Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1993, Side 6
Madonna fær hér útrás fyrir kynlífspælingar sinar og er myndin Losti, sem
sýnd er í Bióhöllinni, keimlík Ógnareðli með Sharon Stone.
Sýningar á kvikmyndinni Elskhuganum standa nú yfir í Háskólabíói. Afar
heitar ástarsenur hafa orðið tilefni deilna en í aðalhlutverkum eru þau
Jane March og Tony Leung.
Margir hafa farið í Stjörnubíó til þess að sjá mynd Coppola, Dracula. Sadie Frost leikur hér Lucy Westenra, eitt
fómarlamba Dracula. Blóðsugubaninn Anthony Hopkins er einnig að störfum.
Götumorð
Rithöfundur er
drepinn úti á
götu, morðinginn
fremur síðan
sjáifsmorð.
Þannig byrjar
ágæt sakamála-
mynd, The Heart
of Justice. Alhr
frn-ða sig á morð-
inu. Blaðamaður-
inn David Leader
(Eric Stolz) fær þaö verk að upplýsa
tildrögin að morðinu. Honum verður
töluvert ágengt, sérstaklega með því
að hlusta á segulbandsspólur sem
morðinginn tók upp, án þess þó að vita
að hann flækist um leið í vef sem
spunnið er utan um hann. Söguþráð-
urinn er kunnuglegur og uppbygging
efnisins einnig en allt er hér leyst af
hendi eins og best verður á kosið. Það
er helst að Eric Stolz sé slakur, að öðru
leyti er myndin góð skemmtun.
THE HEART OF JUSTICE - Háskólabfó.
★★ Vx
Leikstjóri: Bruno Barreto. Aöalhlutverk eric
Rómantík í stríði
Shining Thro-
ugh hefur þannig
yfirbragð að orð-
iðstórmyndkem-
ur fyrst upp í
huga manns.
Myndin er löng
og mikil um sig,
gerist á örlaga-
tímum og segir
sögu um njósnir
og ástir., Michael
Douglas og Melanie Griffith leika tvo
njósnara sem takast á viö nasista hvort
á sinn hátt. Þau fella hugi saman en
eru aðskilin og hittast síðan í lokin.
Klassískur róman. Söguþráðurinn
minnir mest á rómantík fyrri ára í
kvikmyndum. Gaflinn er bara að
tímamir hafa breyst og Shining Thro-
ugh er, þrátt fyrir að margt sé vel gert,
ekki í takt við tímann. Það er eins og
leikaramir geri sér grein fyrir þessu,
flestir hefa gert betur áður. Michael
Douglas er verstur, minnir helst á
freðna ýsu.
SHINING THROUGH - SAM-myndbönd.
Lelkst|órl: Davld Seltzer. Aóalhlutverk: Mlc-
hael Douglas og Melanie Grlffith.
í leit að betra lífi
Goldie Hawn hefur ávallt tekist
best upp í gamanmyndum enda
er hún meðal bestu gamanleik-
kvenna í bandarískum kvik-
myndum. í Criss Cross leikur
hún dramatískt hlutverk Tracy
Cross, einstæðrar móður sem
rembist við að gera líf sitt og son-
ar síns bærilegt og sýnir Hawn
ágætan leik þótt glaðlegt andlit
hennar vinni aðeins gegn henni.
Sögusviðið er Key West á
Flórída árið 1969 og gerast at-
burðimir í skugga þess heimsat-
burðar þegar fyrstu geimfararnir
stigu fæti á tunglið. Aðalpersóna
myndarinnar er sonur Tracy,
Chris, sem minnist betri daga
þegar faðir þeirra bjó hjá þeim.
Allt breyttist með Víetnamstríð-
inu. Faðirinn, sem var flugmaö-
ur, kom rekald heim, fór að
drekka og yfirgaf síðan íjölskyld-
una þegar hann frelsaðist og sett-
ist aö í klaustri.
Chris heldur í þá trú að faðir
hans komi aftur og þá batni allt.
Á meðan reynir Tracy að ná end-
um saman með því að vinna á
kvöldin sem nektardansmær.
