnaðarhús-
inu), sími 91-621682.
Eigum til mikið úrval af glæsilegum
undirfatnaði á frábæru verði. Opið
virka daga frá kl. 10-18 og laugard.
frá kl. 10-14. Myndalistar 250 kr.
Erum á Laugavegi 8, sími 28181.
■ Sumarbústaðir
Skorradal. Til sölu glæsilegt, nýtt 45
m- sumarhús með 25 m2 svefnlofti,
húsið er fullbúið með innréttingu.
Upplýsingar gefur Pálmi Ingólfsson,
sími 93-70034.
Til sölu þessi óvenjuvandaði, fullbúni
ca 50 m2 heilsársbústaður með svefn-
lofti, tilbúinn til flutnings, byggður
af Eyþóri Á. Eiríkssyni byggingar-
meistara. Engin skipti. Húsið er til
sýnis í Borgartúni 33. Sími 682956.
■ Vinnuvélar
Til sölu Atlas Copco XAS-125, dísil-
skrúfuloftpressa, árg. ’90, sérlega
I ljóðlát, aðeins 640 klst. notkun. Uppl.
í síma 91-45976 eða 31668.
■ Bílar til sölu
Fyrir Isl. veðráttu. Chevrolet van, árg.
’75, með lyftanlegum toppi, gasmið-
stöð, 2 gashellum, vaski, vatni, kæli-
skáp o.fl. S. 91-44736 og 985-28031.
MAN Ikarus, árgerð ’80, til sölu, með
de luxe innréttingu, tvöfalt litað gler,
360 Benz mótor, 32 sæta, skipti koma
til greina. Uppl. í síma 91-673810 á
daginn og- 91-667565 á kvöldin.
Toyota Litace, árg. ’88, til sölu, ekinn
75 þúsund km, bensínbíll, sætisbekkur
aftur í. Upplýsingar í síma 91-689818
og 91-25101 næstu daga.
Ford Econoline XLT 4x4, árgerð '88, til
sölu, einn fallegasti og mest útbúni
bíllinn, er með nánast allt sem hugann
getur dreymt um. Nánari upplýsingar
á Bílamiðstöðinni, Skeifunni 8, sími
91-678008.
Körfubíll, með amerískri Rangers
körfu, 16 metra lyftigeta, til sölu ef
viðunandi tilboð fæst. Uppl. í síma
91-74743,33927 og 91-652818 kl. 13-17.
Sportbíll. Einn sá glæsilegasti.
Nissan 280 ZX turbo, 6 cyl., bein
innspýting, árg. ’83, atþ. skipti. Uppl.
í síma 91-642190, Bílasala Kópavogs.
Verið velkomin.
Til sölu vörubifreið. Benz 1117, árg. ’86,
ekinn 98 þús. km, pallur og sturtur,
bíll í toppstandi. Uppl. í símum
92-68260, 92-68279 og 91-17382.
M. Benz 307 húsbíll, árg. ’80, til sölu,
ekinn 124 þúsund km. Til sýnis og
sölu á Borgarbílasölunni.
■ Ymislegt
Skráning í 1. kvartmilukeppni sumarsins
til Islandsmeistara fer fram í félags-
heimilinu Bíldshöfða 14. laugard. 27.6.
kl. 15-19. Keppendur mæti kl. 10 til
keppni. Ath. ekki skráð á keppnisdag.
• Kvartmíluklúbburinn, sími 674530.
Nýir sláttutraktorar, 12 ha.,
vél, 6 gírar áfram, mælar, góð ljós,
rafstart, yfirstærð af dekkjum,
stgrverð 139 þús. Tækjamiðlun ís-
lands, Bíldshöfða 8, sími 91-674727 eða
91-656180.
■rally
■ VCROSS
KIXJBBURINN
Lokaskráning fyrir rallikrosskeppni
5. júlí verður í félagsheimili aksturs-
íþróttaklúbbanna, Bíldshöfða 14,
mánudaginn 29. júní frá kl. 20 til 22.
Stjórnin.
