Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1992, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1992, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 13. NÖVEMBER 1992. Fréttir Lögmaður Sophiu æfur á blaðamannafundi eftir að úrskurður var kveðinn upp: Þetta mál hef ur snú- ist upp í hrylling - æstur múgurinn bar Halim A1 á gullstób, kyssti hann og faðmaði Óttar Sveinsson, DV, Tyrklandi; „Viö vorum kvíðin fyrir réttar- höldin en nú hefur þetta snúist upp í hrylling. Einfalt fjölskyldumál hef- ur snúist upp í trúarbragðastríð. Mynd nútíma Tyrkja er að taka breytingum til hins verra,“ sagöi Hasip Kaplan, lögfræðingur Sophiu Hansen, í upphafi fjölmenns blaöa- mannafundar tyrkneskra og ís- lenskra íjölmiðla skömmu eftir aö úrskurður dómara gekk í forræðis- máli Sophiu í gær. Dómarinn í máhnu úrskurðaði fóð- umum, Halim Ai, forsjá dætranna tveggja en þó þannig að móðirin fái að sjá þær í júií. „Nú er ég sko ánægöur skal ég segja þér, þetta er aiveg frábært," sagði Halim AI í samtali við DV á leiðinni út úr dómhúsinu þar sem öskrandi og hálftrylltir stuðnings- menn hans úr röðum ofsatrúar- manna biðu frétta fyrir utan. Áður en Halim A1 fór út spurði blaðamað- ur DV hann hvort hann ætlaði að framfylgja úrskurðinum í júlí. Svarið var ákveöið: „Þær fara bara ef þær vilja það sjálfar. Þær vildu það ekki síðast." Þegar Halim A1 gekk út á tröppur dómhússins lyfti hann höndum og brosti til mannfjöldans og lögmaður hans tilkynnti fólkinu niðurstöðuna við gífurlegan fögnuð fólksins. Halim A1 var síðan borinn á gullstóh og fólkið kyssti hann og faðmaöi. Á ann- að hundraö lögreglumenn gráir fyrir járnum reyndu að hemja skarann og dreifa honum en á meðan voru lög- menn Sophiu að undirbúa blaða- mannafund innandyra. Þingmaður úr röðum strangtrúaðra fagnaði Hal- im A1 fyrir utan en reifst og skamm- aðist við forystumenn lögreglunnar fyrir að ráðast á fólk sitt. Tyrkneski lögmaður Sophiu var ákveðinn í fyrstu en brýndi raustina mjög er á leið blaðamannafundinn: „Konan var lamin fyrst og dómar- inn sagði ekki neitt - og ekki heldur í dag,“ sagði Hasip. „Strangtrúaðir koma svo hingað með þingulltrúa sem hvetur þá áfram. En við komum með kröfu til dómarans og þá segir hann okkur að fara út. Ég hef lent í slæmum málum en aldrei eins og nú. í fyrsta skipti á ævinni fæ ég ekki að flytja mál mitt. Það hefur komið í ljós að við getum ekki treyst dóm- ara. Hann neitar læknisrannsókn á stúlkunum og hann hafði ekki gögn Sophiu og Hahms A1 undir höndum. Faöirinn kemur ekki með börnin í 11 skipti og dómarinn segir ekki neitt. Eg fór fram á að dómarinn viki frá en því var hka neitað. En við gefumst ekki upp. Við ger- um allt til að áfrýja og sækja máhö í Ankara og munum fá hjálp til þess á æðstu stöðum. Þetta mál er and- stætt lögum. Ég skil þetta ekki,“ sagði Hasip svo undir tók í herberg- inu. „Við kærum dómarann til hæsta- réttar og látum máhð hka fara th lagaskóla, mannréttindahreyfinga og kvenréttindasamtaka. Dómarinn er hræddur við þetta fólk. Þannig á það ekki að vera. Ég skammast mín fyrir að vera Tyrki undir þessum kringumstæðum," sagði Hasip. „Ég veit ekki hvað á eftir að gerast í þessu landi ef ofsatrúarfólk er