Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1993, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1993, Side 26
34 FIMMTUDAGUR 14. JANÚÁR 1993. Afmæli Jónína K. Michaelsdóttir Jónína K. Michaelsdóttir, er starf- ar við markaðsráðgjöf og ritstörf, til heimilis að Mávahrauni 18, Hafnar- firði, er fimmtug í dag. Starfsferill Jónína fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hún bjó að Gufuskálum við HeUissand 1963-76 er hún flutti í Hafnarfjörð þar sem hún hefur búiðsíðan. Jónína var prófarkalesari hjá Blaðaprenti 1976-77, blaðamaður við Vísi 1977-80, framkvæmdastjóri samtakanna Viðskipti og verslun 1980-83, starfaði við markaðsráðgjöf í Iðnaðarbanka íslands 1983-86 en hefur síðan starfað sjálfstætt við markaðsráðgjöf samhliða ritstörf- um, að fjórtán mánuðum undan- skildum er hún var aðstoðarmaður forsætisráðherra í ríkisstjórn Þor- steins Pálssonar 1987-88. Komið hafa út eftirfarandi bækur eftir Jónínu: Líf mitt og gleði - ævi- minningar Þuríðar Pálsdóttur óperusöngkonu, útg. 1986; Eins manns kona - minningar Tove Eng- Uberts, útg. 1989; Mér leggst eitthvað til - sagan um Sesselju Sigmunds- dóttur og Sólheima, útg. 1990. Jónína var formaður sjálfstæðis- félagsins á Hellissandi 1973-74, formaður Héraðssambands ungra sjálfstæðismanna á Snæfellsnesi 1974-76, sat í skipulagsnefnd Sjálf- stæðisflokksins 1977-79, í út- breiðslunefnd 1979-1)3 og formaður hennar frá 1981 og átti þá sæti í miðstjórn flokksins, var kjörin í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins 1983-85, á sæti í flokksráði Sjálf- stæðisflokksins og var fulltrúi flokksins í stjórn ríkisspítalanna 1983-87. Fjölskylda Jónína giftist 17.11.1961 Sigþóri Jóni Sigurðssyni, f. 24.6.1940, for- stöðumanni Aðgangsþjónustudeild- ar SKYRR. Hann er sonur Sigurðar Kr. Sigurðssonar og Þórunnar Sig- urðardóttur. Börn Jónínu og Sigþórs Jóns eru Michael, f. 25.9.1963, deUdarstjóri útflutningsdeUdar Samskipa en kona hans er Lilja Bragadóttir og eiga þau einn son, Braga, f. 21.1. 1992; Bjöm, f. 10.10.1966, mat- reiðslumeistari, í sambýU með Huldu Katrínu Ólafsdóttur en sonur hans og Birnu Hermannsdóttur er Hermann Ágúst, f. 12.7.1992; Þór- unn, f. 16.10.1969, hagfræðinemi. Alsystkini Jónínu eru Karl Hreið- ar, f. 13.12.1934, sjómaður á Stöðvar- flrði; Laila, f. 13.8.1946, fjármála- stjóri Skyggna Myndverk hf., gift Stefáni Álexanderssyni og eiga þau fjögur börn; Ásta, f. 16.5.1950, full- trúi hjá Launaskrifstofu ríkisins, gift Baldvini Thorarensen og eiga þau þrjú börn; Linda Rós, f. 21.8. 1951, kennari, gift Steingrími Ara Arasyni og eiga þau þrjú böm. Hálfsystkini Jónínu, samfeðra, eru Guðleif, f. 14.12.1934, og Kristinn Kaldal, f. 5.4.1934. Foreldrar Jónínu voru Michael Sigfinnsson, f. 25.3.1913, d. 6.5.1961, leigubílstjóri og sjómaður í Reykja- vík, og Valborg Karlsdóttir, f. 24.9. 