Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1992, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1992, Síða 26
34 FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1992. Afmæli Sigurgeir Jónsson Sigurgeir Jónsson, kennari og kaup- maöur, Boðaslóö 15, Vestmannaeyj- um, er fimmtugur í dag. Starfsferill Sigurgeir er fæddur í Vestmanna- eyjum. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfraéðaskólanum í Vest- mannaeyjum 1959, tók próf frá Vél- skólanum á sama stað ári síðar og próf frá Kennaraskólanum 1965 en þar hóf Sigurgeir nám 1962. Sigur- geir settist síðar aftur á skólabekk í Vestmannaeyjum og lauk meira fiskimannaprófi frá Stýrimanna- skólanum 1984. Sigurgeir var kennari við Barna- skólann í Vestmannaeyjum til 1973, í Hveragerði næstu tvö ár á eftir og bláðamaður í Reykjavík um tíma. Hann var æskulýðsfulltrúi Vesta- mannaeyjarbæjar um þriggja ára skeið en hóf aftur kennslu við Stýri- mannaskólann eftir nám í sama skóla. Sigurgeir hefur stundað sjó- mennsku sem vélstjóri og stýrimað- ur og haft hana bæði að aðalstarfi og eins sumarstarfi samhliða kennslunni. Sigurgeir og kona hans, Katrín Lovísa Magnúsdóttir, keyptu verslunina Oddinn við Strandveg fyrir tveimur árum og hafa rekið hana síðan. Sigurgeir var ritari Sjómannafé- lagsins Jötuns í Vestmannaeyjum í íjögur ár, ritstýrði Sjómannadags- blaði Vestmannaeyja fimm sinnum og var ritstjóri Fylkis, málgagns Sjálfstæðisflokksins í Vestmanna- eyjum, í tvö ár. Hann hefur oft setið í stjórn Bridgefélags Vestmanna- eyja, var um tíma félagi í Kirkjukór Vestmannaeyja og lék með dans- hljómsveit á yngri árum. Fjölskylda Sigurgeir kvæntist 1967 Katrínu Lovísu Magnúsdóttur, f. 29.3.1944, frá Ketilsstöðum í Hvammssveit í Dalasýslu. Foreldrar hennar: Magn- ús Halldórsson bóndi og kona hans, Lára Ólafsdóttir. Börn Sigurgeirs og Katrínar Lo- vísu: Jarl, f. 3.11.1967, nemi í Stýri- mannaskólanum, sambýliskona hans er Unnur Ingólfsdóttir; Dís, f. 2.8.1969, skrifstofustúlka í Reykja- vík, sambýlismaður hennar er Hlynur Jóhannsson; Hersir, f. 16.1. 1971, verkfræðinemi við Háskóla íslands, sambýhskona hans er Dóra Aðalsteinsdóttir; Dögg Lára, f. 15.10. 1974, nemi við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum. Dóttir Sigurgeirs og Ölmu Þorvarðardóttur er Fann- ey, f. 1.3.1965, gift Þóri Skúlasyni, kerfisfræðingi, þau eiga tvö börn. Systir Sigurgeirs er Ingibjörg, gift Garðari Arasyni verslunarstjóra, þau eru búsett í Þorlaugargerði og eiga fjögur börn. Uppeldissystir Sig- urgeirs er Anna Oddgeirs, gift Frið- riki Hjörleifssyni sendibílstjóra, þau eru búsett í Reykjavík og eiga fimm böm. Foreldrar Sigurgeirs: Jón Guð- jónsson, bóndi og skipasmiður frá Þorlaugargerði, og Guðrún Jóns- dóttir frá Suðurgarði. Sigurgeir og Katrín Lovísa dvelja Sigurgeir Jónsson. hjá kunningjum í Malaga á Spáni umþessarmundir. Ragnar Edvardsson Ragnar Edvardsson borgarstarfs- maður, Kjartansgötu 1, Reykjavík, varð sjötugur sl. miðvikudag. Starfsferill Ragnar fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lærði bakaraiðn hjá foður sínum, var vörubílstjóri hjá Þrótti, rak síðan eigið bakarí, Nes- bakarí, og ók síðan aftur hjá Þrótti um áratugaskeið en hefur verið ör- yggisvörður hjá Reykjavíkurborg frá 1978. Ragnar sat í stjórn Þróttar og var ritari félagsins 1971-77. Fjölskylda Ragnar kvæntist Jónínu Rann- veigu Þorfinnsdóttur, f. 16.9.1921, d. 10.4.1992, húsmóður, en þau skildu. Hún var dóttir Þorfinns Guðbrandssonar múrara og konu hans, Ólafar Runólfsdóttur húsmóð- ur. Ragnar og Jónína eignuðust sex böm: Ómar Þ. Ragnarsson, f. 16.9. 1940, fréttamaður og skemmtikraft- ur í Reykjavík, kvæntur Helgu Jó- hannsdóttur; Edvard Sigurður, f. 4.8.1943, kennari og bankastarfs- maður, búsettur í Mosfellsbæ, kvæntur Jóhönnu Magnúsdóttur kennara; JónRúnarf. 12.1.1945, framkvæmdastjóri og rakarameist- ari í Reykjavík, kvæntur Petru Baldursdóttur ritara; Ólöf, f. 16.6. 