Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1992, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1992, Qupperneq 32
F R ÉTTASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta- í DV, greiðast 3.000 krónur. skotum allan sólarhringinn. FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1992. Sjómaöur á Ólafi HF: aðtrillasökk Sjómanni af trillunni Ólafl HF 449 úr Hafnarfirði var bjargað um borð í Þyt HF í nótt eftir að mikill leki haíði komið að trillunni sem er tré- bátur. Loftskeytastöð hringdi til Tilkynn- ingaskyldu SVFÍ um klukkan hálftvö í nótt og var Landhelgisgæslu þá gert viðvart. Nálægum bát, Þyt HF, fleiri bátum og togaranum Viðey var stefnt á staðinn sem var um 15 mílur norð- ur af Garðskaga. Þytur kom fyrstur að Ólafi en um svipað leyti var þyrla Gæslunnar komin á vettvang. Sjó- maðurinn var þá tekinn um borð í Þyt en síðan var ákveðið að freista þess að draga bátinn til hafnar. Eftir um 2 klukkustunda tog, um klukkan 4 í nótt, sökk Ólafur. Komið var með skipverjann heilan á húfi til Hafnar- fjarðarímorgun. -ÓTT Yfir20ærdauðar Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Bændur í Skagafirði og Eyjafirði hafa unnið að því hörðum höndum eftir óveðrið að leita að fé á afréttum sínum og fundið yfir 20 dauðar ær. Skagfirðingamir fóru á Kálfárdal í gær og fundu 15 dauðar ær. Þeir grófu fjölda úr fonn og það og annað fé sem safnast hafði saman gátu þeir rekið á betri staði. Bændur í Grýtubakkahreppi í Eyjafirði fundu 8 dauðar ær í leið- angri sínum í fyrrakvöld. Annar leið- angur fór til leitar í gærkvöldi. Stefán Jónhættir Stefán Jón Hafstein hefur sagt upp sem forstöðumaður rásar 2. í morgun .vildi hann hvorki neita þessu né játa og því síður segja hvað tekur við hjá honum. Heimildir DV segja ástæð- una vera mikinn niðurskurð á fjár- Yeitingumtilrásar2. -sme Helgarblaðiðífrí Forsvarsmenn Helgarblaðsins hafa ákveðið að gefa útgáfu blaðsins frí fram á haust. Ástæðan er gjaldþrot Útgáfufélagsins Bjarka hf. sem gaf út Þjóðviljann sáluga. Helgarblaðs- menn hafa haft tæki og tól Bjarka á leigu og ætla að endurskoða útgáfu- málsínísumar. -bjb Síðastatárið Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins mun hætta aö framleiða brennivín í dag. Síðdegis í dag verður síðasta opinbera blandan sett á flösku. Héð- an í frá mun framleiðslan verða í höndumeinkaaðila. -kaa Vissunt dð við voT" um f undnir þegar flugvélin kom - sagði skipstjórinn, nýkominn úr þyrlunni í morgun „Við komumst strax í gúmmíbát- inn en náðum ekki að senda neyð- arkall um talstöð. Ég reyndi eins og ég mögulega gat, bæði símann og talstöðina, en það var ekki hægt. Þetta bar mjög skjótt aö,“ sagði Ástvaldur Pétursson, skipstjóri á Káraborg HU 77, sem söldt um 45 mílur suðsuðvestur af Reykjanesi í nótt. Tveir menn voru um borö, Ástvaldur og Hörður Andrésson úr Garðabæ. Þyrla Landhelgis- gæslunnar kom með sjómennina heila á húfi til Reykjavíkur um klukkan 8.30 í morgun. „Við vorum búnir að leggja lín- una á ellefta tfmanum í gærkvöldi. Síðan fórum við að sofa eins og við erum vanir. Svo vaknaði ég við gangtruflanir í vélinni og fór þá i rólegheitum aftur í. Þá sá ég hvers kyns var og öskraði á Hörð. Mikill sjór var kominn aftur í og við réð- um ekki við neitt. Höröur henti flotgollunum upp. Maður vissi ekk- ert hvað gerðist. Við megum kall- ast heppnir aö sleppa. Þegar svona gerist stendur mað- ur ráðþrota og reynir bara að forða sér," sagði skipsfiórinn. Ástvaldur hefur verið á Kára- borginni í tvö ár og segir hana hafa reynst mjög vel. Þegar Ástvaldur og Hörður voru komnir í gúmmí- bátimi í nótt vissu þeir