1915, d. 9.10.1957, húsmóðir. Ætt Michael var bróðir Hansínu, móð- ur Pálma Gunnarssonar söngvara. Michael var sonur Sigfinns, b. í Rauðholti, Michaelsonar, b. á Hálsi, GeUissonar, söguritara Árnasonar, b. á Hryggstekk, GelUssonar, b. á Mýrum í Skriðdal, Jónssonar, bróð- ur Jóns pamfíls. Móðir Sigfinns var Kristjana Pálsdóttir frá Vopnafirði, systir Guðnýjar, ömmu Sigfúsar Halldórssonar tónskálds. Móðir Michaels leigubílstjóra var Jónina Kristbjörg Einarsdóttir, systir Þor- gerðar, ömmu Álfrúnar Gunnlaugs- dóttur rithöfundar. Móðursystkini Jónínu voru Ingi- björg, gift Birni Knútssyni endur- skoðanda, og Svavar símstöðvar- stjóri, kvæntur Svanhvíti Hávarðs- dóttur. Valborg var dóttir Karls Jó- hannssonar Long, á Seyðisfirði Matthíassonar Long, á Reyöarfirði, bróður Maríu, langömmu Eysteins, fyrrv. ráðherra, og dr. Jakobs sókn- arprests Jónssona. Hálfbróðir Matt- híasar var Þórarinn, afi Ríkarðs myndskera og Finns Ustmálara Jónssona. Matthías var sonur Ric- hards Long, ættfóður íslensku Long-ættarinnar. Móðir Valborgar var Jónína Jens- dóttir Halldórssonar. Móðir Jónínu var Ingibjörg Gísladóttir, b. á Reyð- ará í Lóni, bróður Jóns í Hlíð, lang- afa Björns, fyrrv. rektors MS og : & 9 9 jp n f £ •***<* m * 'í: W* ** Jónína K. Michaelsdóttir. Benedikts í Bolungarvík, föður Ein- ars, framkvæmdastjóra SUdarút- vegsnefndar. Gísli var sonur Mark- úsar, b. á Flugustöðum Jónssonar, og Þóreyjar, systur Antoníusar, lan- gafa Guömundar, afa EgUs, alþing- ismanns á SeljavöUum. Jónína tekur á móti gestum á heimUi sínu miUi kl. 17.00 og 19.00 í kvöld. Ami Haraldur Jóhannsson Arni Haraldur Jóhannsson, deUdar- stjóri hjá Pósti og síma, Aflagranda 18, Reykjavík, er fertugur í dag. Starfsferill Ami fæddist í Reykjavík, ólst þar upp og hefur búið þar aUa tið. Árni varð gagnfræðingur frá Vogaskóla árið 1970. Á sumrin 1967-69 starfaði hann hjá Pósti og síma og hefur síðan starfað þar óslitið frá árinu 1970. Árni hefur sótt ýmis námskeið og skóla á veg- um fyrirtækisins sem tengjast starfi hans. Árið 1986 tók Árni við stöðu deUd- arstjóra reikningagerðar Pósts og síma og starfar við það í dag. Ámi hefur verið félagi í Kiwanis- klúbbnum Kötlu frá árinu 1978, þar af forseti frá 1987 til 1988. Einnig gegndi hann stöðu umdæmisféhirð- is íslenska Kiwanisumdæmisins frá 1988 tU 1989 og hefur verið svæðis- stjóri Eddusvæðis frá 1992. Fjölskylda Ámi kvæntist 30.11.1974 ÞórhöUu K.H. Grétarsdóttur, f. 29.11.1954, verslunarmanni. Hún er dóttir Grétars H. Birgis, fyrmm endur- skoðanda, sem nú er látinn, og Sig- ríðar HaUdórsdóttur bankastarfs- manns. Synir Áma og Þórhöllu eru: Guð- mundur Viðar, f. 21.8.1979, og Sig- urður Jóhann, f. 14.12.1982. Hálfsystir Árna, sammæðra, er Guðrún SólveigGuðmundsdóttir, f. 25.10.1959, húsmóðir, í sambúð með Jónasi Bragasyni og eiga þau Braga ogLilju. Hálfbræður Árna, samfeðra, eru: Bjami, f. 15.1.1958, íþróttafulltrúi