Menning
Óháð hátíð
Undanfama daga, eða frá 13. þ.m., hefur staðið yfir
í Reykjavík listahátíð sem aðstandendur kalla Loftárás
á Seyðisfjörð - óháð hstahátíð. Upphaflega hugmyndin
að þessu framtaki mun hafa verið sú að sýna fram á
þörfina á því að koma á fót fjöllistahúsi þar sem allar
hstgreinar hefðu að greiöan aðgang og var Iðnó helst
nefnt í þessu sambandi sem heppilegt. Hugmyndin
vatt fljótlega upp á sig og varð á endanum heil hstahá-
tíð, meö uppákomur víðs vegar um bæinn þótt ekki
hafi reynst mögulegt að þessu sinni að nýta Iðnó, af
ýmsum ástæðum. Undirritaður taldi hvorki meira né
minna en 50 atriði í efnisskránni og kennir þar ýmissa
grasa: myndlistarsýningar, tónleikar, gjörningar og
spuni, kvikmyndir, dans, Ijóðalestur, bamadagskrá
og leiklist. Lögð er áhersla á að kynna ungt, íslenskt
hstafólk sem htt eða ekki hefur komið fram eða fengið
list sína kynnta áður.
Á vegum óháðrar hstahátíðar vora haldnir tónleikar
í Gaheríi Ingólfsstræti á þriðjudaginn var.
Tónleikana hófu þau flautuleikararnir Martial
Nardeau og Guðrún Birgisdóttir ásamt Önnu Guðnýju
Guðmundsdóttur píanóleikara og léku þau sígaunalög
frá Mið-Evrópu eftir ýmsa höfunda. Leikur þessa þrí-
eykis var hið mesta ánægjuefjú og léku þau þessa léttu
dagskrá af mikilli samhæfni og hstfengi.
Þá tók við ljóðalestur þar sem þeir Jón Stefánsson
og Þorsteinn Vilhjálmsson lásu eigin ljóð en Gunnar
Kvaran sehóleikari tók við að því loknu og lék hann
Svítu nr. 1 í G-dúr eftir Bach. Gunnar hefur undanfar-
in ár verið að fægja og móta túlkun sína á svítum
Bachs og var leikur hans þetta kvöld frábær og gaman
að heyra hve persónuleg túlkun hans á þessu verki
er orðin.
Eftir ljóða- og sögulestur þeirra Aðalsteins Ásbergs
Sigurðssonar og Torfa Ólafssonar söng Sigríður Elhða-
Tónlist
Áskell Másson
dóttir við meðleik Vilhelmínu Ólafsdóttur píanóleik-
ara 3 lög eftir Óskar Guðmundsson, blökkumanna-
sálminn Old Man River og aríur eftir Gluck og Bizet.
Lög Óskars Guðmundssonar era ósköp hugljúf en
vantar sérkenni og framleika. Hlutur píanósins er
aukinheldur of Ulbreytíngarlaus.
Sigríður er ung söngkona með hljómmikla rödd. Hún
er músíkölsk en nokkuð skortir á öryggi hennar og
þjálfun ennþá. Henni hættir m.a. til að fókusera of
lágt á háa tóna og „break“ raddarinnar er enn of
skýrt. Samspil þeirra Sigríðar og Vilhelmínu var
sænúlega gott.
í heild var þetta hin skemmtilegasta uppákoma.
Laugarásbíó: Töfralæknirinn: ★ ★
Undraland í hættu
Sean Connery gengur í svefni í gegn um mynd sem
sárlega þarfnast hæfileika hans tíl þess að halda at-
hygh áhorfendanna. Þessi mynd er mikil vonbrigði
fyrir þá sem bjuggust við miklu af fjögurra milljóna
handriti Tom Shulman (hét áður The Stand en varð
að víkja fyrir rétti Stephen King á nafninu), leikstjór-
anum sem hefur gert góða hluti hingað til og að sjálf-
sögðu Connery. Útkoman er misheppnuð og það vant-
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
ar alveg eitthvað bitastætt til að gera myndina að góðri
skemmtun.
Sagan segir frá því þegar dr. Rae Crane (Bracco)
kemur í frumskóg Amazon til þess að aðstoða dr. Ro-
bert Campbeh (Connery) við rannsóknir en hann hafði
ekki látið heyra frá sér í mörg ár og allir vora tilbún-
ir að afskrifa hann. Ekki aldeihs. Hann er búinn að
gera merkustu uppgötvun tuttugustu aldarinnar en á
í vandræðum með að fullvinna hana. Ekki bætir úr
skák aö framskógarparadísinni hans, þar sem hann
býr í sátt og samlyndi við innfædda, er ógnað af vega-
lagningarvinnuhópi sem færist nær með hveijum degi.
