Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1992, Síða 35
Þorgeir Ibsen
Hreint
og beint
HREINT OC PEI^IT
LJOÐ OC LJOÐLIKI
Hér ýtir nýr ljóðahöfundur úr vör með
ljóðabók, sem hann kallar Hreint og
beint. Þar eru farnar troðnar slóðir í
hefðbundnum stíl, en nýstárlegum þó
um sumt. Höfundur á það til að víkja af
alfaraleið í ljóðum sínum, einkum í þeim
ljóðum sem hann nefnir ljóðlíki en ekki
Ijóð. En ljóðlíki hans eru þó allrar athygli
verð og standa vel fyrir sínu. Þar ber
kvæðið Minning greinilega hæst -
Ijóðlíki eins og höfundur nefnir það - um
Stein Steinarr, um atvik úr lífi hans sem
er á fárra vitorði, atvik sem aldrei hefur
verið lýst áður eða frásögn um það á
þrykk komist.
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1992.
LITLAR SÖGUR
SíáesvUn, PcUl
Litlarsögur eru safn sextán sagna um
fólk og fyrirbæri og óvenjulegar hliðar
hversdagsleikans. Meðal annarra koma
við sögu Þórunn Sveinsdóttir fyrir-
myndarhúsmóðir, Herjólfur skósmiður,
Jóhanna af Örk, unglingurinn Gunnar og
ég. Farið er á tónleika á gulum Renault,
í leikhús, fylgst með kosningadegi, hlýtt
á söng fiskanna og horft á húsið málað
svart.
Höfundurinn Sverrir Páll hefur áður
gefið út ljóðabókina Þú og heima og þýtt
bækurnar Kœri herra Guð, þetta er hún
Anna og Önnubók. Litlarsögur eru fyrstu
frumsamdar sögur hans sem dregnar eru
upp úr skúffu og koma fyrir augu
manna.
VIKINGSLÆKJARÆTT VI
PéÍctA.
í þessu sjötta bindi Víkingslœkjarœttar er
2. hluti h-liðar ættarinnar, niðjar Stefáns
Bjamasonar. Þar sem ákveðið var að
rekja niðja hans fram á þetta ár, en miða
ekki eins og í fjórum fyrstu bindunum
við þau mörk, er æviskeið Péturs
Zophoníassonar setti verkinu, verður að
skipta niðjum Stefáns Bjarnasonar í
nokkur bindi, slíkur sem vöxtur ættar-
innar hefur verið. Rúmur helmingur
þessa bindis eru myndir.
Allsherjarnafnaskrá bíður lokabindis
útgáfunnar.
SKUGGSJA
BÓKABÚD OLIVERS STEINS SF.
Sviðsljós
EP-3 29.200,- stgr.
EP-5 38.950,- stgr.
EP-7 58.300,- stgr.
Roland
HP-1700126.600,- stgr.
HP-2700160.100,- stgr.
HP-3700191.700,- stgr.
FP-8 142.550,- stgr.
KR-650 161.920,- stgr.
KR-3500198.400,- stgr.
BÆKUR
Umferðarfræðsla í Hafnarfirði
Lögreglan í Hafnarfirði hefur tekið upp á því að fræða eldri borgara um
umferðarmál líkt og gert er í Reykjavík eins og sagt var frá í DV nýlega.
Þrír hópar hafa sótt fræðsluna hjá Hafnarfjarðarlögreglunni en ætlunin er
að gera þetta að árlegum viðburði. Hagvagnar lögðu til bifreiðar undir
mannskapinn og í félagsaðstöðu FH í Kaplakrika var boðið upp á veiting-
ar. Allir voru síðan leystir út með endurskinsmerkjum. Á myndinni er Val-
garður Valgarðsson, lögreglumaður í Hafnarfirði, ásamt hópi úr Garðabæ
og Bessastaðahreppi. DV-mynd Sveinn
Himnasendingin slær í gegn
Himnasending er heiti geislaplötunnar sem Ný dönsk sendi frá sér á dögun-
um. Tónlistin, sem strákarnir tóku upp í Englandi, hefur fallið i góðan jarð-
veg og þegar hafa selst 5000 eintök. Fyrir vikið fengu meðlimir sveitarinn-
ar afhentar gullplötur sem þeir hampa hér en með þeim á myndinni, lengst
t.h., er Jón Trausti Leifsson frá Skífunni.
Sverrir Páll
SKUGGSJÁ
PÉTUR
ZOPHONÍASSON
VIKINGS
LÆKJARÆITVl
NIÐJATAL GUORÍOAH EVjOl-FSDOTTUR
cxj bjarnahalldOrssonar
hreppstjOra a vikinoslæk
Roland digital (stafræn) píanó hafa ffyrir löngu sannað gildi
sitt hér á landi sem og erlendis. Þau eru nú þegar í notkun
í tónlistarskólum, heimahúsum, veitingastöðum, hljómsveit-
um og víðar. Þau eru öll með ásláttarnæmi, MIDI-tölvuteng-
ingum og síðast en ekki síst innstungu fyrir heyrnartól svo
hægt er að iðka tónlist hvenær sólarhringsins sem er án
þess að ónáða aðra.
Roland píanó þarf aldrei að stilla.
Roland píanó, raunhæfur valkostur.
Frakkastíg 16
S. 91-17692
PRISMA.