Mosfellsbæjar, í sambúð með Ingi- gerði Sæmundsdóttur og eiga þau Bryndísi og Brynju; Gunnbjörn ÓU, f. 13.12.1962, verktaki, búsettur á Reykhólum, í sambúð með Erlu Björk Stefánsdóttur og eiga þau Steinunni Margréti. Fyrir átti Erla Kristjönu Sunnu; Jóhann Guðlaug- ur, f. 31.1.1964, viðskiptafræðingur í Reykjavík, í sambúð með Auði Eddu Jökulsdóttur og á hann Arnar Stein. Foreldrar Áma em Jóhann Ágúst Guðlaugsson, f. 7.8.1930, bifreiða- stjóri í Dalasýslu, og Guðrún Lilja Ámadóttir, f. 6.8.1934, húsmóðir í Reykjavík. Stjúpfaðir Árna frá fjögurra ára aldri er Guðmundur S. Benedikts- son, f. 3.9.1925, verkstjóri. Ætt Jóhann Ágúst er sonur Guölaugs, b. á Kolsstöðum, Magnússonar og k.h., Jóhönnu Einbjargar Magnús- dóttur, b. í Miðvogi í Innri-Akranes- hreppi, Guðjónssonar. Magnús, faðir Guðlaugs, var járn- smiður og b. á Gunnarsstöðum, Magnússonar, b. á Lambastöðum á Mýrum, Björnssonar og k.h. Guð- rúnar Sigurðardóttur frá Hofsstöð- um í Staíholtstungum, Einarssonar. Kona Magnúsar Magnússonar var Ingiríður Kristjánsdóttir, Guð- brandssonar. Guðrún Lilja er dóttir Árna Jóns, húsgagnasmiðameistara frá Köldukinn í Haukadal, Ámasonar. Foreldrar Áma Jóns Árnasonar voru Jón Óh Árnason, b. í Köldu- kinn í Haukadal í Dölum, og k.h„ Lilja Þorvaröardóttir af Leikskála- ætt. Kona Áma Jóns var Guðrún frá Hróðnýjarstöðum í Laxárdal Ein- arsdóttir, Þorkelssonar, ogk.h. Ing- iríðar Hansdóttur. Þorkell var son- ur Einars á Dunki í Hörðudal og síðar á Hróðnýjarstöðum og fyrri k.h. Sigríðar Jónsdóttur. Systir Guðrúnar er Hróðný, ekkja Jóhann- Arni Haraldur Jóhannsson. esar skálds út Kötlum. Ingiríður var dóttir Hans Ólafs- sonar á Gautastöðum í Hörðudal og fyrri konu hans, Salome Sigurðar- dóttur, Jónssonar sem lengst af hef- ur verið kenndur við Tjaldbrekku. Árni verður að heiman á afmælis- daginn. Guðmundína Ingadóttir Guðmundína Ingadóttir, starfsmað- ur Örtölvutækni, Engjaseli 31, Reykjavik, verður fimmtug á morg- un, föstudag. Starfsferill Guðmundína fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í Bústaðahverfinu. Hún hefur alla tíð búið í Reykjavík. Guðmundína hefur lengst af starf- að við verslunarstörf og undanfarin tuttugu ár hefur hún unnið í snyrti- vöruverslunum. í mars á síðasta ári hóf hún svo störf hjá Örtölvutækni í Skeifunni 17 þar sem hún starfar í dag. Fjölskylda Guðmundína giftist 2.3.1963 Sæv- ari Reyni Ingimarssyni, f. 6.6.1942, d. í sjóslysi 1.2.1973, skipstjóra. Hann var sonur Ingimars Bene- diktssonar, fyrrum húsvarðar í gamla Vesturbæjarskólanum, sem nú er látinn, og Sigurlaugar Ingimn- ar Sveinsdóttur, húsmóður á Akur- eyri. Böm Guðmundínu eru: Ingimar Skúli Sævarsson, f. 13.9.1962, sölu- maður, búsettur í Reykjavík, kvæntur Elísábetu Siguijónsdóttur og eiga þau eina dóttur. Fyrir átti Elísabet Sigurjón; Kristín Sævars- dóttir, f. 11.11.1963, sölumaður, bú- sett í Reykjavík, gift Tryggva Krist- inssyni; og Ólafur Reynir Ólafsson, f. 28.12.1976, nemi, býr í foreldra- húsum. Systkini Guðmundínu em: Birna, f. 4.12.1937, matráðskona, búsettí Reykjavík, gift Braga Bjamasyni vélsmið og eiga þau fimm böm; Guðmundur, f. 1.5.1939, verkamað- ur, búsettur í Reykjavík, kvæntur Sigrúnu Pálsdóttur og eiga þau þrjú böm; Gunnar, f. 24.6.1940, d. 1.2. 