Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1992, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1992, Blaðsíða 26
34 FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1992. Fólk í fréttum DV Einar Benediktsson Einar Benediktsson, fram- kvæmdastjóri Síldarútvegsnefndar, til heimiiis að Neströð 5, Seltjamar- nesi, hefur verið ráðinn forstjóri Olís hf. en hann tekur við staríinu 1.2. nk. Starfsferill Einar fæddist í Bolungarvík 6.5. 1951, lauk stúdentsprófi frá VÍ1972 og prófi í viðskiptafræði við HÍ1976. Hann varð aðstoðarframkvæmda- stjóri hjá Síldarútvegsnefnd 1976 og framkvæmdastjóri þar 1989. Einar hefur setið í ýmsum nefndum um sjávarútvegsmál. Fjölskylda Einar kvæntist 9.11.1974 Maríu S. Guðmundsdóttur, f. 20.1.1950, húsmóður. Hún er dóttir Guðmund- ar J. Ludvigssonar, framkvæmda- stjóra á Seltjamamesi, sem lést 1986, og Guðbjargar K. Guðjónsdótt- urhúsmóður. Böm Einars og Maríu em Hauk- ur, f. 20.9.1969, nemi í jarðeðlisfræði við HÍ; Hildur, f. 4.8.1975, nemi við MH; Guðbjörg, f. 8.6.1980; Bryndís, f. 17.10.1987. Systkini Einars em HaUdóra, f. 29.11.1955, læknaritari í Árósum, gift Sören Petersen verslunar- manni; Bjarni, f. 9.2.1957, fram- leiðslustjóri hjá SÍF, búsettur í Reykjavík, en kona hans er Halla Hreggviðsdóttir, viðskiptafræðing- ur og fjármálastjóri Fijáls framtaks; Ómar, f. 22.10.1959, viðskiptafræð- ingur og framkvæmdastjóri hjá ís- landsflugi og Iceland Tours í Þýska- landi, búsettur á Seltjamamesi, kvæntur Guðrúnu Þorvaldsdóttur húsmóður. Foreldrar Einars em Benedikt Bjamason, f. 9.5.1925, fram- kvæmdastjóri í Bolungarvík, og kona hans, Hildur Einarsdóttir, f. 3.4.1927, húsmóðir. Ætt Bræður Benedikts em Bjöm, fyrrv. rektor MS; Haildór, verkstjóri í Bolungarvík, Eiríkur, augnlæknir í Reykjavík og Birgir, b. á Miðdal í Syðridal. Benedikt er sonur Bjama, útgerð- armanns og kaupmanns í Bolungar- vík, Eiríkssonar, frá Hlíð í Lóni, Jónssonar, b. í Hlíð, Markússonar. Móðir Jóns í Hlíð var Þórey, systir Antoníusar á Hálsi, langafa Guð- mundar, afa Egils Jónssonar, ai- þingismanns. Þórey var dóttir Sig- uröar, b. í Hamarsseh, Antoníusar- sonar, b. á Hamri og ættfóður An- toniusarættarinnar, Ámasonar. Móðir Bjama kaupmanns var Sig- ríður Bjamadóttir, systir dr. Bjöms frá Viðfirði og Halldórs, fóður Hall- dórs prófessors. Sigríöur var dóttir Bjarna, b. í Viðfirði, bróður Þrúðar, ömmu Ólafs Jóhanns Sigurðssonar rithöfundar, foður Ólafs Jóhanns Ólafssonar, rithöfundar og forstjóra Sony í Bandaríkjunum. Bjami var sonur Sveins, b. í Viðfirði, Bjarna- sonar og Sigríðar Davíösdóttur, b. í Helhsfirði, Jónssonar, og Sesselju Þorsteinsdóttur, systur Guðnýjar, langömmu Jóns Finnssonar, prests á Djúpavogi, fóöur Eysteins, fyrrv. ráðherra og dr. Jakobs, föður Jök- uls leikritaskálds, Svövu rithöfund- ar og Þórs veðurfræðings. Móðir Sigríðar Bjamadóttur var Guðrún Jónsdóttir, b. á Stuölum, Bjömsson- ar. Móðir Benedikts var Halldóra Benediktsdóttir frá Brekkubæ í Hornafirði. Systkini Hildar: Guðfinnur, for- stjóri í Bolungarvík, faöir Einars Kristins alþingsmanns; Halldóra, húsmóðir í Reykjavík, móðir Ragn- heiðar, hjúkmnarframkvæmda- stjóra við Landspítalann; Hjalti, framkvæmdastjóri SH, faðir Einars Garðars, forseta bæjarstjómar á ísafirði; Jónatan, faðir Einars, fram- kvæmdastjóra í Bolungarvík og fyrrv. forseta bæjarstjórnar í Bol- ungarvík; Guðmundur Páil, verk- stjóri í Bolungarvík; Jón Friðgeir, forstjóri Byggingarþjónustu