Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1992, Side 10
10
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1992.
Hugrakkui:,
Myndbönd
í sömu sporum
THE HITMAN
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Aaron Norris.
Aóalhlutverk: Chuck Norris, Michael
Parks og Alberta Watson.
Bandarisk, 1992 - 95 minútur.
Bönnuð börnum innan 16 ðra.
Þaö reynist erfitt fyrir Chuck
Norris aö hverfa frá þeirri ímynd
sem hann hefur skapað. Hlutverk
hans í The Hitman er að vísu bita-
stæðara en oftast áður en stein-
runninn svipur hans er sá sami og
eftir ágæta byrjun fer myndin í
sama horf og aðrar myndir kapp-
ans.
í The Hitman leikur Norris lög-
reglumann sem kemur sér vel fyrir
í flokki glæpamanna til þess eins
að geta klekkt á þeim. Eftir tveggja
ára dvöl er honum treyst en gam-
all starfsbróðir hans, sem hafði
nær drepin hann í byrjun myndar-
innar, kemur upp um dulargervið
á versta tíma.
Það er mikill hasar í The Hitman
og eru áhættuatriðin nokkuð vel
gerð. Söguþráðurinn er gamal-
kunnur og gengur oft vel upp en
hér er handritið ekki nógu vel
skrifað, auk þess sem leikur er
nokkuð viðvaningslegur hjá sum-
um leikurunum.
Chuck Norris sést hér leiöbeina ungum vini sinum sem er í vandræö-
um í The Hitman. Utlar breytingar eru á listanum þessa vikuna,
Cape Fear héidur elsta sætinu en Ógnareðli gæö alveg eins tekið
það næstu viku en þessar tvær myndir eru langvlnsælastar i dag.
1 (1) Cape Fear
2 (3) Ógnareðli (Basic Insfinct)
3 (2) Final Analysis
4 (4) Kníght Moves
5 (-) Company Business
6 (5) The Last Boyscout
7(7) Father ot the Bride
8 (6) Hook
9 (10) Pure Luck
10 (9) Deceived
11 (12) Doctor
12 (-) Prince of Tides
13 (11) BoysNthe Hood
14(8) Hitman
15 (■) Parker Kane
★ !4
WHITE FANG
Útgefandi: Biómyndir.
Leikstjóri: Randal Kleiser.
Aðalhlutverk: Klaus Maria Brandauer
og Ethan Hawke.
Bandarísk, 1991 - sýningartimi 105 min.
Leyfð öllum aldurshópum.
White Fang er þriðja kvikmyndin
sem byggð er á hinni frægu sögu
Jacks London um úlfhundinn í
auönum Alaska. Og tekst leikstjór-
anum, Randal Kleiser, enn einu
sinni að blása lífi í söguna og laða
fram óhugnanlegt en fagurt jökla-
landslagið sem á stóran þátt í að
gera myndina eftfrminnilega.
Hinn ungi leikari, Ethan Haweke,
sem lék eitt aðalhlutverkið í Dead
Poets Society, leikur imgan mann
sem er í gullleit í Alaska sam-
kvæmt síðustu ósk foður síns. í
jökulauðnunum rekst hann á lítinn
yrðling sem hefur misst móður
sína. Ekki verður fundur þeirra
langur í fyrstu en örlögin leiða þá
saman síðar með eftfrminnilegum
hætti.
White Fang er virkilega vel
heppnuð aévintýramynd sem óhætt
er að mæla með fyrir alia fjölskyld-
una þótt bömin fái sjálfsagt mest
út úr skemmtuninni.
Blindur ljósmyndari
PROOF
Útgetandi: Háskólabió.
Leikstjóri: Jocelyn Moorhouse.
Aðalhlutverk: Hugo Weaving, Gene-
vieve Picot og Russell Crowe.
Áströlsk, 1991 - sýningartími 90 min.
Leyfð öllum aldurshópum.
Þrátt fyrir að þekktustu kvik-
myndaleikstjórar Ástraia, og þeir
sem komu af staö áströlsku kvik-
myndabylgjimni, hafi flestir flutt
sig tíl Bandaríkjanna koma af til
frá Ástralíu frábærar kvikmyndir
og er Proof ein þeirra en hún vaktí
verðskuldaða athygh á kvik-
myndahátíðinni í Cannes í fyrra.
Proof fjallar um þrjár persónur.
í byijun kynnumst við Martín sem
hefur verið bhndur frá fæðingu.
Hann er tortrygginn gagnvart öh-
um og hefur frá bamæsku granað
að hlutum sé ekki rétt lýst fyrir
honum. Sérstaklega er þessi gran-
ur sterkur gagnvart móður hans
sem deyr frá honum ungum. En
sýnt er frá bamæsku hans í stutt-
um atriðum inn á milh.
Tengsl hans við náttúruna og
annað fólk er ljósmyndavél sem
hann tekur myndir á í gríð og erg
og lætur síðan lýsa fyrir sér hvað
er á myndunum. Til þess treystir
hann aðeins Andy sem vinnur á
veitingastað sem hann sækir. Hef-
ur Martin fengið Andy til að heita
sér aö segja ahtaf satt. Þriðja per-
sónan er ráðskona Martins sem
vih eigna sér hann og reynir hvað
hún getur til að draga hann á tál-
ar. En þrátt fyrir aö Martin viður-
kenni fyrir Andy að hann hatí hana
er hún honum nauðsynleg. Fyrir
ráðskonunni er Andy hindrun sem
þarf að ryðja úr vegi og verður
DV-myndbandaJistinn
Úlfhimdurinn
jcaaK iVöoáiv jid
eiilfew
lirtaáísj,. a ir« jíiI imvíe*
WoodrtSfll iír«WS::fcÍ0;C,,»Míi:!" «,
Fjölskyldukrísa
MR. & MRS. BRIDGE
Útgefandi Skífan.
