Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1992, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1992, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1992. Fréttir dv Þaö sem sækjandi og veijandi eru sammála um í kókaínmálinu: Skýr lagafyrirmæli um tálbeitu skortir - Hæstiréttur hefur ekki tekið efiiislega afstöðu í hliðstæðum málum A myndinni má sjá falsaðan 5.000 slotsía seðil sem búið er að breyta i 500.000 og hins vegar venjulegan 5.000 slotsía seðil. Grétar reif hluta af yfirlimingunni af falsaða seðlinum. DV-mynd BG Grétar Indriðason, vélstjóri á Má SH127: Með falsaðan hálfrar milljónar slotsía seðil „Við vorum tveir sem skiptum við menn á götunni, ég lét fimmtíu þýsk mörk og félagi minn lét eitt hundrað mörk. Eg fékk hálfa milljón slotsía og hinn fékk eina milljón slotsía. Þegar viö ætluðum að nota pening- ana var okkur bent á að seðlamir væru falsaöir," sagði Grétar Indriða- son, vélstjóri á togaranum Má frá Ólafsvík, en Már er nýkominn frá Stettin í Póllandi þar sem gert var við skipiö. Falsaramir höfðu límt fleiri núll inn á seðlana en þar eiga að vera. Grétar tapaði eitthvað um tvö þús- und íslenskum krónum á þessu og . félagi hans um fjögur þúsund. „Þetta var í sjálfu sér lítið tap fyrir okkur en það er gott fyrir aðra að vita af þessu, svo fólk fari varlega ef það skiptir seðlum á götunni í löndum eins og Póllandi. Það vantar ekki að það em margir sem vilja skipta gjaldeyri og mér virtist sem þessi svik væru ekki óalgeng. Um- boösmaður skipsins lenti líka í svona svikum. Við vomm aftur á móti varnarlausir því viö vissum ekkert um hvemig seðlamir htu út og því vorum við kannski auðveld fóm- arlömb.“ Grétar sagði greinilegt að mikil fá- tækt væri í Stettin en hann segist hafa verið þar síðast fyrir um tveim- ur árum og á þeim tíma hafi mikið breyst og greinilegt sé að allt sé á uppleið - frekar en á niðurleið. Hann sagði verðlag einkennilegt. „Eitt glas á bar kostaði 80 þúsund slotsí.“ Ný f lugbraut á Þórshöf n Kókaínmáliö hefur verið lagt í dóm og er niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur að vænta á næstu vik- um. Egill Stephensen, fuhtrúi ákæmvaldsins, og Ragnar Aðal- steinsson, veijandi Steins Ár- manns Stefánssonar, luku ræðum sínum í gær og greindi þá mjög á. Hins vegar voru þeir sammála um aö lagafyrirmæh og réttarfarsregl- ur skorti um heimild lögreglu til að nota tálbeitu. „Mikill tími í aukaatriði“ Egift Stephensen sagði afar mikil- vægt í málinu að tálbeitan hefði boðið lögreglu aöstoð sína að eigin frumkvæði. Þama hefði verið óvenjumikiö magn af sterku kóka- íni en ólíklegt að aht efniö hefði fundist við eina húsleit. Því hefði tálbeituaðferðin reynst nauðsyn- leg. Hann sagði að þegar ákveðið var að láta til skarar skríða við Sundlaugamar hefðu viðbrögö ákærða verið svo ofsafengin að ekki fór betur en raun bar vitni. Varðandi hlerunarbúnað í bh Steins sagði sækjandinn að lög- reglu hefði ekki gefist tími tfi að leggja málið fyrir dómara en vísaði í heimUdarákvæði. Egih sagði að mikill hluti af kókaínmálinu hefði farið í rannsókn á aukaatriðum, t.d. hvemig kókaíninu var raöað í bílinn. Innflutningur kókaínsins og varsla Steins á því væri aðalatriðið. Það hefði hann viðurkennt og að hafa ráðist á lögregluþjón með skærum. EgUl rakti framburö Steins um að ákærði hefði heyrt lögreglu- menn á vettvangi í MosfeUsbæ ræða um hvort „pakkinn“ væri kominn í bUinn og að hann hefði verið beittur ofbeldi og reynst nef- brotinn. Sækjandi vék einnig að því að dómgreind Steins hefði verið verulega brengluð vegna neyslu á lífshættulega miklu magni af kóka- íni umrætt kvöld. Varðandi árásina með skærunum á lögreglumann- inn sagði sækjandi að Steini hefði ekki getað