Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1992, Síða 5
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1992.
5
Fréttir
Annað húsanna tveggja, sem byggt er fyrir Félag aldraðra á Akureyri, er
nú komið vel „upp úr jörðinni“ og hafa framkvæmdir gengið vel. Húsin
tvö, sem rísa í Glerárhverfi, eru 7 hæðir og verða 70 íbúðir í þeim.
DV-mynd gk
Akureyri:
Atvinnulausum
fjölgar þrátt fyrir
„atvinnubótavinnu“
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
Atvinnulausir á Akureyri um síð-
ustu mánaðamót voru 266 talsins og
virðist sem þeim hafi eitthvað fjölgað
síðan þrátt fyrir átak Akureyrarbæj-
ar og Atvinnuleysistryggingasjóðs
um tímabundna vinnu fyrir þá sem
lengst hafa verið á atvinnuleysis-
skrá. Fjölgun fólks á atvinnuleysis-
skrá nú stafar fyrst og fremst af upp-
sögnum hjá Utgerðarfélagi Akur-
eyringa vegna hráefnisskorts.
Guðjón Jónsson hjá Verkalýðsfé-
• laginu Einingu segir að um 140
manns í því félagi séu nú atvinnu-
lausir en þeir voru 120 um síðustu
mánaðamót. Skólafólk úr Mennta-
skólanum á Akureyri, sem starfaði
hjá ÚA, varð fyrir uppsögnum og
sumt af því kemst á bætur þar til
skólinn hefst í næsta mánuði.
Jóna Steinbergsdóttir, formaður
Félags verslunar- og skrifstofufólks
á Akureyri, segir að um 5% félags-
manna séu án atvinnu, eða um 60
manns. Hjá Iðju sagði Ármann
Helgason að 63 væru nú atvinnulaus-
ir sem er aðeins færra en um síðustu
mánaðamót.
Eitthvað mun vera um það að at-
vinnulausir, sem átt hafa kost á at-
vinnu vegna átaksverkefnis Akur-
eyrarbæjar í samvinnu viö Atvinnu-
leysistryggingasjóð, hafl hafnað
vinnu en það er sáralítið hlutfall
þeirra sem boðin hefur verið vinna.
Sigrún Bjömsdóttir hjá Vinnumiðl-
unarskrifstofu Akureyrar sagði að
hvert tilvik væri skoðað og ef ástæð-
ur fyrir neitun væru ekki teknar
gildar missti viðkomandi atvinnu-
leysisbætur. Jóna Steinbergsdóttir
sagði að 4 slík tilfelli hefðu komið
upp hjá Félagi verslunar- og skrif-
stofufólks.
Rekstur KEA fyrstu 6 mánuði ársins:
44 milljóna króna tap
á reglulegri starfsemi
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Tap á reglulegri starfsemi Kaupfé-
lags Eyflrðinga fyrir 6 mánuði ársins
nam 44 miiljónum króna og er það
56 milljóna króna sveifla frá fyrra
ári þegar fyrirtækiö skilaði 12 millj-
óna króna hagnaði á fyrri hluta árs-
inbs.
Heildartekjur KEA á þessum tíma
námu 4.053 milljónum og minnkuðu
rnn 158 milljónir frá sama tíma í
fyrra. Rekstrargjöld námu 3.960
milljónum og höfðu lækkað um 73
milljónir og fjármagnsgjöld umfram
fjármagnstekjur voru 137 milljónir
en höfðu lækkaö um 30 milljónir frá
fyrra ári. Að teknu tilliti tii óvenju-
legra tekna félagsins og gjalda, s.s.
inneignar í verðjöfnunarsjóði sjávar-
útvegsins, varð hagnaður af rekstr-
inum fyrstu 6 mánuði ársins 7 millj-
ónir króna miðað við 2 milljónir í
fyrra.
Magnús Gauti Gautason kaupfé-
lagsstjóri segir að rekstrarerfiðleikar
félagsins séu fyrst og fremst fólgnir
í almennum samdrætti í þjóðfélag-
inu. Eftirspum eftir vöru og þjónustu
hafi minnkað og skertar aflaheimild-
ir og samdráttur í landbúnaðarfram-
leiðslu hafi haft sitt að segja. Það sé
erfitt að draga saman kostnað í sama
mæli og tekjur minnka. Rekstur fé-
lagsins hafi þó verið mun léttari í
sumar en í byrjun árs.
Afleiðingar kjötútsölunnar:
Bændur skildir eft-
ir í fjóshaugnum
- segir Sigfús Jónsson hjá Ferskum afurðum á Hvammstanga
Þórhallur Asmundsson, DV, Sauðárkróki:
„Við byrjuðum að slátra 15. ágúst
en þetta hefur verið rólegt há okkur
hingað til, enda eftirspurn sáralítil,
gjöróhkt því sem var á sama tíma í
fyrra. Það er greinilegt að útsölukjöt-
ið hefur mikil áhrif,“ sagði Sigfús
Jónsson, framkvæmdastjóri Ferskra
afurða á Hvammstanga.
Sigfús segist hafa orðið þess var að
kjötsalar „stöppufylltu" allar frysti-
geymslur hjá sér af útsölukjötinu og
kæmi þetta heim og saman við nýj-
ustu fregnir að kjötbirgðir í landinu
hefðu aldrei verið jafnlitlar á þessum
tíma. Því væri fyrirséð að kjötsala
yrði fremur lítil á næstu mánuðum.
„Það má alveg reikna með að kjöt
fari ekki að seljast að ráði fyrr en
upp úr áramótum. Þetta kemur sér
náttúrlega ekki nógu vel fyrir bænd-
ur, nú þegar þeir eru teknir við sölu-
málunum, að ríkið sé með útsölu
svona í lok verðlagsárs og skilji
bændur eftir upp í klof í fjóshaugn-
um.“
Sigfús segir að meiningin sé að
draga slátrunina eins mikið á lang-
inn og veðurfar leyfi. Hann reiknar
með 4-5 þúsund dilkum til slátrunar
nú sem er svipað og í fyrra.
i 1 4 í ‘* I » I 1 1 I t 1 i r > i i ' '.. . t
....V; V.WWAW
Nú hefur verð Macintosh LC 4/40 lækkað vegna hagstæðra samninga og
nú kostar ódýrasta Macintosh-tölvan með litaskjá aðeins 119.900,- kr.
Hún er með 12" litaskjá, 4 Mb vinnsluminni og 40 Mb harðdiski, innbyggðu
AppleTalk, m.a. til samnýtingar við
aðrar tölvur, möguleika á tengingu
við Novell og Ethernet, 1,44 Mb drifi
m.a. fyrir PC-diska, stýrikerfi 7 á íslensku,
vandaðri íslenskri handbók o.m.fl.
Auk þess má tengja-allt að sjö
SCSI-tæki við hana (s.s. aukaharð-
disk, skanna eða geisladrif).
Skv. samanburðarrannsókn Ingram Laboratories
í Bandarikjunum, er raunvemleg vinnslugeta
Macintosh LC-tölva meiri en flestra 386 SX tölva.
(Sjá súlurit t.v.)
119.900,-
Apple-umboðið
Skipholti 21, sími (91) 624 800