Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1993, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1993, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 8. MARS 1993 Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÚNSSON Fréttastjóri: JÖNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91)63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SÍMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Veruleikafirrtir foringjar Formenn Kennarasambands íslands og Bandalags opinberra starfsmanna hafa borið sig mannalega eftir að úrslit í atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun þessara samtaka lágu fyrir. Formennirnir hafa að vísu látið í ljós vonbrigði en það er alls ekki að heyra að þeir vilji viðurkenna ósigur sinn. Þeir neita að játa mistök sín. Þeir vísa því á bug að úrslitin hafi verið vantraust á forystuna. Þegar meirihluti kennara og opinberra starfsmanna felhr það í atkvæðagreiðslu að boða til verkfalls eru það meiri háttar tíðindi. Forysta stéttarsamtaka þessa launafólks hefur haldið uppi gegndarlausum áróðri um nauðsyn verkfallsvopnsins. Allir þeir sem hafa and- mælt hafa fengið kaldar kveðjur. Og öllum mátti ljóst vera að ef verkfallsboðun yrði hafnað væri samnings- staða KÍ og BSRB gjöreyðilögð. Á þetta lögðu forystu- mennimir mikla áherslu og það var rétt hjá þeim. En samt. Samt ákvað meirihlutinn að vísa verkfallinu á bug. Og meirihlutinn hefði áreiðanlega orðið miklum mun stærri nema fyrir þá sök að í báðum þessum félög- um er eflaust stór hópur fólks sem fylgir forystunni af tryggð og af því að það taldi sem rétt er að samningsstað- an væri töpuð ef menn, nauðugir viljugir, fylgdu ekki foringjunum út á foraðið. Formenn KÍ og BSRB fullyrða að úrsht atkvæða- greiðslunnar hafi ekki verið höfnun á sjálfum kröfun- um. Um það má deha. Auðvitað vilja þessar stéttir fá betri kjör en engu að síður verður mjög að draga í efa að krafan um endurheimtan kaupmátt frá því að þjóðar- sátt var gerð hafi hljómgrunn. Og þá er ekki síður vafa- samt að kennarar og opinberir starfsmenn séu sáttir við rökstuðning og málflutning formannanna fyrir kröf- unum. Þegar verkfallsboðun er hafnað er ekki aðeins verið að hafna verkfahi heldur er líka verið að lýsa óánægju með vinnubrögðin og forystumennina sem fyrir þeim standa - og kröfugerðina, ef hún er úr takti. Fólk hefur ekki trú á að kröfurnar séu tímabærar eða taktvissar. Það sem lesa má út úr niðurstöðum atkvæðagreiðsl- unnar er einfaldlega sú ályktun að kennarar og opinber- ir starfsmenn meti það mest að hafa trygga vinnu og vhji þreyja þorrann og góuna án þess að tefla á tvær hættur. Þetta áht meirihlutans hefur mátt vita fyrirfram. Foringi, sem er í jarðsambandi, hefði haft tilfinningu fyrir þessu hugarfari og beðið með að láta skerast í odda. í stað þess er rokið til með dramatískum yfirlýs- ingum og skírskotað th samstöðu, sem ahs ekki var fyrir hendi, með þeim afleiðingum fyrir viðkomandi stéttarfélög að þau standa nánast vopnlaus eftir. Því hefur verið haldið fram að forysta KÍ og BSRB sé veruleikafirrt. Því miður virðist sú fuhyrðing ekki út í hött. Úrslit atkvæðagreiðslunnar sýna að forystan er firrt þeim tengslum við félagsmenn sína sem nauðsyn- leg verða að teljast og er með málathbúnað sem gengur þvert á meirihlutavhja umbjóðenda hennar. Þrátt fyrir aht þetta neita forystumennirnir að skhja skilaboðin. Þeir virðast lítið hafa lært. Við skulum að- eins vona að þeir verði ekki th þess að koma í veg fyrir að einir eða aðrir samningar náist fram. Lægst launaða fólkið í þessum félögum sem öðrum í landinu þarf á kjarabótum að halda hvað sem líður og þrátt fyrir sein- heppna og veruleikafirrta forystu í stéttarsamtökum þess. Ehert B. Schram „Stjómvöld í öllum EFTA-ríkjunum, að íslandi undanskildu, stefna á aðild að EB,“ segir i greininni. - Höfuð- stöðvar Fríverslunarsambandsins í Genf. ísland og EB Ákvarðanir um tengsl íslands við Evrópubandalagið eru eitt mik- ilvægasta verkefni þjóðarinnar þessi misserin. Alþingi hefur sam- þykkt samninginn um EES eins og hann lá fyrir áður en Svisslending- ar felldu hann í þjóðaratkvæöa- greiðslu. Alþingi á svo væntanlega eftir að íjalla um tæknilegar breyt- ingar á samningnum fyrir vorið. Tengsl íslands við EB verða