dulist hve hættuleg at- lagan var og af einskærri tilviljun hefði lagið ekki valdiö alvarlegmn líkamsáverkum. Tálbeita nauðsynleg en engin lagafyrirmæii Sækjandinn sagði aö almennt séð væri notkun tálbeitu heimil, hins vegar væm lagafyrirmæh ekki fyr- ir hendi fyrir lögreglu að fara eftir. í kókaínmálinu hefði þörfin þó ver- ídómsalnum Óttar Sveinsson ið svo brýn að nauðsynlegt hefði verið að nota hana. Þegar Egih vék að Hæstaréttardómi í hliðstæðu tálbeitumáh sagði hann að dómur- inn hefði í raun fallist á aðferðina en ekki tekið efnislega afstöðu. Sækjandinn lagði síðan áherslu á að útskýra hve nauðsynlegt það getur verið fyrir fikniefnalögreglu að notast við „óhefðbundnar rann- sóknaraðferðir". Varöandi kröfu um refsingu sagöi sækjandi að 4 ára fangelsi væri lágmark með hhðsjón af öðrum dómum í kókaín- málum og ákæröi hefði einnig gerst sekur um önnur brot, samanber ákeyrsluna og líkamsárásina á lög- reglumann. Refsiverð vinnubrögð? Verjandinn sagði að réttaröryggi skjólstæðings síns hefði veriö stór- lega skert með ýmsum rannsókn- araðgerðum - samanber ólöglegar og refsiverðar hleranir lögreglu. Steinn hefði ekki getaö sagt fram- burö sinn fyrir dómi að fjölmiðlum viðstöddum, lögregla hefði aflað gagna frá skatta- og gjaldeyrisyfir- völdum án lagaheimhda og ákærði hefði verið lokaður í einangrun sem hefðu stórfehdar og heilsu- spihandi afleiðingar í för með sér og kröfu um sjúkrahúsvistun synj- að. Veijandinn sagði að ákæru- valdið hefði viðurkennt aö hafa notað brotamann í hlutverki virkr- ar tálbeitu. Ragnar rakti síðan sögu Steins um för hans tíl Kólumbíu og að hann hefði aldrei ætlað sér að flytja kókaíniö th íslands. Hann heföi hitt tálbeituna í fangelsi eftir að heim kom, mann með forréttindi 'sem gat hagað sér eins og hann vhdi. Veijandinn rakti ósamræmi í framburði lögreglumanna um hvar kókaínið hefði fundist í bh Steins og skjólstæðingur sinn hefði ekki gert sér grein fyrir að það heföu verið lögreglumenn sem hann heföi hitt við Sundlaugamar - ákærði heföi einungis séð einhveija gaha- buxnaklædda menn í leðurjökkum. Ragnar sagði það einnig slæmt að lögreglan heföi staðið að shkum eltingaleik sem endaði með því að saklaus lögreglumaður, sem lítið vissi hvað væri um að vera, heföi verið kvaddur út í skyndi sem end- aði með stórfehdu líkamstjóni hans. Ragnar sagði að engin heimhd væri í lögum eða réttarheimhdir um notkun tálbeitu og sagöi að háttsemi lögreglu í málinu væri klárlega refsiverö - nauðsynlegt væri að heimhdir væru fyrir hendi og þær gefnar th að leysa menn undan refsiábyrgð í slíkum tilfeh- um. Niöurstaöa verjandans var að óheimht heföi verið að nota tál- beitu og refsiniðurstöðu í þessu máh eigi ekki að byggja á brotlegu athæfi lögreglu. Gyffi Kristjánssan, DV, Akureyri; Áætlað er að lagningu nýrrar flug- brautar fyrir Þórshöfn verði lokið á næsta ári og hafa Þórshafnarbúar þá tvo flugvelh. Gamla flugbrautin, sem er í um 10 km fjarlægö frá bæn- um og hggur austur-vestur, er um 1000 metra löng og verður notuð áfram en nýja brautin, sem verður um 1200 metra löng, hggur norður- suður. Aö sögn Jóhanns H. Jónssonar, framkvæmdastjóra flugvahadehdar Flugmálastjórnar, var um það að ræða að leggja nýja flugbraut þama þvert á þá gömlu eða leggja af flug th Þórshafnar. Ástæðan er sú að gamla brautin hentar nyög illa við ríkjandi vindáttir en nýja brautin þeim mun betur. Áætlað að verkið kosti 60-70 mihjónir óframreiknað. í dag mælir Dagfari Suðurnesjaspilavíti Suöumesjamenn era búnir að finna lausnina á atvinnumálum sínum. Þeir vilja setja upp sphavíti í fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli. Bæjarstjórinn í Keflavík hefur kynnt þessa hugmynd og segir að tugir þúsunda manna