Þegar Chris kemst að þessu strýk-
ur hann og leitar uppi föður sinn
en finnur litla hjálp hjá honum.
Chris er staðráðinn í að fá móður
sína til að hætta nektardansinum
og þegar hann eygir óvænt tæki-
færi til að selja eiturlyf tekur hann
áhættima en lendir um leið í lög-
regluaðgerð sem beint er gegn eit-
urlyflasölum á svæðinu.
Þrátt fyrir að atburðimir í Criss
Cross séu dramatískir er myndin
langt frá að vera þung. Margar
persónur eru vel gerðar og
skemmtilegar og krakkamir
kunna að bregöa á leik. í
skemmtilegu umhverfi næst líka
tíðarandi hippakynslóöarinnar
auk þess sem áhorfandinn er
reglulega minntur á þróunina í
geimferðum.
David Amott heitir pilturinn
sem leikur Chris og þótt hlut-
verkið sé stundum á mörkum
þess að vera raunsætt sýnir hann
góðan leik og er samleikur Goldie
Hawn og Arnott með miklum
ágætum. Criss Cross er hugljúf
mynd sem engum ætti að leiðast
yfir.
CRISS CROSS
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri Chris Menges.
Aðalhlutverk: Goldie hawn, Arliss
Howard og David Arnott.
Bandarisk, 1992 - sýningartími 97
mín.
Leyfð öilum aldurshópum.
DV-myndbandalistiiin
2 (3) Beethoven
Poison ivy
9 (14) My Cousín Vinnie
13 (11) Live Wire
Lethal Weapon 3 situr sem fastast á toppnum þessa vikuna. Á
myndinnl eru aöalleikaramir Danny Glover, Joe Pesci og Mel
Glbson, en þess má geta a6 Joe Pesci leikur i þremur myndum
á listanum, Lethal Weapon 3, My Cousln Vlnnle og The Super.
Hatur á körlum
Fjöldamorð-
ingjar eru nánast
eingöngu karl-
menn. Undan-
tekning er til og
segir Overkill
sögu Aileen Wu-
ornos sem var
vændiskona og
fjöldamoröingi.
Hún náði sér í
karlmenn á þjóð-
vegum og sumir þeirra, sem voru svo
ólánssamir að velja hana, sáu ekki
dagsbirtuna aftur. I myndinni er bæði
fylgst með Aiieen og einnig leit lögregl-
unnar aö íjöldamorðingjanum, en það
tók lögregluna tíma að átta sig á því
að morðinginn var kona. Einnig er í
nokkrum atriðum skyggnst inn í ævi
Aileen og það verður að segjast eins
og er að það er skiljaniegt að hún
skyldi fá hatur á karlmönnum. Jean
Smart er frábær í hlutverki Aileen og
á sinn þátt í að lyfta Overkill vel upp
yflr meðalalag.
OVERKILL - Útgefandi: Háskólabíó.
Aðalhlutverk: Jean Smart.
Hættuleg kynni
Blind Judge-
ment minnir að
mörgu leyti á
Fatal Attraction
en er ekki jafn-
sterk mynd. Pet-
er Coyote leikur
lögfræðinginn
Magmere, sem
tekur að sér að
veija Melanie
Evans, sem sver
að hún sé saklaus af að hafa myrt eig-
inmann sinn og er hún sýknuð. Sam-
skiptum þeirra er þó alls ekki lokið af
hennar hálfu og hún telur að Maguiere
sé henni ætlaður og heimsækir hann
í tíma og ótíma, eiginkonu hans til
ama. Eftir því sem Magmere verður
Melanie meira fráhverfur verður hún
hættulegri. Það er fátt sem kemur á
óvart en handritið er vel skrifað og
Leshe Ann Warren leikur Melanie af
miklum sannfæringarkrafti.
BLIND JUDGEMENT - Útgefandi: Skifan.
Lelkstjóri: George Kaczender. Aóalhlutverk:
Leslle Ann Warren og Peter Coyote.
Bandarísk, 1991 - sýningartimi 92 mfn.