Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1992, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1992, Blaðsíða 12
12 Spumingin Hverjir heldur þú að verði íslandsmeistarar í handknattieik? Sindri Sindrason nemi: Ég held með FH og þeir vinna. Ófeigur Hreinsson nemi: Valur. Snorri Magnússon nemi: Ég held að það verði Valur, því miður. Anna Guðrún Gylfadóttir nemi: Ég held með Selfyssingum en það er spuming hvort þeir hafa það. Stefán Sigurðsson nemi: Það er ekki spuming að það verða FH-ingar. Maria Gunnarsdóttir nemi: Valur. Lesendur Útf lutningur á fersk- um f iski í gámum Ekkert spurt um raunverulegan útflutning á ferskum fiski? G.M. skrifar: Það vakti athygli mína þegar út- varpsfrétt greindi frá að skip sem seldi í Bremerhaven í síðustu viku fékk 65 kr. fyrir kg af karfa - næsta skip á undan fékk um 87 kr. fyrir kg. Hér er um verulegt verðfall að ræða sé miðað við meðalverð á þessu ári sem mun vera nokkuð yfir 100 kr. á kg. (þar innifalið verðfall sem orðið hefur á árinu). Að sjáifsögðu ráða hér um markaðstæður eins og áður. Þeir sem fylgjast með vita að það er ekkert nýtt. Ég þykist vita að nú sé um kennt óhæfilegu framboði frá Færeyjum þar sem þaðan séu flutt út fersk flök á undirverði. - Það er ekki nýtt að framboð á markaði auk- ist frá því ætlað var, verð ræðst af framboði hverju sinni. Nú er leyfaúthlutun komin til LÍÚ, þ.e. Aflamiðlunar sem samtökin reka. Eftir því sem ég veit best þá úthlutaði viðskiptaskrifstofa utan- ríkisráðuneytis útflutningsleyfum á föstudegi til útflutnings í næstu viku á eftir. Nú fer úthlutun fram á fimmtudegi til útflutnings, sem fyrst getur átt sér staö 10 dögum síðar, og að mestu 14. dögum síðar, þ.e. fimmtudag í þar næstu viku. Hvað getur hreyst á svo löngum tíma á viðkvæmum markaði? Það er að sjálfsögðu gaman að geta birt í fjölmiðlum hverjir hafi fengið út- flutningsléyfi, allt er opinbert, dulúð hvílir hér ekki yfir. - En hver er reyndin af þessari úthlutun? - Ég hef undir höndum úthlutun leyfa til sölu í 44. viku, vikuna sem umrætt verð- fall var. Samkv. Fiskifréttum, 39. tbl. 23. okt. þá hafa 27 skip fengið útflutn- ingsleyfi fyrir 130 tonnum af karfa (Bretland meðt.), og að auki 3 skip með 562 tonn til Þýskalands. Á hsta sem ég hef aflað mér og greinir frá áætluðum útflutningi til Þýskalands, Belgíu og Frakklands eru 29 skip með 3901. af karfa í gám- um auk 30 tonna á England en það er meðaltalið í upphaflegri úthlutun 130 t., þannig að á umtalaðan hefð- bundinn Bremerhavenmarkað voru flutt út 390 tonn í stað 100 tonna samkv. úthlutun (samkv. Fiskifrétt- um). Af þessum 29 skipum eru 5 skip á úthlutunarlista Fiskifrétta. Hversu marktækur er þá sá listi? Ætla mætti að áður hefði verið kveinað, og það hátt, er í ljós kom að nær fjórfalt magn var flutt út á Bremerhavenmarkað, sé miðað við úthlutun Fiskifrétta. Éftir þessu hafa verið flutt út á hinn umtalaða við- kvæma markað 952 tonn í stað 640 tonna. - Það er e.t.v. ekki að ófyrir- synju að Vestmannaeyingar báðu utanríkisráðherra að frelsa sig und- an slíkri úthlutun. Ég hef oft verið undrandi á hve menn geta verið „skinhelgjr". Birt er úthlutun leyfa (t.d. Fiskifréttir), en ekkert spurt um raunverulegan útflutning eða á hvem veg úthlutuð leyfi standast við upphaflega úthlut- un enda ekki við að búast að það geti staðist þegar svo langur tími Mð- ur frá úthlutun og þar til útflutning- ur getur hafist. - Til hvers er þá ver- ið að þessu? Er það bara til að gefa því nafn og það sé í höndum réttra aðila? Það er vissulega hægt að sveipa sig dulúð heiðarleikans með hjálp fjölmiðla á ýmsan hátt. Og það er hægt að frábiðja sér „forsjá ríkis- valds“ en með athöfn og framkvæmd að óska eftir „forsjá ríkisvalds"! Út úr myrkrinu Oddur skrifar: Ég ætla mér ekki með þessum fá- tæklegu skrifum að hætta mér út á þann þunna ís sem allt niðurskurð- artal fjármagns byggist á og eiga á hættu að falla í þá köldu hnd sem aht slíkt tal streymir úr. Heldur er það sú lífshnd sem ég féh í eftir langa og myrka göngu á hálum ís sem ég vh fara nokkmm oröum um. Sam- hjálp var og er seinasti viðkomustað- ur minn á hinni löngu leið minni út úr myrkviðum eymdarinnar. Ég' hef vfða komið við á þessari löngu göngu minrn, bæði hér heima og erlendis, hjá SÁÁ og áfengisdeild ríkisspítalanna, og er gott eitt um það að segja en þar varð ég bara edrú! Þar var mannssáhnni ákaflega lítill gaumur gefinn og er þaö þó hún, mannssáhn, sem þarfnast hvað mestrar umönnunar. Þær djúpu rún- ir sem ristar em mánnssálinni verða ekki afmáðar nema í gegnum kær- leiksanda Jesú Krists. Mig tekur sárt sem gamall AA og SÁÁ maður að horfa upp á hversu langt þessi góðu samtök hafa horfið frá uppruna sínum. Ég minnist þeirra tíma sem einn af stofnendum AA deildarinnar í Keflavík að við stofnun þeirrar deildar höfðum við frumkenninguna að okkar leiðarljósi sem var trúia Á þeim áram náði ég enda mínum besta árangri til þessa 1 baráttunni við Bakkus. í grein sem birtist í Tímanum 27. f.m. leyfir sér hugmyndasnauður maöur aö halda því fram að sá boð- skapur um kærleika Jesú Krists sem boðaður er í meðferð hjá samtökum eins og Samhjálp sé einhver dans um iha anda, sem tekið hafa sér hólfestu í okkar sjúku sálum, og þannig sé trúnni á Jesú Krist þröngvað inn! - Hvíhk firra! Fischer - Kasparov á íslandi B.G. skrifar: Nú hefur verið rætt um að fá þann sérkennilega skáksnilling Bobby Fischer hingað til lands til að takast á við Boris Spasskí. Eins konar minningareinvígi þeirra tveggja til að minnast þess þegar Fischer varð heimsmeistari á sínum tíma. Nú er þetta ekki afleit hugmynd. Hins vegar myndi ég fremur vilja sjá Fischér takast á við núverandi heimsmeistara, Kasparov. Það væri verðugri skákviðburður en að valta yfir Spasskí vesalinginn sem hefur ekki það þrek sem til þarf á móti Hringið í síma 632700 millikl. 