Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1993, Page 5
FÖSTUDAGUR 5. MARS1993
Messur
Árbæjarkirkja: Æskulýðsguðsþjónusta kl.
11. Börn og unglingar annast ritningarlestur
og bænir. Börn úrTTT-starfi kirkjunnarflytja
leikþátt um sögu heimsins. Óskar Ingi Inga-
son guðfræðinemi predikar, sr. Þór Hauks-
son þjónar fyrir altari. Sr. Guðmundur Þor-
steinsson.
Askirkja: Barna- og fjölskylduguðsþjónusta
æskulýðsdagsins kl. 11. Börn úr 10-12 ára
starfi Askirkju sýna helgileik og syngja und-
ir stjórn Hildar Einarsdóttur guðfræðinema
og Bryndísar M. Elídóttur guðfræöinema,
sem flytur predikum. Árni Bergur Sigur-
björnsson.
Ðreiðholtskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Fjölskylduguðsþjónusta á æskulýðsdegi
kirkjunnar kl. 14. Barnakórinn syngur. Org-
anisti Daníel Jónasson. Samkoma „Ungs
fólks með hlutverk". Sr. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja: Barnamessa kl. 11. Æsku-
lýðs- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 14.00.
Sigurður Grétar Sigurðsson æskulýðsleið-
togi predikar. Fermingarbörn aðstoða í
messunni. Organisti Guðni Þ. Guðmunds-
son. Pálmi Matthíasson.
Dirgranesprestakail: Barnasamkoma í Safn-
aðarheimiiinu við Bjarnhólastíg kl. 11.
Guðsþjónusta æskulýðsdagsins í Kópa-
vogskirkju kl. 14. Sr. Þorbergur Kristjánsson.
Dómkirkjan: Messa kl. 11. Herra Jakob Jo-
ensen, biskup í Færeyjum, predikar og þjón-
ar fyrir altari. Tveir karlakórar syngja við
messuna, karlakór frá Þórshöfn í Færeyjum
og Karlakór Reykjavíkur. Barnastarf kl. 11
fellur niður. Æskulýðsguðsþjónusta kl. 14.
Þemað Guð gefur lífinu lit. Úlfur Elcjjárn
menntaskólanemi flytur hugvekju. Prestur
sr. María Ágústsdóttir. Föstumessa kl. 17
við Gregorslag. Altarisganga. Prestur sr.
Hjalti Guðmundsson.
Eliiheimiiið Grund: Guðsþjónusta kl. 10. Sr.
Magnús Gunnarsson.
Eyrarbakkakirkja: Æskulýðsmessa kl. 11.
Fella- og Hólakirkja: Æskulýðsguðsþjónusta
kl. 11. Sr. Hreinn Hjartarson og sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson þjóna fyrir altari.
Sigfús Ingvason flytur hugleiðingu. Barna-
samkoma á sama tíma. Kl. 20.30 guðsþjón-
usta með þátttöku ýmissa trúfélaga. Sr.
Guðmundur Karl Ágústsson predikar, sr.
Hreinn Hjartarson þjónar fyrir altari. Prest-
arnir.
Fríkirkjan í Hafnarfiröi: Barnasamkoma kl.
11. Fjölskvlduguðsþjónuta kl. 14. Organisti
Kristjana Ásgeirsdóttir. Einar Eyjólfsson.
Fríkirkjusöfnuðurinn i Reykjavik: Laugardag
kl. 14.00 flautudeildin í Safnaðarheimilinu.
Sunnudag kl. 11.00 barnaguðsþjónusta.
Guðsþjónusta kl. 14.00. Fermd verður
Hulda Dögg Proppé, Þinghólsbraut 63,
Kópavogi. Organisti Pavel Smid. Cecil Har-
aldsson.
Grafarvogsprestakall: Barnaguðsþjónusta
kl. 11 og guðsþjónusta kl. 14 í Félagsmið-
stöðinni Fjörgyn. Vigfús Þór Árnason.
Grensáskirkja: Barnasamkoma kl. 11.
Barnakór Grensáskirkju syngur, stjórnandi
Margrét Pálmadóttir. Æskulýðsmessa kl. 14.
Helga Ólafsdóttir talar. Prestur sr. Halldór
S. Gröndal. Organisti Árni Arinbjarnarson.
Haligrímskirkja: Fræðslustund kl. 10.00. Sr.
Sigurður Pálsson flytur erindi um Biblíuna.
Fjölskyldumessa kl. 11.00. Félagar úr æsku-
lýðsfélaginu Örk flytja hugvekju. Sr. Karl
Sigurbjörnsson. Aftansöngur með tónlistar-
flutningi kl. 17.00. Æskulýðssamvera kl.
20.30 á vegum ÆSKR.