fari í gegnum Keflavíkurflugvöh og meðan á stoppinu standi sé upplagt að leyfa þeim að spha í rúhettu th að drepa tímann! Verulegt atvinnuleysi hefur þjak- að þá Suöumesjamenn að undanf- ömu. Einkum em konur skráðar á atvinnuleysisskrá eða nær tíunda hver kona í þessu byggðarlagi. Þetta er auðvitað hörmungará- stand og eðhlegt að Suðumesja- menn leiti ahra leiöa th aö bæta atvinnuástandið. Ekki hefur mikið borið á því aö þeir hæfust handa sjálfir heldur hafa stjómvöld verið heimsótt og þingmenn heimsótt kjördæmið og þar hafa Suðumesja- menn ausið úr skálum reiði sinnar um þann aumingjaskapa ráða- manna að hafa ekki útvegað Suöur- nesjamönnum vinnu. Það eiga sem sagt allir að útvega þeim vinnu og skapa atvinnutækifæri nema helst þeir sjálfir. Þannig vom íslenskir aöalverk- takar skammaðir fyrir aö segja upp fólki sem unnið hefur að fram- kvæmdum á Keflavíkurflugvelli fyrir vamarliðið. íslenskir aðal- verktakar hafa að vísu ekki verið aðhar að neinu vamarbandalagi né heldur stóðu þeir fyrir kalda stríðinu, en sökinni er engu að síð- ur skeht á þetta verktakafyrirtæki, fyrir að hafa ekki vinnu handa fólkinu, þótt ekkert sé lengur að gera hjá fyrirtækinu. íslenskir aðalverktakar hafa haft svo slæma samvisku af því að kalda stríðinu sé lokið og Keflvíkingar missi vinnuna vegna samdráttar í vömum landsins að verktakamir hafa ljáð máls á því að taka þátt í þeirri atvinnubótavinnu að leggja nýja Reykjanesbraut. Ekki hggur fýrir hversu margar konur fá vinnu viö sitt hæfi vegna þeirra framkvæmda, enda fremur sjald- gæft að sjá konur í vegavinnu. En eflaust geta ein eöa tvær konur fengið vinnu við matseld eða th að hella upp á kaffið fyrir karlana, þótt heldur sé það fyrirferðarmikh atvinnubót að leggja veg fyrir tvo th þijá mhljarða th að útvega tveim konum vinnu! Þetta hefur bæjarstjórinn í Kefla- vik ugglaust séð í hendi sér og þess vegna hélt hann áfram að hugsa máliö og hefur nú lagt fram thlögu um sphavíti í fríhöfninni. Nú hefur stundum veriö sagt aö farþegar með Flugleiðum yfir hafið séu aðahega puttalingar og farfugl- ar af ódýrastu gerðinni sem hafa það fyrir sið að kúldrast í svefnpok- um úti í homum flugstöðvarinnar. Eða þá að þeir leggja sig á gólfið því þeir hafa ekki efni á þæghegra svefnplássi. En þetta er samt fólkið sem á að spha í sphavítinu og skapa vinnu handa atvinnulausum Suð- urnesjamönnum. Er þá væntan- lega meiningin að keflvískar hús- mæður þyrpist upp á vöh og lokki puttahngana að sphaborðinu þar sem þeir geta eytt síðasta doharan- um meðan þeir hafa viðvera í bið- salnum. Er ekki að efa að bæjar- stjórinn í Keflavík þekki sitt heimafólk og viti upp á hár að kon- umar í Keflavík era þaulvanar að snúa rúhettum. Ef svona spilavíti geta bjargað atvinnumálum á Suðumesjum er sjálfsagt mál aö setja þau upp. Við eram ekki aðeins að skaffa konun- um úr fiskvinnslunni nýja og spennandi vinnu heldur eram við líka aö hafa fé af farþegum sem hingaö th hafa sloppið við að eyða einni krónu á íslandi. Auk þess má fastlega reikna með aö íslend- ingar sjálfir, sem era á förum til útlanda, freistist th að kíkja inn í sphavítið og kannske getur þetta endað með því að íslendingar dragi úr utanferðum þegar þeir era orðn- ir svo blankir eftir sphamennsk- una að þeir verða að hætta við ut- anferð á síðustu stundu. Það mundi spara mikinn gjald- eyri. Þetta er snjöh hugmynd hjá bæj- arstjóranum í Keflavík og sannar að það er ósanngjöm gagnrýni þeg- ar Suðurnesjamenn era sakaðir um skort á hugmyndum um at- vinnutækifæri þar syðra. Þeir geta vissulega bjargað sér sjálfir ef þeir bara fá frið og leyfi th að hrinda sínum stórsnjöllu atvinnuúrlausn- um í framkvæmd. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.