nú farið að ráða yflr okkur. Þessu landi er að fara aftur," sagði einn tyrk- neskra viðmælenda DV og tók í sama streng og Hasip. Mannfjöldlnn fagnaði Halim Al þegar niöurstaða lá fyrir i forræðisdeilu hans og Sophiu Hansen. Halim Al var borinn á gulistóli fylgismanna slnna. DV-símamynd Óttar Sveinsson Strangtrúaður múslimi sem er formaður þingmannanefndar um mannréttindi: Vopnaður þingmaður stóð hjá Halim Al í dómsalnum - lyfti upp jakkanum þannig að dómarinn sæi skammbyssuna hans Óttar Sveinsson, DV, Istanbúl: Þingmaður úr röörnn strangtrú- aðra múshma stóð vopnaður skammbyssu við hhð Hahm A1 í rétt- arhaldinu í Istanbúl í gær. Þessi maður hefur verulega látið að sér kveða í aö styöja málstað foðurins í forræðismáh hans og Sophiu Hansen og skammaði raunar lögregluna við dómhúsið í gær fyrir að ráðast vopn- að að fólki sínu. Hann er formaður þingmannanefndar sem vinnur að mannréttindamálum. Hinn vopnaði þingmaöur hafði þijá aðstoðarmenn með sér inni í dómsalnum. Byssa þingmannsins var í rassvasa á buxum hans. Þegar hann kom inn í dómsalinn sthlti hann sér upp við hhð Halim Als og tyhti jakka sínum upp fyrir byssuskaftiö, greinhega th að sýna dómaranum að hann væri vopnaður, að sögn Guðmundar H. Guðmundssonar, bróður Sophiu. Dómsalurinn er aöeins um 15-20 fer- metrar að stærð og var maðurinn í 2-3 metra fjarlægð frá dómaranum. Það er álit Sophiu og stuðnings- fólks hennar að augljóst hafi veriö að niðurstaða dómarans var fyrir- fram ákveðin. „Þegar dómarinn las upp úrskurðinn sáust engin svip- brigði á lögmönnum Hahms Al. Þeir vissu fyrirfram hvemig hann yrði,“ sagði Guðmundur í samtali við DV. Gunnar Guðmundsson, lögmaður Sophiu, sagði að hann hefði komist að því í gær að umræddur lögmaður var dæmdur fyrir manndráp árið 1979 og hefði setið í fangelsi í 4-5 ár. „Við teljum þetta slæma sphhngu. Þessi maöur er þingmaður og fulltrúi löggjafarvaldsins. Hann gengur sjálf- ur inn í dómsal vopnaður - með skammbyssu gapandi upp úr rass- vasanum. Þetta gerir hann á meðan hann er að gæta hagsmuna í mann- réttindamálum og er formaður þing- mannanefndar í þeim málum," sagði Guðmundur. Guðmundur sagði þetta mál einnig mjög einkennilegt í ljósi þess að á annað hundrað lögreglumenn gættu öryggis á staðnum th að forða Sophiu frá ofbeldi - verðir bönnuðu fólki að fara inn í dómsalinn en á meðan stóð maður vopnaður byssu þar innan- dyra þannig að hún blasti við dómar- anum og fleiri viðstöddum. Að loknu réttarhaldinu í gær mætti Sophia sjálfum dómaranum 1 málinu á ganginum í dómhúsinu. „Hann vinkaði th mín og sagði „Sophia, komdu héma“ og spurði hvort mér hði iha út af úrskurðinum. „Tókstu þetta nærri þér,“ spurði hann. Ég sagði honum að hann hefði sært hjarta mitt. Því næst svaraði túlkurinn minn mjög vel en dómar- inn sagði síðan „Ég vona að þú fáir hreinni dómara næst. Þú veist ég fæ ekki að gera annað." Þegar túlkurinn minn svaraöi honum aftur lyfti hann höndinni eins og hann væri að segja „Ég gef skít í ykkur“.