Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Qupperneq 25
LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1993.
25
Norska lögreglan í vanda við rannsókn á víðtæku nauðgunarmáli:
Sönnunargögn öll
frá ungum bömum
- virðingarverðir borgarar hnepptir í varðhald fyrir samtök um bamanauðganir
Knut Kvidaland, sóknarprestur í Bjugn, hefur fylgst grannt með málinu. Han segir að fólkið í bænum hafi styrk til
að þola það sem nú gengur á þótt illa líti út um tíma.
„Það eina bitastæða í sönnunar-
gögnum lögreglunnar eru upplýs-
ingar sem fengnar eru við yflrheyrsl-
ur á ungum bömum. Rétturinn getur
ekki notað þessi gögn til að halda
fólki í varðhaldi þótt þar með sé ekki
verið að segja að máhð sé tilhæfu-
laust," segir í úrskurði héraðsdóms
í Syðri-Þrændalögum í Noregi þegar
þremur af sex sakbomingum í einu
grófasta nauðgunarmálinu i sögu
landsins var sleppt nú í vikulokin.
Dómararhika við
að taka afstöðu
Dómarar í réttinum era tvístígandi
vegna þess að svo kann að fara að
allt málið reynist á misskilningi
byggt. Taka þarf afstöðu til þess
hvort vitnisburður ungra bama -
allt niður í sjö ára - dugar til að sak-
fella fólk. Lögreglan er ekki í vafa
en dómaramir hika.
Nauðgunarmálið kom upp í smá-
bænum Bjugn í Syðri-Þrændalögum
á síðasta ári. Sakargiftimar era slík-
ar að fólk setur hljótt þegar frá þeim
er greint. Þremur körlum og þremur
konum er gefið að sök að hafa haft
með sér samtök um kynferðislegt
samneyti við böm á bamaheimili
staðarins.
í hópnum era tvær fóstrur, einn
karlkyns starfsmaður barnaheimil-
isins og kona hans. Þá er sagt að
hreppstjórinn hafi verið höfuðpaur-
inn í glæpnum. Lögreglan segist vita
með vissu að 21 bam hafi lent í klóm
fólksins. Sum þeirra vora komin á
skólaaldur en ekkert þó eldra en 14
ára.
Teikningar barnanna
þóttu grunsamlegar
Grunur um að ekki væri allt með
felidu á bamaheimilinu kom upp á
síðasta vori þegar myndir, sem böm-
in teiknuðu, þóttu bera með sér að
þau hefðu orðið fyrir óvenjulegri
reynslu. Þá þegar var hafist handa
við að rannsaka málið og það hefur
verið að vinda upp á sig æ síðan.
Krafa lögreglunnar um gæsluvarð-
hald yfir fólkinu nú í vikunni er öðra
fremur reist á framburði sjö ára
gamailar stúlku sem lýsti því sem
fyrir hana kom við fjögurra tíma yf-
irheyrslu. Saga hennar var tekin upp
á myndband og það lagt fram með
kröfunni um gæsluvarðhald.
Fólkið var allt þegar í stað handtek-
ið en konumar látnar lausar í gær
eftir að héraðsdómur hafði skoðað
máhð gaumgæfilega. Sakboming-
amir segjast allir saklausir og lög-
menn þeirra halda því fram að lög-
reglan sé komin út á mjög hálan ís
þegar framburður bama er látinn
ráða örlögum fólks.
Lögreglan svarar því til að læknar
hafi verið kallaðir til og að þeir hafi
ekki viljað útiloka misnotkun á böm-
unum. Settur sýslumaður í Syðri-
Þrændalögum hefur einnig gefið í
skyn að málið sé alvarlegt því hann
sagði á blaðamannafundi að orðið
„misnotkun" væri mjög væg lýsing
á því sem gerðist.
Nomaveiðar segir
lögmaðurinn
Christian Wiig er lögmaður
mannsins sem vann á bamahemilinu
og konu hans. Lögmaðurinn hefur
verið mjög harðorður í garð yfir-
valda og talar um nomaveiðar og
réttarmorð. Hann segir að málið afit
sé sprottið úr ímyndunum bamanna.