Háteigskirkja: Morgunmessa kl. 10. Sr.
Tómas Sveinsson. Barnaguðsþjónusta kl.
11. Kirkjubíllinn fer um Hlíðar og Suðurhlíð-
ar á undan og eftir messu. Hámessa kl. 14.
Sr. Arngrímur Jónsson. Samvera á æsku-
lýðsdegi kl. 17.
Hafnarfjarðarkirkja: Guðsþjónusta æsku-
lýðsdag kl. 14. Biskupshjónin herra Ólafur
Skúlason og frú Ebba Sigurðardóttir heim-
sækja söfnuðinn. Biskup predikar.
Hvammstangakirkja: Æskulýðsguðsþjón-
usta kl. 11, undir yfirskriftinni: Guð gefur
lífinu lit. Helgileikur yngri barna.
Hjallasókn: Messusalur Hjallasóknar, Digra-
nesskóla. Æskulýðsguðsþjónusta kl. 11.
Kristján Einar Þorvarðarson.
Kársnesprestakall: Guðsþjónusta æsku-
lýðsdagsins í Kópavogskirkju kl. 11. Organ-
isti Stefán R. Gíslason. Ægir Fr. Sigurgeirs-
son.
Keflavíkurkirkja: Æskulýðsdagurinn. Yfir-
skrift: Guð gefur lífinu lit, fjölbreytileiki lífs-
ins og handleiðsla Guðs. Æskulýðs- og fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. árd. Athugið
breyttan messutíma. Kyrrðar- og bænastund
í kirkjunni á fimmtudögum kl. 17.30. Sókn-
arprestur.
Landakotsspitali: Messa í kapellunni kl.
13.00. Organisti Birgir Ás Guðmundsson.
Sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson.
Landspítalinn: Messa kl. 10.
Langholtskirkja, kirkja Guðbrands biskups:
guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Flóki Krist-
insson. Organisti Jón Stefánsson. Kór Kór-
skólans syngur. Barnastarf á sama tíma.
Laugarneskirkja: Guðsþjónusta kl. 11 á
æskulýðsdegi þjóðkirkjunnar. Sr. Jón Ragn-
arsson predikar. Sr. Jón D. Hróbjartsson
þjónar fyrir altari. Drengjakór Laugarnes-
kirkju syngur. Bjöllusveit Laugarneskirkju
leikur. Organisti Ronald Turner. Barnastarf
á sama tíma. Aðalsafnaðarfundur strax að
lokinni guðsþjónustu.
Neskirkja: Barnasarnkoma kl. 11.00. Munið
kirkjubílinn. Sr. Frank M. Halldórsson.
Guðsþjónusta kl. 14.00. Sr. Sigurður Páls-
son flytur fjórða og síðasta erindi sitt um
Biblíuna að lokinni guðsþjónustu kl. 15.15.
Óháöi söfnuðurinn: Barna- og æskulýðs-
messa kl. 14. Fermingarbörn sjá um ritning-
arlestra og bænir. Safnaóarprestur.
Seljakirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Æskulýðsguðsþjónusta kl. 14. Barnakór
undir stjórn Margrétar Gunnarsdóttur syng-
ur. Organisti Kjartan Sigurjónsson. Guðs-
þjónusta í Seljahlíð laugardag kl. 11. Sókn-
arprestur.
Seitjarnarneskirkja: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Organisti Hákon Leifsson. Prest-
ur sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Barna-
kórinn syngur. Unglingar úr æskulýðsfélag-
inu og börn úr TTT og barnastarfi sýna leik-
þáttinn Samtal um Jesú eftir sr. Hrein Há-
konarson.
Stokkseyrarkirkja: Barnaguðsþjónusta kl.
11.
Vesturhópshólakirlcja: Barnaguðsþjónusta
kl. 14. Sr. Kristján Björnsson.
Um 70 manns taka þátt í sýningunni.
Fjölbrautaskólinn á Akranesi frumsýnir Láttu ekki deigan síga, Guðmundur:
Guðmundur er áhrifa-
gjöm karlremba
- segir Þröstur Guðbjartsson leikstjóri
„Guðmundur er mikil og áhrifa-
gjörn karlremba. Ef hann kynnist
áhugaverðri konu skilur hann við
þá sem hann býr með í það skiptið.