Það sem er að hér er að sagan er fátækleg. Connery
og Bracco era einu leikararnir og handritið býður
ekki upp á mikinn samleik fyrst ástarsöguþættinum
er sleppt. Þær skírskotanir sem sagan er með auka
ekki á skilning á einu eða neinu, hvorki regnskóginum
né ábyrgðinni sem felst í því að kollvarpa menningu
innfæddra. Þau gera htið annað en að þvælast um
skóginn þveran og endilangan og Connery fær síðan
nokkur atriði þar sem samviskan kvelur hann. Bracco
stendur sig ágætlega en persóna hennar er vægast
Sean Connery og Lorraine Bracco fara með aðalhlut-
verkin í myndinni.
sagt óþolandi borgarbam sem kvartar og kveinar
stanslaust fyrsta hálftímann en á endanum lærir hún
að slaka á og öðlast virðingu fyrir fumskóginum, hin-
um innfæddu og að sjálfsögðu Connery.
Leikstjórinn, McTiernan, hefur gert tvær yfirburða
hasarmyndir en honum er um megn að vinna úr þess-
um efnivið. Meira að segja tökurnar af frumskóginum
era óspennandi. Það er helst áhrifamikil tónhst
Goldsmith sem eykur á vídd sögunnar en á endanum
er það sagan sjálf sem veldur ekki verkinu.
Medicine Man (Band.-1992) 106 mín.
Handrit: Tom Shulman (Dead Poets), Sally Robinson, Tom
Stoppard (Russia House, Empire of the Sun) eftir sögu Shul-
man.
Leikstjórn: John McTiernan (Die Hard, Predator, Hunt for Red
October).
Tónlist: Jerry Goldsmith (Sleeping With the Enemy, Total
Recall, Russia House).
Leikarar: Sean Connery, Lorraine Bracco (Goodfellas, Some-
one to Watch Over Me, Switch).
Háskólabíó: Á sekúndubroti: ★ '/2
Of urmenni í tímahraki
Feitur og pattaralegur Rutger Hauer leikur enn einn
ofurtöffarann (bihð mihi hetjanna og brjálæðinganna
er alltaf að minnka) sem er lögga og fær nýjan félaga
(þetta kallar maður framlegt) til þess að hjálpa sér að
eltast við raömorðingja í London árið 2008 (breyta
svohtið til) sem hefur gaman af því aö rífa hjörtun úr
fólki með handafh og bíta í þau. Hauer fær alltaf haus-
verk þegar raðmorðinginn er nærri og nýi félaginn
er raðmorðasérfræðingur þannig að þeir eru fullkom-
ið teymi. Svo blandast inn í þetta ægilega þung og al-
varleg ástarsaga milli Hauer og Kim Catrah.
Þegar fór að líða á myndina fannst mér hún bara
alveg í lagi. Húmorinn var góður, sérstaklega hjá
Duncan sem er samsuða af svo mörgum klisjum að
hann er bara reglulega fyndinn. Catrall er ahtaf sæt
og leikur vel til einskis, Hauer er í lagi, restin la la,
en svo kom reiðarslagið.
Endirinn er svo lélegur að hann gerði út af við mynd-
ina og það sem hafði verið þolanlegt aö sitja undir var
nú orðið argasta tímasóun. Eftir að hafa beðið eftir
því að fá að vita hvaö þeir væru eiginlega að eltast
við, eitthvað sem haföi ofurkrafta, ofurhraöa, ofur-
hljóðlátt og jafnvel ósýnhegt og ég veit ekki hvað
meira þá gat ég ekki annað en hlegið. Endalokin vora
síðan snögg og útskýrðu ekki neitt enda hafði einhver
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
annar leikstjóri tekið við. Ég var kominn út á sekúndu-
broti.
Split Second (Bresk - 1992) 91 min.
Leikstjóri: Tony Maylam. Leikarar (Riddle of the Sands, The
Burning).
Lelkarar: Rutger Hauer (Wedlock, Blade Runner), Neil Dunc-
an, Kim Catrall (Bonfire of the Vanlties, Mannequln, Star Trek
IV).