Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1992, Qupperneq 22
22
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1992.
Lífsstíll
Verðkönnun Verðlagsstofnunar:
Ódýrast að láta fjölfalda
bíllykla í Reykjavík
í alþjóðlegri verðkönnun sem
framkvæmd var í apríl kom í ljós að
af 35 vörutegundum var 21 vara ann-
aðhvort dýrust eða næstdýrust í
Reykjavík. Fjórar vörutegundir kost-
uðu annaðhvort minnst eða næst-
minnst í Reykjavík.
Könnunin fór fram í níu evrópsk-
um borgum. Auk Reykjavíkur var
verðið kannað í Hamborg, London,
París, Vín. Kaupmannahöfn, Stokk-
hólmi, Ósló og Helsinki. Var Ham-
borg með lægsta verðið í 16 tilvikum
og næstlægsta verðið í níu tilvikum.
Þær vörur sem teknar voru inn í
könnunina voru: tölvuleikir (Nint-
endo Super Mario Bros 2, Nintendo
Top Gun Second Mission og Nin-
tendo Super Turtles 2), Legókubbar
nr. 6540, Pampers phases bleiur, Le-
vi’s 501 gallabuxur, Ariel Ultra
þvottaefni, Ajax gluggahreinsilögur
(með og án úðara), örbylgjuofnar
(Philips AVM 914 og Philips AVM
911), Sony myndabandstökuvélar
(CCD-TR 705, CCD-45, CCCD-V 600,
CCD-V 800 og CCD-TR 105), Sony
vasadiskó (WM-EX 36, WM-EX 10,
WM-FX 10, WM-FX 36, WM-EX 50,
DD 33 og BF 33 Sport), Olympus
AF-10 super myndavél, Braun silk-
épil rakvél (með og án hleðslu),
geisladiskar, snældur, vasa-
hrotsbækur (nýjustu bækumar eftir
F. Forsyth og W. Smith), hraðfram-
köllun og framköllum á 24 myndum
(10x15), fjölföldun á bíllyklum
(einslípuðum og tvíslípuðum) og
stökum tímum í ljósalömpum.
Nú skal litið aðeins nánar á sex
algenga vöruflokka af þessum 35 sem
í könnunni voru. Nintendo Super
Mario Bros 2 tölvuleikur reyndist
næstódýrastur hér á landi, kostaði
3.705 krónur að meðaltali en var 44
prósentum dýrari í Helsinki þar sem
hann var dýrastur, kostaöi 5.352
krónur. Ódýrastur var tölvuleikur-
inn í Hamborg þar sem hann kostaði
3.601 krónu.
Reykvískir foreldrar þurfa aftur á
móti að borga mest fyrir bleiurnar.
í Reykjavík var meðalverðið 1.169
krónur og var það 61 prósenti hærra
en í London þar sem bleiupakkinn
kostaði aðeins 726 krónur.
Levi’s gallabuxur hafa notið mik-
iUa vinsælda hér á landi undanfarin
misseri og þeir eru ófáir sem hafa
beðið vini og kunningja um að koma
með par heim frá útlöndum fyrir sig.
Það skal engan undra þó aö íslend-
ingar séu tregir til að kaupa Levi’s
buxumar heima fyrir því þær reynd-
ust 59 prósentum dýrari hér en í
Vara Lægsta verð Verðí Reykjavik Sæti
Nintendo, Top Gun Second Mission 4.337 4.700 6.
Nintendo, SuperTurtles2 4.546 5.600 4.
Legókubbar nr.6540 2.109 3.513 2.
Ariel Ultraþvottaefni 219 450 1.
Ajax gluggahreinsilögur 70 104 4.
Ajax gluggahreinsilögur með úðara 109 172 4.
Philips AVM 914 örbylgjuofn 29.248 42.260 1.
Philips AVM 911 örbylgjuofn 15.440 27.540 1.
Sony myndbandstökuvél CCD-TR 705 98.229 117.450 5.
Sony myndbandstökuvél CCD-45 65.350 87.980 3.
Sony myndbandstökuvél CCD-V 600 83.705 118.950 5.
Sony myndbandstökuvél CCD-V 800 104.994 128.600 5.
Sony myndbandstökuvél CCD-TR105 58.177 79.900 6.
Sony vasadiskóWM-EX 36 3.581 6.570 2.
Sony vasadiskó WM-EX10 2.010 3.860 1.
Sony vasadiskó WM - FX10 3.164 4.990 1.
Sony vasadiskó WM - FX 36 5.273 8.930 3.
Sony vasadiskó WM- EX 50 6.158 11.640 1.
Sony vasadiskó DD 33 6.884 15.950 1.
Sony vasadiskó BF 33 Sport 7.073 9.950 3.
Oiympus AF-10 Super myndavél 7.242 10.000 1.
Braun Silk-Épil rakvél án hleðslu 3.900 6.280 1.
Braun Silk-Épil með hleðslu 4.984 7.740 2.
Snælda 726 1.392 1.
Nýjasta bókin e. F. Forsyth 438 854 1.
Nýjasta bókin e. W. Smith 458 990 1.
Fr8mköllun 24 myndir 10x15 318 1.053 1.
Alþjóðlega verðkönnunin:
Tvaer tegundir vasadiskóa
aldrei fengist hérlendis
í alþjóðlegri verökönnun Verðlags-
stofhunar var getið um verö á sjö
tegundum af Sony vasadiskóum.
Japis hf. er eini aöilinn 1 Reykjavík
sem selur Sony vasadiskó og þar
fengust þær upplýsingar að tvær teg-
undir, sem í könnuninni voru, þ.e.