Hann dettur inn í lífsmynstur þeirra
kvenna sem hann býr með hverju
sinni,“ segir Þröstur Guðbjartsson,
leikstjóri hstaklúbbs Fjölbrautaskól-
ans á Akranesi, um aðalpersónu leik-
ritsins Láttu ekki deigan síga, Guð-
mundur sem nemendur þar frum-
sýna í kvöld. Hlín Agnarsdóttir og
Edda Björgvinsdóttir eru höfundar
leikritsins. Þetta er að sögn Þrastar
gamanleikrit með léttum söngatrið-
um. „Það er dúndrandi leikhstará-
hugi í Fjölbrautaskólanum. í fyrra
settum við t.d. upp Blóðbræður við
góðar undirtektir.“ Sýningar hefjast
kl. 20.30 í sal Fjölbrautaskólans á
Akranesi. -em
Stokkseyrarkirkja:
Minningar-
tónieikar um
Pál ísólfsson
Ingibjörg Marteinsdóttir sópran,
Þorgeir J. Andrésson tenór og Lára
S. Rafnsdóttir píanóleikari halda
tónleika í Stokkseyrarkirkju á
sunnudaginn kl. 16. A efnisskránni
verða 22 sönglög og þrjú stutt
píanóverk eftir dr. Pál ísólfsson.
Tónleikamir eru haldnir í tilefni
þess að á þessu ári eru 100 ár liðin
frá fæðingu tónskáldsins. Tónleik-
ar þessir eru hinir fyrstu í röð tón-
leika sem haldnir verða víðs vegar
um land á næstu vikum og mánuð-
um.
Ingibjörg Marteinsdóttir, Þorgeir
J. Andrésson og Lára S. Rafnsdótt-
ir halda tónleika í Stokkseyrar-
kirkju.
Selfoss:
Fílamað-
urinn
frum-
fluttur
Leikritið Fílamaðurinn eftir Bem-
ard Pomerance verður frumsýnt og
frumflutt á íslensku leiksviði í kvöld,
fóstudagskvöld, kl. 20.30 í Leikhús-
inu við Sigtún á Selfossi. AUs koma
um 20 leikarar fram í sýningunni en
að auki koma ýmsir tæknimenn við
sögu og margir velunnarar Leikfé-
lagsins hafa lagt hönd á plóginn.
Leikstjóri er Þórunn Sigurðardóttir
og hönnuður búninga og leikmyndar
er Guðrún Auðunsdóttir.
Saga filamannsins hefur gagntekið og heillaö rithöfunda og leikstjóra um
allan heim.
21
Þjóðleikhúsið
simi 11200
Stóra sviöió
Dansað á haustvöku
föstudag kl. 20
My Fair Lady
laugardag kl. 20
Dýrin í Hálsaskógi
sunnudag kl. 14
Hafið
sunnudag ki. 20
Litla sviðíð
Stund gaupunnar
laugardag kl. 20.30
sunnudag kl. 20.30
Borgarleikhúsið
sími 680680
Stóra sviðið:
Blóðbræður
föstudag kl. 20, laugardag kl. 20
Ronja ræningjadóttir
laugardag kl. 17
sunnudag kl, 17
Nemendaleikhúsið
Lindarbæ
Bensínstöðín
laugardag kl. 20
sunnudag kl. 20
Brúðuleikhúsið
Bannað að hlæja
sunnudag kl. 14og 16. fáarsýning-
ar eftir
íslenska óperan
Sardasfurstynjan
föstudag kl. 20
laugardag kl. 20
Fjölbraut í Breiðholti:
Frumsýning
áleikritinu
Djöflar
Leikfélag Fjölbrautaskólans í
Breiðholti, Aristófanes, frumsýnir í
kvöld, föstudagskvöld, leikritiö
Djöfla eftir Wigel Wiilems. Verkið
fjallar um sex utangarösunglinga og
lifnaðarhætti þeirra. Sýningarnar
veröa sjö talsins í húsi skólans.
Vínartónleik-
ar í íþrótta-
skemmu
Akureyrar
Kammerhljómsveit Akureyrar efn-
ir til vínartónleika í íþróttaskemm-
unni á Akureyri á sunnudaginn kl.
17. undir stjóm Gerrit Schuil. Hljóm-
sveitin verður skipuð 50 hljóðfæra-
leikurum en auk hennar syngur 50
manna kór, Kirkjukór Dalvíkur með
stuðningi söngfólks úr nágrenni Dal-
víkur veröur með á tónleikunum.
Einsöngvarar á tónleikunum verða
þau Ólöf Kolbrún Harðardóttir sópr-
an og Jón Þorsteinsson tenór.
Kjarvalsstaðir:
Nútímatón-
skáld kynnt
Hilmar Þórðarsson nútímatón-
skáld verður kynntur á sunnudagirin
að Kjarvalsstöðum. Hilmar er fædd-
ur á Akureyri og nam trompetleik,
tónfræði og tónsmíðar 1968-1985 við
tónlistarskólana í kópavogi og
Reykjavík en hélt að því loknu til
Bandaríkjanna þar sem hann hefur
dvalið síðan. Signin Hjálmtýsdóttir
og Anna Guðný Guðmundsdóttir
munu frumflytja verkið Samkennd á
tónleikunum.