Leikstjóri: James Ivory.
Aðalhlutverk: Paul Newman og Joanne
Woodward.
Bandarísk, 1991 -sýningartimi 124 min.
Leyfð öllum aldurshópum.
Hjónin Paul Newman og Joanne
Woodward leika hjónin herra og
frú Bridge í samnefndri kvikmynd
og satt best að segja er leikur þeirra
það merkhegasta við myndina sem
gerð er af þríeykinu þekkta, Jhabv-
ala-Merchant-Ivory, sem á að baki
margar úrvalsmyndir, meðal ann-
ars A Room with a View.
Við fylgjumst með lífi Bridge-
hjónanna í ein þrjátíu ár en það
byggist nær eingöngu á vilja og
ákvörðunum heimhisfóðurins en
hann er mikhs metinn lögfræðing-
ur með gamaldags hugmyndir um
fjölskyldulífiö. Frú Bridge er ekki
aðeins þræll í hjónabandinu heldur
lætur hún sér mjög annt um að
eiginmaöurinn verði sér ekki th
skammar. Það er ekki fyrr en börn-
in tvö vaxa úr grasi að herra Bridge
finnur fyrir þvi að orö hans era
ekki lengur lög.
í hehd er Mr. & Mrs. Bridge hug-
Ijúf og mannleg kvikmynd þótt
hegðun heimilisfööurins sé ekki
beint th fýrirmyndar. En myndin
er hæg og nokkuö langdregin. Þaö
eru eins og fyrr segir Newman-
hjónin sem gera Mr. & Mrs. Bridge
eftirminnhega með frábærum leik.
-HK
Hugo Weaving (er eftirminnilega með hlutverk hins blinda Ijósmyndara.
Erfitt samband móður og dóttur
hann auðveld bráð enda veit hún
nákvæmleg hvernig hægt er að
særa Martin mest.
Andy er kannski sú persóna sem
stendur áhorfandanum næst. Hann
er ósköp venjulegur phtur sem hef-
ur ekki gengið alltof vel í lífinu og
lendir á milli í sálfræðistríði hinna
tveggja. Þegar Martín lýsir fyrir-
litningu sinni á því að Andy skyldi
segja honum ósatt svarar hann því
th að þaö sé th of mikhs ætlast að
ein manneskja getí verið fullkom-
in.
Martin er sjálfur ekkert gæða-
blóð. Hann gerir sér vel grein fyrir
möguleikum sem blindir eiga og
notfærir sér það. Th að mynda í
veitingahúsi þegar hann fær slæma
þjónustu þá færir hann glasið nær
borðbrúninni og hellir síðan víninu
á borðdúkinn. Auðvitað kennir
þjónustustúlkan sjálfri sér um
óhappið.
Hugo Weaving, Genevieve Picot
og Russeh Crowe sýna öll góðan
leik, sérstaklega Weaving í erfiðu
hlutverki Martíns. Leikstjóri og
handritshöfundur er Jocelyn
Moorhouse og er vert að leggja
nafnið á minnið. Leikstýrir hann
myndinni af öryggi og handitíð er
vel skrifað.
-HK
HAIR HÆLAR (TACONES LEJANOS)
Útgefandi: Háskólabfó.
Leikstjóri: Pedro Almodovar.
Aóalhlutverk: Vlctoria Abril, Marisa Pa-
redes og Miguel Bose.
Spönsk, 1991 - sýningartimi 98 mín.
Bönnuð börnum yngrl en 12 ára.
Háir hælar er nýjasta kvikmynd
hins frumlega spánska leikstjóra
Pedro Almodovars sem þekktastur
er fyrir mynd sína, Konur á barmi
taugaáfalls. Háir hælar er drama-
tísk mynd. Hinn beittí húmor, sem
hefur verið eitt aðaleinkenni
Almodovars, er aö vísu í bakgrunn-
inum í einstaka atriðum en hér er
fyrst og fremst verið að segja okkur
sögu af móður og dóttur og erfiðu
sambandi þeirra á milli sem ein-
kennist af öfund, aðdáun, afbrýði-
semi og hatri.
Dóttirin Rebecca (Victoria Abril)
er í byijun myndarinnar á flug-
velli aö taka á móti móður sinni
eftir fimmtán ára aðskilnað.
Leiftriúr fortíðinni bregður fyrir.
Þar kemur fram að móðirin er fræg
söngkona og er komin th aö halda
tónleika í Madrid og að uppeldi
Rebeccu var ööruvísi. Ekki bætir
það samband mæðgnanna að
Rebecca hefur gifst Manuel, göml-
um elskhuga móðurinnar. Tveim-
ur dögum fyrir tónleikana finnst
Manuel myrtur og grunur fehur á
mæðgurnar.
Þótt Háir hælar standist ekki
samanburð við Konur á barmi
taugaáfalls þá er myndin vel gerð
og kemur söguþráðurinn stundum
skemmtílega á óvart. Samleikur
þeirra Victoriu Abrh og Marisu
Paredes er með miklum ágætum. í
þetta skiptið er Pedro Almodovar
frekar látlaus og ekki jafn frumleg-
ur og áður en Háir hælar heilsteypt
kvikmynd þar sem sögð er magn-
þrungin saga og fátt er það í tilfinn-
ingalífi aðalpersónanna sem hann
nálgast ekki.
-HK
★★ !4