DD 33 og BF 33 Sport, hefðu aldrei
verið seldar hér á landi og af þeirri
þriðju hefðu aöeins fjögur stykki ver-
iö öeld í fríhöfnintd. Er hér um að
ræða tegundina Sony Walkman EX
50:
í ‘verðkönmmni var einnig litáö á
veröíð á Sony Walkmari EX10 og FX
10, og EX 36 og FX 36. Þær tegundir
hafa verið tii sölu í Japisbúöunum
en 85 prósent af sölunni fóru fram í
gegnum fríhöfnina. Ef verðiö er um-
reiknað miðað við að gengi dollarans
sé 56 krónur þá kostaöi EX 10 2.128
krónur, FX 10 kostaði 3.024 krónur,
EX 36 kostaði 3.808 og FX 36 kostaöi
5.376 krónur.
Tollar af vasadiskóum eru 40 pró-
sent og, eins og áður sagði, fer því
öll salan á Sony vasadiskóum meira
og minna fram í fríhöfninni en þar
þykir verðið á þessum vörum mjög
hagstætt.
Guömundur Sigurðsson hjá Veeth
lagsstofnun sagði að í þeim tövikúm
sem varan hefði ekki 'verið tii hdfði
verið beðið um síðasta verð vörunri-
ar eða væntanlegt verð hennar. Verð
það sem gefið væri upp í könnunni
væri því algjörlega á ábyrgð selj-
anda.
Grafið sýnir verö í Reykjavik á sex vörutegundum auk þeirra staða þar sem verðið var hæst og lægst.
Helsinki þar sem parið kostar 4.327
krónur.
Geisladiskarnir voru einnig dýr-
astir í höfuðborg landsins. Meðal-
verð á geisladiski með vinsælu efni
var 1.590 krónur í Reykjavík en að-
eins 1.005 krónur í Hamborg og mun-
urinn því 58 prósent sem þýðir að
fyrir hverja tvo geisladiska sem
keyptir eru í Reykjavík er hægt aö
fá þijá diska í Hamborg fyrir u.þ.b.
sama verð.
í aprilmánuöi reyndist það kosta
1.090 krónur að meðaltah að fram-
kalla 24 mynda filmu í Reykjavík og
fá þær stækkaðar í 10x15. Mun ódýr-.
ara er aö láta framkalla í London þar
sem slíkt kostaði aðeins 587 krónur,
en Vínarbúar þurfa að borga 1.403
krónur fyrir sömu þjónustu og voru
Reykvíkingar því nokkurn veginn í
miðjum hópi hvað framköllunina
varöar, þ.e. með íjórða lægsta verðið.
Þeir sem kaupa sér einstöku sinnum
tíma í ljósum og þykir dýrt geta hugg-
að sig við það að Hamborgarar þurfa
að greiða að meðaltali 1.124 krónur
fyrir stakan tíma. Aöeins íbúar Hels-
inki borga minna en Reykvíkingar,
eða 368 krónur, en í Reykjavík kostaði
tíminn að meðaltali 395 krónur.
Það var fjölföldun á bíllyklum,
bæði einslípuðum og tvíslípuðum,
sem var ódýrust í Reykjavík. Fjöl-
földun á einslípuðum bíllykli kostaði
250 krónur í Reykjavík en 696 krónur
í Vín og fjölfóldun á tvíslípuðum bíl-
lyldi kostaði 275 krónur í Reykjavík
og 746 krónur í Vín.
í töflunni má sjá hvert var lægsta
verðið fyrir hina 27 vöruflokkana og
hvert verðið var í Reykjavík. Einnig
er gefið upp í töflunni hver staða
Reykjavíkur var í hverjum vöru-
flokki, þ.e.a.s. talar. 1 þýðir að verðið
var hæst í Reykjavík og talan 9
myndi þýða að verðið var lægst í
höfuðborg íslendinga.
-GHK
Þau leiðu mistök urðu í grein á
síðuimi þann 15.9. um skólagjöld
að þau voru sögð vera 18.000
krónur í Menntaskólanum í
Kópavogi og 13.000 krónur S
Menntaskólanum við Sund. Hiö
rétta er að MK-ingar borga 9.000
krónur og MS-íngar borga 6.500
krónur fyrir veturmn.
' JEinniggÍeymdistaðgetaSuður-
fyrir veturinn.
-GHK
Ef litið er á verð á geisladiskum i níu evrópskum borgum kemur í Ijós að
geisladiskarnir eru dýrastir í Reykjavík og það 58 prósentum dýrari en i
Hamborg.
Grundvallarverð
nautgripa- og
kindakjöts lækkar
Hin svokallaða sexmannanefnd
hefur ákveðið að lækka grundvallar-
verð til bænda á kindakjöti og naut-
gripakjöti. Grundvallarverð á sauð-
flárafurðum snun lækka um 1 pró-
sent. Niðurgreiöslur hafe lækkaö lít-
illega en sauöfiárbændur leggja
mikla áherslu á að það leiöi ekki til
hækkunar á verði kindakjöts til
neytenda.
Um 13 prósenta lækkun verður á
grundvallarverði til bænda á naut-
gripakjöti. Grundvallarverð naut-
gripakjöts hefúr því lækkað um 18
prósent á einu ári. Því lakara -sem
Kjötið er því meiri er lækkunin. Svo
dæmi sé tekiö þá iækkar fyrsti flokk-
ur ungneytakjöts um 4 prósent en
lökustii' flókkar vinnslukjöts um allt
að 30 þrósent. Gilda þessar breyting-
ar á grundvallarverðinu fram á
næsta haust.
-GHK