áfram viðfangsefni, hvort heldur EES-samningurinn kemst í gagnið eða ekki. Önnur EFTA-ríki eru í viðræðum um aðild að EB og óhjá- kvæmilega breytist þá staða ís- lands. Því ráðum við ekki sjálf hvort tengsl okkar við EB verða á dagskrá eða ekki. Stjómvöld í öllum EFTA-ríkjun- um, að íslandi undanskildu, stefna á aðild að EB. Sama gera þjóðimar sem fyirum vom austan jámtjalds- ins, aö Rússlandi e.t.v. undan- skildu. Sama gera smáríkin í Mið- jarðarhafi, auk Tyrklands. í raun er ísland eina landið í Evrópu þar sem umræður um aðild að EB hafa ekki komist í dagskrá hjá stjórn- völdum. Hvort skyldi þetta nú vekja upp stærri spumingar um aðrar þjóðir eða um okkur? Af hverju skyldu t.d. hin nýfrjálsu smáríki við Eystrasalt vilja ganga í EB og þar með afsala sér að hluta til nýfengnu fullveldi? Raunverulegt fullveldi Fullveldishugtakið breytist óhjá- kvæmilega með sívaxandi utan- ríkisviðskiptum og aukinni þýð- ingu alþjóðlegra leikreglna í við- skiptum og almennum samskipt- um ríkja. Hið raunverulega full- KjaJIariim Vilhjálmur Egilsson, alþingismaður og framkvæmdastjóri Verslunarráðs íslands veldi hverrar einstakrar þjóðar getur verið að minnka þótt hið lög- formlega fuilveldi sé til staðar. Lögformlega fullvalda þjóð getur staöið algjörlega vamarlaus gagn- vart ákvörðunum sem aörir taka og hún á enga aðild að. Því hafa EB-þjóðimar gert með sér sáttmála um gagnkvæm réttindi og skyldur. Þær taka allar þátt í að móta sam- eiginlegar leikreglur. Saman geta þær styrkt raunverulegt fullveldi með því að hver þeirra um sig af- sali sér hluta af hinu lögformlega fullveldi til sameiginlegra stofn- ana. ÖU þessi mál þurfum við að kynna okkur og ræða eins og aðrar Evrópuþjóðir. Það er blind trú á eigin óskeikulleik að afskrifa allt það sem er að gerast í kringum okkur. Það er ábyrgðarleysi að halda því fram að aðild að EB komi undir engum kringumstæðum til greina. EB ekki paradís EB er að sjálfsögðu mannleg smíð eins og önnur mannanna verk. Umsókn um aðild að EB er ekki umsókn um vist í paradís heldur í samfélagi fólks sem berst fyrir hagsmunum sínum eins og við. Þess vegna eru ótal tálmar á veg- inum fyrir aðild íslands að EB sem mjög erfitt er að yfirstíga, t.d. sam- eiginleg fiskveiðistefna og sameig- inleg landbúnaöarstefna. En hvaö segir málshátturinn? „Það flskast ekki nema róið sé.“ Vilhjálmur Egilsson „Lögformlega fullvalda þjóð getur stað- ið algjörlega vamarlaus gagnvart ákvörðunum sem aðrir taka og hún á enga aðild að. Því hafa EB-þjóðimar gert með sér sáttmála um gagnkvæm réttindi og skyldur.“ Skoðanir annarra Eiga að hnakkríf ast „Vísindamenn mega og eiga að hnakkrífast í fag- ritum og á ráöstefnum um vísindi. Þegar mannslíf eða miklir hagsmunir eru í húfi eiga þeir að tala einum rómi í umsögn til stjómvalda. Abyrgðarlausar vangaveltur í fjölmiðlum skaða málstaö vísindanna og veikja traust almennings á vísindalegum vinnu- brögöum. Stjómvöld verða aö skilja að vísindaleg umsögn er ætíð umsögn um líkur. Þeim mun betri verður umsögnin ef hún er studd ríkulegum mæling- Um,“ Gunnar E. Sigvaldason, Mbl. 5. mars. Erf iðleikar banka „Erfiðleikar banka á Norðurlöndum stafa ekki af eignarhaldinu heldur fyrst og fremst af þrenging- um í efnahagsmálum og ógætilegri útlánastefnu. Eg tel einmitt að það sé meiri hætta á að ríkisbanki sýni óvarkámi í útlánum sínum en einkabanki sem býr við aöhald frá hluthöfunum. Útvegsbankamálið sýndi einmitt þetta. Einnig tel ég að einkabankar bregðist fyrr við versnandi atkomu en ríkisbankar með aðhaldi í rekstri og öðram aðgerðum.“ Jón Sigurðsson í Alþb. 5. mars. Þróunaraðstoð „Ef rétt er að málum staöið, er í lófa lagið að leggja stund á blómleg útflutningsviðskipti samhliða þróunaraðstoð, eins og dafmin sýna hjá öðrum þjóð- um, einkum og sér í lagi Noregi, Svíþjóð og Dan- mörku, sanna. Þess sé vandlega gætt, að íslensk framleiðsla á tækjum, búnaöi og hugviti verði sett í öndvegi með öllum þeim verkefnum sem kostuð væra af íslensku þjóðinni... Vinda ætti bráðan bug að því að Þróunarsamvinnustofnun íslands verði lögð niður og jafnframt settur þrýstingur á núver- andi forystumenn þessara mála svo þeir hjassist upp úr gömlu hjólfóranum." Birgir Hermannsson í Mbl. 5. mars.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.