Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1992, Blaðsíða 26
34
FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1992.
Afmæli
Sigurgeir Jónsson
Sigurgeir Jónsson, kennari og kaup-
maöur, Boðaslóö 15, Vestmannaeyj-
um, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Sigurgeir er fæddur í Vestmanna-
eyjum. Hann lauk gagnfræðaprófi
frá Gagnfraéðaskólanum í Vest-
mannaeyjum 1959, tók próf frá Vél-
skólanum á sama stað ári síðar og
próf frá Kennaraskólanum 1965 en
þar hóf Sigurgeir nám 1962. Sigur-
geir settist síðar aftur á skólabekk
í Vestmannaeyjum og lauk meira
fiskimannaprófi frá Stýrimanna-
skólanum 1984.
Sigurgeir var kennari við Barna-
skólann í Vestmannaeyjum til 1973,
í Hveragerði næstu tvö ár á eftir og
bláðamaður í Reykjavík um tíma.
Hann var æskulýðsfulltrúi Vesta-
mannaeyjarbæjar um þriggja ára
skeið en hóf aftur kennslu við Stýri-
mannaskólann eftir nám í sama
skóla. Sigurgeir hefur stundað sjó-
mennsku sem vélstjóri og stýrimað-
ur og haft hana bæði að aðalstarfi
og eins sumarstarfi samhliða
kennslunni. Sigurgeir og kona hans,
Katrín Lovísa Magnúsdóttir, keyptu
verslunina Oddinn við Strandveg
fyrir tveimur árum og hafa rekið
hana síðan.
Sigurgeir var ritari Sjómannafé-
lagsins Jötuns í Vestmannaeyjum í
íjögur ár, ritstýrði Sjómannadags-
blaði Vestmannaeyja fimm sinnum
og var ritstjóri Fylkis, málgagns
Sjálfstæðisflokksins í Vestmanna-
eyjum, í tvö ár. Hann hefur oft setið
í stjórn Bridgefélags Vestmanna-
eyja, var um tíma félagi í Kirkjukór
Vestmannaeyja og lék með dans-
hljómsveit á yngri árum.
Fjölskylda
Sigurgeir kvæntist 1967 Katrínu
Lovísu Magnúsdóttur, f. 29.3.1944,
frá Ketilsstöðum í Hvammssveit í
Dalasýslu. Foreldrar hennar: Magn-
ús Halldórsson bóndi og kona hans,
Lára Ólafsdóttir.
Börn Sigurgeirs og Katrínar Lo-
vísu: Jarl, f. 3.11.1967, nemi í Stýri-
mannaskólanum, sambýliskona
hans er Unnur Ingólfsdóttir; Dís, f.
2.8.1969, skrifstofustúlka í Reykja-
vík, sambýlismaður hennar er
Hlynur Jóhannsson; Hersir, f. 16.1.
1971, verkfræðinemi við Háskóla
íslands, sambýhskona hans er Dóra
Aðalsteinsdóttir; Dögg Lára, f. 15.10.
1974, nemi við Framhaldsskólann í
Vestmannaeyjum. Dóttir Sigurgeirs
og Ölmu Þorvarðardóttur er Fann-
ey, f. 1.3.1965, gift Þóri Skúlasyni,
kerfisfræðingi, þau eiga tvö börn.
Systir Sigurgeirs er Ingibjörg, gift
Garðari Arasyni verslunarstjóra,
þau eru búsett í Þorlaugargerði og
eiga fjögur börn. Uppeldissystir Sig-
urgeirs er Anna Oddgeirs, gift Frið-
riki Hjörleifssyni sendibílstjóra, þau
eru búsett í Reykjavík og eiga fimm
böm.
Foreldrar Sigurgeirs: Jón Guð-
jónsson, bóndi og skipasmiður frá
Þorlaugargerði, og Guðrún Jóns-
dóttir frá Suðurgarði.
