Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1993, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1993.
Fréttir
Mjög góðar horfur 1 Grundarfirði þar sem einungis 855 manns búa:
Eiga nú þrjá togara og
kanna kaup á fleirum
- meira en nóg atvinna og heildarskuldir bæjarfélagsins aðeins 50 prósent skatttekna
Eftir að Hraðfrystihús Grundar-
fjarðar keypti togarann Sölva
Bjarnason frá Bíldudal í gær liggur
fyrir að a.m.k. þrír togarar verða
gerðir út frá Grundarfirði á næst-
unni - í 855 manna byggðalagi. Sam-
kvæmt upplýsingum DV eru heima-
menn að hugleiða að kaupa jafnvel
1-2 aðra togara til viðbótar.
„Það sem mér fmnst jákvæðast hér
er að stjórnendur fyrirtækjanna eru
að reyna að bæta við og auka at-
vinnutækifærin hér,“ sagði Magnús
Stefánsson, sveitarstjóri í Grundar-
firði, í samtali við DV í gær.
„Menn hafa leitað fyrir sér og eru
í ýmsum hugleiðingum varðandi það
að bæta við atvinnutækjum og tæki-
færum. Við erum svo heppnir að eiga
fyrirtæki hér sem hefur verið vel
stjórnað og eru vel rekin. Enginn
hefur lent í teljandi vandræðum. Hér
er næg atvinna og fólk heftu- vant-
að,“ sagði Magnús.
Eins og fyrr segir keypti Hrað-
frystihús Grundarfjarðar Sölva
Bjarnason í gær. Fyrir átti útgerðin
Davíð Oddsson forsætisráðherra þurfti aö svara mörgum spurningum fréttamanna eftir að forseti íslands hafði
staðfest lögin um EES. DV-mynd BG
Forsetinn staðfesti EES-samninginn:
Átti ekki von á öðru
- sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra
Vigdís Finnbogadóttir, forseti ís-
lands, staðfesti lögin um EES á ríkis-
ráðsfundi í gær. Vigdís gerði grein
fyrir afstöðu sinni. Að loknum ríkis-
ráðsfundi kom í ljós að forseti gerði
ríkisstjóminni ekki grein fyrir af-
stöðu sinni fyrr enn í gær. Davíð
Oddsson forsætisráðherra sagði að
loknum fundinum að hann hefði ekki
átt von á annarri niðurstöðu en þess-
ari, það er að forseti staðfesti lögin.
í bókun forseta segir meðal annars:
„Frá stofnun lýðveldis á íslandi hef-
ur embætti forseta íslands verið í
mótun. Þar hefur jafnt og þétt styrkst
sá meginþáttur embættisins að vera
óháð og hafið yfir flokkapólitík og
flokkadrætti. . . Síðar segir:
„Glöggt vitni um það eðli embættis-
ins er að enginn forseti hefur gripið
fram fyrir hendur á lýðræðislega
kjömu Alþingi sem tekið hefur
ákvarðanir sínar með lögmætum
hætti.“
Nokkrir alþingismenn gerðu, í
samtölum við DV, athugasemdir við
orðaval forsetans þar sem segir orð-
rétt: „Svo sem öllum er kunnugt hafa
forseta íslands á undanfórnum vik-
um borist áskoranir fiölda mætra
íslendinga, sem margir em persónu-
lega kunnir og nánir, þar sem þess
er óskað að forseti beiti áhrifum sín-
um til þess að samningurinn um
Evrópskt efnahagssvæði verði lagð-
ur fyrir þjóðaratkvæði." Síðar sagði
að við þessar aðstæöur væri forseta
mikill vandi á höndum. Þarna þótti
mönnum eins og Vigdís Finnboga-
dóttir gerði greinarmun á hvort þeir
sem skoruðu á hana að staðfesta ekki
lögin væru henni persónulega kunn-
ir eða ekki.
-sme
Alþingi:
Þetta var áminning
- segirFriðrikÓlafsson
Friðrik Ólafsson, skrifstofusfióri haldavökusinniogfylgjastvelmeð hörð gæsla í húsinu. Hann sagði
Alþingis, segir að atvikið þegar þeim gestum sem koma í þinghús- að ef sérstök mál væra til meðferð-
ungmenni mótmæltu afgreiðslu ið. ar, það er mál sem valda hugsan-
EES-málsins á Alþingi, sé áminn- Friðrik segist teija óæskilegt að legadeilum.megivelaukagæsluna
ing til starfsmanna þingsins um að tekin verði upp vopnaleit eða mjög þegar þurfa þykir. -sme
togarann Klakk. Talsmaöur Guð-
mundar Runólfssonar hf., sem gerir
út togarann Runólf, vildi ekkert full-
yrða um kaup á öðrum togara en
útilokaði ekki að slíkt gæti komið
upp. í sama streng tók Láras Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
Stöðvar hf.: „Ef eitthvað áhtlegt
kæmi þá stykki maður á það,“ sagði
Láras.