Jóns Friðgeirs Einarssonar; Pétur Guðni, bílaútgerðarmaður í Bolungarvík. Hildur er dóttir Einars, útgerðar- manns og forstjóra í Bolungarvík, Guðfinnssonar, útvegsb. við Djúp, Einarssonar, smiðs á Hvítanesi, bróður Helga sálmaskálds, föður Einar Benediktsson. Jóns biskups og Álfheiðar, ömmu Sigurðar prófessors og Páls ráðu- neytisstjóra Líndal. Einar var sonur Hálfdánar, prófasts á Eyri, Einars- sonar. Móðir Guðfinns var Kristín Ólafsdóttir Thorberg, systir Bergs Thorberglandshöfðingja. Móðir Einar Guðfinnssonar var Haildóra Jóhannsdóttir frá Rein, Þorvalds- sonar. Móðir Hildar var Elísabet Hjalta- dóttir, sjómanns í Bolungarvík, Jónssonar af Ármúlaætt. Móðir El- ísabetar var Hildur Elíasdóttir af Eldjámsætt. AÉmæli Anna Guðmundsdóttir Anna Guðmundsdóttir húsmóðir, Urðarvegi 37, ísafirði, er fimmtug í dag. Fjölskylda Anna fæddist í Þaralátursfirði á Ströndum en fluttist ung til Ísaíjarð- ar þar sem hún ólst upp. Anna gifdst 27.12.1962 Konráði G. Eggertssyni, f. 18.2.1943, útgerð- armanni og skipstjóra frá Bolungar- vík. Hann er sonur Eggerts Haralds- sonar, sjómanns og verkamanns í Bolungarvík, og Valborgar Guð- mundsdóttur húsmóður. Böm Önnu og Konráðs eru: Guö- mundur Eggert, f. 18.7.1962, skip- stjóri, búsettur á ísafirði, kvæntur Hörpu Bjömsdóttur húsmóður og eiga þau dætumar Önnu Maríu og Elmu; Lára, f. 24.5.1966, nemi í Sjáv- arútvegsháskólanum í Tromsö, bú- sett í Noregi, gift Einari Yngvasyni, rafvirkja frá Isafirði, og eiga þau soninn Konráð; Haraldur Ágúst, f. 21.2.1970, sjómaður, búsettur á ísafirði, í sambúð með Anítu Ólafs- dóttur frá Hnífsdal, nemanda í MÍ; Valborg Sigurlín, f. 13.7.1972, nemi í fatahönnun, búsett í Tromsö í Nor- egi, í sambúð með Róberti Ásgeirs- syni frá ísafirði, nemanda í Sjávar- útvegsháskólanum í Tromsö. Systkini Önnu eru: Ólöf Ema, f. 17.1.1937, húsmóðir á ísafirði, gift Jóni Hirti Jóhannessyni, f. 27.4. 1935, sjómanni og verkamanni frá ísafirði, og eiga þau fimm börn; Tryggvi Þór, f. 9.2.1940, skipstjóri á ísafirði, kvæntur Rósu Harðardótt- ur, f. 19.2.1942, frá Bolungarvík og eiga þau fjögur böm; Bára, f. 17.9. 1941, húsmóðir í Hveragerði, var gift Haraldi Olgeirssyni, f. 5.6.1937, d. 11.10.1964, skipstjóra, ogeignuð- ust þau fjögur böm, nú í sambúð með Ragnari Jónssyni, innkaupa- stjóra hjá LíÚ; Guðmundur, f. 26.12. 1943, sjómaður á ísafirði, kvæntur Ásgerði Ingólfsdóttur húsmóður og eiga þau þrjú börn; og Lára, f. 16.1. 1948, húsmóðir í Kanada, gift Chris Hale, islenskufræðingi frá Chicago, og eiga þau tvö böm. Anna er dóttir Guðmundar Guð- jónssonar, f. 26.9.1910, nú látinn, fyrrum skipstjóra, og Lám Einars- dóttur, f. 22.11.1911, húsmóður, sem núbýráísafirði. Ætt Faðir Önnu var Guðmundur frá Þaralátursfirði, fyrrum útgeröar- maöur og skipstjóri á ísafirði, sonur Guðjóns, b. í Skjaldbjamarvík í Strandasýslu, Kristjánssonar, frá Anna Guömundsdóttir. Litlu-Ávík, Loftssonar, b. í Litlu- Árvík, Bjamasonar, b. í Munaðar- nesi, Bjamasonar, b. í Munaðar- nesi, Ámgrímssonar. Móðfr Önnu er Lára Einarsdóttir, dóttir Ólafar Hinriksdóttur, hús- móður á ísafirði, og Einars fisk- matsmanns Gunnarssonar, b. í Sauðholti og Kálfholtshjáleigu í Holtum, Tómassonar, b. í Sauðholti, Jónssonar, b. í Sauðholti, Gíslason- ar. Móðir Einars var Katrín Þor- steinsdóttir, b. á Kanastöðum í Lan- deyjum, Magnússonar. Anna og Konráð em að heiman á afmælisdaginn. Karen Elisabeth Bryde Karen Elisabeth Bryde húsmóðir, Lindarhvammi 