“ Halim A1 borgar fyrir stöðnga gæslu á dætrunum: Betra að missa pening en börnin Óttar Sveinsson, DV, Tyrkiandi: „Þetta er alveg æöislegt. Við emm að halda upp á dóminn. Það eru allir hér ánægðir og glaðir. Bömin líka. Þau' vom glöð og hrópuðu af gleði og sögöu: „pabbi, við vissum að við ffiyndum vinna þetta mál“. Þetta er besti dagurinn í lífi okkar,“ sagði Halim A1 í samtali við DV seint í gærkvöldi. „Það vom ahir að kyssa mig og halda á mér í dag eins og ég væri hetja. Allir sögðu við mig að ég væri besti maðurinn í dag.“ Hahm A1 sagði að nú stæði fyrir dyrum vinna með lögfræðingum hans th að kanna stöðu forræöis- málsins. „Þetta er ahs ekki búiö,“ sagði hann. „Nei, nei, nei, ahs ekki. Ég segi að þetta mun aldrei verða búið fyrr en börnin veröa 18 ára,“ sagöi hann. „Ég passa stelpumar mjög vel. Ég er með öryggisvörð í vinnu fyrir mig og borga honum. Það er betra að missa peninginn en börnin. Peninga er ahtaf hægt að fá en ekki bömin. Öryggisvörðurinn passar ahtaf börn- in mín. Hann fylgir þeim aht sem þær fara, líka í skólann," Halim A1 ítrek- aði í gærkvöldi það sem hann hefur sagt að ógerlegt sé að semja við móð- urina um umgengni við börnin. Þetta væri hans afstaða. Hins vegar stang- ast þetta á við það sem hann sagði fyrr í vikunni um að hann myndi semja, hvernig sem máhð færi. „Ég er að segja rétt. Ef þið trúið mér ekki verðið þið bara að bíða og sjá. Ég hef ekki brotið lög og ég fer ekki í fangelsi.“ Þegar Hahm A1 var spurður hvort hann ætlaöi ekki að heimsækja kunningja á íslandi eftir að hafa búið þar í 9 ár hló hann og sagði „Nei, nei, ég er ekki svo vit- laus. Hvað ætti ég að gera þar? Kunn- ingjamir koma bara th mín. Ég hef nóg að gera með að passa börnin mín,“ sagði Hahm Al. Guðmundur H. Guðmundsson, bróðir Sophiu Hansen: Óttar Sveinsson, DV, Istanbul „Þessi niðurstaða er ákveöinn sigur fyrir okkur. Ég var búinn aö búa mig undir þetta í nokkra mán- uöi. Dómarinn heföi getaö frestaö máhnu aftur í 6 mánuði en nú er hann kominn út úr máhnu. Hann hefur gert það mikiö af mistökum núna aö það verður auðveldara fyr- ir okkur að vinna málið fyrir fimm manna hæstarétti í Ankara," sagði Guðmundur H. Guðmundsson, bróðir Sophiu Hansen. „Ég bjóst við aö dóinarinn myndi leyfa mér aö sjá bömin mín á næst- unni,“ sagði Sophia aðspurð um hvort dómurinn hefði komiöhenni á óvart. Sophia sagðist þurfa að halda áfram að ferðast til Tyrk- lands vegna áfrýjunarinnar. Aðspurð um mannfjöldann við dómhúsið sagði hún aö öryggis- gæsla hefði verið mun öflugri í og við húsiö í gær en áður var. Þetta rekur Sophia th þess að utanríkis- ráðuneytið beitti þrýstingi á tyrk- nesk stjórnvöld. „Við vorum miklu öruggan núna með lögregluþjóna fast viö okkur ahan tímann, þeir viku ekki frá og það þorði enginn að snerta við okkur," sagöi Sophia. Gunnar Guðmundsson lögmaður sagði að sér litist ekki iha á fram- haldið og hraða bæri máhnu eins og kostur væri. 6-7 mánuði tæki að fá niðurstöðu í hæstarétti ef vel gengi. Hins vegar sagði Gunnar ljóst að Sophia muni ekki sjá dætur sínar næstu 7 mánuði. Guðmundur sagði það Ijóst aö Sophia fengi ekki aðsjá bömin sin á næstu mánuðum en málarekstur hennar mun engu að síður halda áfram á næstunni því auk áfrýjun- ar er verið að reka ýmis kærumál á hendur fóðumum. Tyrkneski rík- issaksóknarninn hefur einnig kært dómarann vegna framgöngu hans í máh Sophiu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.