Sveitarstjórinn kvað heildarskuld-
ir sveitarfélagsins nema 50 prósent-
um af skatttekjum ársins. „Menn eru
brattir hérna og ástandið hefur verið
gott. Sveitarfélagið stendur vel fiár-
hagslega," sagði hann.
-ÓTT
Úthlaup hjá fikniefhalögreglunni:
16 handteknir með
hass og amfetamín
- sá yngsti sem var handtekinn er aðeins 16 ára
Fíkniefnadeild lögreglunnar fór í
14 húsleitir á sunnudag og mánudag
í tveimur óskyldum málum og lagði
hald á tæpt hálft kíló af hassi og um
1 gramm af amfetamíni. Ahs vora 16
manns handteknir í tengslum við
máhn.
Lögregla var kölluö í útkah í bús í
Breiðholtinu á sunnudagsmorgun.
Þar fundust fikniefnaleifar, neysluá-
höld og eitthvað af landa. 10 manns
vora handteknir og í framhaldi var
farið í átta húsleitar.
í þremur húsleitanna fundust
fikniefni og tæki til neyslu þeirra.
Samtals var lagt hald á um 36 grömm
af hassi og um 1 gramm af amfetam-
íni. Fólkið, sem var handtekið, var
um og yfir tvítugt og alveg niður í
16 ára. Þrennt hefur áður komið við
sögu fíkniefnalögreglunnar.
A mánudaginn var farið í húsleit í
Breiðholtinu og fundust þar fíkni-
efni. Farið var í fiórar húsleitir í
framhaldi af því og fundust efni og
áhöld í þremur húsum. Alls var lagt
hald á 13 grömm af hassi og 6 manns
vora handteknir í tengslum viö mál-
ið. Fimm þeirra eru þekktir hjá fíkni-
efnalögreglunni.
Allt fólkið er laust úr haldi og telj-
astmáhnupplýst. -ból
Fíkniefhalögreglan handtók í
gær tvo karlmenn og lagði hald á
um 2 grömm af amfetamíni.
Fíkniefnið fannst í húsi í Breið-
holti eftir húsleit lögreglunnar.
Mennirnir tveir, sem eru um tvi-
tugt, hafa verið yfirheyrðir og era
lausirúrhaldi.
-ból
Sjávamtvegssamningurinn:
Samþykktur með
einu atkvæði
- eftir að Salóme kaus „rangt“
Sjávarútvegssamningurinn mihi
íslands og Evrópubandalagsins var
samþykktur á Alþingi í gær með 31
atkvæði gegn 30 en tveir þingmenn
voru fiarverandi. Salóme Þorkels-
dóttir, forseti Alþingis, gerði mistök
við atkvæðagreiðsluna, ýtti á hnapp-
inn sem gefur nei, í stað hnappsins
sem segir já. Þeir Eggert Haukdal,
Eyjólfur Konráð Jónsson og Ingi
Björn Albertsson, þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins, greiddu allir at-
kvæði með stjómarandstöðunni.
Salóme mun æfla að láta bóka í
Þingtíðindi að hún hafi gert mistök
við atkvæðagreiðsluna.
Samþykktin þýðir að skip frá lönd-
um Evrópubandalagsins mega veiða
þijú þúsund tonn af karfa í íslenskri
fiskveiðilögsögu og við megum veiða
30 þúsund tonn af loðnukvóta Evr-
ópubandalagsins.
Þegar atkvæði vora greidd um eina
grein samningsins féllu atkvæöi
þannig að já sögðu 32 og nei sögðu
29. Tveir voru fiarverandi. Páh Pét-
ursson sagði að ekkert jafnvægi væri
í samningnum, EB fái að veiða verð-
mætan karfa en við aðeins pappírs-
loðnu. Steingrímur J. Sigfússon tók
undir með Páli og sagði samninginn
vera uppgjafarsamning og með hon-
um væri verið að opna landhelgina
fyrir togaraflota EB. Vilhjálmur Eg-
hsson sagði samninginn vera okkur
hagstæðan en Anna Ólafsdóttir
Bjömsson sagöi samninginn vera
vondan.
Halldór Ásgrímsson sagði samn-
inginn vera gerðan gegn tollalækk-
unum en stefna okkar hafi alltaf ver-
ið sú að láta ekki veiðiheimildir í
skiptum fyrir tollaívilnanir.
-sme