14 og 16 -eða skrifið ATH.: Nalh og símanr. verður að fylgja bréfum þessu skáktrölh sem Fischer óneit- anlega er. Ráðamenn í skákheiminum hér á landi ættu hið snarasta að kanna hvort Kasparov er fáanlegur til að mæta Fischer hér í skákeinvígi. - Þetta myndi áreiðanlega vekja mikla athygh og yröi að sjálfsögðu að fá verulega umfiöllun í heimsfréttun- um. Best væri að svona einvígi færi fram utan hins hefðbundna ferða- mannatíma, þá gætu gjaldeyristekj- m- orðið verulegar af svona uppá- komu. Em Fischer og Kasparov tilbúnir? FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1992. Bankavextirafal- mennumbókum Þórður Jónsson hringdi: Mér : blöskrar sú stefna sem uppi er í vaxtamálum hér á landi. Þaö er ekki nóg mcö að vaxta- stefnan sjálfsé eins og hún leggur sig út úr kortinu, heldur er líka verið að eyðileggja ahan almenn- an spamaö landsmanna. - Al- mennar sparisjóðsbækur sem gefa undir 1% vexti rýra svo gildi spamaðar að haim á ekki upp á pahborðið nema hjá eignafólki. Margt fólk vih eiga spatisjóðs- bók, án allra skuldbindinga. Það vill því eiga almenna sparisjóðs- bók eins ogþáð vandist þegar það var ungt. Nú eru almennar sparí- sjóðsbækur svo til ónothæfar vegna fyrirhtningar bankakerfis- ins á þeim sem það er þó‘ með í gangi. Kvikmynd með enskumtexta! Björn Jóhannsson skriíár: Ég átti þess kost að fara og sjá eina þeirra kvikmynda sem fi’anska kvikmyndavikan kynnti hér um síðustu helgi. Þetta var kvikmyndin Fílaeyjan sem var sýnd í Háskólabíói. M.vndin var aíhragðsvel leikin og tekin og skilaboð hennar umhugsunar- verð fyrir áhorfendur. - Það var hins vegar skondiö að sjá enskan texta undir myndínni. Reikna má með að flestir hafi nú skíhð ýmist frönsku eða ensku. Það var hins vegar skondið aðþettaskýldi ein- mitt eiga sér stað í útibúi lær- dómsmusterins, Háskólaíslands. „Frjálsarhend- ur“ á borgarana Guðmundur Sigurðsson skrifar: Þegar ég las frásögn blaða af manninum sem brá hnífi á háls stúlkunnar í sólbaðsstofunni^ var mér hugsað: Hvenær verður hann nú látinn laus þessi? - Ný- búið er að láta árásarmann sem skaut að mönnum á Flateyri laus- an. Rökin eru: Það er búið að upplýsa þaö sem máh skiptir! í sama blaði var hka frétt um blessaðan íslendinginn sem tek- inn var á Spáni með rúm 10 kg af hassi. Þar situr annar landinn sakaður um naugðun. Ræöis- máður okkar í Maiaga vonast nú til að úr fari aö rætast fyrir hon- um með nýjum verjanda. Er ekki bara best aö sleppa öllum hand- tökum svo að óbótamenn geti liaft „fijálsar hendur“ á borgar- ana? Þakkirtii Umferðarráðs Helgi Gunnarsson skrifar: Þeim sem sviptii- eru ökuleyfi ; er gert skylt að gangast undir próf til endurnýjunar á því síðar. Við vorum þrír raættir í slíkum tilgangi fyrá’ stuttu hjá Umferð- arráði. Á móti ökkur tók maöur með nafnspjald á sér, Ómar EU- ertsson. Það er ekki að orðlengja að þarna fengum við hinar bestu móttökur og var boðiö uppá kaifi fyrir prófið. Ég vil koma á íram- færi þakklæti fyrir góðar móttök- ur og fyrirkomulag tíl fyrirmy nd- Bensínskattur ekki tilframdráttar Hjálmar hringdi: TiUögur þær scm tíl umræöu hafa verið tíl að bjarga atvinnu- vegunum verða væntanlega ekki aUar á borð við hugmyndina um að ganga í vasa bifreiðaeigenda eina ferðina enn og nú með hækkun bensíngjalds og bifreiöa- skatts. - Ef af yrði mun fólk tak- marka bifreiðaeign sina semmest þaö má. Hækkun þessara gjalda verður þvi ríkinu ekki til fram- dráttar og myndi rýra tolltekjur af nýjum bifreiðum verulega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.