Grunur beindist í upphafi að skjól-
stæðingum hans einum en lögreglan
fann síðar vísbendingar um að fleiri
hefðu verið í vitorði með þeim og
jafnvel ráðið ferðinni.
Lögmaðurinn segir að mikil móð-
ursýki hafi gripið um sig í Bjugn eft-
ir að málið kom upp og að lögreglan
hafi ekki lengur stjóm á gerðum sín-
um. Almenningur kreflist refsinga
án þess að vita hvort framburður
bamanna eigi nokkra stoð í veruleik-
anum. Þetta líkist helst nomaveiðum
og þær hafi nú staðið í tíu mánuði.
Umræddur hreppstjóri segir að um
samsæri gegn honum sé að ræða.
Hann eigi marga óvildarmenn í
hreppnum og þeir hafi ekki fundið
annað ráð betra til að koma honum
úr embættí en að Ijúga upp sökum
um bamanauðganir og ósiðsemi.
Hann hefur því lýst sakleysi sínu.
Lögreglan hefur ekki viljað skýra
nákvæmlega frá því sem gerðist og
ekki hvar meint brot vora framin.
Þetta hefur leitt til þess að ýmsar
getgátur era uppi mn atvik og ýmsar
ærið ósennilegar. Svo rammt kveður
að söguburðinum að sveitarstjómin
hefur látið loka bamaheimilinu og
forða bömunum frá ónæði frá for-
vitnu fólki.
Flokksformaður vill
fara með gát
Og málið heldur ekki aðeins vöku
fýrir Þrændum. Búið er að ræða það
á þingi og Carl I. Hagen, formaður
Framfaraflokksins, hefur krafist
þess að ríkissaksóknara verði falið
að sækja málið enda séu heimamenn
allir of tengdir aðilum málsins til að
geta sinnt þvi af viti.
Hagen hefur lýst því yfir að hættan
á „réttarmorði“ og misbeitineu á
valdi lögreglunnar sé svo mikil að
ekki verið við annað unað en óvil-
hallir menn taki að sér rannsókn og
málsókn.
Bamavemdarsamtök í Noregi hafa
einnig látið máhð til sín taka. For-
maðurinn, Helge Michalsen, segir að
lögreglan geti auðveldlga komist að
því hvort bömin segi satt og rétt frá.
Sé um ímyndanir bamanna að ræða
verði þau fljótt tvísaga.
Hann segir einnig að líkumar á
lygum minnki eftir því sem bömin
era yngri. Fyrir komi að unglingar á
kynþroskaskeiði skáldi upp sögur af
þessu tagi en ung böm geri það ekki
nema í algerum undatekningartil-
vikum.
Helge bendir á að hver svo sem
niðurstaða dómstóla verði á endan-
um þá hafi umrædd böm orðið fyrir
óbætanlegu tjóni. Sé sagan sönn þá
sé ljóst að bömin hafi orðið fyrir
mikilh ógæfu sem muni fylgja þeim
aUa ævi.
Reynist frásögn barnanna ekki á
rökum reist þá er það vissulega mik-
il ógæfa fyrir fólkið sem saklaust
hefur verið sakað um gróf kynferðis-
afbrot. Bömin séu þá líka þolendur
vegna umtalsins sem máÚð hefur
hlotíð - það muni fylgja þeim eins
og skugginn hver sem niðurstaðan
verður.
Ásakanir sem ekki
eiga sérhliðstæðu
Norskir lögmenn segja að Bjugn-
málið eigi sér enga hliðstæðu í
norskri réttarfarssögu. Svo alvarleg-
ar ásakanir hafi aldrei verið bomar
fram á hendur fólki. Öll þjóðin fylg-
ist grannt með tíðindum frá Bjugn
og nafn staðarins er nú á allra vörum
þótt heimamenn kjósi fremur þögn-
ina sem áður var.
-GK
10-30% afsláttur
Nú er tækifærið að fá sér glæsileg
húsgögn á góðu verði
Opið alla daga kl. 10-19
Húsgagnaverslunsemkemuráóvart i
GARÐSHORN 4?
húsgagnadeild
v/FossvogskirkJugarð, sfmar 16541 og 40500