1973, sjómaður, og eignaðist hann tvö böm; Skúli, f. 24.11.1941, d. 5.3. 1961; Júlíus, f. 15.8.1944, fiskútflytj- andi, búsettur í Hafnarfirði, kvænt- ur Viktoríu Þóm Árnadóttur og eiga þau flögur böm; Bettý, f. 9.12.1945, verslunarmaður, búsett í Garðabæ, gift Valgarði Reinaldssyni og eiga þauþijú böm; Ástríður, f. 30.11. 1948, umsjónarmaður, búsettí Reykjavík, gift Magnúsi Theodórs- syni tölvufræðingi og eiga þau tvö böm; Hulda, f. 29.6.1950, starfsmað- ur á Kleppi, búsett í Reykjavík, gift Sigurbimi Þorleifssyni símamanni og eiga þau fjögur böm; og Sigurð- Guömundína ingadóttir. ur, f. 4.12.1957, sendibílstjóri, bú- settur í Mosfellsbæ, kvæntur Sólr- únu Elínu Rögnvaldsdóttur og eiga þautvöböm. Faðir Guðmundínu var Ingi Guð- mundsson, f. 1.10.1916, d. 30.3.1971, iönverkamaður. Móðir hennar er Gyða Guðmundsdóttir, f. 21.9.1918, húsmóðir. Þau bjuggu í Reykjavík. Guðmundína tekur á móti gestum í Húnabúð, Skeifunni 17, á milh kl. 20 og 22 á afmælisdaginn. Til hamingju með afmælið 14. janúar —---------------------------- ÁslaugKristinsdóttir, OC óra Norðurbyggð9A,Akureyri. **__________________ ÞórðurPálsson, Steinunn Stefánsdóttir, Refsstað I, Vopnafirði. Skammadalshóli, Vík í Mýrdal. Nanna Jónsdóttir, Hringbraut 50, Reykjavík. 80 ára Magnús Guðmundsson, Hamrahhð 23, Vopnafirði. 70ára Vilhjálmur Þorbjörnsson, Njörvasundi 25, Reykjavík. ara Guðbjörg Jóna Sigurðardóttir, Vesturhergi 28, Reykjavik. Guðbjörg Jóna er að heiman á af- mælisdaginn. 50ára Sameh Stefán Issa, Langholtsvegi 184, Reykjavík. Anna F. Leósdóttir, Espilundi 18, Akureyri. Hólmfríður Hólmgrímsdóttir, Brekkuseh 6, Reykjavik. Hörður Þórhallsson, Álfbrekku 2, Fáskrúðsfiröi. Þuríður Hólmgrimsdóttir, Drangavöllum 1, Keflavik. Kristín J. Guðmundsdóttir, Holtsgötu 9, Hafharfirði. Sigurður Bjarni Ásgeirsson, Kársnesbraut21 A, Kópavogi. 40 ára_______________________ Guðný Ólöf Jónsdóttir, Árholti 18, Húsavík. Anna Britta Vilhjálmsdóttir, Útgarði 7, Egilsstöðum. Hulda Jóhannesdóttir, Skógarási 3, Reykjavík. Gunnar Trausti Guðbjömsson, Brekkubyggð 36, Garðabæ. Árni Árnason, Akurgerði 1B, Akureyri. Valur Friðriksson, Holtsgötu31, Sandgerði. Örn Friðriksson, Laugavöhum 15, Egilsstöðum. Gestur G. Sigurbjömsson, Langholtsvegi 103, Reykjavík. Sigfriður Ingibjörg Óladóttir, Fífuseh 16, Reykjavik. Ingunn Vilhjálmsdóttir, Þinghólsbraut59, Kópavogi. Friða Sophia Böðvarsdóttir, Engibjaha 3, Kópavogi. Gunnhildur Ólafsdóttir, Hrauntúni 34, Véstmannaeyjum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.