Sigurgeir og Katrín Lovísa dvelja
Sigurgeir Jónsson.
hjá kunningjum í Malaga á Spáni
umþessarmundir.
Ragnar Edvardsson
Ragnar Edvardsson borgarstarfs-
maður, Kjartansgötu 1, Reykjavík,
varð sjötugur sl. miðvikudag.
Starfsferill
Ragnar fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann lærði bakaraiðn hjá
foður sínum, var vörubílstjóri hjá
Þrótti, rak síðan eigið bakarí, Nes-
bakarí, og ók síðan aftur hjá Þrótti
um áratugaskeið en hefur verið ör-
yggisvörður hjá Reykjavíkurborg
frá 1978.
Ragnar sat í stjórn Þróttar og var
ritari félagsins 1971-77.
Fjölskylda
Ragnar kvæntist Jónínu Rann-
veigu Þorfinnsdóttur, f. 16.9.1921,
d. 10.4.1992, húsmóður, en þau
skildu. Hún var dóttir Þorfinns
Guðbrandssonar múrara og konu
hans, Ólafar Runólfsdóttur húsmóð-
ur.
Ragnar og Jónína eignuðust sex
böm: Ómar Þ. Ragnarsson, f. 16.9.
1940, fréttamaður og skemmtikraft-
ur í Reykjavík, kvæntur Helgu Jó-
hannsdóttur; Edvard Sigurður, f.
4.8.1943, kennari og bankastarfs-
maður, búsettur í Mosfellsbæ,
kvæntur Jóhönnu Magnúsdóttur
kennara; JónRúnarf. 12.1.1945,
framkvæmdastjóri og rakarameist-
ari í Reykjavík, kvæntur Petru
Baldursdóttur ritara; Ólöf, f. 16.6.
1948, kennari í Reykjavík, gift Ólafi
Jóhanni Sigurðssyni vélvirkja;
Guðlaug, f. 20.8.1951, húsmóðir í
Stokkhólmi í Svíþjóð, gift Sigurjóni
Leifssyni yfirbryta; Sigurlaug Þur-
íður, f. 17.7.1964, húsmóðir og nemi
íReykjavík.
Systkini Ragnars: Guðrún Áslaug
Guðmundsdóttir, f. 21.5.1921, hús-
móðir og fyrrv. starfskona við
mötuneyti Landspítalans, og Guðni
Þ. Guðmundsson, fulltrúi hjá Sjóvá,
núlátinn.
Foreldrar Ragnars vom Guð-
mundur Edvard Bjarnason, f. 1901,
nú látinn, bakarameistari í Reykja-
vík, og Sigurlaug Þuríður Guðna-
dóttir, f. 1901, nú látin, húsmóðir.
Ætt
Meðal systkina Edvards vom
Anna, gift Erlendi Þórðarsyni,
presti í Odda, og Sigríður, móðir
Bjama Jónssonar listmálara. Ed-
Ragnar Edvardsson.
vard var s'onur Bjarna, formanns í
Reykjavík, Gíslasonar. Meðal systk-
ina Sigurlaugar vora Einar, prófast-
ur í Reykholti, faðir Bjama, fram-
kvæmdastjóra Byggðastofnunar, og
Guðmundar, fyrrv. forstjóra Skip-
aútgerðar ríkisins. Annar bróðir
Sigurlaugar var Jón, prestur og
skjalavörður, faðir rithöfundanna
Guörúnar, Ingólfs, Torfa og Eiríks.
Sigurlaug var dóttir Guðna, b. á
Óspaksstöðum í Hrútafirði, Einars-
sonar, og konu hans, Guðrúnar
Jónsdóttur.
ERT ÞÚ ORUGGLEGA jmæmmmælælm iNjdiuvm m. r 16-19 áafmæl- [ ,* , Jk isdaginn. —
í.
EINN BILL Á MANUÐI I ASKRIFTARGETRAUN
Á FULLRI FERÐ! ^
. . . OG SIMINN ER 63 27 OO
Notar þú vettlinga þegar þú lest bækur?