ekkert hve- nær hjálp bærist. Þeir vissu aðeins að þeir höfðu ekki náð að senda neyðarkall. Kall kom þó í gegnum sjálfvirkan neyðarsendi gúmmi- bátsins um klukkan 4 í nótt og barst til stjórnstöðva SVFI og Landhelg- isgæslunnar. Flugvél flugmála- stjómar var þá send á vettvang. Hún fann gúmmibát sjómannanna klukkan 6.43 og var þyrla Gæsl- unnar þá þegar send á vettvang. Á þeirri stundu varð ljóst aö einhver var í nauðum staddur. Þó var ekki Ijóst um hvern eða hverja var að ræöa, hvort bátur hefði sokkið eða hvort flugvél hefði farið í hafið. „Við biðum bara rólegir og töluð- um saman eins og viö erum vanir ef eitthvað bjátar á. Um leið og við sáum flugvélina sendum við blys. Þá vissum við að það var búið að finna okkur. Þetta er erfitt en aðal- atriðið er að vera heill og kominn aftur,“ sagði Ástvaldur. -ÓTT Lögreglan hafði afskipti af ungum manni þegar hann lét sig fljóta á vindsæng á milli Örfiriseyjar og Akureyjar undir hádegi í gær. Þegar bátur lögreglunnar nálgaðist manninn hafði hann skriðið upp á sker með farkost sinn en hélt för sinni síðan áfram áður en hann var tekinn upp í bát lögreglunnar og færður i land. Afskipti voru höfð af sama manni við svipaða iðju fyrir skömmu. Lögreglan ákvað því að bjóða honum að fá að vera með i næstu bátaæfingu sinni. DV-mynd S LOKI Verður ekki fjölmenni við minningarathöfnina í Ríkinu? Veðrið á morgun: Léttskýjað sunnan- lands Á hádegi á morgun verður norðvestlæg átt, kaldi eða stinningskaldi. Á Norðurlandi verða skúrir eða slydduél en léttskýjað syðra. Hiti verður á bilinu 2 til 14 stig og hlýjast sunnanlands. Veðrið í dag er á bls. 36 Sjávarútvegsráðherra: Bjóst aldrei við mikluaffundi hvalveiðiráðsins „Ég bjóst aldrei við miklu af fundi Alþjóða hvalveiðiráðsins. Þessar fréttir staðfesta einungis þann grun sem legið hefur í loftinu, að ráðið myndi ekkert gera,“ sagði Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra við DV. Ýmislegt bendir til þess að á árs- fundinum, sem hefst í byijun næstu viku, verði ekki gengið til atkvæða- greiðslu um hvort heimila eigi tak- markaðar hvalveiðar. íslendingar hafa sagt sig úr ráðinu og sitja því aðeins einn dag á ársfundinum. „Mitt mat var að viö hefðum svo oft orðið fyrir vonbrigðum með störf ráðsins að rétt væri að skera á þetta núna,“ sagði Þorsteinn. „Allt hefur þetta komið á daginn, nú síðast með þeim tíðindum að ráðið muni ekkert gera. Við höfum lagt kapp á að tryggja stöðu okkar með öðrum hætti. Við erum aðilar að nýstofnuðu Norður-Atlantshafsráði. Við munum leggja áherslu á að koma samningi þess í framkvæmd og setja á fót þær nefndir og stofnanir sem hann gerir ráð fyrir.“ Aðspurður um hvenær gera mætti ráð fyrir að íslendingar gætu hafið hvalveiðar á nýjan leik, kvaðst Þor- steinn ekki geta tímasett það. -JSS Ríkisstjómin í fjárlagavinnu Ríkisstjórnin kom saman til fundar í morgun. Til umQöllunar var gerð fjárlaga fyrir 1993 en til stendur að loka fjárlagarammanum á næstunni. Samkvæmt heimildum DV liggja út- gjaldaóskir einstakra ráðherra fyrir en fram undan er niðurskurður á þeim. Mestur mun hann verða í heil- brigðisráðuneytinu en þar stefnir í raunaukningu útgjalda milli ára þrátt fyrir óvinsælar aðhaldsaðgerð- ir að undanfomu. Samkvæmt gild- andi fjárlögum fara 44 milljarðar til heilbrigðis- og tryggingamála í ár. -kaa 39 sluppu úr brennandi rútu 32 börnum, 6 leiðbeinendum og bíl- stjóra tókst að forða sér úr alelda rútu á Kambabrún í gær. Rútan er gjörónýt eftir. Hópurinn hafði verið í skemmti- ferð í Hveragerði. Ein 7 ára telpa fékk snert af reykeitrun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.