1948, kennari í Reykjavík, gift Ólafi Jóhanni Sigurðssyni vélvirkja; Guðlaug, f. 20.8.1951, húsmóðir í Stokkhólmi í Svíþjóð, gift Sigurjóni Leifssyni yfirbryta; Sigurlaug Þur- íður, f. 17.7.1964, húsmóðir og nemi íReykjavík. Systkini Ragnars: Guðrún Áslaug Guðmundsdóttir, f. 21.5.1921, hús- móðir og fyrrv. starfskona við mötuneyti Landspítalans, og Guðni Þ. Guðmundsson, fulltrúi hjá Sjóvá, núlátinn. Foreldrar Ragnars vom Guð- mundur Edvard Bjarnason, f. 1901, nú látinn, bakarameistari í Reykja- vík, og Sigurlaug Þuríður Guðna- dóttir, f. 1901, nú látin, húsmóðir. Ætt Meðal systkina Edvards vom Anna, gift Erlendi Þórðarsyni, presti í Odda, og Sigríður, móðir Bjama Jónssonar listmálara. Ed- Ragnar Edvardsson. vard var s'onur Bjarna, formanns í Reykjavík, Gíslasonar. Meðal systk- ina Sigurlaugar vora Einar, prófast- ur í Reykholti, faðir Bjama, fram- kvæmdastjóra Byggðastofnunar, og Guðmundar, fyrrv. forstjóra Skip- aútgerðar ríkisins. Annar bróðir Sigurlaugar var Jón, prestur og skjalavörður, faðir rithöfundanna Guörúnar, Ingólfs, Torfa og Eiríks. Sigurlaug var dóttir Guðna, b. á Óspaksstöðum í Hrútafirði, Einars- sonar, og konu hans, Guðrúnar Jónsdóttur. ERT ÞÚ ORUGGLEGA jmæmmmælælm iNjdiuvm m. r 16-19 áafmæl- [ ,* , Jk isdaginn. — í. EINN BILL Á MANUÐI I ASKRIFTARGETRAUN Á FULLRI FERÐ! ^ . . . OG SIMINN ER 63 27 OO Notar þú vettlinga þegar þú lest bækur? Bók þarf ekki að kosta 2000 krónur til að vera góð. Úrvalsbækur kosta 790 krónur og ennþá minna í áskrift! Á næsta sölustað eða í áskrift í síma (91)63 27 00 Það er vissara meðan þú lest þessa: - annars nagar þú neglurnar upp til agna! Æsileg spennusaga v York ímans l Ifl V afmælið 26. júní ------------------------ Ingibjörgverðuraðheimanáaf- A mælisdaginn. *** °_________________ Sigurást Karelsdóttir, Trausti Jónsson, Borgaryík23, Borgarnesi. Vesturbraut 16, Hafnarfirði. £rm r!ei.so"’. ’ Þjórsárholti, Gnupverjahreppi. , Friðfinnur Kristjánsson, ára Hegranesi 5, Garðabæ. Jón Guðjónsson, Grænumörk 1, Selfossi. ara Friðfinnur Friðfinnsson, Munkaþverárstræti 34, Akureyri. ara Jóhanna Jónsdóttir, Réttarholti, Akrahreppi. Erla Steingrímsdóttir, Fítjabraut 6a, Njarðvík. Guðrún Pétursdóttir Hátúni21,Keflavík. (áafmæh27.6.) Guðrúntekurá mótigestumí safnaðarheim- ilinuílnnri- Heiðbjört Jóhannesdóttir, Hamrahlið, Lýtingsstaðahreppi. Tryggva Eggertsdóttir, Garðavegi 14, Hvammstanga. Valur Magnússon, Stórholti 47, Reykjavik. Ólöf Viktoria Jónasdóttir, Strandaseli 8, Reykjavík. Sigrún Arnsteinsdóttir, Borgarhlið2d, Akureyri. Jóhanna Ragnarsdóttir, Rimasíðu 23d, Akureyri. Lárus Guðmundsson, Hátúni lOa, Reykjavik. Hafdís Sigrún Aradóttir, Reyðarkvísl 8, Reykjavík. Pétur Gunnar Pétursson, Krosshömmm23, Reykjavík. Stefanía Lára Sigurðardóttir, Tiamarlundi 5c, Akureyri. Hafdís Baldvinsdóttir, Starmýri 23, Neskaupstaö. Guðmundur M. Jakobsson, Urðarbraut 1, Garöi. Ingi Arnar Pálsson, Ólafsbraut44, Ólafsvík. Valdimar Sólbergsson, Vogabraut 54, AkranesL Friðjón Erlendsson, Sólvöllum 5, Akureyri. Hólmfríður Jónsdóttir, Bugðutanga l,Mosfellsbæ. Ragnhildur Anna Karlsdóttir, Kársnesbraut U5,Kópavogi. Ragnheiður Steindórsdóttir, Brávallagötu 14, Reykjavík. Ingibjörg Kristjánsdóttir, Urðarbraut 8, Blönduósi. Lóð undir atvinnuhúsnæði Reykjavíkurborg hyggst selja byggingarlóð á milli Skúlagötu og Sætúns í Reykjavík ef viðunandi tilboð fæst. Lóðin er á móts við Klapparstíg 3, um 1.500 ferm. að stærð, og má reisa á henni tvö 240 ferm. verslunar- og þjónustuhús auk tengibyggingar. Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu borgar- verkfræðings, Skúlatúni 3, 3. hæð, sími 632300. Þar fást einnig afhentir söluskilmálar og skipulagsskil- málar. Tilboðum skal skila í lokuðu umslagi til skrifstofu- stjóra borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, í síðasta lagi föstudaginn 7. ágúst 1992. Borgarstjórinn í Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.