Bók þarf ekki
að kosta 2000 krónur
til að vera góð.
Úrvalsbækur kosta 790
krónur
og ennþá minna í áskrift!
Á næsta sölustað
eða í áskrift í síma
(91)63 27 00
Það er vissara
meðan þú lest þessa:
- annars nagar þú
neglurnar
upp til agna!
Æsileg
spennusaga
v York
ímans
l Ifl V
afmælið 26. júní
------------------------ Ingibjörgverðuraðheimanáaf-
A mælisdaginn.
*** °_________________ Sigurást Karelsdóttir,
Trausti Jónsson, Borgaryík23, Borgarnesi.
Vesturbraut 16, Hafnarfirði. £rm r!ei.so"’.
’ Þjórsárholti, Gnupverjahreppi.
, Friðfinnur Kristjánsson,
ára Hegranesi 5, Garðabæ.
Jón Guðjónsson,
Grænumörk 1, Selfossi.
ara
Friðfinnur Friðfinnsson,
Munkaþverárstræti 34, Akureyri.
ara
Jóhanna Jónsdóttir,
Réttarholti, Akrahreppi.
Erla Steingrímsdóttir,
Fítjabraut 6a, Njarðvík.
Guðrún Pétursdóttir
Hátúni21,Keflavík.
(áafmæh27.6.)
Guðrúntekurá
mótigestumí
safnaðarheim-
ilinuílnnri-
Heiðbjört Jóhannesdóttir,
Hamrahlið, Lýtingsstaðahreppi.
Tryggva Eggertsdóttir,
Garðavegi 14, Hvammstanga.
Valur Magnússon,
Stórholti 47, Reykjavik.
Ólöf Viktoria Jónasdóttir,
Strandaseli 8, Reykjavík.
Sigrún Arnsteinsdóttir,
Borgarhlið2d, Akureyri.
Jóhanna Ragnarsdóttir,
Rimasíðu 23d, Akureyri.
Lárus Guðmundsson,
Hátúni lOa, Reykjavik.
Hafdís Sigrún Aradóttir,
Reyðarkvísl 8, Reykjavík.
Pétur Gunnar Pétursson,
Krosshömmm23, Reykjavík.
Stefanía Lára Sigurðardóttir,
Tiamarlundi 5c, Akureyri.
Hafdís Baldvinsdóttir,
Starmýri 23, Neskaupstaö.
Guðmundur M. Jakobsson,
Urðarbraut 1, Garöi.
Ingi Arnar Pálsson,
Ólafsbraut44, Ólafsvík.
Valdimar Sólbergsson,
Vogabraut 54, AkranesL
Friðjón Erlendsson,
Sólvöllum 5, Akureyri.
Hólmfríður Jónsdóttir,
Bugðutanga l,Mosfellsbæ.
Ragnhildur Anna Karlsdóttir,
Kársnesbraut U5,Kópavogi.
Ragnheiður Steindórsdóttir,
Brávallagötu 14, Reykjavík.
Ingibjörg Kristjánsdóttir,
Urðarbraut 8, Blönduósi.
Lóð undir
atvinnuhúsnæði
Reykjavíkurborg hyggst selja byggingarlóð á milli
Skúlagötu og Sætúns í Reykjavík ef viðunandi tilboð
fæst. Lóðin er á móts við Klapparstíg 3, um 1.500
ferm. að stærð, og má reisa á henni tvö 240 ferm.
verslunar- og þjónustuhús auk tengibyggingar.
Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu borgar-
verkfræðings, Skúlatúni 3, 3. hæð, sími 632300. Þar
fást einnig afhentir söluskilmálar og skipulagsskil-
málar.
Tilboðum skal skila í lokuðu umslagi til skrifstofu-
stjóra borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, í síðasta lagi
föstudaginn 7. ágúst 1992.
Borgarstjórinn í Reykjavík