8, Hafnarffrði, er 80 áraídag. Starfsferill Karen fæddist í Egebjerg á Sjá- landi í Danmörku en ólst upp í Ods- herredásamastað. Hún útskrifaðist frá Suerske hús- mæðraskólanum í Kaupmannahöfn árið 1932 og réð sig þremur árum síðar sem ráðskonu að Mjólkurbúi Flóamanna. Karen gifdst þáverandi mjólkur- bússtjóra, Claus Peter Kordtsen Bryde, árið 1936 og þegar hún flutt- ist í Hafnarfjörðinn 1942 hætti hún að starfa utan heimilisins. Fjölskylda Karen giftist 4.11.1936 Claus Peter Kordtsen Bryde, f. 20.2.1909, d. 30.7. 1985, mjólkurbússtjóra. Hann var sonur Jes Bryde, b. og kennara í Danmörku, og Lám Bryde húsmóð- ur. Þau era bæði látin. Böm Karenar og Claus era; Bent, f. 3.5.1938, mjólkurfræðingur, kvæntur Margréti Eðvaldsdóttur sjúkraliöa; Leif, f. 30.4.1940, loft- skeytamaður, kvæntur Amalíu Stefánsdóttur og eiga þau þrjú böm; Inga Annalísa, f. 30.8.1942, húsmóð- ir og starfsmaður á dagheimili, var gift Hannesi Thorarensen, sem nú er látinn, og eignuðust þau einn son, nú gift SveiniHalldórssyni, hús- gagnabólstrara í Garðabæ, og eiga þau tvær dætur; Axel, f. 21.6.1948, tæknimaöur hjá Flugleiðum, var kvæntur Viktoríu Ásmundsdóttur hjúkranarkonu, sem nú er látin, og eignuðust þau íjögur böm. Karen átti tíu systkini. Fimm era á lífi í dag. Þau era: Anna Maria, húsmóðir í Danmörku; Jóhaimes, kaupmaður í Danmörku; Torvald, garðyrkjumaður í Danmörku; og Karen Elisabeth Bryde húsmóðir. Gustaf, iðnaðarmaður í Danmörku. Foreldrar Karenar vora Kristján Christiansen, b. Danmörku, og Kristina Christiansen húsmóðir. Karen tekur á móti gestum á heimili sonar síns og tengdadóttur að Hrauntungu 18 í Hafnarfirði á milli kl. 17 og 20 á afmælisdaginn. 85 ára 50 ára Elín Guðjónsdóttir, Lindartúni, V-Landeyjum. Elín verður að heiman á afmælis- daghm. Elín Kóradóttir, Jöldugróf 2, Reykjavík. Elinborg Ingóffsdóttir, Langagerði 52, Reykjavík. Elísahet Kristjánsdóttir, Rltkahólum 10 Kónavnpi 80 ára Elisabet verður að heiman á af- mælisdaginn. Baldu r Gestsson, Ormsstöðum, Fellsstrandarhreppi. Jósefina Ásgeirsdóttir Blöndal sjúkraliði, Mýrarbraut 13, Blönduósi. Jósefina tekur á móti gestum að 75 ára heimili sínu eftir kl. 15 á afmælLs- daginn. Emilía B. Heigadóttir, Brekkuseli 16, Reykjavík. Hannes Marteinsson, Emilia Asta Júhusdóttir, Logafold 20, Reykjavík. Gránufélagsgötu 43, Akureyri. Bergsteinn Þorsteinsson, 40 ára Skólastíg 14a, Stykkishólmi.; Sigfús Sigfússon, Gröf 1, Þorkelshólshreppi. Herbjörn Björgvinsson, Ásvegi 26, Breiödalsvik. EgillL Hermannsson, Hjarðarholti, Akureyri. Þuriður Guðjónsdóttir, Áshamri 17, Vestmannaeyjum. Sigrún Jóhannsdóttir, Litlubæjarvör 12, Bessastaða- 70 ára hreppi. Sævar Ólafsson, Ásabraut 13, SandgerðL JónKristinn Guðmundsson, Fifúmóa 5a, Njarðvík. Gréta Vigfúsdóttir, Lilja Maria Petersen, Mávahlíð2, Reykjavik. 60 ára 1 Ul UUVUJ DV, 1\Cy J\)G ViZY• Kristin Jóna Guðmundsdóttir, Boðagranda 7, Reykjavík. Sigursteinn Sigursteinsson, Kárastfg 10, Reykjavik. Jens Olsen, Dynjanda, Nesjahreppi. Þorsteinn Gíslason, Unnarstig 6, Flateyri. Sigurrós Jónasdóttir, Silungakvísl 13, Reykjavik. Hreinn Kristófersson, Heiðmörk31, Hveragerði. Þorgeir Hauksson, Skálanesgötu la, Vopnafirði. Dóra Steinsdóttir, AUgd bkiu pU^OlIIibuOllU , Grænumýri 10, Akureyri Inga veröur að heiman á afmælis- daginn. Álfatúni 17, Kópavogi. Öm Sigurðsson, Hringbraut46, Hafiiarfirði. á næsta sölustað • Áskriftarsími 63-27-00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.